Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1994, Qupperneq 30
42
LAUGARDAGUR 19. MARS 1994
Iþrottir
Hvalreki á flörur tennisíþróttarinnar á íslandi:
Allar mínar eignir
sprengdar í loft upp
- DV ræðir við tennisþjálfarana Bozo Skuramuca frá Króatíu og Elenu Pogorelovu frá Rússlandi
Svo mælir Bozo Skuramuca, 37
ára gamaU tennisþjálfari frá Króa-
tíu sem nú býr á Islandi með rúss-
neskri kærustu sinni. Skuramuca
þjálfar tennisfólk hjá Þrótti og
einnig er hann landsliðsþjálfari ís-
lendinga í greininni. En hvernig
kom það til að þau skötuhjú lögðu
leið sína til íslands?
„Ég hafði verið á mótum atvinnu-
manna í mörg ár sem þjálfari og
fyrir nokkrum árum kynntist ég
tveimur íslendingum, þeim Atla
Arasyni og Guðnýju Eiríksdóttur,
þegar þau komu í einn skólann
minn í Dubrovnik. Þau voru í tenn-
is hjá Þrótti og einnig viðloðandi
starf innan Tennissambands ís-
lands. Mér líkaði strax vel við þau
og við urðum góðir vinir og héldum
góðu sambandi. Alla landa mína
sem fæddir eru og uppaldir á svip-
uðum slóðum og ég dreymir um að
koma til lands eins og íslands.
Kærastan mín heitir Elena Pog-
orelova og er frá Rússlandi. Hún
var atvinnumaður í tennis og var
á þessum tíma að keppa á opna
ástralska mótinu í Ástralíu. Við
settum okkur í samband við Atla
og Guönýju með ferð til íslands í
huga. Við höfðum átt í verulegum
vandræðum með vegabréfsáritanir
fyrir Elenu og gátum aldrei verið
nema nokkra daga á hveijum stað.
Nú langaði okkur til að komast til
einhvers lands þar sem við gætum
verið til frambúðar. Við komum
svo tíl íslands í febrúar árið 1993,
beint frá opna ástralska mótinu.
íslendingar komu okkur þægi-
lega á óvart. Fólkið var og er allt
mjög almennilegt við okkur og vildi
allt fyrir okkur gera. Viö vonumst
til að éeta dvalið hér í langan tíma
enn vegna þess að hér erum við
mjög hamingjusöm.“
Bozo Skuramuca og Elena Pogorelova. Lif þeirra hér á landi snýst um tennis og veiðimennsku. Hann er heims-
frægur tennisþjálfari sem hefur þjálfað nokkra af bestu tennisleikurum heims og hún er fyrrverandi atvinnumaður í greininni. Þau hyggja á langdvöl
á íslandi og á dagskránni er að ganga i það heilaga. Hann er 37 ára og hún 25 ára. „Það væsir ekki um mig hér á landi. Ég á yndislega og fallega
konu og hér líður okkur mjög vel,“ segir Skuramuca sem misst hefur allt sitt i striðinu í fyrrum Júgóslavíu. DV-mynd Brynjar Gauti
raun er ekki hægt að fullyrða neitt
um það. Auðvitað langar mig til að
snúa aftur til minnar yndislegu
borgar en ég veit að það verður
alls ekki í bráð. Það er hreint ótrú-
legt hvað gerst hefur í mínu heima-
landi og ég er enn mjög reiður yfir
því öllu. En vonandi lagast þetta
einhvern tíma. Það kemur alveg til
greina að við dveljum hér til ævi-
loka ef við getum það. Fólkið hér
er óskaplega almennilegt og hefur
tekið okkur opnum örmum. Við
vitum ekki enn hvort okkur verður
leyft að dvelja mjög lengi hér. Þetta
er að einhverju leyti spuming um
stjómmál og mér líkar iUa við
stjómmál.“
Mikil veiðidella
og stefnt að
fyrsta laxinum
Skuramuca er haldinn veiðidellu á
háu stigi. Reyndar eru flestir bestu
tennisleikarar í heiminum í dag
með veiðidellu á háu stigi. Þar má
nefna nöfn eins og Goran Ivan-
isevic, Pete Sampras, Jim Courier
og Michael Chang. Við spyrjum
Skuramuca aöeins út í þetta áhuga-
mál númer eitt:
Reykjavíkur. í mínu heimalandi
gat ég aðeins veitt í sjónum viö
Dubrovnik. Hér er þetta alveg ótrú-
legt. Hér morar allt í vötnum og
ám og ekki þarf einu sinni að skipu-
leggja veiðitúrinn áður en lagt er
af stað, bara að setjast inn í bílinn
og aka út í sveit. Maður getur feng-
ið að veiða út um allt.
Elena stóð sig betur í veiðinni
síðasta sumar en ég en í sumar
mun þetta breytast og þá ætla ég
að veiða fleiri fiska en hún. Ég er
þegar farinn að búa mig undir átök-
in í sumar.“
- Hefurðu aldrei veitt lax?
„Hún Elena fékk einn í fyrra en
hann var ekki stór. Ég hef aldrei
veitt lax ennþá á ævinni en von-
andi tekst það í sumar. Það er minn
stærsti draumur þessa dagana að
veiða lax á íslandi. Ég mun starfa
við þjálfun alla virka daga í sumar
en fara allar helgar í veiði og aftur
veiði á mörgum stöðum."
Ótrúlegtöryggi
hér á íslandi
Skuramuca heldur áfram: „Það var
ótrúlegt þegar við komum hingað
að sjá og verða vitni að því hve
heyri ég í unglingum hér sem eru
að tala um einhver vandamál sem
þeir eigi við að glíma. En trúðu
mér. Þeir vita ekki hve heppnir
þeir eru í raun og veru að búa á
Islandi."
Ætla bæði að
læra íslenskuna
- Æthð þið aö læra íslensku?
„Já, það ætlum viö að gera. Því
miður höfum við haft svo mikið að
gera á þessu ári frá því við komum
til landsins við að ganga frá ýmsum
málum varðandi veru okkar hér
að ekki hefur unnist timi til að
■'ckella sér í að læra íslenskuna. Hér
eru skólar fyrir útlendinga sem
vilja læra íslensku og við ætlum
okkur í skóla til að læra tungumál
ykkar.“
7 Nú finnst mörgum dýrt að lifa á
íslandi. Hafið þið orðið vör við það?
„Maturinn hér er dýr en á móti
kemur að hann er afskaplega góð-
ur. Þið bjóðið án efa upp á besta
lambakjöt í heimi og fiskurinn er
einnig mjög góður. Sérstaklega hef
ég tekið eftir hve miklir snillingar
íslendingar eru í að gera alls kyns
rétti úr laxi og silungi."
Hvernig sér hann framtíðina hér á
landi hvað tennis varðar og hvar
stöndum við í dag?
„Þegar við komum til íslands tók-
um við fljótlega eftir þvi að tennis
var ekki íþrótt númer eitt á íslandi
og reyndar á byriunarstigi. Það
fólk sem hefur verið að starfa fyrir
tennisíþróttina fram að þessu hefur
þó unnið afskaplega mikið og gott
starf. Ef við lítum á íslenskt tennis-
fólk og tökum mið af aðstæðum,
sem eru mjög erfiðar, þá eru hér
mjög góðir tennisleikarar. Ef við
berum þetta saman við erlenda
jafnaldra og þær aðstæður sem eru
víða erlendis þar sem tennisfólk
getur æft og spilað allan ársins
hring eru íslendingar aö leika mjög
vel. Og með tilkomu tennishallar-
innar í Kópavogi eiga framfarirnar
eftir að verða miklar hér á landi
þegar hægt verður að stunda þetta
við góðar aðstæður allt árið. Það
er grundvallaratriði. Þá er unrnð
gott starf hjá Tennissambandi ís-
lands og keppnisferðum til útlanda
fjölgar. Það er mikilvægt atriði upp
á framtíðina að gera sem ég tel að
sé björt,“ sagði Bozo Skuramuca.
-SK
„Ég er fæddur á ein-
hverjum fallegasta
stað í heiminum, borg-
inni Dubrovnik í Króa-
tíu. Borgin var miðstöð
ferðamannaþjónustu í
fyrrum Júgóslavíu og
þar skein sólin í 300
daga á ári. Ég hef löng-
um verið á miklu flakki
um heiminn sem tenn-
isþjálfari en síðustu
árin fyrir stríðið dvaldi
ég að mestu í Dubrovn-
ik, þó ekki síðasta árið
fyrir stríðið. í
Dubrovnik og ná-
grenni átti ég tennis-
skóla en þeir voru allir
sprengdir í loft upp í
stríðinu og eftir það
sneri ég ekki aftur
heim, enda borgin fljót-
lega umsetin her-
mönnum. Ég tapaði því
öllum mínum eignum
og stóð uppi slyppur og
snauður.“
Kemur til greina
aö vera á íslandi
til æviloka
- Kemur til greina að þið gerist ís-
lenskir ríkisborgarar?
„Við vitum það ekki alveg og í
„Já, ég verð að viöurkenna að ég
er með mikla veiðidellu og hef aðal-
lega stundað súungsveiði. Og hér á
íslandi er heldur betur hægt að
stunda veiði. Mér kom það gífur-
lega á óvart er ég kom hingað að
það var ekkert mál að komast í
veiðivatn eða ár í næsta nágrenni
öryggið er mikið hér. Maður getur
farið og heimsótt forseta landsins
og skoðað húsnæðið þar án þess
að rekast á öryggisverði út um allt.
Fyrir útlendinga er þetta ótrúleg
upplifun og þetta mikla öryggi sem
hér er segir í raun allt sem segja
þarf um íslensku þjóðina. Stundum
Mjög gott starf
unnið og fram-
tíðin er björt
Bozo Skuramuca hefur mjög mikla
reynslu sem tennisþjálfari og veit
nánast allt um þá göfugu íþrótt.