Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1994, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1994, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 19. MARS 1994 45 sem ætlar ekki að þéna á myndinni. „Fyrir mér væri skandall aö græða á gyðingaútrýmingunni. Ég mun gefa allt til þeirra sem vinna við að lina stríðsþjáningar. Mig langaði bara til að fólk gæti séð hvemig þetta var og hugsa svolítið um það. Einnig að opna augu þess fyrir því sem er aö gerast í heiminum í dag.“ Spielberg hefði kosið að Banda- ríkjamenn hefðu skipt sér meira af striðinu í Bosníu. „Eitt af því sem rak mig til að gera þessa mynd er stríðiö í Bosníu. Þar er önnur hörmung að gerast fyrir augum okkar og enginn gerir neitt til að stoppa það. Besta sem getur gerst er að kynslóðir sem nú eru aö vaxa úr grasi læri um hel- fór gyðinga í gegnum þessa mynd mína.“ Bæði Kevin Costner og Mel Gibson óskuðu eftir að fá að leika Schindler í myndinni en fengu ekki. „Ég vildi fá óþekktan leikara í hlutverkið," segir Spielberg sem réði írskan mann, Liam Neeson, í hlutverkið. „Hann líkist mjög hinum raunveru- lega Oscar Schindler. Myndin var tekin upp í Krakow í Póllandi þar sem verksmiðja Schindlers er enn i dag. Skelfilegurtími „Þetta voru þrír skelfilegir mánuð- ir,“ segir hann um kvikmyndatök- una. „Það var kalt í Póllandi og nið- urdrepandi andrúmsloft. Það var eins og fortíðin lægi í loftinu. Þeir sem unnu við kvikmyndatökuna lifðu upp hina raunveruiegu atburði. Menn voru samstilitir og ekki nokk- ur maður hló. Þetta var svo háalvar- legt. Tvisvar sinnum var ég svo langt niðri að ég hringdi í leikarann Robin Williams, sem lék Peter Pan í Hook, og sagði honum að ég hefði ekki hleg- ið í sjö vikur. Hann er ótrúlegur skemmtikraftur. Hanri munaði ekki um að setja upp tuttugu mínútna skemmtidagskrá fyrir mig í gegnum símann. Það hjálpaði mér rnikið." Myndir Stevens Spielberg hafa hal- að inn að minnsta kosti 120 miiljarða svo vart getur hann kvartað. En að sjálfsögðu liggur mikil vinna að baki og nú langar leikstjó'rann að taka sér frí. „Mig langar að eyða meiri tíma með íjölskyldu minni,“ segir fimm barna faöirinn. Eftir stutt hjónaband með leikkonunni Amy Irving er hann nú kvæntur leikkonunni Kate Capshaw. Þau kynntust þegar hún lék á móti Harrison Ford í seinni Indiana Jones myndinni. „Við höfum veriö gift í þrjú ár. Bæði eigum við sitt barnið hvort frá fyrra hjóna- bandi. Jessica, dóttir Kate, er 17 ára. Max, sonur minn, er 8 ára. Síöan eig- um við þrjú böm saman, Sasha'sem er þriggja ára, Tom, tveggja ára, og Theo, sem er svartur fimm ára gam- all drengur sem við ættleiddum. Þetta er skemmtilegur hópur og þau era alin upp í gyðingatrú." Það tók Steven Spielberg langan tíma að ná sér eftir upptökur á Schindler’s List. „Venjulega hef ég falið mig á bakvið myndavéiina og litið á vinnuna sem eins konar ferða- lag frá raunveruleikanum. En . í Schendler’s List hef ég sagt sögu, sanna sögu sem er mikilvæg fyrir mig og fjölskyldu mína. Og við það að segja þessa sögu hef ég fúndið sjálfan mig.“ „Ég ólst upp við að heyra sögur um gyðingahelförina í seinni heimsstyrj- öldinni,” segir kvikmyndaleikstjór- inn Steven Spielberg sem keypti kvikmyndaréttinn að bók Thomas Keneallys um Oscar Schindler, manninn sem bjargaði lífi 1300 gyð- inga með því að kaupa þá sem vinnu- menn í verksmiðju sinni. Mynd þessi hefur vakið mikla athygli um heim aUan og er tilnefnd til tólf óskars- verðlauna. Háskólabíó hefur tekið myndina til sýningar. „Ég gerði þessa mynd í minningu frændfólks mins sem féli í helfor- inni. Frænkur mínar og frændur létu lífið í pólsku fangabúðunum. Amma mín kenndi gyðingum frá Austur- Evrópu ensku. Sumir þeirra höfðu sloppið úr fangabúðum,” segir Stev- en og rifjar upp sögu sem amma hans sagði honum um vinkonu sína. „Vin- kona ömmu var píanóleikari. Hún var að leika á tónieikum lag sem var bannað. Þá ruddust nasistar í salinn og brutu á henni hvem einasta fing- ur. Hún gat aldrei framar leikið á píanóið,” segir leikstjórinn. Steven Spielberg er einn fremsti kvikmyndaleikstjóri heims og án efa snillingur nútímans. Hann hefur gert margar af bestu kvikmyndum und- anfarinna áratuga eins og ET, The Color Purple, Empire of the Sun, Jurrasic Park og Indiana Jones svo eitthvað sé nefnt. Oft hefur verið sagt að Steven Spielberg laði fram barnið í áhorfendum sínum með ævintýra- myndum sínum. Það má raunar segja að kvikmyndin Schindler’s List sé fyrsta raunverulega myndin sem hann gerir fyrir „fullorðna". Eini gyðingurinn Steven Spielberg fæddist í Saratoga í Noröur-Kalifomiu. Hann er 46 ára gamall. „Fjölskylda min var sú eina sem var af gyðingaættum á þessum slóðum og fyrir það þurfti ég að líöa í bamæsku minni. Það hnussaði í fólki þegar þaö gekk fram hjá mér „gyðingur”. Vegna þessa var ég mik- ið einn og ég skammaðist mín fyrir að vera gyðingur.” Hann segist ekki enn í dag hafa náð sér eftir skólaárin og hefur þess vegna ekkert samband við gamla skólafélaga. „Þeir fengu mig til að skammast mín fyrir sjálfan mig. Mér leið Ula yfir að vera öðravísi og bað pabba að kaupa jólatré en hann sagði mér að gyðingar héldu ekki jól. Hatr- ið í mér var svo sterkt að ég límdi sterkt límband yfir nefið á mér til að reyna að minnka þaö. Mér var ipjög illa við gyðinganefið á mér,“ segir hann. Þegar Steven var átta ára gamall gaf faðir hans honum 8 mm kvik- myndatökuvél. Strax frá þeim degi varð myndavélin be'sti vinur hans. „Ég var elstur af fjórum bömum og fékk alla fjölskylduna til að leika í bíómyndinni. Ég var ekkert sérstak- lega góður í lestri en notaði mynda- vélina eins og penna." Foreldramir skildu Þegar hann varð fjórtán ára skildu foreldrar hans. Oft hefur hann notað þann efnivið í myndum sínum, barn- iö sem missir sambandi við foreldra sína. „Þaö skemmtilega við bíómynd- ir er aö maður getur fengið leikara til að leika sína eigin upplifun. Mað- Steven Spielberg valdi irskan mann, Liam Neeson, i hlutverk Oscars Schindlers. Þessi mynd er tekin við upptökur á myndinni sem var hræðilegur timi, að sögn leikstjórans. ur getur næstum horft á drauginn af sjálfum sér í gegnum leikarana,” segir leikstjórinn sem oftsinnis býr til kvikmyndir frá sjónarhorni barns. Þegar sonur minn, Max, fór aö læra gyðingasöguna í skólanum var ég minntur á mina eigin óþægilegu bamæsku. Það er í rauninni fyrst núna sem ég hef lært aö trúa á guð og vera stoltur af forfeðram mínum. Ég bjó til Schindler’s List til að sýna þeim sem finnst að ég eigi að skamm- ast mín fyrir kynþátt minn að ég er sfoltur af honum. Ég gaf mikið af mér í þessa mynd enda liggja rætur mínar í henni. Auk þess vann ég mikla undirbúningsvinnu. Sá allar heimildarmyndir sem gerðar hafa verið um þetta málefni. Ég ætlaði upphaflega að gera myndina árið 1982 en var ekki tilbúinn til þess þá.“ Kvikmyndabærinn Hollywood hef- ur ekkert verið sérstaklega hrifinn af gyðingamyndum og það gekk erf- iðlega fyrir Spielberg að fá myndina samþykkta þar. „Þeir í Hollywood trúa ekki að fólk vilji koma í kvik- myndahús og sjá útrýmingarherferð gyðinga. Og enginn hafði áhuga á svarthvítri mynd. Þessi mynd varð hins vegar að vera svarthvít. Fólk má ekki líta fallega út í henni.” En kvikmyndajötnar í Hollywood höfðu ekki rétt fyrir sér. Schindler’s List hefur fengiö frábæra dóma jafnt hjá gagnrýnendum sem almenningi. Og talið er fullvíst að Spielberg fái óskarinn bæði fyrir leikstjórn og bestu mynd. Vildi opna augu fólks „Ég hafði aldrei hugsað mér að búa til vinsældamynd,” segir Spielberg Ur myndinni Schindler’s List, Caroline Goodall, Liam Neeson og Ben Kingsley i hlutverkum sinum. Það var eins og fortíðin lægi i loftinu, segir Steven Spielberg er hann rifjar upp upptökur á Schindier’s List. Kvikmyndin Schindler's list vekur mikla athygli: Eins og fortíðin laegi í loftinu - segír Steven Spielberg um dvölina í Póllandi þar sem myndin var tekin upp

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.