Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1994, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1994, Side 3
ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1994 3 dv___________________________________________Fréttir Útgerð aflaskipsins Guðbjargar ÍS, Hrönn hf.: Stór hluti í gróðafyr- irtæki er til sölu - óánægja sumra hluthafanna með frystitogarakaup Stór hlutur, eöa 23 prósent, er til sölu í útgeröarfyrirtækinu Hrönn hf. á ísafirði og svipaður hlutur gæti samkvæmt heimÚdum DV verið til söiu innan skamms. Hrönn hefur þótt vera sérlega vel rekið fyrirtæki og mikill gróði hefur verið af rekstri þótt tölur hafl aldrei verið gefnar upp. Fyrirtækið rekur eitt fengsælasta fiskiskipið í flotan- um, Guðbjörgu ÍS, sem oft hefur ver- ið með hæsta aflaverðmætið. Hlutur í Hrönn hf. hefur ekki verið falur áður. Fyrirtækið var stofnað 1955. Það hefur hinn seinni ár verið einn hæsti skattgreiðandinn á Vest- fjörðum og árið 1992 greiddi fyrir- tækið hæstu launin í landinu eða um 650 þúsund krónur á mánuði að með- altali uppreiknað. Árið 1990 keypti fyrirtækið 6 báta fyrir hundruö millj- óna í þeim tilgangi að auka kvóta Guðbjargar ÍS. Ástæða þess að vilji er til að selja nú er samkvæmt heimildum DV óánægja með stefnu fyrirtækisins upp á síðkastið. Óánægjan snýst meðal annars um kaup á nýjum frystitogara sem fyrirtækið fær af- hentan í haust en skipið mun verða eitt hið glæsilegasta í landinu og kostar ekki undir 1,5 milljörðum. „Hluturinn er til sölu. Það er ekk- ert leyndarmál,“ sagði Arnar Krist- insson, forstjóri Básafells á ísafirði, í samtali viö DV en móðir hans er hluthafi fyrir 23 prósentum í Hrönn hf. Arnar vildi hins vegar ekki til- greina hverjar ástæðurnar fyrir söl- unni væru. DV hefur einnig heimildir fyrir því að eigandi tæps 20% hlutar í Hrönn sé að skoða hug sinn varðandi sölu en sá mun hafa efasemdir um kaup á frystitogaranum. „Það er auövitað mjög áhugavert ef stór hlutur er til sölu í þessu fyrir- tæki. Þetta er spennandi vegna þess að Hrönn hf. hefur veriö mjög vel rekið fyrirtæki en hlutur hefur hins vegar aldrei verið á lausu,“ segir Kristján Vilhelmsson, einn eigenda Samherja hf. á Akureyri, en sá orð- rómur hefur verið á kreiki að Sam- heijamenn hygðust kaupa hlut í Hrönn. Kristján sagði að þeim hefðu ekki verið boðin bréf til kaups. Hann sagði að ef bréfin væru til sölu á góðu verði myndi hann hins vegar hugsa sig vel um. ÚRVAL BÍLA Tegund Arg. Ek. Verð Toyota Carina E '93 31 1.670 þ. Subaru Legacy GL '90 67 1.260 þ. Hyundai P. sedan '93 25 750 þ. MMC LancerGLX, '89 72 760 þ. ssk. NissanSunnySLX, '89 60 690 þ. ssk. Mazda E 2200 '88 95 700 þ. Mazda 323 sedan '88 72 500 þ. M. Benz280SE '81 220 890 þ. Volvo 240 GL '88 56 860 þ. Subaru JustyJ-12 '91 43 690 þ. V.W. Golf, ssk. '90 67 690 þ. Willy's CJ 7 '84 84 690 þ. Suzuki Samurai '88 70 680 þ. V.W. Golf '88 85 540 þ. Range Rover, 4 d. '84 122 590 þ. JaguarXJ-6 '85 150 1.950 þ. MMC Pajero, lang- '92 30 3.300 þ. ur Cherokee Lar„ 4 d. '87 96 1.350 þ. Suzuki SwiftGL '91 38 660 þ. Willys CJ 7 '87 99 950 þ. Mikið fjör í bílaviðskiptum Toppþjónusta Opifl: mánudag til föstudags kl. 9.30 til 19.00. Laugardaga kl. 10.00 tll 17.00. (D mmM brabi hh Borgartúni 26 Símar 617510 og 617511 Kópavogskaupstaður hefur gefið byggingarverktökum veðheimildir án þess að lóðasamningar hafi verið gefnir út. Þannig eru nú áhvílandi 97 milljónir króna á Lækjarsmára 1-31 í Kópavogi án þess að nokkur hús séu risin á svæðinu. DV-mynd BG Veðleyfi án þess að lóðasamnlngar liggi fyrir: 97milljónir áhvflandiog 9 íbúðir á uppboði - hagsmunir bæjarsjóðs tryggðir, segir Gunnar I. Birgisson Kópavogskaupstaður hefur gefið byggingaverktökum veðheimildir á úthlutuöum lóðum án þess að lóða- samningar hafi verið gefnir út. Þann- ig hefur Kópavogskaupstaður gefið byggingaverktökum veðleyfi fyrir að minnsta kosti 97 milljónum króna á lóðunum númer 1-31 við Lækjar- smára í Kópavogi þó að engin hús séu risin á svæðinu. Níu íbúðir við Lækjarsmára 11-17 eru í uppboös- meðferö þar sem ekki hefur veriö greitt af skuldabréfum og er bæjar- sjóður uppboðsþoli þar sem hann er eigandi lóðanna lögum samkvæmt. „Meginreglan er sú að þetta sé inn- an þess ramma að það skaði hvorki einstaklinga né bæjarfélagið. Ég ætla svo sem ekki að setja mig í dómara- sæti en ef einstaklingar eða bæjarfé- lagið skaðast af þessu máli þá vísa ég allri ábyrgð á þá embættismenn sem þannig hafa staðiö aö hlutunum. Að sjálfsögðu mun enginn bæjarfull- trúi hafa hug á því að einstaklingar eða sveitarfélagið skaðist á svona gjömingi en menn skulu bara þekkja sín takmörk i því,“ segir Guðmundur Oddsson, oddviti Alþýöuflokks. „Bæjarsjóður er með sitt á þurru og hagsmunir bæjarsjóðs eru full- komlega tryggðir. Lóðabréfm eru á fyrsta veðrétti og ef íbúðirnar fara í uppboösmeðferð bjóðum við í það sem dekkar bæinn. Það er í raun og veru ekki mál bæjarsjóðs ef einhver maður viU lána einhverjum bygging- armanni einhveijar upphæðir. Bæj- arsjóður er með sitt á þurru með fyrsta veðrétt í lóðabréfum en yfir- leitt gefa menn ekki veðheimildir nema eitthvað sé fyrir hendi. Þarna er búið að framkvæma fyrir tugi milljóna," segir Gunnar I. Birgisson, oddviti sjálfstæðismanna. Símaskráin '94 tvíefld og tilbúin til afhenaingar N ctfhcizi'n Símaskráin 1994 kemur nú út í tveimur bindum Nafnaskráin geymir alla símnotendur, jafnt einstaklinga sem fyrirtæki, skráða með síma- og faxnúmer. í Atvinnuskránni eru símanúmer allra fyrirtækja, Gulu síðurnar og svo Bláar síður með símanúmerum stjórnsýslu, ríkis og sveitarfélaga. Símaskráin er afhent á næsta afgreiðslustað Pósts og síma gegn framvísun afhendingarmiða. Símaskráin fæst innbundin fyrir 185 kr. Símaskráin tekur gildi 11. júní. PÓSTUR OG SÍMI rvinm !< /

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.