Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1994, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1994, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1994 Fréttir______________________________________________________ Ólafur Gunnarsson hættur í hungurverkfalli: Sveltið virtist skerða dómgreind - ljóst að fangelsið er ekki mannsæmandi, segir ráðuneyti Ólafur Gunnarsson, meintur höf- uöpaur í stóra fíkniefnamálinu, er hættur í hungurverkfalli sem stóð 15 daga. Ólafur segir ákvörðun sína tekna í ljósi þess að hann hafi þurft að vera viðstaddur yfirheyrslur í máli sínu og annarra fyrir héraðs- dómi. „Virðist hungurverkfall skerða dómgreindina mikið og má ég ekki við því eins og er en hugsanlegt er að ég haldi áfram þar sem frá var horfið ef ekkert verður að gert. Ég er ekki einungis að hugsa um mig sjálfan heldur líka til þeirra sem eiga eftir að dúsa hér,“ segir Ólafur í bréfi tilDV. Þá var fyrir hönd Ólafs, sem setið hefur í gæsluvarðhaldi í Síðumúla- fangelsi frá því í september síðast- liðnum, skrifað hréf til Áma Sigfús- sonar borgarstjóra til að knýja á um úrbætur og segist Árni ætla að ræða við lögmenn borgarinnar til að koma ábendingum Ólafs á framfæri. Þá var forseta íslands einnig skrifað bréf en Ólafi bent á að hafa samband við dómsmálaráöuneytið. „Þetta er langur tími orðinn, það er alveg rétt. Það sem viö gerum er aö ræða við lækna sem fylgjast með honum. Ég held aö máhö sé að verða búið og þá krefjast rannsóknarhags- munir ekki lengur að hann sé ein- angraður frá öðrum,“ segir Hjalti Zóphóníasson, skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu. Hjaiti segir ljóst að aðbúnaður í fangelsinu sé ekki mannsæmandi. Húsnæðið sé hins vegar þannig að róttækar breytingar fara ekki fram en reynt hafi verið að vinna að úrbót- um þar sem þeim varð við komið. EinarGíslason heiðraðuríEyjum Ómar Gardarsson, DV, Vestmaiuiaeyjunr Dagskrá sjómannadagsins í Vest- mannaeyjum var með hefðbundnu sniði og fór fram í björtu og góðu veðri. Sjómannaguðsþjónusta í Landa- kirkju var á sunnudag og minningar- athöfn um þá sem drukknað hafa eða farist með öðrum hætti við störf á sjónum. Minningarathöfnin hefur í 38 ár verið í höndum Einars Gísla- sonar í Betel. Vegna lieilsubrests hefur Einar ákveðið að hætta og tek- ur Snorri Óskarsson predikari við. Einar var af þessu tilefni heiöraður af Sjómannadagsráði Eyja. Akureyri: Áttateknir Sex voru teknir fyrir of hraðan akst- ur á Akaureyri á föstudagskvöld. Sá sem hraðast ók var á 140 km hraða. Sex voru vistaðir i fangaklefa lögregl- unnar á Akureyri um helgina. Á laug- ardagskvöldið voru tveir teknir fyrir of hraðan akstur. Einn var tekinn vegna gruns um ölvun við akstur. Einar Gislason og Sigurlína Jóhannesdóttir, eiginkona hans, til hægri en Einar var heiðraður á sjómannadaginn f Eyjum. Til vinstri Snorri Óskarsson og eiginkona hans, Hrefna Brynja Gísladóttir. DV-mynd Omar ; ForystumennAlþýðubandalags og óháöra borgara, U-iista, á Raufarhöfh híttast í dag til að ræða myndun meirihiuta í Rauf- arhafnarhreppi eftir að sam- þykkt var samhljóða á félags- fundi í Alþýðubandalaginu á sunnudagskvöld að heQa viðræð- ur viö óháða. Búist er við að íljót- lega komi í ljós hvort meirihluta- myndunin tekst. „Við ræddum viö sjálfstæðis- menn og framsóknarmenn en það tók sinn tíma að uppgötva að það kæmi ckkert út úr því. Við mælt- um með viðræðum við óháða og ég býst við aö við veröum snögg að sjóða þetta saman,“ segir Reynir Þorsteinsson, oddviti AI- þýðubandalagsins. ; „Það var bara hræðsluáróður í kosningunum að við ætluðum að reka sveitarstjórami og fram- kvæmdastjóra Fiskiðjunnar og Jökuls en við höfum ekki legið á þeirri skoðun okkar að okkur þyki það skringilegt stjórnarfar að æðstu menn fyrirtækja séu bæði í stjómum fyrirtækjanna og í hreppsnefnd," segir hann. Flytja Macbeth ^íþýðingu Athygli hefur vakið að við upp- fœrslu Frú Emiliu á Macbeth, sem forsýndur er í dag í tilefni listahátíðar, er notast viö þýð- ingu Matthiasar Jochumssonar en ekki þýðingu Helga Hálfdan- arsonar. Guðjón Pedersen leíkstjóri seg- ir skýringuna einfalda: „Okkur þykir þýðing Matthías- ar fallegri. Þaö er lika gaman vegna þess aö hún hefur aldrei verið flutt á sviði svo við vitum til. Eftir því sem við best vitum var þýðing Matthíasar notuð í Ríkisútvarpinu 1943 í flutningi sem Lárus Pálsson sfjómaði.“ Þór Tulinius leikur Macbetii, Edda Heiðrún Backman frú Mac- beth, en Duncan Skotakonungur leikur Þröstur Guöbjartsson. í dag mælir Dagfari Yfirborgarstjóri ans sem þýðir í raun að það verður hann sem ræður en ekki Ingibjörg Nú er liðin rúm vika síðan,Reyk- víkingar vöknuðu upp við það að borgin þeirra væri fallin. Þeir sátu uppi með nýjan borgarstjóra, Ingi- björgu Sólrúnu. Eða svo héldu þeir. Kjósendur R-listans héldu nefni- lega að þeir væm að kjósa til for- ystu fólkið sem var boðið fram á R-listanum. Það þvældist að vísu nokkuð fyrir sjálfstæðismönnum að skilja það enda vissu sjálfstæðis- menn ekki hvaða fólk þetta var og auglýstu eftir því. Sjálfstæðismenn spurðu hvaða fólk væri á bak við grímumar. Á bak við hvaða grímu er Alfreð Þorsteinsson, var spurt? Þeir hefðu átt að spyrja um nýja borgarstjórann. Það hefur nefni- lega komið í Ijós að Ingibjörg Sólr- ún var alls ekki á bak við sína eig- in grímu og hún var alls ekki sú sem á að stjóma borginni eftir að hún féll í ræningjahendur. Það hef- ur sem sé komið í ljós að maðurinn sem á stjóma borginni er maður sem alls ekki var í framboði. Þessi maður er Stefán Jón Haf- stein sem þekktastur er úr þjóðar- sálinni, maðurinn sem leysti öll heimsins vandamál og hafði skoð- anir á öllu milh himins og jarðar í beinum útsendingum í útvarpinu þegar þjóðinni var orðið mál að skammast út í þá sem réðu. Nú hefur Stefán Jón verið nefnd- ur sem líklegasti kandídatinn til að stjóma borginni, eða að minnsta kosti að stjóma Ingibjörgu Sólr- únu. Á bak við grímuna af Ingi- björgu Sólrúnu var Stefán Jón Haf- stein. Ekki Ingibjörg sjálf. Það er auðvitað ekki hægt að fá betri mann. Það var hins vegar skynsamlegt af R-listafólkinu að tefla ekki Stefáni Jóni fram á lista sínum enda óþarfi að kjósa fólkið sem stjómar þegar aðrir geta tekið að sér að ná í atkvæðin. Þar með þarf Stefán Jón ekki aö standa neinum kjósendum reikningsskil gerða sinna. Getur hann þá um leið vísað til þess fordæmis sem sjálf- stæðismenn sköpuðu á síðasta kjörtímabih þegar þeir náðu sér í tvo borgarstjóra án þess að þeir borgarstjórar hefðu nokkra sinni verið kosnir sem slíkir. Menn mega ekki misskhja þetta og halda að Stefán Jón Hafstein verði ráðinn í óþökk Ingibjargar Sólrúnar. Hún hefur sjálf um það ráðagerð að leita sér ráðgjafa, hvort heldur hann verður að nafn- inu til yfirborgarstjóri ehegar ráðunautur. Aðalatriðiö er að Ingi- björg Sólrún fari að ráðum ráögjaf- Sólrún. Enda þótt Ingibjörg Sólrún hafi verið kosin má ekki gleyma því að hún var grímuklædd og dulbúin og hún getur ekki vitað aht eða gert aht og þess vegna þarf að fá mann sem bætir það upp með því vita aht og geta allt. Hver er þá betri en sjálfur maður- inn með þjóðarsálina, Stefán Jón Hafstein? Hann kemur beint úr undurdjúpum þjóðarsálarinnar og veit upp á hár hvað þar hrærist og hefur líka áralanga reynslu af því að setja ofan í við fólk sem hefur ekki réttar skoðanir og kann svör við öhum spumingum. Ingibjörg Sólrún og R-hstinn lögðu einmitt höfuðáherslu á að lýðræðið fengi að njóta sín og stjómendur borgar- innar hefðu náið samband við kjós- endur. Fuhtrúi þjóðarsálarinnar er réttur maður á réttum stað og í raun og veru er óþarfi að útfæra lýðræðið nánar heldur en með því einu að ráða Stefán Jón Hafstein. Hann veit svörin. Hann er lýðræðið holdi klætt. Hann er okkar maður. Það var mikið lán að R-listinn skyldi sigra í kosningunum og að borgin skyldi falla. Annars fengju Reykvíkingar ekki að njóta starfs- krafta Stefáns J. og þeirrar þjóðar- sálar sem hefur talaö við hann í síðdegisútvarpinu í mörg, mörg ár. Það hefur líka reynst farsælt og skynsamlegt hjá R-hstanum að fela frambjóðendur sína á bak við grím- ur og hleypa þeim ekki að í kosn- ingabaráttunni. Það var aldrei meiningin að frambjóðendumir eða kjömir borgarfuUtrúar R-hst- ans réðu neinu eftir kosningar. Það var aht annað fólk sem átti og vUdi komast að. Stefán J. Hafstein er fuUtrúi þess. Hann er fuUtrúi þeirra óbreyttu kjósenda sem meö atkvæðum sínum komu R-hstan- um til valda til að hinir óhreyttu kjósendur tækju við borginni. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.