Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1994, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1994, Page 18
18 LAUGARDAGUR 19. MARS 1994 Dagur í lífl Ástu Kr. Ragnarsdóttur, forstöðumanns Námsráðgjafar HÍ: Sérstök tilflnning Ég var búin aö lofa sjálfri mér því aö sofa út þennan mánudagsmorgun, morguninn eftir Námskynningu 94 sem ég hef unnið að skipulagningu á frá þvi fyrir jól. En meöfædda vekj- arakiukkan mín er ennþá stillt og veit ekki að verkefninu er lokiö, svo ég vakna fyrst heimilismanna. Að venju gái ég til veðurs og viti menn: Jólin eru komin aftur, í það minnsta hnédjúpur jólasnjórinn, því húsin og trén í kring, svona líka bústin og frið- sæl, myndu sóma sér á hvaða jóla- korti sem væri. Ég stend sjálfa mig að því að miöa enn tilveruna við Námskynningu og þakka mínum sæla fyrir að dagurinn í dag sé ekki dagurinn í gær. Fagnaðarefni En fyrir aðra er snjórinn fagnaðar- efni, ég sé í anda alla þá snjókarla og -kerlingar sem eiga eftir að fæðast í dag og veit að elsta barnið í fjöl- skyldunni, Valgeir bóndi minn, verö- ur heldur en ekki kátur, því hann er þessa dagana með heilan kvik- myndatökuflokk frá sjálfri Ameríku aö fanga íslenskra vetrarríkiö á filmu. Ég vek hann og tæpra 17 vetra frumburðinn og það var ekki hægt aö sjá hvor varð glaöari. Og nú opn- ast augun eitt af öðru, ársgömul dótt- ir mín tekur strikiö fram ganginn með náttfotin í eftirdragi, eins og brúðarslör, og fjögurra ára bróðir hennar vindur sér hvatlega á fætur. Þessa dagana er hann einn af riddur- um Arthúrs konungs. Ég var búin að lofa þeim að taka mér frí til hádeg- is, undirbúningstömin nýafstaðna hefur gert það að verkum að þau eiga orðið ríflega innstæðu í Umhyggju- bankanum. Sem betur fer er útibús- stjórinn aldeilis frábær, Katrine frá Danaveldi sem dvelur með okkur í ár. Ásta Kr. Ragnarsdóttir með börnum sinum, Vigdisi Völu og Arnari Tómasi. Samt gat ég ekki látið hjá líða aö hringja á minn daglega vinnustað, Námsráðgjöf Háskólans, til að taka veörið og frétti að starfssystur mínar væru stálslegnar eftir þrotlausan snjómokstur morgunsins. DV-mynd BG Fráhvarfseinkenni Eitt af fráhvarfseinkennum þess stífa verkefnis, sem nú er að baki, er að hringja í Rögnu Ólafsdóttur, samherja minn í undirbúnings- vinmmni, sem líka hugðist sinna bömum og búi til hádegis, og ræða um hinn frábærlega vel heppnaða gærdag. Það var sérstök tilfinning að fylgjast með þeim þúsundum ungs fólks og öllum hinum sem notuðu þennan fallegasta dag ársins til að kanna ókunna stigu menntakerfis- ins. Það var ekki fjöldinn einn, held- ur líka sá áhugi og ánægja sem gest- imir skiluðu frá sér, sem gladdi okk- ur og gerði alla fyrirhöfnina þess virði. Eftir hádegið var fundur í kynningamefnd Háskóla íslands, þar sem mat var lagt á kynningar- daginn. Nefndin var á einu máli um að vel hefði tekist til. Talsverðar umræður spunnust um fálæti sumra fjölmiðla gagnvart ekki minna máli en þessu. íslenska menntakerfið kynnt með nýstárlegum hætti, sam- eiginleg kynning skóla hvaðanæva af landinu. Hvorug sjónvarpsstöðin sá ástæðu til þess að heimsækja Námskynningu meðan á henni stóð og sýna myndir frá vettvangi sem um það bil 10 þúsund manns heim- sóttu í því augnamiði að velja sér framtíð. En framtíð þjóðarinnar er kannski ekki eins fréttnæm og skautafólkið á Tjörninni, sem var myndað svo fallega, að ekki sé talað um allar dásamlegu skíðamyndimar úr Bláfjöllum. Að afloknum kynningarnefndar- fundi lá leiðin heim á ný með stuttum stans í fiskbúðinni á Freyjugötu til að verða mér út um örlítið af heims- ins besta fiski. En eins og við öll vit- um býr framtíð íslensku þjóðarinnar líka í fiski og úr honum fáum við fegurð okkar og visku. Dagslok mín tengjast þessari un- aðslegu fæðu og faðmlögum barna minna. Finnur þú fimm breytíngai? 249 Nafn:........ Heimilisfang: Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur íimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja viö þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum hðnum birtum við nöfh sigurvegar- anna. 1. verðlaun: Rummikub-spil- ið, eitt vinsælasta fjölskyldu- spil í heimi. Það er þroskandi, skerpir athyghsgáfu og þjálfar hugareikning. 2. verðlaun: Fimm Úr- valsbækur. Bækumar, sem eru í verðlaun, heita: Mömmudrengur, Þrumuhjarta, Blóðrúnir, Hetja og Banvæn þrá. Bækumar em gefnar út af Frjálsri fjölmiðlun. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 249 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík Vinningshafar fyrir tvö hundr- uö fertugustu og sjöundu get- raun reyndust vera: 1. Brynjar Ólafsson, Foldahrauni 40, 3 b, 900 Vestmannaeyjum. 2. Guðrún Helgadóttir, Túngötu 2, 640 Húsavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.