Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1994, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1994, Page 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1994 Stuttar fréttir BjargaðíRúanda Fylgismenn stjórnar Rúanda ílytja fólk af tútsí-ættbálki á ör- ugg svæöi í staö þess að drepa það. KvartaðíBosníu Stjórnvöld í Bosníu kvarta und- an því að sáttasemjarar ætli að setja fram úrslitakröfur. Peres með leynibréf Símon Peres, utanríkisráð- herra ísraels, opinberaði leynilegt bréf i gær þar sem hann viður- kennir mikil- vægi palest ínskra stofnana Jerúsalem. Rætt um ref síaðgerðir Ráðabrugg um refsiaðgeröir gegn Norður-Kóreu færðist í auk- ana í gær. Fordæmaskýrslu Stjórn Norður-Kóreu hefur for- dæmt skýrslu kjarnorkueftirlits- nefndar SÞ. Minnaplútóníum Bandaríkin reyna að finna leið- ir til að fá vini sína til að minnka plútóníumbirgðir. Israelsmenn og Jórdanir ræöa saman um efnahagssamvinnu ríkjanna. Byssumaður tekinn Maður sem grunaður er um morð á kaþólskum kardínála í Mexikó hefur verið handtekinn. Bannaflug Bandaríkin eru reiðubúin að banna allt áætlunarflug til Haítí. Maior í vondum máium Svo kann að fara að John Magor og Íhaldsflokkur hans fái aðeins sex sæti á Evr- ópuþinginu nú en flokkurinn hefúr verið moö 32 þingmenn þar, segir í skoðanakönnun í Guardian. Ræðastækkun Eitt erfiðasta mál ársfundar OECD er hvernig taka eigi ríkjum sem vilja komast í samtökin. AnlaupiAisir Alsírsk stjórnvöld segjast hafa handtekið 75 félaga í samtökum harðsnúinna múslíma. Minnaofbeldi Dauðsföllum af völdum póli- tísks ofbeldis í Suður-Afríku hef- ur fækkað úr 487 í apríl í 195 i maí. Aristíde ásakar herfor- Ingja Jean-Bertr- and Aristide, afsettur forseti Haítí, sakaði lierforíngja- klíkuna, sem fer með völd, um að styðja eilurlylja- smyglara og að barátta gegn eitursölum gæti styrkt lýðræðið. Skjálfti drepur Öflugur jarðskjálfti varð tveim- ur að bana í Kólumbíu í gær og særði þrjátíu. Leitarmenn hafa íúndið svarta kassann úr kínversku flugvélinni sem fórst meö 160 manns í gær. Reuter Norrænirheiðra færeyskan kóngsbónda Færeyski kóngsbóndinn Danjal Pauli Danielsen í Velbastað hefur verið sæmdur norrænu þjón- ustuoröunni, sem kennd er við Jacob Letterstedt, fyrir árið 1994. Orðunefndin segir í úrskurði sínum aö Danielsen hafl í menn- ingarstarfi sínu í Færeyjum sýnt norrænum málum mikinn áhuga og hann hafi gengið hart fram í því í tíð sinni sem menntamála- ráöherra að áform um Norræna húsið í Þórshöfn yrðu að veru- leika. Danjal Pauii Danielsen er íjórt- ándi maðurinn sem fær þessa viöurkenningu sem allajafna er afhent af þingforsetanum í heimalandi verðlaunahafans. Útgefandi Rush- diesræðstá norskustjórnina William Nygaard, norskur útgef- andi bóka breska rithöf- undarins Sal- mans Rushdi- es, réðst harka- lega á norsku ríkisstjórnina í gær fyrir aö- gerðaleysi gagnvart stjómvöld- um í íran. Nygaard særðist hættulega í tilræði í fyrra og talið var að það tengdist útgáfu Söngva satans eftir Rushdie. Nygaard er í felum og sagði hann hneykslanlegt að stjómvöld hefðu aðeins gagnrýnt írana. TT, Reuter Utlönd Hátíðahöldunum í mimiingu D-dagsins lauk með flugeldasýningu: Gleymum ei aó þeir björguóu heiminum - sagði Clinton Bandaríkjaforseti um fyrrum innrásarliða Stjómvöld 1 Suður-Jemen stóryrt: Segja vopnahléstílboð norðanmanna vera lygi n Bandaríkjaforseti og aðrir leið- togar bandamanna héldu á brott frá ströndum Normandí í gærkvöldi og efnt var til stórkostlegrar flugelda- sýningar til að minnast D-dagsins, innrásar heria bandamanna sem varð upphafið aö endalokum yfir- ráða nasista í Vestur-Evrópu. Clinton þakkaöi uppgjafaher- mönnum fyrir að hafa stefnt lífi sínu í hættu fyrir hálfri öld. „Við skulum aldrei gleyma því að þegar þeir voru ungir björguðu þess- ir menn heiminum," sagði Clinton við þúsundir orðuskrýddra fyrrum hermanna innan um 9386 grafir bandarískra hermanna uppi á háum bakka við Omaha Beach. „Ég hef aldrei upplifað neitt þessu líkt,“ sagði Clinton við fréttamenn og var greinilega hrærður mjög. Að loknum hátíðahöldunum fóru þjóðarleiðtogarnir hver í sína áttina og fór Clinton til Parísar þar sem hann ræðir við franska stjórnmála- menn og kaupsýslumenn næstu tvo dagana. Með öndina í hálsinum En ballið var þó ekki búið því tug- þúsundir manna horfðu með öndina í hálsinum á flugeldasýningu sem frönsk stjórnvöld buðu til í borginni Caen í Normandí þar sem kom til harðra bardaga milli hersveita Þjóð- veria og bandamanna eftir innrásina 6. júní 1944. Skrauteldarnir sprungu yfir risa- stórum, upplýstum píramída og blöðrur svifu tíl himins í táknrænni endursköpun frelsunar Frakklands. Francois Mitterrand Frakklands- forsetí, sem var gestgjafi stærstu al- þjóðlegu minningarathafnarinnar við Omaha Beach, komst við þegar harm talaði um sættir fymun óvina. „Ég þakka ykkur fyrir frelsi heims- Stjómvöld í klofningsríkinu Suð- ur-Jemen sökuðu norðanmenn um að bijóta vopnahléð sem þeir höföu lýst yfir frá miðnætti síðastliðnu og íbúar í Aden, höfuðborg suðurhlut- ans, sögðust hafa heyrt sprengju- drunur snemma í morgun. í yfirlýsingu varnarmálaráðuneyt- is Suður-Jemens í morgun var sagt að vopnahlé norðanmanna væri „enn ein lygin“ og stjómvöld í Sanaa, hofurðborg Norður-Jemens, hefðu fyrirskipað hersveitum sínum að sækja fram á öllum vígstöðvum við Aden. íbúar í Aden sögðust hafa heyrt sprengjuhvelli af og til í morgun en nóttín var þó róleg. Þeir sögðu útílok- að að segja tíl um hvaðan sprengjudrunurnar kæmu eða þá hvort hersveitir ríkjanna tveggja væru að skiptast á skotum. Heijir landanna tveggja hafa barist frá ,því 4. maí. Norður-Jemenar sögðust ætla að láta af öllum bardögum á miðnætti í gærkvöldi að staðartíma. „Við höfum tilkynnt framkvæmda- stjóra Sameinuðu þjóðanna og fram- Bill Clinton Bandaríkjaforseti og Joe Dawson, fyrrum hermaður I innrásarliði bandamanna í Normandí, fara frá Omaha Beach að ameríska kirkjugarðinum í Colleville þar sem þeir minntust fallinna Bandaríkjamanna. Simamynd Reuter ins sem skuldar ykkur svo mikið," sagði hinn 77 ára gamli forseti sem einn leiðtoganna tók beinan þátt í andspyrnunni gegn nasistum. Mitterrand notaði tækifærið og bar lof á Rússa og Þjóöveija sem voru útilokaðir frá hátíðahöldunum. Hann lofaði hetjudáðir rússnesku þjóðarinnar sem barðist gegn heijum Hitlers og hratt þeim af höndum sér, svo og afrek þýskra andófsmanna sem buðu harðstjórn nasista birginn. „Sú Evrópa sem bjargaðist gat að- eins orðið önnur Evrópa: 340 milljón- ir Evrópubúa hafa sameiginlega löggjöf. Vopnuð átök þeirra í milli eru óhugsandi. Óvinir úr orrustunni um Normandí hafa sæst og ganga í takt í dag,“ sagði Francois Mitterr- and. Reuter Þessi sómalska fjölskylda bíður effir að komast burt frá Aden í Suður- Jemen. Símamynd Reuter kvæmdastjóra Arababandaiagsins að vopnahléð gangi í gildi á mið- nætti,“ sagði Mohammad Salem Bas- endwa, utanríkisráðherra Norður- Jemens. Aðeins nokkrum klukkustundum áður en vopnahléð átti að ganga í gildi réöust herflugvélar frá Suður- Jemen á olíuvinnslusvæði norðan- manna en ekki urðu neinar skemmd- irámannvirkjum. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.