Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1994, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1994, Síða 7
ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ1994 7 Fréttir Ægir Már Karason, DV, Suðumesjum; monnum Sgurður Sverrisaon, DV, Akranesi; Þrátt fyrir að skipasmíöastöðin Þorgeir & Ellert hf. á Akranesi eigi í greiöslustöðvun, sem renn- ur út 27. þessa mánaðar, er nóg að gera hjá fyrirtækinu og verk- efnastaða þess er mjög góð. Haraldur L. Haraldsson, fram- kvæmdastjóri fynrtækisins, sagöi skort á jániðnaðarmönnum orsaka að fyrirtækið heíði ekki getað tekið að sér öll þau verkefhi sem óskað hefði verið eftir. „Við gætum vel notað krafta 5~S járniðnaðarmanna tii viðbótar. Við höfum haft allar klær úti til þess að ná í menn án verulegs árangurs," sagði Haraldur. Viðurkenning til áhafnaogeigenda Siglingamálastofnun veitti nú á sjómannadaginn viðurkenningar til aiiafna og eigenda skipa fyrir að hafa um langt skeið sýnt fyrir- myndarumgengni um skip sitt og öryggisbúnað þess. Þau skip sem fengu viðurkenn- ingu frá Siglingamáiastofnun að þessu sinni eru: Víkurberg GK-1, Eyrún ÁR-66, Guðbjörg IS-46, Snæfúgl SU-20, Dala-Rafn VE-508, Þórsnes IISH- 109 og Geiri Péturs ÞH-344. „Við vorum búnir að reikna með 320 manns á flokksþingið en þar sem formannsslagur verður á þinginu reiknum við meö að hátt í 400 fulltrú- ar mæti,“ sagði Jón B. Helgason, framkvæmdastjóri undirbúnings- nefndar Alþýðuflokksins í Suður- nesjabæ, í samtali við DV. Flokksþing Alþýðuflokksins verð- ur í íþróttahúsi Keflavíkurhverfis í Suðumesjabæ. Verður það sett á fostudagsmorgun, 10. júní, en á laug- ardag verður formannskosningin. 9. júní verður menningardagskrá í tii- efni af 50 ára lýðveldi íslands. Flest hótel og gistiheimili hér verða full yfir helgina. Þá verður Fjöl- brautaskóli Suðumesja lagður undir þingið en þar verður komið upp 60 svefhplássum. Á laugardagskvöld verður dansleikur og er búist við að 700 manns verði þá í íþróttahúsinu sem búið verður að breyta í stóra ráðstefnuhöll. Nokkrir erlendir gestir verða á þinginu. Formaður norska jafnaðar- flokksins mun ávarpa þingið en það verða alls 7 fulltrúar frá Norðurlönd- um. Reiknað er með að 2 finnskar sjónvarpsstöðvar verði á þinginu. Bændasameimng: Könnun lýkur um næstu helgi Ekki hefur enn verið tekin ákvörð- un um hvort sameining Búnaðarfé- lags íslands og Stéttarsambands bænda muni eiga sér stað. Samhliða sveitarstjórnarkosningum fór fram skoöanakönnun í sveitarfélögunum um hvort sameina ætti þessi tvö fé- lög. Það hefur hins vegar ekki enn verið kosið í öllum sveitarfélögum. Könnuninni verður því ekki lokið fyrr en um næstu helgi. „Atkvæðin verða ekki talin fyrr en búið er að kjósa í öllum sveitarfélög- um þannig að það hefur í raun og veru ekkert skeð. Við verðum að bíða eftir þessum fáeinu," sagöi Haukur Haildórsson, formaöur Stéttarsam- bands bænda, í samtali við DV. Landsvirkjun og Aburöarverksmiðjan: Gefa 250 tonn Áburðarverksmiðja ríkisins hef- ur, í samvinnu við Landsvirkjun, ákveðiö að gefa sem nemur sólar- hi-ingsframieiðslu af áburði undir verkefhisheitinu „Bændur græða landið“. Þetta er gert í tilefni 40 ára afinælis fyrirtækisins og til að minnast 50 ára afmælis lýðveldis- ins. Landsvirkjun gefur það raf- magn sem þarf til framleiðslunnar og Eimskipafélag íslands annast allan flutning á áburðinum endur- gjaldslaust. „Áburðarverksmiöjan er 40 ára og telur sig eiga tveimur aðilum meiri þakkir að gjalda en öðrum, starfsmönnum fyrirtækisins og bændunum i Iandinu. Lífeyrissjóð- ur starfsmanna fékk 10 milljónir króna af þessu tilefhi og land- græðslustarf bænda mun fa það sem neraur sjólarhringsfram- leiðslu af áburði, eða um 250 tonn,“ sagði Egill Jónsson, stjórnarfor- maður Aburðarverksmiðjunnar. Hann sagði aö í framhaldi af þess- ari gjöf yrðu gerðír samningar við nýja landgræðslubændur og að þeir yrðu um 200, vitt og breitt um landið, þegar þeir samningar yrðu í höfn. Gert er ráð fyrir að þetta áburö- armagn dugi á um 1000 hektara lands. Landgræðsla ríkisins sér um framkvæmd verkefnisins. „Ég er mjög ánægður með þetta og hér er um lofsvert framlag Áburðarverksmiðjunnar til lands- ins að ræða. Því miður er þörfin víöa alltof mikil en fjöldi bænda vill og mun leggja hönd á plóginn á komandi mánuðum við að bera á rofabörð og uppblásin svæði. Síðan er aö fylgja verkinu eftir og hlúa aö þessum viðkvæmu stöðum á næstu árum,“ sagði Sveinn Run- ólfsson landgræðslustjóri. Lögmaður sendir forseta Hæstaréttar opið bréf: Tekur ekki við afsök- unarbeiðni Hrafns - segir það ástæðulaust þar sem Hrafn telur sig ekki hafa móðgað neinn Tómas Gunnarsson lögmaður hef- ur í opnu bréfi til Hrafns Bragason- ar, forseta Hæstaréttar, neitað að taka afsökunarbeiðni hans gilda. Af- sökunarbeiðnin er tilkomin vegna ummæla Hrafns um sjúka lögmenn á málþingi lögmanna á Þingvöllum fyrir rúmlega viku. „Ég vil fyrst nefna að í bréfinu seg- ir þú að ummæli þín um sjúka menn hafi ekki átt við um mig. Er ekki ástæða tfl að taka við afsökunar- beiðni frá manni sem ekki telur sig hafa haft í frammi þá háttsemi sem hann biðst afsökunar á. Þá er afsök- unarbréfið með þeim annmarka að þú yfirlýsir að Tryggvi Gunnarsson hæstaréttarlögmaður hafi á Þing- vallafundinum Ijallað um nokkra dóma Hæstaréttar á ósæmilegan hátt þeirrar athugasemdar og aö hún hafi að þínu mati. Ég dregj efa réttmæti átt við í afsökunarbréfinu," segir í neitunar sinnar leynibréfaskrif Hrafns fyrr í vetur. Hrafn hafi á þennan hátt haft ólög- mæt afskipti af störfum héraðsdóm- stólanna sem eigi að vera óhlutdræg- ir og sjálfstæðir. Auk þess hafi hann brotið starfsskyldur sínar og ekki sinnt ítrekuðum óskiun Tómasar um að upplýsa hann á hvaða gögnum skjöl Hæstaréttar, sem varði hann persónulega, eru byggð. „Hvað meintan sjúkleika manna, sem tengjast réttarkerfinu, varðar getum við látið það liggja á milli hluta hvort atvikið á Þingvöllum var slys eða ekki. Fram hjá hinu verður ekki horft að valdamenn réttarkerf- isins hafa notað sjúkleikaákvæði réttarfarslaga ótæpilega og á órétt- hréfi Tómasar. mætan hátt að mínu mati.“ Tómas segir samt meginástæður Tómas Gunnarsson lögmaður. Hrafn Bragason, forseti Hæstaréttar. Keflavík: Búist við 400 fulHrúum á krataþingið ,°sT\ ''e** Skútuvogi 1 sími: 68 44 22 POSTVAL Opið; mánud.-föstud. kl. 12-18 i Garðsláttuvélar Jón B. Helgason er að breyta íþróttahúsinu í stóra ráðstefnuhöll. 'S r DV-mynd Ægir Mðr ÞÓRf ÁRMÚLA 11 - SÍMI 681 500 17. júní dragtir Vorum að taka upp nýjar vörur Sumardragtir 4 gerðir, stærðir 36-50. Verð frá 5.990 Einnig: jakkar, kápur, buxur, peysur, leggings og bolir Fyrir herra: buxur og pólóskyrtur m/stuttum og löngum ermum. 40-70% afsláttur af eldri vörum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.