Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1994, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1994, Side 12
12 LAUGARDAGUR 19. MARS 1994 Erlend bóksjá Metsölukiljur Bretland Skáldsögur: 1. Thomas Keneally: Schindler's Ust. 2. George Eliot: Míddlemarch. 3. Vikram Seth: A Suitable Boy. 4. Joanna Trollope: The Rector's Wife. 5. Catherine Cookson: The Year of the Virgins. 6. John Grisham: The Pelican Brief. 7. Terry Pratchett: Johnny and the Dead. 8. Kazuo Ishiguro: The Remains of the Day. 9. Elizabeth George: Missing Joseph. 10. Colin Forbes: By Stealth. Rit almenns eðlis: 1. Jung Chang: Wíld Swans. 2. Alan Clark: Diaries. 3. Brian Keenan: An Evil Cradling. 4. Gerry Conlon: Proved Innocent. 5. Nick Hornby: Fever Pitch. 6. Duncan Campbell: The Underworld. 7. James Herríot: Every Living Thing. 8. Stephen Fry: Paperweight. 9. Nancy Friday: Women on Top. 10. David Yallop: To the Ends of the Earth. (Byggt á The Sunday Tlmes) Danmörk Skáldsögur: 1. Peter Hoeg: Froken Smillas fornemmelse for sne. 2. Mary Wesley: En tvivlsom affære. 3. James Ellroy: Sorte Dahlia. 4. Robert Goddard: Fra biltede til billede. 5. Laura Esquivel: Hjerter i chili. 6. Peter Hoeg: Forestillíng om det 20. árhundrede. 7. Peter Hoeg: Fortællinger om natten. (Byggt á Politiken Sondag) Hver er bestur Hver er besti núlifandi skáldsagna- höfundur sem ritar á enska tungu? Þannig spuröi breska vikublaðið Sunday Times ríflega þrjá tugi bresk- ra rithöfunda. Tilefnið var m.a. að kunnir risar í enskri skáldsagnagerð - Graham Greene, William Golding og Athony Burgess - eru nú allir. Svör rithöfundanna voru birt um síðustu helgi og eru hin athyglisverð- ustu. Það er til dæmis merkilegt, og segir nokkuð um stöðu skáldsagna- gerðar í Bretlandi, að þeir höfundar sem oftast eru nefndir í þessari óformlegu könnun eru alls ekki Umsjón Elías Snæland Jónsson breskir heldur bandarískir. Þannig tróna tveir Bandaríkjamenn á topp- inum. í heild eru átján sagnaskáld nefnd til sögunnar og er helmingur þeirra bandarískur. Flestir nefndu Saul Bellow Sigurvegari í þessari óformlegu kosningu er bandaríska nóbelsskáld- ið Saul Bellow. Hann var nefndur af tíu þeirra sem tóku þátt í könnun- inni. Bellow, sem fæddist árið 1915, hef- ur samið fjölda skáldsagna. Merkast- ar þeirra eru fyrsta langa saga hans, The Adventures of Augie March, frá árinu 1953, Herzog (1964), The Dean’s December (1982) og Humboldt’s Gift (1975). Svarendur blaðsins víkja að því sérstaklega að Bellow sé í senn fynd- inn og heimspekilegur höfundur. Einn þeirra, Salman Rushdie, hælir Þrjú á toppnum: Saul Bellow fyrir miðju, John Updike og Muriel Spark. sérstaklega sögunni um Augie March og segir að hún sé „hin mikla ameríska skáldsaga" ef slíkt fyrir- brigði sé þá yfirleitt til. Aðrir telja Humboldt’s Gift mesta snilldarverk Bellows. JohnUpdike í öðru sæti Bandaríski skáldsagnahöfundur- inn John Updike lenti í öðru sæti í könnuninni - var nefndur átta sinn- um. Hann er yngri en Bellow, fæddur 1932, og hefur reyndar lengi staðið í skugga þessa kollega síns. Þeir sem gefa Updike atkvæði sitt vísa yfirleitt til snjallasta verks hans, skáldasagnaraöarinnar um Harry „kanínu" Angstrom. Kanínusögurn- ar, eins og þær eru nefndar - Rabbit Run (1960), Rabbit Redux (1971), Rabbit Is Rich (1981) og Rabbit at Rest (1990) - eru ekki aðeins forvitni- leg persónusaga heldur um leið speg- ilmynd þeirra miklu breytinga sem orðið hafa á bandarísku þjóðfélagi í fiörutíu ár. Muriel Spark í þriðja sæti var enska skáldkonan Muriel Spark (fædd 1918), en hennar verður vafalaust lengst minnst fyrir að hafa skapað þá frægu kennslu- konu Jean Brodie. Tveir gjörólíkir höfundar, Anthony Powell og Phihp Roth, fengu þrjú atkvæði en V.S. Naipaul, Anne Tyl- er, Doris Lessing og Cormac McCart- hy tvö. Aörir sem nefndir voru í könnun- inni: V.S. Pritchett, Salman Rushdie, Thomas Pynchon, Margaret Atwood, Nadine Gordimer, Toni Morrison og J.M. Coetzee. Svo bentu sumir auðvitað á að það væri gjörsamlega vonlaust að velja einn mann með þessum hætti, m.a. vegna þess að enginn einn stæði svo augljóslega upp úr. Metsölukiljur Bandaríkin Skáidsögur: 1. John Grisham: The Client. 2. Thomas Keneally: Schindler's List. 3. Julie Garwood: Saving Grace. 4. Kevin J. Anderson: Jedi Search. 5. Lilian Jackson Braun. The Cat Who Went into the Closet. 6. LaVyrie Spencer: November of the Heart. 7. Dean Koontz: Winter Moon. 8. V.C. Andrews: Ruby. 9. John Sandford: Winter Prey. 10. Terry Brooks: The Talismans of Shannara. 11. Richard North Patterson: Degree of Guilt. 12. Steve Martini: Prime Witness. 13. Harold Coyle: The Ten Thousand. 14. Peter Straub: The Throat. 15. John Grisham: The Pelican Brief. Rit almenns eðlis: 1. Thomas Moore: Care of the Sout. 2. M. Scott Peck: The Road Less Travelled. 3. Maya Angelou: • I Knowwhy the Caged Bird Sings. 4. Joan W. Anderson: Where Angels Walk. 5. Aphrodite Jones: Cruel Sacrifice. 6. Peter Mayle: A Year in Provence. 7. Gail Sheehy: The Silent Passage. 8. Benjamin Hoff: The Tao of Pooh. 9. Rush Limbaugh: The Way Things Ought to Be. 10. H.G. Moore&J.L. Galloway: We Were Soldiers Once.. .and Young. 11. Deborah Tannen: You Just Don’t Understand. 12. Ann Rule: Everything She ever Wanted. 13. Benjamin Hoff: The Te of Piglet. 14. Martin L. Gross: A Call for Revolution. 15. Nellie Bly: Oprah! (Byggt á Nlew York Tlmss Book Revlaw) Vísindi Froskamir eru ekki bara prinsar í álögum Froskurinn er mesta þarfaþing þótt heldur ófrýnilegur sé. Hrós gegn sársauka Sálfræðingar í Bandaríkjunum hafa komist að því aö hrós getur dregið úr sársaukaskyni manns. Þeir lögðu bæöi létt og erfitt verkefni fyrir 62 háskólastúdenta i New York. Helmingur þeirra sem höfðu glímt við erfiða verk- efniö fékk aö vita að illa hefði gengið en hinum var hrósaö. Sömu aðferð var beitt við úrlausn létta verkefnisins. Námsmennimir vora síðan látnír dýfa höndunum i iskalt vatn í tvær mínútur og skyldu þeir greina frá því á hálfrar mín- útu fresti hvort þeir fyndu til sársauka. Það sýndi sig aö þeir sem fengu hrós fundu fyrir minni sársauka en hinir. Eyja að sökkvaí hafið Hawaii-eyja í samnefndum eyjaklasa í Kyrrahafinu er aö sökkva í hafið. Hjarta eyjarinnar er Mauna Loa, heimsins stærsta eldfiall sem rís meira en átta kíló- metra upp af hafsbotninum og aö sögn jarðvísindamanna er þyngd fiahsins meiri en jarðskorpan getur þolað. Mælingar á undanfórnum 40 árum sýna aö tæplega þrír milh- metrar af strandlengju eyjarinn- ar hverfa i hafið á ári en á sama tíma bætir gígurinn öðru hverju hrauni á toppinn, þó minna en skolast burt. í ævintýrunum eru froskar iðulega fallegir prinsar í álögum en allir vita að í raunveruleikanum er því ekki þannig fariö. Froskar eru bara frosk- ar í augum flestra og eina gagnið sem menn sjá af þeim, svona í fljótheitum að minnsta kosti, er að lappirnar af þeim eru vinsælar hjá frönskum sælkerum. En kannski eru froskamir eftir sem áður prinsar í álögum, einhvers konar læknaprinsar. Nýjar rann- sóknir sýna nefnilega að hægt er að nota útskilnaðarefni, eða seyti, frá froskum til lækninga á margs kyns meinum, allt frá geðklofa til bakter- íusýkinga. Japanskir vísindamenn hafa ný- lega byrjað að gera tilraunir með efn- ið caerulein sem þeir vinna úr græna ástralska froskinum sem heitir Lit- oria caerulea á máli vísindamanna. Efninu var sprautað í sjúkhnga sem þjáðust af þrálátum geðklofa og við þaö hurfu einkenni sjúkdómsins og létu ekki á sér kræla í einn mánuð á eftir. Líffræðingar, dýrafræðingar og líf- efnafræðingar í Ástralíu hafa fengið einkaleyfi á hópi efnasambanda sem einnig eru unnin úr seyti frá græna froskinum. Efnasambönd þessi hafa sýnt það og sannað að hægt er að nota þau sem fúkkalyf. Sömu vís- indamenn hafa þar að auki komist að því að annar ástralskur froskur, eyðimerkurfroskurinn, framleiðir mjög sterkt lím sem kann að vera hægt að nota til að líma sár saman eftir skurðaðgerðir í stað þess að sauma þau. Vísindamenn í Bandaríkjunum vilja ekki vera minni menn en kolleg- ar þeirra í Japan og Ástrahu og þeir eru líka farnir að rannsaka froska. Þeir hafa uppgötvað að froskur nokkur frá Suður-Ameríku gefur frá sér kvalastillandi beiskjuefni sem er tvö hundruð sinnum sterkara en morfin. Nokkrir vísindamannanna flá froskana og sjóða í nokkra klukku- tíma í edikssýru til að skilja út seytiö en áströlsku visindamennirnir hafa dottið niður á öllu mannúðlegri að- ferð: Þeir hleypa rafstraumi á frosk- ana sem slappa þá alveg af og gefa frá sér hið eftirsótta efni. En hér sannast hið fornkveðna að ekki er sopið kálið þótt í ausuna sé komið. Svo kann nefnilega að fara að ævintýrið um froskinn sem alls- herjarehxír gegn mannanna meinum fái skjótan endi, áður en það er eigin- lega byrjað fyrir alvöru, því svo nfiög hefur gengiö á margar froskategund- ir að þær eru nú í mikilli útrýming- arhættu. Hraðbanki þekkir raddir Breskir bankar búa sig nú und- ir að taka í notkun nýja tegund hraðbankavéla sem bera kennsl á raddir, jafnvel þótt viðskipta- vinurinn kunni að vera örlítiö hífaður eöa kvefaður. Tilraunir sýndu að véhn lét röngum viöskiptavini í té pen- inga aðeins í einu tilfelh af tvö þúsund og í einu tilfelh af eitt þúsund bar vélin ekki kennsl á rödd kúnna og vísaði honum frá. Vélin virkar þanrúg að við- skiptavinurinn les setningu inn á band sem síðan er flutt yfir á kortið hans. Þegar hann svo ætl- ar að taka út peninga þarf hann aðeins að endurtaka setninguna og þá eiga peningamir aö streyma út. Steypa sem gerir við sig sjálf Bandarískir vísindamenn hafa þróað sérstaka trefiaþræði sem geta ekki einasta uppgötvað sprungur og tæringu í stein- steypu heldur gera þeir líka viö. Þræðir þessir, sem eru holir og gljúpir, eru gerðir úr trefiagleri og plasti. Þeir liggja um steypuna eins og taugaþræðir í húðinni. Ef sprungur koma í steypuna sleppa þræðimir Irá sér efni sem gerir við sprungurnar. Þá geta þeir líka varaö við efnasambönd- um sem bijóta niður jámabind- iasuí stsYnmni,________ Umsjón Guðiaugur Bergmundsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.