Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1994, Qupperneq 7
MÁNUDAGUR 11. APRÍL 1994
27
íþróttir
Heiða Erlingsdóttir lék best af útileikmönnum Víkings gegn Stjörnunni á laugardaginn og hér er hún að skora eitt
af fimm mörkum sínum án þess að Helga Sigmundsdóttir komi nokkrum vörnum við. DV-mynd GS
Úrslltakeppni kvenna í handknattleik:
Sagan endurtekur sig
- Víkingur kominn yfir eftir 16-17 sigur 1 fr amlengdum leik í Garöabæ
íslandsmeistarar Víkings hafa náð
2-1 forystu í viðureigninni við
Stjörnuna í úrslitum 1. deildar
kvenna í handknattleik. Víkingur
lagði Stjörnuna, 16-17, i framlengd-
um leik í Garðabæ á laugardag en
staðan eftir venjulegan leiktíma var
15-15.
Svo virðist sem sagan sé að endur-
taka sig. Stjaman hefur unnið fyrsta
leikinn undanfarin tvö ár en síðan
hefur Víkingur unnið tvo leiki í röð
og lagt grunninn að titlinum. Það
sama hefur gerst í ár og nú getur
Víkingur tryggt sér titilinn á heima-
velli í Víkinni í kvöld.
Stjaman hafði frumkvæðið allan
leikinn en Víkingur komst ekki yfir
fyrr en í framlengingunni. í fyrri
hálfleik náði Stjaman þriggja marka
forskoti, 5-2, en Víkingur minnkaði
muninn í eitt mark fyrir hlé og stað-
an var 8-7.
í síðari hálfeik byrjaði Stjarnan
einnig betur og náði fjögurra marka
forskoti, 12-8. Héldu þá margir að
björninn væri unninn en Víkings-
stúlkur vom á ööru máli. Stjarnan
var yfir, 15-13, þegar tæpar 7 mínút-
ur vom til leiksloka. Inga Lára Þóris-
dóttir minnkaði muninn í eitt mark
og stuttu síðar varð Una Steinsdóttir
Stjörnustúlka að fara meidd af leik-
velli. Við það fór allt í baklás í sókn
Stjörnunnar, liðið missti boltann
hvað eftir annað og Heiða Erlings-
dóttir jafnaði leikinn, 15-15, þegar
fjórar og hálf mínúta var eftir. Á
þeim tíma tókst hvomgu liðinu að
skora og því var framlengt.
Una kom nú aftur inn á en sókn
Stjörnunnar var samt hálflömuð.
Inga Lára kom Víkingi yfir í fyrsta
sinn í leiknum úr vítakasti en Ragn-
heiður Stephensen jafnaði fyrir
Sfjömuna. í síðari hálfleik framleng-
ingarinnar var það síðan Inga Lára
sem gerði eina markið úr vítakasti
og tryggði Víkingi sigur, 16-17.
Víkingsliðið á hrós skilið fyrir góða
baráttu og seiglu. Vörn liðsins var
mjög góð og hélt Guðnýju Gunn-
steinsdóttur í heljargreipum allan
leikinn. í sókninni var það skynsem-
in sem réð ferðinni. Hjördís Guð-
mundsdóttir átti stórleik í markinu
en af útileikmönnunum átti Heiða
Erlingsdóttir bestan leik og Inga
Lára var mikilvæg undir lokin.
Varnarleikur Stjörnunnar var
ágætur en sóknarleikurinn var höf-
uðverkurinn. Hraðaupphlaupin
gerðu þó gæfumuninn lengi vel en
eftir að Víkingur girti fyrir þau var
erfiðara um vik. Síðustu mínúturnar
var algjört ráöleysi í sókninni og lið-
iö gerði aðeins eitt mark síðustu 17
mínútur leiksins og framlengingar-
innar. Nina Getskot var langbesti
maður Uðsins.
Erla Rafnsdóttir var nú í leik-
mannahópi Stjömunnar en kom
ekkert inn á. Fastlega má búast við
því að Erla komi við sögu í kvöld.
Hlutverk hennar verður væntanlega
aö laga sóknarleik liðsins sem ekki
hefur verið sannfærandi í síðustu
tveimur leikjum.
Mörk Stjörnunnar: Ragnheiður
Stephensen 6/4, Una Steinsdóttir 3,
Hrund Grétarsdóttir 2, Guðný Gunn-
steinsdóttir 2, Margrét Vilhjálms-
dóttir 1, Herdís Sigurbergsdóttir 1.
Varin skot: Nina Getsko 20/2.
Mörk Víkings: Inga Lára Þórisdótt-
ir 6/4, Heiða Erlingsdóttir 5/1, Halla
María Helgadóttir 3, Svava Sigurðar-
dóttir 2, Hulda Bjarnadóttir 1. Varin
skot: Hjördís Guðmundsdóttir 17.
Slök dómgæsla hefur einkennt úr-
slitakeppnina í ár og á því varð engin
undantekning á laugardaginn er þeir
Óli Ólsen og Gunnar Kjartansson
dæmdu.
-BL
Framfékkbronsið
Fram tryggöí sér 3. sætið í 1.
deild kvenna með því að bera sig-
urorð af KR í tveimur leikjum,
20-17. Síðari leikurinn var tiltölu-
ega jafn, staöan í hálfleik var 8-8
en Fram hafði betur á endasprett-
inum og sigraði.
Mörk Fram: Díana 5, Guðríður
4, Hafdis 3, Selka 2, Kristin 2,
Margrét 2, Ósk l, Hafdis 1.
Mörk KR: Sigríður 9, Nellý 3,
Brynja 3, Anna 2.
Stefán Kristjánsson er oröinn
löglegur FH liöinu í handknatt-
leik og getur leikiö með félaginu
þegar það mætir Víkingi i úrslita-
keppni 1. deildarinnar sem hefst
á morgun. Stefán hefur æft FH-
ingum undanfama mánuði eða
allt frá því hann kom heim frá
Þýskalandi þar sem han lék með
Pfúllingen og um helgina tókst
loks að ganga frá þeím pappímm
sem gera Stefán löglegan.
Alzlratapaði
Alzira lið þeirra Geirs Sveins-
sonar og Júlíusar Jónassonar
tapaði fyrir Teka, 28-22, í undan-
úrslitum spænsku 1. deiídarinnar
í handknattleik á laugardaginn.
Þetta var fyrri undanúrslitaleik-
ur liðanna og sá síöari fer fram á
heimavelli Alzira á miövikudags-
kvöldi. Geir skoraöi 3 mörk í
leiknum en Júlíus komst ekki á
blað en hann lék einungis varn-
arleikinn. í hinni undanúrslita-
viðureigninni tapaði Barcelona á
heimavelli fyrir Bidasona, 18-19.
ÍSíúrsiítin
ÍS tryggði sér i gær sæti í úrslit-
unum um íslandsmeistaratitil
kvenna í blaki með þvi að sigra
Þrótt frá Neskaupstað öðm sinni
í undanúrslitunum, 3-0, í Austur-
bergi í gær. Sigur Stúdína var
mjög öruggur því þær unnu hrin-
umar 15-8,15-7 og 15-0. ÍS vann
fyrri leik liðanna sem háður var
í Neskaupstað á fóstudagskvöld-
ið, 3-2, og mætir Víkingi í úrslita-
leikjum um titilinn.
Arnar mætir Davis
Eyþór Eðvarðsson, DV, Hollandi:
Arnar Gunnlaugsson er kom-
inn í úrslit í vinsælum sjónvarps-
þætti sem hollenska sjónvarpið
hefur verið með í gangi i vetur. í
þessum þætti mætast tveir leik-
menn úr hollensku 1. deildinni í
einvígi þar sem þeir spila á tvö
lítil mörk í 5 mínútur og sá sem
skorar fleiri mörk fer með sigur
af hólmi. Nú er svo komið að tveir
standa eftir Arnar og Edgar Dav-
is hjá Ajax sem er einn efnileg-
asti knattspyrnumaður Hollend-
inga og verður væntanlega í leik-
mannahópi Hollands í HM.
-GH/VS/BL
HKog ÍHíl deild
HK úr Kópavogi og ÍH, litla liðið
úr Hafnarfirði, tryggðu sér á laugar-
daginn sæti í 1. deild karla í hand-
knattleik á naesta keppnistímabili og
taka þar sæti ÍBV og Þórs. Þetta verð-
ur í fyrsta sinn í 10 ára sögu ÍH sem
það leikur á meðal þeirra bestu og
Hafnarfjörður mun því eiga þrjú lið
í 1. deildinni næsta vetur. HK er ekki
ókunnugt á þeim slóðum en liðið féll
úr 1. deild á síðasta keppnistímabili.
HK undir stjórn Þorgbergs Aðal-
steinssonar landsliðsþjálfara tryggði
sér sigur í deildinni með 31-21 sigri
á nágrönnum sínum úr UBK eftir að
staðan í leikhléi var 14-11 HK í vil.
Óskar Elvar Óskarsson var að vanda
markahæstur í HK-liðinu með 11
mörk, Jón Bersi Erlingsen var með
6 mörk og Gunnar Már Gíslason 5.
Bragi Jónsson og Jón Þórðarson
voru með 4 mörk hver fyrir Blika.
ÍH lagði Gróttu á Seltjarnamesi,
23-24, í hreinum úrslitaleik. ÍH hafði
frumkvæðið allan leikinn og í hálf-
leik var staðan 9-12 ÍH í vil. Undir
lokin sóttu Gróttumenn í sig veðrið
og náöu að minnka muninn í eitt
mark en nær komst liðið ekki. Sig-
urður Örn Árnason skoraði 7 mörk
fyrir ÍH, Jón Þórðarson 6, Guðjón
Steingrímsson 4 og Ólafur Magnús-
son 3. Þjálfari Hafnarfiarðarliðsins
er Guðmundur Karlsson, íslands-
meistari í sleggjukasti og fyrrum
aðstoðarþjálfari FH. Hjá Gróttu var
Ólafur Sveinsson markahæstur með
7 mörk og Þór Sigurgeirsson 4.
Þá vann Fjölnir sigur á Fram,
27-23. Lokastaðan í úrshtakeppninni:
HK...........10 6 2 2 249-209 18
ÍH...........10 8 1 1 243-213 18
Grótta........10 6 1 3 232-215 15
UBK...........10 5 0 5 225-233 10
Fjölnir.......10 2 0 8 214-242 4
Fram..........10 1 0 9 210-261 2
-GH
Óskar Elvar Oskarsson, fyrirliði HK, með bikarinn og fagnar hér ógurlega ásamt félögum sinum,