Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1994, Blaðsíða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.1994, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 19. MARS 1994 59 A&næli Gunnlaugur J. Ingason Gunnlaugur Jón Ingason fram- kvæmdastjóri, Klettahrauni 3, Hafnarfirði, verður sjötugur á morgun. Starfsferill Gunnlaugur er fæddur að Berg- þórshvoli í Vestur-Landeyjum og ólst upp að Vaðnesi í Grímsnesi en þangað fluttist hann með foreldrum sínum 2 ára gamall. Hann fór í íþróttaskóla Sigurðar Greipssonar í Haukadal að afloknu skyldunámi. Gunnlaugur fluttist til Reykjavík- ur um tvítugt og vann þar í nokkur ár í byggingavinnu hjá Haraldi Bjamasyni og var síðar við akstur leigubifreiða. Hann var lögreglu- maður í Reykjavík 1950-57 en flutt- ist þá til Hafnarfjarðar og gerðist kaupmaður. Gunnlaugur rak versl- unina Hamarsbúð sem var kjöt- og nýlenduvöruverslun. Hann stofn- setti byggingafyrirtæki 1964 og stóð m.a. fyrir byggingu allmargra fjöl- býlishúsa í Hafnarfirði. Gunnlaug- ur gerðist starfsmaður Alþingis 1981 og starfaði þar sem þingvörður fram í byrjun þessa mánaðar. Gunnlaugur tók mikinn þátt í íþróttum og keppti bæði í gbmu og fijálsum íþróttum. Hann vann Skarphéðinsskjöldinn í glímu 1951-52 og fór í tvær sýningarferðir til Svíþjóðar, 1946 og 1949, þar sem sýnd var íslensk glíma. Fjölskylda Gunnlaugurkvæntist26.12.1952 Helgu Guðmundsdóttur, f. 3.7.1927, d. 6.1.1992, ritara Tónlistarskóla Hafn- arfiarðar. Foreldrar hennar: Guð- mundur Guðbjömsson, d.1934, skip- stjóri, og Guðrún Ásbjömsdóttir en heimili þeirra var í Hafnarfirði. Böm Gunnlaugs og Helgu: Guð- mundur, f. 19.5.1954, arkitekt, kvæntur Auði Leifsdóttur, þau eiga þrjú börn; Ingi, f. 19.5.1954, tann- læknir, kvæntur Erlu Eyjólfsdóttur, þau eiga þrjú böm; Gunnlaugur Helgi, f. 23.4.1956, dúklagninga- meistari, kvæntur Hrund Eðvars- dóttur, þau eiga tvo syni; Haildór, f. 20.5.1958, smiður og nemi, hann á eina dóttur; Þorsteinn, f. 24.9.1962, verkfræðingur, kvæntur Sigríði Lárasdóttur, þau eiga tvo syni; Guð- rúnlngibjörg, f. 3.2.1966, hjúkrun- arfræðingur, gift Inga Má Ljótssyni, þau eiga eina dóttur. Systkini Gunnlaugs: Sigurður, f. 25.9.1920, fyrrv. póstrekstrarstjóri, kvæntur Ernu Jónsdóttur; Siguijón Ágúst, f. 28.5.1927, fyrrv. starfsmað- ur Áburðarverksmiðjunnar, kvænt- ur Sofííu Jónsdóttur; Soffía, f. 6.5. 1932, fyrrv. deildarstjóri á Hagstof- unni, gift Tryggva Árnasyni. Foreldrar Gunnlaugs: Ingi Gunn- laugsson, f. 19.8.1894, d. 10.2.1973, bóndi í Vaðnesi í Grímsnesi og síðar póstafgreiðslumaður í Reykjavík, og Ingibjörg Jónsdóttir, f. 20.7.1887, d. 23.1.1977, húsfreyja. Ætt Ingi var sonur Gunnlaugs, b. og dbrm. á Kiðjabergi, Þorsteinssonar, sýslumanns á Kiðjabergi, Jónsson- ar, lögsagnara á Ámóti, Jónssonar, bróður Valgerðar, konu Hannesar Finnssonar biskups, ættmóður Finsensættarinnar. Móðir Gunn- laugs var Ingibjörg Gunnlaugsdótt- ir, dómkirkjuprests í Reykjavík, Oddssonar. Móðir Inga var Soffía Skúladóttir, prófasts á Breiðabólsstað í Fljóts- hlíð, Gíslasonar, prófasts í Odda, Þórarinssonar, sýslumanns á Grund, Jónssonar, ættfoður Thor- arensensættarinnar. Móðir Skúla var Ragnheiður Vigfúsdóttir, sýslu- manns á Hlíðarenda í Fljótshlíö, Þórarinssonar. Ingibjörg var dóttir Jóns, b. og formanns í Álfhólum í Landeyjum, Nikulássonar, bróður Þorbjargar, ömmu Aldísar, móður Ellerts og Bryndísar Schram. Móðir Þórunnar Gunnlaugur Jón Ingason. var Þorbjörg ljósmóðir Jónsdóttir, b. á Hrútsstöðum í Flóa, Einarsson- ar. Móðir Jóns var Þorbjörg Guð- mundsdóttir, systir Brynjólfs, lan- gafa Magnúsar Stephensen lands- höfðingja. Móðir Ingibjargar var Sigríður Sigurðardóttir, b. í Miðkoti í Land- eyjum, Ólafssonar, b. á Ey, Gests- sonar, prests á Móum á Kjalarnesi, Þorlákssonar, bróður Ástríðar, langömmu Þorláks Ó. Johnson, kaupmanns í Reykjavík, afa Einars Laxness, framkvæmdastjóra menntamálaráðs. Gunnlaugur dvelur erlendis á af- mælisdaginn. Birgir Hallvarðsson Birgir Hallvarðsson, skrifstofumað- ur og ræðismaður Noregs, Botna- hlíð 14, Seyðisfiröi, verður sextugur ámorgun. Starfsferill Birgir er fæddur á Seltjamarnesi en ólst upp í Laugameshverfinu í Reykjavík og á sumrin var hann í sveit i Biskupstungum. Birgir lauk gagnfræðaprófi úr Gagnfræðaskóla Austurbæjar 1950 og samvinnu- skólaprófi 1953. Birgir starfaði hjáfj ármáladeild Sambands íslenskra samvinnufé- laga 1954-62 og var bókari og fulltrúi kaupfélagsstjóra hjá Kaupfélagi Austfjarða á Seyðisfirði 1962-64. Hann var kaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi Amfirðinga á BOdudal 1964- 65 og kaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi Austfjarða á Seyðisfirði 1965- 67. Birgir hefur unnið við bók- hald og fleira frá þeim tíma en hann setti á stofn bókhalds- og tölvuþjón- ustu 1974. Birgir var umboðsmaður skattstjóra í mörg ár. Birgir hefur verið gjaldkeri sókn- arnefndarinnar og starfað í kirkju- kómum. Hann var bæjarfulltrúi 1982-90 en hafði áður verið vara- maður og þá hefur Birgir einnig setið í ýmsum nefhdum. Hann var formaður hafnarnefndar í 4 ár og formaður bæjarráös í 2 ár. Birgir hefur verið ræðismaöur Noregs á Austurlandi frá 1966. Birgirhlaut St. Olavsorðuna, 1. gráðu, 1990. Fjölskylda Birgir kvæntist 15.9.1963 Sigfríð Stellu Ólafsdóttur, f. 26.6.1941, skrif- stofumanni og bókara hjá sýslu- manni Norður-Múlasýslu á Seyðis- firði. Foreldrar hennar: Ólafur Þór- steinsson, bOstjóri, bæjarverkstjóri og starfsmaður Kaupfélags Aust- fjarða, og Hulda Sigurjónsdóttir. Þau era bæði látin. Þau bjuggu í FirðiiSeyðisfirði. Börn Birgis og Sigfríðar: Ólafur Birgisson, f. 19.6.1963, rafvirkja- meistari og rafmagnstæknifræðing- ur, hann er búsettur á Seyðisfirði; Guðfinna Björk Birgisdóttir, f. 11.5. 1967, fórðunarfræðingur, maki Ás- björn Guöjón Jónsson, matreiðslu- maður frá Selfossi, þau eru búsett á Seyðisfirði. Bræöur Birgis: Agnar, f. 4.11.1929, vélstjóri og verktaki, kvæntur Magnúsínu Ólafsdóttur, þau era búsett í Hafnarfirði og eiga tvo syni; Helgi, f. 12.6.1931, skipherra, kvænt- ur Þuríði Erlu Erlingsdóttur, þau eru búsett í Kópavogi og eiga þrjú böm; HOmar, f. 3.7.1935, vélvirkja- meistari, kvæntur Hafdísi Ólafs- dóttur, þau eru búsett í Garöabæ og eiga þrjár dætur; Gylfi, f. 13.8. 1937, starfsmaður Reykjavíkurhafn- ar, kvæntur Öldu Bjarnadóttur, þau eru búsett í Reykjavík og eiga fimm börn; Guðmundur, f. 7.12.1942, stýrimaður og alþingismaður, kvæntur Hólmfríði Maríu Óladótt- ur, þau era búsett í Reykjavík og eigaþrjúbörn. Birgir Hallvarðsson. Foreldrar Birgis; Hallvarður Hans Rósinkarsson, f. 14.5.1904, d. 6.3. 1975, vélstjóri, og Guðfmna Lýös- dóttir, f. 4.5.1904, d. 9.5.1991, hús- móðir. Þau bjuggu í Reykjavík, lengst af á Hrísateigi 37. Ætt Hallvarður var sonur Rósinkars Guðmundssonar, Magnússonar, í Þorgeirshlíð í Miðdölum, og konu hans, Steinunnar Hallvarðsdóttur, Sigurðssonar, í Litla-Langadal á Skógarströnd. Guöfmna var dóttir Lýðs IOuga- sonar Daðasonar, á Stóra-Hrauni í Kolbeinsstaðahreppi, og konu hans, Kristínar Hallvarðsdóttur Sigurðs- sonar, í Litla-Langadal á Skógar- strönd. Birgir verður að heiman á afmæl- isdaginn. 80 ára Anna L. Rist, Hringbraut 50, Reykjavík. 60 ára Ragnar Björnsson, Þórsgötu 21a, Reykjavík. Hermann Stefánsson, Eskihhð 20a, Reykjavík. Runólfur Aðalbjömsson, Sunnubraut 1, Blönduósi. 50ára Joseph Lee Lemacks, Esjugrund 10,Kjalarneshreppi. Anna Sigurlaug Þorvaldsdóttír, Heinabergi 15, Þorlákshöfn. Huneraðheiman. Sigurbjörg Kristjánsdóttir, Austurbergi 8, Reykjavík. 40ára Guðbjörg Einarsdóttir, Víöihlíð 31, Reykjavík. Sveinn Tómasson, Nesvegi52, Reykjavík. ÖmGeirsson, Selvogsgrunni 7, Reykjavík. Ólafur Árni Óskarsson, Gaularási, A-Landeyjahreppi. Elín Helga Guðmundsdóttir, Bollagörðum 11, Seltjamamesi. Gísli Frostason, Laugavegi 11, Seyluhreppi. Sigríður A. Aðalbergsdóttir, Ártúni3, Selfossi. Hallgrímur S. Sveinsson, Mjóuhlíð 8, Reykjavik. JónSigurðsson, Kelduhvammi 3, Hafnarfiröi. Jóhanna Katrín Eyjólfsdóttir, Vallarhúsum 22, Reykjavík. María Kristjánsdóttir María Kristjánsdóttir, leiklistar- stjóri Ríkisútvarpsins, Árholti 8, Húsavík, er fimmtug í dag. Starfsferill María er fædd í Reykjavík en ólst upp í Hafnarfirði. Hún lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1964 og diploma-prófi frá Leikhstarháskólanum í Leipzig í Þýskalandi 1970 í leikhúsfræðum og leikstjórn. María stundaði nám í kvikmyndafræði við Háskólann í Stokkhólmi í Svíþjóð 1972-73. María hefur starfað sem leikstjóri frá 1970 og m.a. unnið hjá Leikfélagi Akureyrar, Leikfélagi Reykjavíkur og Þjóðleikhúsinu. Hún hefur verið leikhstarstjóri Ríkisútvarpsins frá því í desember 1991. María hefur auk þess starfað m.a. við blaða- mennsku, kennslu, fiskvinnslu og þýðingar. Maríavar formaður Félags leik- stjóra á íslandi 1988-91. Fjölskylda María giftist 21.5.1973 Jóni Aðal- steinssyni, f. 20.4.1932, yfirlækni. Foreldrar hans: Aðalsteinn Jónsson og Aöalbjörg Stefánsdóttir, bændur í Kristnesi við Eyjafjörð. Dóttir Maríu og Jóns: Salbjörg Rita, f. Í8.11.1973, nemi. Börn Jóns af fyrra hjónabandi: Aðalbjörg, Guðrún, Aðalsteinn og Kolbrún. Systkini Maríu: Logi Elfar, f. 20.9. 1941, verkfræðingur, maki Ólöf Þor- valdsdóttir framkvæmdastjóri, þau eiga fjögur börn, Kristján, Þorvald, Elfi og Yngva Jökul; Jóhann Bjami, f. 1.5.1948, d. 1.12.1979, viðskipta- fræðingur, hans kona var Olga Þór- hahsdóttir, þau eignuðust tvö börn, Ólöfu Maríu og Þórhall Dan; Berg- ljót Soffía, f. 28.9.1950, dósent við Háskóla íslands, maki Aðalsteinn Eyþórsson, Bergljót Soffía á tvö böm með Hjálmari Árnasyni, Ragn- heiði og Kristján; Andrés, f. 14.10. 1958, tölvufræðingur í Svíþjóð, maki Sjöfn Hauksdóttir, þau eiga fjögur böm, Kristján, Hauk, Emmu og Petru; Katrín, f. 27.7.1960, húsmóð- ir, maki Sævar Sigurbjörnsson, þau eiga þrjár dætur, Ólöfu, Salbjörgu Rögnu og Sigrúnu Soffíu. Foreldrar Maríu: Kristján Andr- ésson, f. 16.6.1914, d. 15.9.1980, fram- kvæmdastjóri og bæjarfulltrúi í Hafnarfirði, og Salbjörg Magnús- dóttir, f. 2.7.1919, d. 3.2.1987, fulltrúi áAkureyri. Ætt Kristján var sonur Andrésar verslunarmanns Andréssonar, b. á Helgustöðum í Reyðarfirði, Eyjólfs- sonar. Móðir Andrésar verslunar- manns var Kristín Ámadóttir. Móð- ir Kristjáns framkvæmdastjóra var María Kristjánsdóttir, ökumanns í Hafnarfirði, Auðunssonar, hafn- sögumanns í Hafnarfirði, Stígsson- ar. Móðir Kristjáns ökumanns var Herdís Kristjánsdóttir, b. á Stein á Reykjaströnd, Sveinssonar. Móöir Maríu var Þórdís Símonardóttir, b. á Gegnishólaparti, Bjömssonar. Móðir Þórdísar var Guðrún Magn- úsdóttir Guðmundssonar, hrepp- stjóra á Skipum, Hafliðasonar, hreppstjóra á Skipum, Jónssonar. Móðir Guðrúnar var Guðrún Snorradóttir Knútssonar og Þóru Bergsdóttur, hreppstjóra í Bratts- holti og ættfóður Bergsættarinnar, Sturlaugssonar. Salbjörg var dóttir Magnúsar, sjó- manns og kennara í Rey kiavík, Lár- ussonar, sjómanns í Stykkishólmi, Benediktssonar, b. í Gjarðey á Skóg- arströnd, Oddssonar. Móðir Lárus- ar var Ingibjörg Þorkelsdóttir. Móð- ir Magnúsar var Katrín Eiríksdótt- María Kristjánsdóttir. ir, b. á Högnastöðum í Hrunmanna- hreppi, bróöur Helga í Birtinga- holti, langafa Helga leikara og Ólafs biskups Skúlasona en Eiríkur var einnig bróðir Andrésar, fóður Magnúsar, prófasts og alþingis- manns á Gilsbakka, fóöur Péturs ráðherra, fóður Ásgeirs bæjarfóg- eta. María tekur á móti gestum á af- mæhsdaginn í sal Tannlæknafélags- ins að Síðumúla 35,3. hæð, frá kl. 11-14.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.