Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.1994, Síða 8
28
MÁNUDAGUR 25. APRÍL 1994
íþróttir
Heimsmeistaramótið í þolfimi 1 Tokyo:
Grátlegur munur
- Magnús Scheving hreppti silfurverðlaun eftir harða keppni við Japana
Magnús Scheving hreppti silf-
urverðlaun á heimsmeistaramót-
inu í þolfimi sem lauk í Tokyo í
Japan í fyrrinótt. Magnús háði
gífurlega harða keppni við Kenic-
hiro Momura frá Japan sem hafði
betur en tæpara gat það varla
orðið. Japaninn hlaut samtals
9,16 stig en Magnús 9,12 stig.
Magnús hafði forystu eftir fyrri
dag keppninnar og langt fram eft-
ir síðara keppnisdeginum.
Magnús sagði í samtali við DV
eftir keppnina að Japaninn hefði
verið betri síöari keppnisdaginn.
Magnús viðurkenndi þó að eftir
að hann hafði lokið keppni með
9,12 stig hefði hann átt erfitt með
að trúa því að Japaninn kæmist
upp fyrir hann. Æfingar hans
hefðu hins vegar verið frábærar
og dómnefndin komist að þeirri
niðurstöðu aö hann hlyti gull-
verðlaunin. Þess má geta aö í tíu
manna dómnefnd voru þrír Jap-
anar.
„Japaninn var að keppa á sínu
14. heimsmeistaramóti en ég á
mínu þriðja. Hann hafði því
óneitaniega nokkra reynslu fram
yfir mig. Það hafa orðiö gífurleg-
ar framfarir í þolfimi frá síðasta
heimsmeistaramóti og tilað drag-
ast ekki aftur úr þarf að byija
æfmgar að nýju strax á morgun.
Ég hef hins vegar gefið það út að
þetta væri mín síðasta keppni og
núna ætli ég að snúa mér alfarið
að kennslu. Þrátt fyrir góðan
stuðning nokkurra aðila heima
hef ég ekki efni á þessu lengur,"
sagði Magnús Scheving í samtal-
inu við DV.
Magnús var spuröur hvort
hann myndi endurskoða ákvörð-
un sína ef hann fengi aukinn
stuðning til að iðka íþrótt sína.
„Það er aldrei að vita nema mað-
ur myndi setjast niður og skoða
málið,“ sagði Magnús. Hann
sagði ennfremur að meiðslin, sem
hann hlaut á æfingu skömmu fyr-
ir keppnina, hefðu ekki haft áhrif
á árangur hans í mótinu.
Magnúsi hefur verið boðið á
opið mót í Argentínu eftir hálfan
mánuð og býst við að þiggja það
boð. Ennfremur stendur honum
til boða að kenna þolfimi í
Moskvu og fleiri boð hafa einnig
borist sem hann ætlar að skoða
nánar þegar heim er komið.
-JKS
Olafur Þórðarson hefur betur í skallaeinvigi gegn Alexi Lallas i landsleiknum gegn Bandaríkjamönnum i Kaliforníu
i nótt. Sigurður Jónsson fylgist með álengdar. Símamynd Reuter
HM-lið Bandarikjanna lagt að veUi í Kalifomíu í gærkvöldi:
Langþráður sigur
- Helgi og Bjarki skoruðu sín fyrstu mörk fyrir ísland, 1-2
Stjörnulið
Brasilíu
gegn íslandi
Brasilíumenn hafa vaiið 22 leik-
menn fyrir vináttulandsleikinn
gegn íslendingum í borginni Flor-
ianópolis 4. maí.
Ljóst er aö Brasilíumenn líta á
leikinn gegn íslendingum sem
stóran lið i undirbúningnum fyr-
ir úrslitakeppni HM í Bandaríkj-
unum og tjalda öllu sínu besta.
Brasilíski hópurinn er annars
þannig skipaður:
Markmenn eru Taffarel (Regg-
iana), Zelti (Sao Paulo), Gilmar
(Flamengo). Aðrir leikmenn:
Jorginho (Bayern Munchen),
Cafu (Sao Paulo), Richardo Rocha
(Vasco da Cama), Richardo Go-
mes (Paris SG), Mozer (Benfica),
Áldair (Roma), Branco (Flumin-
ense), Leonardo (Sao Paulo), Cés-
ar Sampolo (Palmeiras), Ðunga
(Stuttgart), Rai (Paris SG), Mazin-
ho (Palmeiras), Paulo Sérgio
(Bayer Leverkusen), Viola (Cor-
inthians), Bebeto (Deportivo La
Corana), Romario (Barcelona),
Mtilier (Sao Paulo), Zinho (Pal-
meiras). -JKS
Alzira vann
fyrri ieik
Spænska liðið Alzira, sem Geir
Sveinsson og Július Jónasson
leika með, varrn fyrrí ieikinn
gegn austuríska liðinu Linz í úr-
slitum um Evrópumeistaratil fé-
lagsliða í handknattleik í Alzíra
um helgina. Lokatölur leiksins
urðu 28-19 en í hálfleik hafði Alz-
íra tveggja marka forystu, 10 8.
Geir og Júlíus voru báðir með
eitt mark í leiknum. Síðari leik-
urinn verður í Linz á laugaiúag-
inn kemur.
„Við lékum ekki vel í þessum
leik og það er alveg ljóst að síöari
leikurinn í Austurríki verður erf-
iður. Það geta allir leikroenn liðs-
ins leikið mun betur en þeir
gerðu og við fórum i seinni leik-
inn meö þvi hugarfari að vinna
en ekki aö halda forskotinu sem
við höfum éftir,“ sagði Geir
Sveinsson í samtali við DV.
Uppselt var á leikinn og fylgd-
ust á fjórða þúsund áhorfendur
með viðureígninni. Geir sagöi aö
Lónz-liðið væru nokkuð gott enda
skipað nokkrum erlendum leik-
mönnum með austurrískt vega-
bréf. Þess má geta aö Paul Tiede-
mann, fyrrverandi landsliðsþjálf-
ari Austur-Þýskalands, er þjálf-
ari hjá Unz og hefúr náö ótrúleg-
um árangri. -JKS
Sóknarmennimir ungu, Helgi Sig-
urðsson og Bjarki Gunnlaugsson,
skoraðu sín fyrstu mörk fyrir A-
landslið íslands í knattspymu í gær-
kvöldi þegar það vann góðan sigur á
HM-hði Bandaríkjamanna, 1-2, í vin-
áttulandsleik í San Diego í Kalifom-
íu. Þetta er annar sigur íslands á
Bandaríkjunum í sex leikjum frá
upphafi og sá fyrsti á útivelli en fyrri
sigurinn vann Island á Melavellinum
fyrir 39 árum.
Bandaríkjamenn sóttu meira í
leiknum en sköpuðu sér fá mark-
tækifæri. íslenska liðið barðist vel,
lék skynsamlega og átti margar góð-
ar sóknir sem hefðu með smáheppni
getað skilað fleiri mörkum.
ísland náöi forystunni á 19. mínútu
eftir góða skyndisókn. Daöi Dervic
skallaði boltann frá vítateig íslands
og til Helga Sigurðssonar. Helgi sendi
á Amar Gunnlaugsson sem gaf út á
kant á Harald Ingólfsson. Haraldur
sendi fyrir markið og þar var Helgi
mætúu- og skoraði, 0-1.
Bandaríkjamenn jöfnuðu strax á
annarri mínútu síðari hálfleiks.
Sending barst fyrir íslenska markiö
og boltinn féll fyrir fætur Franks
Klopas í vítateignum og hann skor-
aði, 1-1. Tíu mínútum síðar átti Ólaf-
m- Þórðarson hörkuskot í þverslá
bandaríska marksins, Helgi fylgdi á
eftir en skallaði rétt framhjá.
Sigurmarkið kom fjórum mínútum
fyrir leikslok. Ólafur Þórðarson
renndi boltanum á Bjarka Gunn-
laugsson sem lék inn í vítateiginn og
skaut góðu skoti sem Brad Friedel
markvörður hálfvarði en hélt ekki
boltanum, hann fór inn fyrir mark-
línuna, 1-2.
ísland hefði getað skorað tvívegis
til viðbótar í lokin. Bjarki komst al-
einn upp völhnn frá miðju en skaut
naumlega framþjá og Haraldur Ing-
ólfsson stóð einn gegn Friedel mark-
verði eftir sendingu Andra Marteins-
sonar en Friedel varði mjög vel.
Að sögn Viðars Hahdórssonar
landshðsnefndarmanns lék íslenska
hðið í heildina séð mjög vel. „Þetta
var mun betri leikur en gegn Saudi-
Aröbum á dögunum sem sést
kannski best á því að bandaríska hð-
ið er mun sterkara en það arab-
íska,“ sagði Viðar.
Lið íslands: Birkir Kristinsson
(Kristján Finnbogason 74.), Rúnar
Kristinsson, Sigursteinn Gíslason,
Ólafur Kristjánsson (Ólafur Adolfs-
son 56.), Daði Dervic - Ólafur Þórðar-
son, Sigurður Jónsson, Amar Grét-
arsson (Þormóður Egilsson 79.), Har-
aldur Ingólfsson - Helgi Sigurðsson
(Bjarki Gunnlaugsson 71.), Amar
Gunnlaugsson (Andri Marteinsson
71.)
Ahorfendur: 3.017 á De Vore Stad-
ium sem rúmar um 7.000 áhorfendur.
Ólafur Adolfsson frá Akranesi lék
sinn fyrsta landsleik í gærkvöldi.
-VS
SerbitHFH
Drazen Podunavac, serbneskur
knattspymumaður, leikur vænt-
anlega með FH-ingum í sumar en
hann kemur til þcirra til reynslu
næsta mánudag, 2. mai. Hann er
vamarmaður en getur einnig
leikið á miðjunni.
Podunavac verður 25 ára á
laugardaginn kemur en hann er
að Ijúka sínu fjórða keppnistíma-
bili í júgóslavnesku 1. deildinni
Tvö síðustu árin hefur hann spil-
aö með OFK Belgrad en þar á
undan lék hann með Spartak
SuboticaogOsijek. -GH/VS
Arnóröflugur
EyjóÖur Harðaison, DV, Svíþjóð:
Arnór Guðjohnsen lék sinn
besta leik á tímabilinu þegar
Örebro sigraði Hammarby, 0-1, í
sænsku úrvalsdeildinni í gær.
Mark Örebro kom eftir horn-
spyrnu Arnórs. Hlynur Stefáns-
son komst einnig vel frá leiknum
en fékk högg á hnéð um miðjan
síðari hálfleik og fór af leikvehi.
Örslit í gær urðu þessi:
Hammarby - Örebro
Degerfoss - Öster.......0-1
Malmö - Hácken..........5-1
Frölunda - lYelleborg...0-1
Halmstad - Helstngborg..,..1-0
Gautaborg er meö 12 stig, Öster
12, Matmö 11 og Örebro 11.
Þórsararunnu
Þór sigraði Leiftur, 2-1, í úr-
shtaleik JMJ-móts Knattspyrnu-
ráðs Akureyrar í gær. Bjarni
Sveinbjömsson og Dragan Vit-
orovic skomðu fyrir Þór en
Sverrir Sverrisson fyrir Leiftur.
Völsungur tryggðí sér þriðja
sætið með 1-0 sigur á KA og skor-
aöi Jónas G. Garðarsson markið.
Á laugardaginn vaim Þór sigur
á Völsungi, 5-4, og þá skoraði
Bjarni fjögur af mörkum Þórsara
og Vitorovic eitt Fyrir Völsung
skoraðu Axel Vatnsdal, Jónas ■
Hallgrímsson, Jónas G. Garðars-
son og Aöalsteinn Aðalsteinsson.
Leiftur sigraði KA, l-O, með
marki frá Pétri Jónssyni.
Lokastaðan í JMJ-mótinu:
Þór.........3 2 1 0 9-7 5
Leiftur.....3 2 0 1 4-2 4
Völsungur..3 1 0 2 5-7 2
KA..........3 0 1 2 2—4 1
-gk/VS
Sigurogtap
ísland sigraöi 1 kvennafiokki en
Skotland í karlaflokki í lands-
keppni í fimleikum sem fram fór
í Reykjavík um helgina.
í kvermaflokki hlutu þær Sigur-
björg Óiafsdóttir og Elva Rut
Jónsdóttir samtals 65.513 stig en
skosku stúlkurnar 64.797 stig.
Skotar hlutu samtals 17.830 stig
í kariaflokki en Islendingar
17.155. íslenska hðið var skipað
-Gísla Garðarssyni, Guðjóni Guö-
mundssyni, Jóhannesi N. Sig-
urðssyni og Jóni Trausta. -JKS
ÍAíldeild
Akurnesingar tryggðu sér í gær
sæti í 1. deildinni í badminton
þegar þeir báru sigur úr býtum í
2. deild í Laugardalshöh. Þeir
unnu alla þrjá leiki sína. HSK
sigraði af öryggi í 3. deild, vann
alla 5 leM sína og H-hð TBR fer
einnig upp í 2. deild. -VS
Svíarnirbestir
Svíar unnu til flestra verðlauna
á Norðurlandamóti fatlaðra í
borðtennis í Reykjavík um helg-
ina. I liðakeppninni í sitjandi
flokki karla B hafnaði íslenska
liöið í 7. sæti. í standandi flokki
Ð-E tefidu íslendingar fram
tveimur hðum og lentu í 4.-5.
sæti. í einstakhngskeppninni í
flokki E lenti Njáh Eysteinsson í
2. sæti og Þorsteinn Sölvason i
því 3. Hulda Pétursdóttir lenti í
2. sæti í floklú E-kvenna og Gunn-
hildur Þ. Sigþórsdóttir í 3. sæti.
-JKS