Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1994, Qupperneq 21
LAUGARDAGUR 19. MARS 1994
21
Eigendur þessa hunds, sem tók þátt
í hlýðnikeppni, fá sér kaffisopa á
milli þess sem dýrið sýndi hversu
hlýðiðþaðer. DV-myndir Rasi
ROKRAS
SÖLUDEILD
☆ NOTAST SEM SYKUR, MEÐ LÁGMARKS KALORÍUINNIHALDI.
☆ LEYSIST AUÐVELDLEGA UPP í KÖLDUM OG HEITUM DRYKKJUM.
☆ EKKERT AUKABRAGÐ - FRÁBÆRT í MATARGERÐ OG BAKSTUR UPP AÐ 180°.
Crufts hundasýningin í Englandi:
Velskur terri -
er sigraði
-yfír áttatíu þúsund manns skoðuðu sýninguna, þar af tólf íslendingar
Velskur terrier varð sigurvegari
hinnar árlegu hundasýningar sem
fram fór í Birmingham á Englandi
um síðustu helgi. Alls voru skráðir
19.877 hundar á sýninguna. Hunda-
sýningin, sem nefnist Crufts Dog
Show, dregur að sér áhorfendur frá
öllum heimshornum. Sýningin hefur
verið haldin á hverju ári síðan 1891
og er stærsta hundasýning í heimi.
Að þessu sinni komu tólf íslendingar
á sýninguna. Áhugi íslendinga fer
mjög vaxandi á nýjum hundakynjum
og fara margir á þessa sýningu til
að kynna sér nýjar tegundir og læra
að þekkja þær. Einnig fá íslending-
arnir tækifæri til að ræða við hunda-
ræktendur á sýningunni.
Að sögn Ragnars Sigurjónssonar
ljósmyndara, sem hefur farið á þessa
sýningu á undanförnum árum, er
mjög mikill áhugi á henni. „Sýningin
stendur yfir í fjóra daga, frá klukkan
niu á morgnana til sjö á kvöldin, og
alltaf er eitthvað um að vera, eins
og hlýðnikeppni og fleira. Á hverjum
degi voru kynntar mismunandi teg-
undir þannig að maður var alltaf að
sjá eitthvað nýtt. Meðal annars voru
kynnt tvö glæný hundakyn, Hungar-
ian Kuvasz og Hungarian Wire
Haired Vizsla," segir Ragnar.
Yfir 80 þúsund manns komu á
hundasýninguna að þessu sinni en
talið er að ellefu milljónir manna
horfi á þátt í BBC um sýninguna. Það
var velskur terrier sem sigraði á sýn-
ingunni en eigandi hans, Anne
Maughan frá Newcastle, var alveg í
skýjunum yfir árangri seppa litla.
Aðstoðarmaður hennar, Frank Kel-
let, sagðist ekki eiga orð til að lýsa
tilfmningum sínum. Þetta væri því-
lík hamingja.
Á sýningunni nota allir helstu
framleiðendur gæludýrafóðurs og
annars vamings fyrir hunda tæki-
færið til að kynna framleiðslu sína.
„Voru ófáir skrautlegir básar á sýn-
ingunni þar sem kynnt var allt
ómögulegt sem mögulegt varðandi
hunda,“ segir hundavinurinn Ragn-
ar Sigurjónsson.
-ELA
Sigurvegarinn með eiganda sinum, Anne Maughan, og aðstoðarmanni,
Frank Keilet.
Glænýtt hundakyn var kynnt á sýningunni. Hér er það Hungarian Kuvasz.
Margs ber að gæta i keppni. Hér skoða dómarar tennurnar í einum voffanum.
■
QEMD MTT MEÐ
SwEim|pw
QC or>
^ýertificate
Fermingargjöfin í ár - námskeið og/eða fermingarmyndataka
Ath.I Nýjung - í skóla Johns Casablancas eru teknar
öðruvísi myndir af fermingarbörnunum.
Til: -Katrínar Kristófersdóttur
Frá: ömmu og afa
Pantið tíma
John Casablancas
MODELING & CAREER CENtER
Grensásvegi 7 - Sími 677799