Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1994, Síða 6
6
LAUGARDACÍÚR 19. MARS 1994
Stuttar fréttir
Utlönd
Á móti kvenbiskupum
Annar hver prestur í Syíþjóð
er andvígur því að konur verði
gerðar að biskupum.
Áláuppleið
Álverð hefur ekki verið hærra
í tuttugu mánuði og er verðið 30
prósentum hærra en í nóvemher.
Eyðiðefnavopnunum
William
Perry, vamar-
málaráöherra
Bandaríkj-
anna, hvatti
Rússa í gær til
að eyða efna-
vopnum sínum
og bauð fram
aðstoð bandarískra sérfræðinga
við verkiö.
Sænskt þjóðaratkvæði
Svíar efna til þjóðaratkvæða-
greiðslu um aðild að Evrópusam-
bandinu 13. nóvember.
Embættifyrirsoninn
Sonur Kim Il-sung, leiðtoga
Norður-Kóeru, hefur verið gerð-
ur að sendiherra í Finnlandi.
Uftækni í vexti
Reiknaö er með að markaöur
fyrir liftæknivörur stækki
fimmtánfalt til aldamóta.
Dorgveiðimanna saknað
Pjörutíu rússneskr'a dorgveiði-
manna er saknaö eftir að þá rak
á haf út á ísjökum i Eystrasalti.
Samar óhressir með ESB
Þing Sama í Noregi er óhresst
með samninginn milli Noregs og
Evrópusambandsins.
Kónguráleiðarenda
Konungur súlúmanna í Suður-
Afríku segir að lengra verði ekki
gengiö í samningaviðræðum við
stjómvöld.
Fleirihermenn
John Major,
forsætisráð-
herra Bret-
lands, er í Bos-
níu og hvatti
aðrar þjóðir til
að fara að
dæmi Breta og
senda þangaö
fleiri hermenn til friðargæslu.
Fergiehelduríkallinn
Sara Fcrguson, Fergie, lét að
því liggja í gær að hún ætlaöi
ekki að sækja um lögskilnað frá
Andrési prinsi.
Dregur úr atvinnuleysi
Heldur dró úr atvinnuleysi i
Finnlandi i febrúar.
ltcuter, TT, FNH
Erlendar kauphallir:
Fall í Hong Kong
Verð á hlutabréfum í Hong Kong
hefur lækkað nokkuð síðustu daga.
Hang Seng-vísitalan hefur lækkað
um 6% á einni viku. Ástæðan fyrir
þessum lækkunum er einkum spá-
kaupmennska. í gær var vísitalan
enn að lækka.
Frá Hong Kong til Tokyo. Þar náði
Nikkei-hlutabréfavísitalan sögulegu
hámarki tvisvar sinnum í þessari
viku, fyrst á mánudag og síðan á
miðvikudag. Frá miðvikudegi hefur
talan lækkað lítillega en áfram er
spáð líflegum hlutabréfaviðskiptum
í Japan.
Flestar aðrar hlutabréfavísitölur á
meöfylgjandi grafi hafa sveiflast upp
og niður undanfarna viku. Afkomu-
tölur stórfyrirtækja hafa haft mikil
áhrif á tölur eins og Dow Jones í New
York og FT-§E 100 í London.
-bjb/Reuter
Múslímar og Króatar í Bosníu stofna sambandsríki:
Vandaverkið að
sætlast er haf ið
„Við höfum komið hingað til að
verða vitni að augnabliki vonar. í 33
mánuði hafa stríðseldarnir farið um
þjóðir fyrrum Júgóslavíu. Með und-
irritun sinni á þessum samningum í
dag hafa leiðtogar Bosníu og Króatíu
ráðist gegn eldum þessum og byrjað
það vandaverk að sættast á ný,“
sagði Bill Clinton Bandaríkjaforseti
í gær, skömmu áður en leiðtogar
múslíma og Króata í Bosníu undirrit-
uðu samkomulag um myndun sam-
bandsríks þjóðanna og um tengsl
þess við Króatíu í Hvíta húsinu.
Samkvæmt samningnum er þegar
ý stað gengiö til stofnunar sambands-
ríkis þjóðarbrotanna tveggja á þeim
þrjátíu prósentum lands í Bosníu
sem Serbar hafa ekki lagt undir sig.
Chnton sagði að samkomulag þetta
myndi ekki tryggja fullan frið á
svæðinu á meðan Bosníu-Serbar
væru ekki með en þeir hafa á að
skipa langöflugasta herliðinu. En
hann sagðist vona að þetta yrði
fyrsta stóra skrefið í átt til friðar.
Momcilo Krajisnik, forseti sjálf-
skipaðs þings Bosníu-Serba, sagði að
sambandsríki múslíma og Króata
væri „óskapnaður“ sem væri dæmd-
ur til að mistakast.
Reuter
Leiðtogar múslíma og Króata i Bosniu undirrita samkomulag um stofnun sambandsríkis í Hvita húsinu undir árvök-
ulum augum þriggja forseta. Símamynd Reuter
Marita Petersen, lögmaður Færeyja, 1 vanda:
Sjómenn hóta nýju verkfalli
verði kauptrygging lækkuð
Marita Petersen, lögmaður Fær-
eyja, er engu nær því að fmna lausn
á þeirri kröfu dönsku ríkisstjórnar-
innar um að lækka kauptryggingu
færeyskra sjómanna. Það er skilyrð-
ið fyrir því að Danir endurfjármagni
erlendar skuldir Færeyja.
Stjórn jöfnunarsjóðsins, sem hefur
umsjón með kauptryggingarmálun-
um, tilkynnti á fimmtudag að hún
myndi ekki fylgja tilmælum fær-
eysku landsstjórnarinnar um að
breyta útborgunar-
reglunum.
Lögmaðurinn
hefur tilkynnt Poul
Nyrup Rasmussen,
forsætisráðherra
Danmerkur, að
kauptryggingin
verði lækkuð og
með því eigi að
spara sem svarar sjötíu milljónum
íslenskra króna.
Formaður sjómannasamtakanna
stendur enn fast á því að breyti
stjómvöld svo mikið sem einni
kommu í reglunum muni nýlokið
togaraverkfall verða leyst af hólmi
með enn víðtækara verkfalli sem
muni lama allan fiskiskipaflota eyj-
anna. Útgerðarmenn hafa samtímis
tilkynnt að þeir styðji kauptrygging-
una eins og hún er nú og meirihluti
fyrir breytingu er heldur ekki fyrir
hendi á Lögþinginu.
Þá er umdeilt hvort færeyska
landsstjórnin hefur heimild til að
breyta kauptryggingunni með reglu-
gerð eins og lögmaðurinn heldur
fram. Rítzau
Hlutabréfavísitölur í kauphöllum
4000 Æj\ 3600
3900
3800lf Vr 3700 DowJones 3600 3300 Ik.
SZi>'J FT-SE100
D J F M D J F M
2300(
.2200
llpioo
jlpooo
1900’
Dax-30
2400
2350
2300*/'
2250 V
2200
2150
2100
■>050
■■ 0 J
420 400 380 360 340
/ Bouree
D J F M
14000
12000,
' 10001
||8000
6000
4000
2000
Hang Seng
lllft.600
1550
1500
1450
1400
1360,
1300
,1250
D J
DV
Gonzalezhvetur
til baráttu gegn
atvinnuleysinu
Felipe Gon-
zalez, forsætis-
ráöherra Spán-
ar, hvatti sam-
flokksmenn
sína í sósíal-
istatlokknum í
gær til að sam-
einast í barátt-
unni gegn atvinnuleysinu og
stuðla að samkeppnishæfi
spænskra fyrirtækja. Slíkt væri
nauðsynlegt fyrir framtíð vel-
ferðarrikisins.
Grænlendingar
viljalíkavitaum
B-52 véíina
Johan Lund Olsen, þingmaður
á Grænlandi, segir að Grænlend-
ingar eigi fullan rétt á að vita
hvað gerðist í janúar 1968 þegar
bandarísk sprengjuvél af gerð-
inni B-52 hrapaði til jarðar við
herstööina í Thule. Um borð í
ílugvélinm voru m.a. vetnis-
sprengjur.
Danska ríkisstjórnin hefur far-
ið þess á leit viö bandarísk stjórn-
vold 'að fá leyfi til að gera opm-
bert það sem geröist við flugslys-
ið.
„Ég tel það vera jákvætt að
danska stjórnin gerir loks eitt-
hvað í málinu. Og ég tel að land-
stjómin eigi aö biðja Dani um að
fá öll gögn í málinu," sagðí Olsen.
Nokkrir veiðimenn frá Thule
tóku þátt í hreínsun á slysstað
og eru sumir látnir en aðrir hafa
þjáðst af sömu sjúkdómum og
danskir starfsmenn við herstöð-
ina sem voru með í hreinsuninni.
Noregurog ESB
ösammála um
Smuguveiðar
Norðmenn og Evrópusamband-
ið eru ekki sammála um hvemig
veiðum á alþjóðlegum hafsvæð-
um, eins og Smugunni í Barents-
hafi, skuh háttað, að því er
norska útvarpið í Tromsö sagði í
gær.
Norðmenn vilja að settar verðí
alþjóölegar kvótareglur og aörar
takmarkanir á veiðar þessar og
eru veiðar íslendinga og annai'ra
í Smugunni ástæðan fyrir því.
Evrópnsambandið er andvígt
slíkum reglum þar sem þær muni
draga úr veiðum fiskiskipaflota
ESB-landanna sem þegar er allt
of stór til að hafa nóg fyrir sig á
fiskimiðum heimafyrir.
Reynt verður að gera út um
þessi mál á ráðstefnu sem haldin
verður í New York á vegum Sam-
einuðu þjóðanna.
Pavarottifékk
kvefogfrestaði
tónleikunum
ítalski óperu-
söngvarirm
Luciano Pavar-
otti frestaöi
tónleikum sein
hann átti að
halda í Manila
á Filippseyjum
i gærkvöldi.
Kappinn fékk kvef og sagði að
rödd sín væri ekki einsfullkomin
og skvldi fyrir vikiö.
Tónleikunum var frestað tæpri
klukkustund áður en þeir áttu að
heflast og var þá margt af finasta
fólki Manila komið í biöröð fyrir
utan tónleikasalinn, þar á meðal
Imelda Marcos, fyrrum forseta-
írú.
Reuter, NTB