Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1994, Qupperneq 25
LAUGARDAGUR 19. MARS 1994
25
DV
Það hefur alltaf verið öflugt félagslíf hjá brunavörðum í Reykjavik. Karlakór
Slökkviliðs Reykjavíkur var þó ekki stofnaður fyrr en árið 1991 en hefur
unnið sér varanlegan sess i, félaginu og söng á afmælishátíðinni undir
stjórn Kára Friðrikssonar.
y
Afmælisár
hjá Brana-
varðafélaginu
Sama ár og Islendingar lýstu yfir
sjálfstæði landsins stofnuðu bruna-
verðir í Reykjavík félag sitt. Stofn-
fundurinn var haldinn í gömlu
slökkvistöðinni í Tjarnargötu og
voru félagar u.þ.b. 20 talsins en með
árunum fimmtíu hefur þeim fjölgað
upp í 90.
Félagið var stofnað sem hagsmuna-
félag til að gæta að hagsmunum fé-
lagsmanna og fylgjast betur með og
bæta úr faglegri þekkingu þeirra.
Sem dæmi um það má nefna að
fyrstu fundir félagsins voru nær ein-
göngu fyrirlestrar um slökkvistörf
og slökkvitækni en fljótlega fóru þeir
líka að standa fyrir sumarferðum og
árshátíðum.
Ástæðan fyrir því að félagið var
ekki stofnað sem stéttarfélag var að
slökkviliðsmenn voru aUir í starfs-
mannafélagi Reykjavíkurborgar.
Fyrir 2 árum var stofnað Landssam-
band slökkviliðsmanna og hefur fé-
lagið síðan þá verið mun virkari í
stéttarbaráttunni en það var áður.
Þaö hefur þó ekki ríkt nein logn-
molla í þessu félagi því auk þess að
standa fyrir fræðslu fyrir félags-
menn sina þá voru þeir frumkvöðlar
í að koma upp afþreyingarefni fyrir
slökkvihðsmenn á vakt. M.a. keyptu
þeir spilaborð, billiardborð að
ógleymdu veglegu bókasafni sem
hefur alltaf verið vel notað, ekki síst
fyrir daga sjónvarpsins.
Á afmælishátíðinni, sem haldin var
fyrir stuttu, fékk Kvenfélag bama-
spítala Hringsins að gjöf 100 þúsund
krónur frá félaginu. Ástæðan fyrir
þessari höfðinglegu gjöf var að í
gömlum fundargerðarbókum kemur
fram að á 10 ára afmæh félagsins
gáfu þeir þessu sama félagi 2000
krónur að gjöf. í þessari sömu bók
sést líka að tekjuafgangur var ekki
nema 900 krónur þetta ár, svo bruna-
verðirnir hafa allir farið ofan í eigin
vasa til að styrkja kvenfélagið.
Um kvöldið var svo haldin fjöl-
menn „afmælisárshátíð", reyndar
átti félagið ekki afmæli fyrr en dag-
inn eftir svo á miðnæti lyftu allir
glösum til að óska hvor öðrum til
hamingju meö hálfrar aldar afmæhð.
Eftir það var haldið áfram að dansa
fram á rauða nótt.
HMR
Jón Friðrik Jóhannsson, formaður Brunavarðafélags Reykjavikur, afhenti
Birnu Björnsdóttur, gjaldkera Kvenfélags Hringsins, 100 þúsunda króna gjöf
i tilefni 50 ára afmælis Brunavarðafélagsins og endurtóku þvi það sem
menn geröu á 10 ára afmæli þessa sama félags. DV-myndir Sveinn
Kryddnámskeið
Pottagaldra. Ilmandi, fræðandi og skemmfileg
kvöldstund fyrir alla sem elska að matbúa.
Verð kr. 1.200.
Upplýsingar í síma 628788.
Hrólfur Jónsson, slökkviliðsstjóri í
Reykjavík, og Magnús L. Sveinsson,
forseti borgarstjórnar, ræða hér
málin á árshátíð félagsins sem hald-
in var um kvöldið.
Jóhannes Sævar Jóhannsson, fyrr-
verandi formaður Brunavarðafélags
Reykjavíkur, og Jóhann Pétur Jóns-
son brunavörður rifjuðu upp gamla
og góða tíma á 50 ára afmælinu.
Á NÆSTA SÖLUSTAÐ QA AH AA
EÐA i ÁSKRIFT í SiMA 0O'C/*UU
FRJALS
FJ0LMIÐLUN HF.