Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1994, Qupperneq 3
MÁNUDAGUR 25. APRÍL 1994
23
DV
Víkingur (14) 28
Haukar (13) 23
1-0, 4-1, 6-3, 6-5, 8-5, 8-8, 10-10,
12-12, 14-12, (14-13), 16-13, 17-16,
19-16, 20-18, 20-20, 24-20, 24-21,
28-21, 28-23.
Mörk Víkings: Bjarki Sigurðsson
11/4, Birgir Sigurðsson 7, Slavisa
Cvijovic 5, fYiöleifur Friöleifsson
2, Kristján Ágústsson 2, Ámi Friö-
leifsson 1.
Varin skot: Reynir Reynisson 10,
Magnús Ingi Stefánsson 4,
Mörk Hauka: Páil Ólafsson 6,
Sigurjón Sigurðsson 5, Aron
Kristjánsson 3, Petr Baumrúk 3/1,
Halldór Ingóifsson 2, Pétur V.
Guönason 2, Óskar Sigurösson 1,
Þorkell Magnússon 1.
Varin skot: Bjarni Frostason
15/1.
Brottvísanir: Vikingur 12 mínút-
ur, Haukar 6 mínútur.
Dómarar: Guöjón L. Sigurösson
og Hákon Sigurjónsson, áttu í
vandræöum með aö halda tökum
á leiknum og voru mistækir.
Áhorfendur: Um 1.100.
Maður leiksms: Bjarki Sigurðs-
son, Víkingi.
Bættum upp
mistökin
„Við vissum hvað við vorum
að gera vitlaust í fyrri leiknum,
sérstaklega í vörninni, og aðal-
atriöið er að við náðum að bæta
fyrir þau mistök í kvöld,“ sagði
Gunnar Gunnarsson, þjálfari og
leikmaður Víkinga, við DV eftir
sigurinn á Haukum.
„Það var mikil harka í þessum
leik enda eru liðin búin að stúd-
era hvort annað mjög vel og
þekkja lejkkerfm út í gegn. í slík-
um leikjum eru það smáatriðin
sem ráða úrslitum, hraöaupp-
hlaupin voru gífurlega mikilvæg
og markverðimir vörðu á réttum
augnablikum. Viö fórum
óhræddir á Strandgötuna og ætl-
um okkur að sjálfsögðu alla leið
í úrslit,“ sagði Gunnar.
Haukar ekki ósigrandi
„Þetta var upp á líf og dauða fyr-
ir okkur, og við vorum staðráðnir
í að sýna okkur og sanna frá
fyrstu mínútu," sagði Bjarki Sig-
urðsson, sem átti stórleik með
Víkingum í gærkvöldi.
„Það má segja að allir hafi spil-
að fast og vel i vörninni og stefn-
an var að halda það út, og við
uppskárum eins og viö sáðum.
Við eru búnir að sýna að Hauk-
amir eru ekki ósigrandi eftir að
hafa gert tvö jafntefli við þá í
vetur og tapað naumlega fyrir
þeim á föstudaginn," sagöi
Bjarki. -VS
íþróttir
Það var ekkert gefiö eftir í Víkinni i gærkvöldi, eins og þessi mynd ber með sér. Gunnar Gunnarsson, þjálfari Víkinga, iiggur með boltann í höndunum
og Hinrik Bjarnason, félaga sinn, ofan á sér og Haukarnir Halldór Ingólfsson og Pétur Vilberg Guðnason, fyrirliði, eru greinilega ekki ánægðir með það sem
er að gerast. DV-mynd Brynjar Gauti
Undanúrslit f slandsmótsins í handknattleik:
Víkingar í vígahug
- fyrsta tap Hauka 1 hálfan fimmta mánuð, 28-23, og oddaleikur í Hafnarfirði
Þar kom aö því - Haukar biöu í
gærkvöldi sinn fyrsta ósigur á ís-
landsmótinu í handknattleik í hálfan
fimmta mánuð, eða síðan þeir töpuðu
fyrir Aftureldingu 12. desember á
síðasta ári. Frá þeim tíma hafði Hafn-
arfjarðarliðið unnið 11 leiki og gert
fjögur jafntefli, orðið deildarmeist-
ari, og hefur af mörgum veriö spáð
íslandsmeistaratitlinum.
En Haukamir mættu oíjörlum sín-
um í Víkinni í gærkvöldi. Víkingar
komu gífurlega ákveðnir til leiks -
og frá upphafi var ljóst að hjá þeim
var neistinn - sigurviljinn sem þarf
til að vinna baráttuleiki á borð við
þennan. Þeir sigruðu, 28-23, og þar
með mætast liðin í oddaleik í Hafnar-
firöi annað kvöld. Ef marka má leik-
inn í gærkvöldi verða það mikil átök.
Leikurinn var hvaö eftir annað við
suðumarkið, ljót brot sáust á báða
bóga, og dómararnir náðu ekki æski-
legum tökum á gangi mála.
Víkingar voru yfir nær allan leik-
inn, einu til þremur mörkum, en
Haukarnir jöfnuðu þó af og til. Þegar
staðan var 20-20 og útlit fyrir að enn
einu sinni ætluðu Haukamir að fara
að síga fram úr andstæðingum sín-
um á lokakaflanum, snerist dæmið í
höndunum á þeim. Víkingar hrein-
lega völtuðu yfir þá, skoruðu átta
mörk gegn einu, og tryggðu sér verð-
skuldaðan sigur.
Víkingar byggðu leik sinn út frá
gífurlegri baráttu í vörninni. Það
segir sitt um leikinn að markverðir
þeirra náðu sér ekki á strik fyrr en
Reynir Reynisson á síðustu 12 mínút-
unum, en samt áttu Haukamir, með
Bjarna Frostason öflugan í markinu,
alltaf á brattann aö sækja. Bjarki
Sigurðsson lék snilldarvel í sókninni
og skoraði mörg glæsileg mörk, Birg-
ir Sigurðsson var ómetanlegur þegar
mest á reyndi í seinni hálfleiknum,
Slavisa Cvijovic lék af miklum krafti
og Gunnar Gunnarsson stjórnaði
sínum mönnum eins og herforingi.
Haldi Víkingar þessum dampi era
þeir til alls vísir í Hafnarfirðinum
annað kvöld.
Haukarnir sýndu ekki þann leik
sem vænta hefði mátt af deildameist-
umm og tókst ekki aö fylgja góðri
markvörslu Bjarna eftir. Hefði hann
ekki verið í formi hefðu möguleikar
Haukanna verið úr sögunni strax í
fyrri hálfleik. Siguijón Sigurðsson
komst einna best frá leiknum af úti-
spilurunum og Páll Ólafsson hélt
einn í við Víkingana framan af seinni
hálfleik þegar hann gerði sex mörk
Hauka í röð, mörg af sinni gamal-
kunnu seiglu.
-VS
Langsk. Horn Lína Hraöaupphl.
Haukar 23
II
HH
k. Horn Lína Hraöaupphl.
ingur 23 wm
„Það var eins og menn vildu fá „Við byijuðura mjög illa, varnar- það var uppgjöf hjá okkur í lokin,
þriðja leikinn í Fjörðinn," sagði leikurinn var ekki nógu góður og eins og oft vill verða þegar svona
Jóhann Ingi Gunnarsson, þjálfari við gerðum of mikiö af mistökum, staða kemur upp. Víkingsliðið var
Hauka,viðDV,óánægðurmeðsína og það fór of mikill kraftur í að mjög gott og verðskuldaði sigur-
menn eftir ósigurinn gegn Víking- vinna alltaf upp 2-3 mörk. Þeir inn,“ sagði Jóhann Ingi.
um í gærkvöldi. vom sterkari á lokasprettinum en -VS
Haukar sigruðu
í fyrstu lotunni
„Það var liðsheildin sem öðru
fremur skóp þennan sigur. Menn
standa vel saman og hafa gaman af
því sem þeir em að gera,“ sagði Sig-
urjón Sigurðsson, leikmaður Hauka,
eftir að liðið hafði sigrað Víking,
25-23, í fyrsta leik liðanna í undanúr-
slitunum í handbolta í Hafnarfirði á
föstudagskvöld.
Leikurinn var hraður og spennandi
og baráttan gífurleg. Haukar byijuöu
betur en Víkingar náðu með mikilli
baráttu að komast yfir fyrir hlé og
leiddu, 11-12, í hálfleik. Bjami
Frostason kom inn á í mark Hauka
1 byijun síðari hálfleiks og varði frá-
bærlega og við það náðu Haukar
undirtökunum sem þeir héldu allt til
leiksloka.
Siguijón Sigurðsson átti stórgóðan
leik í liði Hauka og Bjarni var eins
og áður sagði frábær í markinu. Hjá
Víkingum var Slavisa Cvijovic best-
ur og lék sennilega sinn besta leik
fyrir fyrir liðiö.
-RR
Haukar (11) 25
Víkingur (12) 23
3-1, 44, 6-5, 7-8, 9-9, 10-11,
(11-12), 13-12, 15-14, 17-16, 20-18,
22-19, 22-21, 24-21, 25-23.
Mörk Hauka: Sigurjón Sigurðs-
son 6, Halldór Ingólfsson 5/1, Petr
Baumruk 5/2, Páll Ólafsson 2, Aron
Kristjánsson 2, Pétur V. Guðnason
2, Þorkell Magnússon 2, Jón Öm
Stefánsson 1.
Varin skot: Bjami Frostason
13/1, Magnús Ámason 3.
Mörk Víkings: Slavisa Cvijovic
8, Bjarki Sigurðsson 7/2, Gunnar
Gunnarsson 4, Birgir Sigurðsson
2, Friðleifur Friöleifsson 2.
Varin skot: Reynir Reynisson 12.
Brottvísanir: Haukar 8 mín„
Víkingur 4 mín.
Dómarar: Stefán Arnaldsson og
Rögnvaldur Erlingsson, ágætir.
Ahorfendur: Um 1000.
Maður leiksins: Sigurjón Sig-
urðsson, Haukum.