Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1994, Blaðsíða 2
22
MÁNUDAGUR 25. APRÍL 1994
fþróttír______________________
Valur (11) (21) 27
Selfoss (12) (21) 25
0-1, 1-2, 2-4, 3-5, 4-6, 5-6, 6-5,
8-10, 10-10, (11-12). 12-12, 13-12,
14-14, 15-14, 17-16, 18-18, 19-20,
20-21, (21-21) Framlenging: 23-21,
23-22, (24-22). 25-22, 25-24, 26-25,
27-25.
. Mörk Vals: Dagur Sigurðsson 7,
Ólafur Stefánsson 6, Jón Kristjáns-
son 5, Valgarð Thoroddsen 4, Rún-
ar Sigtryggsson 4/1, Finnur Jó-
hannsson 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafn-
kelsson 10, Axel Stefánsson 5.
Mörk Selfoss: Sígurður Sveins-
son 10/4, Elnar Gunnar Sigurðsson
5, Sigutjón Bjamason 3, Gústaf
Bjamason 3, Einar Guömundsson
2, Oliver Pálmason 1, Jón Þórir
Jónsson 1.
Varin skot: Hallgrímur Jónasson
19/1.
Brottvísanir: Valur 8 mín, Sel-
foss 6 min.
Dómarar: Sigurgeir Sveinsson
og Gunnar Víðarsson. Mistækir á
köflum en leikurinn var mjög erf-
iður að dæma.
Áborfendur: Um 800.
Maður leiksins: Dagur Sigurfts-
son, Val.
Litla bikarkeppnin:
Sjö komin í
8-liða úrslit
Sjö lið hafa tryggt sér sæti 1 8-
liða úrslitum Litlu bikarkeppn-
innar í knattspyrnu. Skagamenn
hreppa áttunda sætið, nema þeir
tapi með minnst þriggja marka
mun fyrir HK í Kópavogi á
fimmtudagskvöldið, en þeim leik
var frestað i gær þar sem fimm
Skagamenn léku meö landsliðinu
í Bandaríkjunum á sama tíma.
A-riðill:
Selfoss vann Gróttu, 3-2, en þarf
að treysta á skell Skagamanna til
að komast áfram. Gísli Bjömsson
(2) og Ómar Valdimarsson skor-
uðu fyrir Selfoss en Valur Svein-
björnsson og Gísli Jónasson fyrir
Gróttu.
HK..........,2 2 0 0 4-0 4
Akranes.....2 110 3-1 3
Selfoss.....3 1114-5 3
Grótta......3 0 0 3 2-7 0
B-riðiU:
Grindavik vann Ægi, 3-0, og þar
með var 4. deildarliðið úr leik eft-
ir að hafa koraiö skemmtilega á
óvart. Grétar Einarsson skoraði
2 mörk og Milan Jankovic eitt.
FH vann Hauka, 2-0, meö
mörkum Þorsteins Jónssonar og
Guðna Grétarssonar, og náði þar
með öðru sætinu.
Grindavík....3 2 1 0 7-3 5
FH..........3 1 2 0 5-3 4
Ægir........3 1113-4 3
Haukar.......3 0 0 3 1-6 0
C-riðUl:
ÍBV tryggðí sér annað sætiö með
0-1 sígri á Víði með marki frá
Jóni Braga Amarssyni.
Stjaman vann Aftureldingu,
3-1, og skoruöu Bjami Gaukur
Sigurðsson, Bjami Benediktsson
og Ingólfur Ingólfsson fyrir
Stjörnuna en Stefán Viðarsson
fyrir Aftureldingu.
Stjaman.....3 3 0 0 7-2 6
ÍBV..........3 2 0 1 4-2 4
Aftureldtng....3 1 0 2 5-6 2
Viðir........3 0 0 3 1-7 0
D-riðiU:
Breiðablik vann Reyni, 2-1, í úr-
slitaleik um annað sætið með
tveimur mörkum Guðna Grétars-
sonar. Ari Gylfason svaraði fyrir
Sandgerðinga.
Keílavík vann SkaUagrím í
Borgamesi, 0-1, meö marki frá
Marko Tanasic.
Keílavík.....3 3 0 0 6-0 ,6
UBK..........3 2 0 1 5-2 4
ReynirS......3 1 0 2 3-7 2
Skallagrímur.3 0 0 3 1-6 0
3-Iiða úrslit:
í 8-liða úrslitunum næsta laugar-
dag mætast eftirtalin lið:
HKeðaÍA-FH
Grindavík-HK eða ÍA
Stjaman-Breíðablik
Keflavík-ÍBV -ÆMK/VS
Alltþaðbesta
- þegar Valur vann Selfoss í framlengingu að Hlíðarenda, 27-25
Jón Kristjánsson var Valsmönnum geysilega mikilvægur á lokakafla leiksins og hér skorar hann eitt marka sinna
án þess að Sigurður Sveinsson fái nokkuð við þvi gert. DV-mynd Brynjar Gauti
„Það skipti sköpum þegar Axel
kom í markið. Hann tók skotin frá
Einari Gunnari sem vó þungt í lokin
og framlengingunni. Ég var svolítið
hræddur í lokin; við vorum á full-
bráðir í sókninni en sem betur fer
höfðum við þetta af. Við ætlum að
klára dæmið á Selfossi, eigum tölu-
vert inni ennþá og ef Guðmundur
hrekkur í gang er ég hvergi smeyk-
ur,“ sagöi Valsmaðurinn Ólafur Stef-
ánsson sem átti stjömuleik á loka-
kaflanum í fyrsta undanúrslitaleikn-
um gegn Selfyssingum að Hlíðarenda
á laugardaginn var.
Leikurinn var í einu orði sagt gríð-
arlega spennandi frá upphafi til
enda. Leikurinn bauð upp á það besta
og til að kóróna spennuna varð að
framlengja leikinn. Þá reyndust
Valsmenn sterkari og unnu með
tveggja marka mun, 27-25. Að lokh-
um vejulegum leiktíma var staðan
21-21. Annar leikur liðanna verður á
Selfossi í kvöld og reikna má með að
spennan þar veröi ekki síðri en í
fyrsta leiknum.
Leikurinn var á stundum nokkuð
harður og bæði liðin ætluðu greini-
lega ekki að gefa eftir fyrr en í fulla
hnefana. Selfyssingar voru sterkari
í fyrri hálfleik. Valsmenn voru í
vandræðum í sókninni og ekki bætti
úr skák fyrir þá að Hallgrímur Jón-
asson, markvörður Selfyssinga, var
í essinu sínu og varði af stakri snilld.
Selfyssingar náðu mest þriggja
marka forystu í fyrri hálfleik en
smám saman náðu Valsmenn betri
tökum á leik sínum og forysta Sel-
fyssinga var ekki nema eitt mark í
leikhléi.
Það mátti sjá á leik Valsmanna í
upphafi síðari hálfleiks að Þorbjörn
Jensson þálfari haföi lesið yfir
hausamótunum á sínum mönnum.
Þeir hófu hálileikinn af fítonskrafti,
jöfnuðu metin, komust síöan yfir og
höfðu lengstum forystu, aldrei þó
meiri en eitt mark. Hallgrímur átti
snilldarleik á lokakafla venjulegs
leiktíma og fyrir vikið komust Sel-
fyssingar yfír. Valsmenn, vel hvattir
af sínum mönnum, voru hvergi hætt-
ir og jöfnuðu metin meö glæsimarki
Jóns Kristjánssonar.
Selfyssingar voru miklar klaufar
að láta leikinn fara út í framlengingu
því þeir fengu fjórum sinnum tæki-
færi til að auka muninn í foryst-
unni, 26-21. Þama kom fram þekktur
veikleiki; að halda ekki haus og nýta
tímann og tækifærin til fullnystu.
Valsmenn voru mun sterkari á
tauginni í framlengingunni. Sókn-
irnir voru vel útfærðar og skot ekki
látið ríða af fyrr en í öruggu færi eöa
vöminni splundraö hjá Selfyssing-
um. Einnig var Axel Stefánsson Sel-
fyssingum erfiður en hann varði
mjög vel í framlengingunni. Sterkur
leikur hjá Þorbimi þjálfara að láta
Axel í markiö en Guömundur náöi
sér ekki alveg nógu vel á strik þótt
markvarsla hans væri langt frá þvi
að vera slök.
Valsmenn hafa tekið forystu í við-
ureign liðanna en rimmunni er
hvergi nærri lokið. Annar leikur lið-
anna verður í kvöld á Selfossi og þá
ræðst hvort Valsmenn klára dæmið
eða Selfyssingar svara fyrir sig og
oddaleik þurfi á Hlíðarenda á mið-
vikudagskvöldið.
Valsmenn léku á köflum skínandi
vel. Ólafur Stefánsson og Dagur Sig-
urösson áttu frábæran leik. Jón
Kristjánsson var seinn í gang en kom
geysúega sterkur inn þegar mest lá
við. Valgarð var einnig öryggið upp-
málaö.
„Við getum engum um kennt
hvemig fór nema okkur sjálfum. Við
áttum mikla möguleika á aö gera út
um leikinn í venjulegum leiktíma.
Þá gerðist sóknarleikur fumkenndur
og því fór sem fór. Við munum
þjappa okkur vel saman fyrir leikinn
í kvöld og svara fyrir okkur. Þessi
leikur var góð auglýsing fyrir hand-
boltann,“ sagöi Einar Þorvaröarson,
þjálfari Selfyssinga, eftir leikinn.
Hallgrímur Jónasson átti stórleik í
marki Selfyssinga en markvarsla
hans nægði samt ekki til sigurs. Sig-
urður Sveinsson var einnig mjög
sterkur en í mjög strangri gæslu all-
an tímann. Einar Gunnar var góður
í fyrri hálfleik en náði sér ekki á strik
í þeim síðari. Sumir leikmanna Sel-
fossliösins léku undir getu en liðið
lék þó, eins og á kafla í fyrri hálfleik,
frábærlega vel.
-JKS
Valur 27
Þannig skoruðu
mörkin
i
Langsk. Horn Lína Hraöaupphl.
Selfoss 25
wm H
iðaupphl. Gegnumbr. j
Langsk. Æ
ÍS meistari
- eftir 3-1 sigur á Víkingi í fjórða leik
Stúdínur tryggðu sér íslandsmeist-
aratitilinn í blaki í gærkvöldi með
sigri á Víkingum, 3-1. Víkingur byij-
aði betur og sigraði í fyrstu hrin-
unni, 11-15. Stúdínur efldust viö
mótlætið og sigruðu örugglega, 15-7,
í annarri hrinu. Jafnræði var með
liðunum í þriöju hrinu og þrátt fyrir
að Þórey Haraldsdóttir, besti leik-
maður IS, yrði aö yfirgefa völlinn
þegar staöan var 13-12 þá náöu Stúd-
ínur að knýja fram sigur, 15-13. Þær
léku síöan á als oddi í íjórðu hrin-
unni, sigruðu 15-11 og tryggðu sér
þar með íslandsmeistaratitilinn.
„Við höfum góðan mannskap og
mórallinn í hópnum er mjög góður.
Viö erum liö hvort sem við erum
innan eða utan vallar,“ sagöi Þórey
Haraldsdóttir, fyrirliði ÍS.
„Liðsheildin er mjög góð og það
virðist vera að við spilum best undir
pressu. Þjálfarinn er mjög góöur og
honum tekst aö ná því besta út úr
okkur," sagði Metta Helgadóttir,
leikmaður ÍS.
„Við erum ekki nógu skapsterkar,
það vantaði viljann til að vinna. Það
kemur panik í liðið og þá hættum
við að spila blak. Karakterinn í liöinu
er ekki nógu góður til þess að klára
dæmið,“ sagði Jóhanna Kristjáns-
dóttir, fyrirliði Víkinga.
-ih
Ursula Junemann, aldursforsetinn í liði ÍS, var að vonum kát eftir sigurinn
ó Víkingi í gærkvöldi. ÍS er nú bæði íslands- og bikarmeistari.
DV-mynd GS