Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1994, Side 4
20
FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1994
Sýningar
Gallerí 11
Skólavörðustig 4a, sími 11138
Margrét Sveinsdóttir opnar oliumál-
verkasýningu á morgun, laugardag, kl.
16-18. Sýningin stendur til 25. april
og er opin aðra daga kl. 14-18.
Gallerí Sólon islandus
Bankastræti 7
Guðrún Kristjánsdóttir sýnir lágmyndir
úr tré og málverk. Viðfangsefni verk-
anna er íslenskur sjóndeildarhringur.
Sýningin stendur til 12. april og er
opin alla daga kl. 11-18.
Gerðuberg
Þar stendur yfir myndlistarsýning Öskar
Vilhjálmsdóttur. Á sýningunni eru Ijós-
myndaverk og einnig innísetning með
þremur sjónvarpsskjám, hljóðverki og
myndbandi. Sýningin stendir til 24.
april og er opin mánudaga til fimmtu-
daga kl. 10-22 og föstudaga til sunnu-
daga kl. 13-16.
Götugrillið
Borgarkringlunni
Fimmtudaginn 18. mars opnaði Sigurð-
ur Vilhjálmsson sýningu sem stendur
til 20. april.
Hafnarborg
Strandgötu 34
Þar stendur yfir yfirlitssýning Henriks
Vagns Jensen. Á sýningunni eru hand-
unnin grafikverk, landslagsmyndir og
portrett. Sýningin er opin daglega kl.
12-18 nema þriðjudaga. I Sverrissal
stendur yfir sýning Ásdísar Sigurþórs-
dóttur á málverkum unnum með akrýl
á pappír, tré og striga. Myndefnið eru
krossar og er yfirskrift sýningarinnar
„Hugleiðing á föstu". Sýningin stendur
til 11. apríl og er opin kl. 12-18. Lokað
þriðjudaga.
"Hjá þeim"
Skólavörðustig 6b
I dag opnar Soffía Sæmundsdóttirsýn-
ingu á verkum sínum. Þar sýnir hún
þrykk, unnin á vordögum 1993. Sýn-
ingin stendur til 28. apríl og er opin
mánudaga til föstudaga kl. 9-18 og
laugardaga kl. 10-14. Þetta er önnur
einkasýning Soffíu en hún útskrifaðist
frá grafíkdeild MHÍ 1991.
Café Mílanó
Faxafeni 11
Guðrún H. Jónsdóttir (Gígja) sýnir
málverk. Sýningin er opin kl. 9-19
mánudaga, 9-23.30 þriðjudaga, mið-
vikudaga og fimmtudaga, kl. 9-1 föstu-
daga og laugardaga og 9-23.30
sunnudaga.
Kjarvalsstaðir
Þar stendur yfir sýning á verkum eftir
Jóhannes Svein Kjarval. Á morgun,
laugardag, verða svo opnaðar sýningar
á verkum Huldu Hákon i vestursal og
Ölafs Gíslasonar í miðsal. Hulda sýnir
myndir af eldi og blómum bæði í
þrívídd og í málverki. Sýning Ólafs ber
heitið „Vernissage" eða á nútímamáli
„sýningaropnun". Allar sýningarnar
standa til 8. maí og eru opnar daglega
frá kl. 10-18.
Listasafn Einars Jónssonar
Njarðargötu, simi 13797
Opið laugardaga og sunnudaga kl.
13.30-16. Höggmyndagarðurinn er
opinn alla daga. Inngangur frá Freyju-
götu. -v.
Listasafn íslands
Þar stendur yfir sýning á túskteikning-
um í eigu safnsins eftir Barböru Árna-
son við Passíusálma Hallgríms Péturs-
sonar. Sýningin stendurtil 8. maí. Lista-
safnið er opið alla daga nema mánu-
daga kl. 12-18. Kaffistofa safnsins opin
á sama tima.
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar
Laugarnestanga 70
Þar stendur yfir sýning sem ber heitið
Hugmynd - höggmynd úr vinnustofu
Sigurjóns Ólafssonar. Úrval verka frá
ólikum tímabilum í list Sigurjóns hefur
verið sett upp. Sérstök leiðsögn um
safnið er á sunnudögum kl. 15 fyrir
börn og foreldra. Sýningin mun standa
fram á vor og er sérstaklega hönnuð
með skólafólk í huga. Safnið er opið á
laugardögum og sunnudögum kl.
14-17 og kaffistofan llka.
Verkefni um friö og umhverfisvemd
Núna standa yfir sýningar í Hafn-
arborg. í aðalsal sýnir Henrik Vagn
Jensen, í Sverrissal sýnir Ásdís Sig-
urþórsdóttir og í kafíistofu stendur
yfir sýningin Verum vinir. Það er
verkefni um frið og umhverfisvemd
sem unnin eru af nemendum í
Grunnskólum Hafnarfjarðar við
texta eftir Ólaf B. Ólafsson í tifefni
af 50 ára afmæli íslenska lýöveldis-
ins.
Tvær sýningar að Kjarvalsstöðum
Skúlptúrar og
lágmyndir
Tvær sýningar verða opnaðar að
Kjarvalsstöðum á laugardag. Lista-
mennirnir eru Hulda Hákon, sem
sýnir í vestursal, og Ólafur Gíslason
sem sýnir í miðsal.
„Sýningin ber heitið „Vernissage"
sem er dregið af frönsku sögninni að
lakka. í nútímamáli þýðir þetta sýn-
ingaropnun. í Frakklandi var vinum
og kunningjum boðið að skoða verk-
in áður en þeim var lokað. Það þýðir
að lakkhúöin var ekki sett yfir fyrr
en vinir og kunningjar höfðu sagt
sitt álit á verkinu. Það er því ennþá
hægt að breyta verkinu," segir Ólaf-
ur Gíslason sem sýnir skúlptúra í
miðsal.
Hulda Hákon hélt sína fyrstu
'einkasýningu í Hafnarfiröi 1984 og
hefur undanfarin 10 ár tekið virkan
þátt í íslensku listalífi, haldið fjöl-
margar einkasýningar á íslandi,
Norðurlöndunum og í Þýskalandi og
tekið þátt í samsýningum víða.
Hulda hefur undanfarin ár mest
unnið við gerð lágmynda þar sem
hún vinnur saman mynd og texta. í
lágmyndum sínum hefur hún sett
manneskjuna í öndvegi og gert ýmsa
þætti mannlegrar tilveru að við-
fangsefni sínu. Á einkasýningu
Huldu að Kjarvalsstöðum sýnir hún
myndir af eldi og blómum, bæði í
þrívídd og í málverki. -em
Nýlistasafnið:
Veggspjöld
GueriIIa Girls
Guerilla Girls gefa sig út fyrir aö
vera samviska myndlistarheimsins.
Olíumálverk í Gallerí 11
Á laugardag verður opnuð sýning
á verkum Margrétar Sveinsdóttur í
Gallerí 1 1 að Skólavörðustíg 4.
Margrét sýnir olíumálverk og er
þetta fyrsta einkasýning hennar í
Reykjavík. Áður hefur hún haldið
einkasýningar í Gautaborg og Stokk-
hólmi og tekiö þátt í samsýningum á
ísaflrði, í Gautaborg og Stokkhólmi.
Vopnafjörður:
Olíumálverk
Edda María Guðbjörnsdóttir opnar
sýningu á rúmlega 30 olíumálverk-
um að Hótel Tanga á Vopnafirði í dag
kl. 18. Sýningin verður opin á laugar-
dag og sunnudag frá kl. 14-22. Edda
hefur meðal annars sýnt í Hafnar-
borg. Hún nam verslunarfræði í
Lúbeck í Þýskalandi og sótti jafn-
framt námskeið í myndlist á þeim
árum.
Guerilla Girls er hópur myndlistar-
kvenna í New York. Á laugardag
verður opnuð sýning á veggspjöldum
þeirra í Nýlistasafninu. Konurnar
vinna undir nafnleynd og koma ætíð
fram með grímu fyrir andlitinu.
Vinnufót þeirra eru stuttir þröngir
kjólar, háhælaðir skór og górillu-
grímur.
Inntak verka þeirra er gagnrýni á
ráðandi gildismat innan myndlistar-
kerfisins. Mörg veggspjöld þeirra eru
með tölfræðilegum samanburði á
stöðu karla, kvenna og litaðra í
myndlistarheimi New York-borgar
sem er ein aðalmiðja myndlistar í
heiminum. Veggspjöldin eru undir-
rituð; „Guerilla Girls, samviska
myndhstarheimsins.“
Ólafur Gíslason og Hulda Hákon sýna að Kjarvalsstöðum. DV-mynd ÞÖK
, Jsland við alda-
hvörf' á Akureyri
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Ljósmyndasýningin „ísland við
aldahvörf ‘ verður opnuð í húsnæði
gömlu Heklu á Akureyri á morgun
kl. 14 og mun verða opin næstu vik-
urnar.
Þessi glæsilega sýning var opnuð
formlega í Reykjavik í febrúar sl.
vegna 90 ára afmælis heimastjórnar
á íslandi. Sýningin er lánuð til Akur-
eyrar að beiðni Lýðveldishátíðar-
nefndar Akureyrar. Sýningin verður
orðin virka daga kl. 10-18 og um helg-
ar kl. 14-18.
Sýningar
Listasafn Háskóla Íslands
í Odda, sími 26806
Þar er nú á öllum hæðum sýning á
nýjum verkum I eigu safnsins. Opið er
daglega kl. 14-18. Aðgangur að safn-
inu er ókeypis.
Listhúsið
Laugardal
Sjofn Har sýnir olíumálverk og tússlita-
myndir í sýningarsal sínum. Verkin eru
flest frá árinu 1993. Sýningin er opin á
verslunartíma Listhússins.
Ljósmyndasýning Blaðamannafélags
Islands og Blaðaljósmyndarafélags Is-
lands, Blaðaljósmyndir 1993, er í List-
húsinu til 13. apríl.
Mokka kaffi
Skólavörðustíg
Þar stendur yfir sýning á verkum Stein-
grims Eyfjörð Kristmundssonar. Sýn-
ingin ber yfirskriftina „Pílagrímsferð
Stefaníu Georgsdóttur i gegnum bibl-
íuna". Sýningin er sölusýning og renn-
ur allur ágóði til ABC-hjálparstarfs.
Nesstofusafn
Neströð, Seltjarnarnesi
Safnið opið samkvæmt samkomulagi.
Uppl. i síma 611016.
Norræna húsið
Þar standa yfir tvær sýningar. Annars
vegar er sýning á teikningum eftir lista-
manninn Olav Christopher Jensen og
er þetta farandsýning sem kemur hing-
að til lands í samvinnu við Norrænu
listamiðstöðina á Sveaborg við Hels-
ingfors. I anddyri stendur yfir sýning á
myndum sem danska listakonan Bodil
Kaalund gerði við biblíuna sem kom út
i nýrri þýðingu á vegum Hins danska
biblíufélags 1992.
Portið
Strandgötu 50, Hafnarf.
Á morgun, laugardag, verður opnuð
samsýning fimm kvenna frá Gallerí
Kletti og stendur hún til 24. april. Sýn-
ingin verður opin alla daga frá kl. 14-18
nema á þriðjudögum.
Póst- og símaminjasafnið
Austurgötu 11, Hafnarf., sími
54321.
Opið á sunnudögum og þriðjudögum
kl. 15-18. Aðgangur ókeypis.
Safn Ásgríms Jónssonar
Bergstaðastræti 74, sími 13644
Sýning á vatnslitamyndum Ásgríms
Jónssonar. I vetur verður safnið opið á
laugardögum og sunnudögum kl.
13.30-16.
Sjóminjasafn íslands
Vesturgötu 8, Hafnarfirði, s. 654242
Sjóminjasafnið er opið alla daga kl.
13-17.
SPRON
Álfabakka 14
Listaverk eftir Þórdísi Árnadótturtil sýn-
is í útibúi Sparisjóðs Reykjavíkur og
nágrennis við Álfabakka. Sýningin
stendur til 22. apríl og er opin virka
daga kl. 9-16.
Stöðlakot
Bókhlöðustig 6
Nú stendur yfir Ijósmyndasýning Ingu
Sólveigar. Verkin á sýningin, sem ber
titilinn „In memoriam", eru öll unnin á
síðasta ári. Sýningin, sem stendur til
17. apríl, verður opin daglega kl. 14-18.
Þjóðminjasafn íslands
Opið þriðjud., fimmtud., laugard. og
sunnud. kl. 12-17.
Slunkaríki
ísafirði
Þar stendur yfir einkasýning Ölafs Más
Guðmundssonar og stendur hún til 17.
apríl. Ólafur sýnir þar myndverk, unnin
með akrýllitum á striga og pappir.
Listasaf nið á Akureyri
Þar standa yfir tvær sýningar. I miðsal
verða sýndar vatnslita- og oliumyndir
Guðmundar frá Miðdal. I austursal
verða sýndar Ijósmyndir Vigfúsar Sigur-
geirssonar sem hann hefur tekið á
Norðurlandi við ýmis tækifæri.
Minjasafnið á Akureyri
Aöalstræti 58, simi 24162
Hniö HAnlpna kl 11-17