Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1994, Side 7

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1994, Side 7
FÖSTUDAGUR 8. APRÍL 1994 23 Messur Árbæjarkirkja: Ferming og altaris- ganga kl. 11. Organisti Sigrún Steingríms- dóttir. Barnaguðsþjónustur í Ártúns- og Selásskóla á sama tíma. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. Áskirkja: Barnaguðsþjónusta kl. 11.00. Ferming og altarisganga kl. 14.00. Árni Bergur Sigurbjörnsson. Breiðholtskirkja: Barnaguðsþjón- usta kl. 11. Fermingarguðsþjónusta kl. 13.30. Altarisganga. Samkoma Ungs fólks með hlutverk kl. 20.30. Organisti Daniel Jónasson. Sr. Gísli Jónasson. Bústaðakirkja: Fermingarmessa kl. 10.30. Organisti Guðni Þ. Guðmundsson. Barnamessa kl. 11.00 I Bústöðum. Pálmi Matthíasson. Digranesprestakall: Barnasam- koma í safnaðarheimilinu við Bjarnhólastíg kl. 11. Fermingarguðsþjónusta i Kópavogs- kirkju kl. 14. Sr. Þorbergur Kristjánsson. Dómkirkjan: Fermingarmessa kl. 11.00. Prestar sr. Hjalti Guðmundsson og sr. Jakob Á. Hjálmarsson. Dómkórinn syng- ur. Organisti Marteinn H. Friðriksson. Guðs- þjónusta kl. 14.00. Prestursr. María Ágústs- dóttir. Dómkórinn syngur. Organisti Mar- teinn H. Friðriksson. Fella- og Hólakirkja: Bamaguðs þjónusta kl. 11. Umsjón Ragnar Schram og Ágúst Steindórsson. Ferming og altaris- ganga kl. 14. Sr. Guðmundur Karl Ágústs- son. Organisti Lenka Mátéová. Prestarnir. Friðrikskapella: Messa kl. 11.00. Sungnir verða Taizé-söngvar. Prestur sr. Þórhallur Heimisson. Fríkirkjan í Hafnarfirði: Barna- samkoma kl. 11. Fermingarmessa kl. 13.30. Organisti Kristjana Þ. Ásgeirsdóttir. Sr. Einar Eyjólfsson. Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík: Guðsþjónusta kl. 14.00. Organisti Pavel Smid. Cecil Haraldsson. Garóakirkja: Fermingarguðsþjón- ustur kl. 10.30 og kl. 14.00. Sunnudaga- skóli í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli kl. 13. Bragi Friðriksson. Grafarvogskirkja: Barnamessa kl. 11. Elinborg, Karitas og Valgerður aðstoða. Fermingarguðsþjónusta kl. 14. Organisti Sigurbjörg Helgadóttir. Sr. Vigfús Þór Árna- son. Grensáskirkja: Fermingarmessur kl. 10.30 og kl. 14.00. Sr. Halldór S. Gröndal og sr. Gylfi Jónsson. Organisti Árni Arin- bjarnarson. Ath. Fjolskyldumessa og barna- starf fellur niður þennan sunnudag og næsta, 17. apríl, vegna ferminga. Vorferð barnastarfsins verður sunnudaginn 24. apríl kl. 10.30. Athugið brottfarartimann. Hallgrimskirkja: Fermingarmessa kl. 11.00. Prestarnir. Háteigskirkja: Fermingarmessa kl. 10.30. Prestarnir. Hjallakirkja: Fermingarguðsþjónustur kl. 10.30 og kl. 14. Kór Hjallakirkju syngur. Organisti Oddný J. Þorsteindóttir. Sr. Krist- ján Einar Þorvarðarson. Kársnesprestakall: Barnastarf í safnaðarheimilinu Borgum kl. 11. Ferming i Kópavogskirkju kl. 10.30. Kór Kópavogs- kirkju syngur. Organisti Örn Falkner. Sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson. Keflavíkurkirkja: Fjölskylduguðs þjónusta kl. 11. Stund fyrir börnin i upphafi messu. Síðan fara þau yfir I Kirkjulund með Málfriði og Ragnari. Prestur sr. Sigfús Bald- vin Ingvason. Kór Keflavikurkirkju syngur. Organisti Einar Örn Einarsson. Prestarnir. Kvennakirkjan: GuðsþjónustaiNes- kirkju sunnudagskvöld kl. 20.30. Efni guðs- þjónustunnar er gleðin. Elisabet Þorgeirs- dóttir prédikar. Elisabet Erlingsdóttir syngur einsöng. Organisti Sesselia Guðmundsdótt- ir. Kaffi og umræður. Kvennakirkjan. Landspítalinn: Messa kl. 10. Sr. Sig- rún Óskarsdóttir. Langholtskirkja: Kirkja Guðbrands biskups. Fermingarmessa kl. 1-1.00. Prestur sr. Flóki Kristinsson. Kór Langholtskirkju (hópur IV) syngur. Organisti Jón Stefáns- son. Barnastarf kl. 13.00 í umsjá Hauks Jónassonar og Jóns Stefánssonar. Laugarneskirkja: Guðsþjónusta kl. 11.00. Barnastarf á sama tíma I umsjá Þórar- ins Björnssonar. Fermingarmessa kl. 13.30. Sr. Jón D. Hróbjartsson. Neskirkja: Barnasamkoma kl. 11.00. Munið kirkjubílinn. Fermingarmessur kl. 11.00 og kl. 14.00. Prestarnir. Seljakirkja: Laugardagur 9. apríl. Barnaguðsþjónusta kl. 11. Sunnudagur: Fermingarguðsþjónustur kl. 10.30 og 14. Organisti Kjartan Sigurjónsson. Sóknar- prestur. Seltjarnarneskirkja: Fermingar- messur kl. 10.30 og kl. 13.30. Organisti Hákon Leifsson. Prestur sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir. Barnastarfið fer í heim- sókn i Dómkirkjuna. Börnin mæti I rútu fyr- ir utan kirkjuna kl. 10.30. Umsjón hafa Sig- urður og Bára. Stokkseyrarkirkja: Bamaguðs- þjónusta kl. 11. Wayne Casey, Bandarikjamaöurinn snjalli hjá Grindavik, á erfiðan leik fyrir höndum með félögum sínum í Njarðvik á morgun. Njarðvík mæt- ir Grindavik Annar úrslitaleikur Njarðvíkinga og Grindvíkinga um íslandsmeist- aratitilinn í körfuknattleik verður háður í íþróttahúsinu í Njarðvík á morgun, laugardag, og hefst klukkan 16. Þetta er annar leikur liöanna en sá fyrsti fór fram í Grindavík í gær- kvöldi. Margir hafa spáð því að fimm leiki þurfi til að útkljá þetta einvígi Suður- nesjaliðanna. Njarðvíkingar freista þess nú að verða íslandsmeistarar í áttunda sinn en þeir sigruðu síöast árið 1991. Grindvíkingar, sem uröu deildameistarar á dögunum, hafa hins vegar aldrei náð svona langt, þeir hafa þrisvar áður komist í und- anúrslit en jafnan falhð út án þess að vinna leik. Úrslitaleikir í kvennaflokki Einvígi Keflavíkur og KR um ís- landsbikarinn í kvennaflokki í körfuknattleik heldur áfram um helgina en liðin mætast tvisvar. Keflavík vann fyrsta leikinn, á sínum heimavelli. og gæti orðið meistari á sunnudagskvöldið, en þarf þá að vinna í Hagaskólanum í kvöld, klukkan 20, og svo á sínum heima- velli á sunnudagskvöldið klukkan 20. Útivist: Lýð- veldis- gangan Ferðafélagið Útivist stendur fyrir lýðveldisgöngu á sunnudag. Gengið verður frá Ingólfstorgi kl. 10.30 um miðbæinn. Merkir atburðir sem gerðust árið 1924 verða teknir fyrir undir leiðsögn fróðra manna fram til kl. 13.00 en þá verður farið með rútu upp í Árbæjarsafn. Síðan verður gengið frá gamla Árbæjarbýhnu eftir leiðinni sem farin var til Þingvalla árið 1924 um Hólmsheiði í Djúpadal. Þetta er gönguferö viö allra hæfi og mun rúta fylgja göngufólkinu. Lýðveldisgangan hefst á Ingólfstorgi íþróttir Handbolti: Þriðji leikur Stjörnunnar og Víkings Þríöji leikur Stjömunnar og Víkings um islandsmeistaratit- ilinn í handknattleik kvenna verður háður í Ásgarði í Garðabæ á morgun, laugar- dag, og hefst hann klukkan 16.30. Allt að fimm leiki getur þurft til að útkljá einvígi lið- anna. KR og Fram leika í kvöld annan leik sinn um 3. sætið í 1. deiid kvenna, í Laugardals- höllinni kl. 20.15. Fram vann fyrsta leikinn og getur tryggt sér þriðja sætið með sigri í kvöld. Lokaumferðin í 2. deild karla verður háð á morgun, laugar- dag, og þá skýrist endanlega hvaða tvö lið leika í 1. deild næsta vetur. Allir leikirnir hefj- ast kl. 16 en HK og UBK leika i Digranesi, Grótta og ÍH á Seltjarnarnesi og Fjölnir og Fram í Grafarvogi. Blak: Undanúrslit í kvennaflokki Þróttur N. og ÍS mætasttvisv- ar um helgina i undanúrslitum 1. deildar kvenna í blaki. Liðin leika í Neskaupstað í kvöld klukkan 20 og aftur í Austur- bergi í Reykjavík klukkan 14.30 á sunnudag. Það líð sem vinnur tvo leiki mætir Vík- ingi í úrslitum Íslandsmótsins. Knattspyrna: ÍR og Valur ÍR og Valur mætast í A-deild Reykjavíkurmótstns I knatt- spyrnu á gervigrasvellinum i Laugardal á morgun, laugar- dag, klukkan 17. Badminton: Trimmara- og unglinaamót Trimmaramót TBR í badmin- ton verður haldið í húsi TBR á morgun, laugardag, og hefst klukkan 13. Unglingamót Badmintonfé- lags Hafnarfjarðar fer fram í Kaplakrika um helgina. Ferðir Ferðafélagið: Leggja- brjótur- Botnsdalur Ferðafélagið stendur fyrir ferðum á Leggjabrjót og Botnsdal á sunnudag kl. 10.30. Um er að ræða skíða- gönguferð sem stendur í fimm klukkustundir. Þá ætlar Ferðafélagið í gönguferð um Hafnir og Grindavík og er það einnig fimm klukkustunda göngu- ferð. Lagt verður af stað í þá ferð kl. 10.30. Ferðafélagið stendur fyrir skíðagöngu á Mosfellsheiði og kræklingaferð í Hvalfjörð en lagt verður af stað í þær ferðir kl. 13.00. .noectnodT 'I ííjöæicí ,qxs3IjsýW ,&niaumáv híííí; hriBÍdpeayö ms- .beijgunJ ií/v y oriT go lJ'jbu Inme: ,nooM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.