Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1994, Side 9
ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1994
9
Norska stjómin heimilar veiði á 301 hrefnu:
Grænfriðungar
hóta aðgerðum
Norskir hvalveiðimenn fá að veiða
301 hrefnu í ár og skiptist kvótinn
þannig að 112 dýr verða veidd í vís-
indaskyni en 189 í ábataskyni. í
heildina er þetta fimm hrefnum
fleira en veiða mátti í fyrra.
Steinar Bastesen, formaður félags
norskra smáhvelaveiðimanna, er
ánægður með að veiðar skuli leyfðar
en honum finnst kvótinn of lítill.
Þótt grænfriðungar hafi hótað að
grípa til aðgerða gegn ábataveiðun-
um er Bastesen hvergi banginn.
„Greenpeace-samtökin hafa tapað
í öllum aðgerðunum sem þau hafa
beitt sér fyrir gegn okkur. Ég óttast
heldur ekki að Paul Watson og Sea
Shepherd muni sýna sig við veiðarn-
ar í ár,“ segir Bastesen.
Geir Wang-Andersen, yfirmaður
aðgerða Greenpeace í Noregi, tekur
af öll tvímæli og segir að gripið verði
til aðgerða gegn hrefnuveiðunum í
ábataskyni.
„Við ætlum að biðja alþjóðlega
samstarfsaðfia okkar að herða að-
gerðimar gegn hvalveiðum Norð-
manna,“ segir Wang-Andersen.
Hann vUdi ekki segja til hvaða að-
gerða yrði gripið en hann gerði ljóst
að Greenpeace myndu tæplega grípa
til aðgerða ef norska stjómin hefði
aðeins heimUað veiðar í vísinda-
skyni.
Reiknað er með að tæplega þrjátíu
bátar muni stunda hrefnuveiðarnar
í ábataskyni í ár en norska sjávarút-
vegsráðuneytið mun skipta kvótan-
um milli skipa og ákveða hvenær
veiðamar mega hefjast.
Eftirlitsmenn verða um borð í
hveijum báti. Stein Owe, deUdar-
stjóri í sjávarútvegsráðuneytinu,
segir að það verði dýralæknar sem
muni fylgjast með því að dýrin verði
veidd á réttan hátt. Þá hafa hval-
veiðimenn einnig sótt námskeið í aö
aflífa dýrin á sem mannúölegastan
hátt.
NTB
Þessi þriggja mánaða snáði frá Rúanda, með annan fótinn i gifsi, getur talist heppinn þvi að hann komst til Frakk-
lands fyrir tilstilli starfsmanna hjálparstofnana. „Þrjátíu og tvö börn frá Kigali, höfuðborg Rúanda, voru flutt til
Parísar i fyrradag þar sem gert verður að sárum sem þau hafa hlotið i skálmöldinni í heimalandinu. Símamynd Reuter
Nýr fiskveiðisamningur ESB og Grænlands undirbúinn:
ESB greiðir aðeins fyrir
þann f isk sem veiðist
Evrópusambandið er reiðubúið að
styðja fjárhagslega við bakið á fisk-
vinnslufyrirtækjum í sameign
Grænlendinga og fyrirtækja innan
sambandslandanna. Þetta kemur
fram í minnispunktum frá danska
sjávarútvegsráðuneytinu til mark-
aðsnefndar danska þingsins.
Hér er verið að lýsa tilmælum
framkvæmdastjómar ESB til sjávar-
útvegsráðherra aðUdarlandanna
sem munu funda á föstudag til að
veita framkvæmdastjóminni umboð
tU að gera nýjan fískveiðisamning
við grænlensku heimastjómina og
dönsku ríkisstjómina.
Með sameignarfyrirtækjunum ætti
að verða auðveldara að nýta þá fisk-
veiðikvóta sem ESB hefur keypt af
Grænlendingum eins og kveðið er á
um í samningum ríkjanna.
Grænlendingar fá í staðinn toU-
frjálsan aðgang að mörkuðum ESB,
jafnvel þótt þeir hafi sagt sig úr þá-
verandi EB árið 1985.
Núverandi fiskveiðisamningur
rennur út í árslok 1995 og á nú að
framlengja hann um sex ár. ESB
mun fara fram á ýmsar leiðréttingar
við gerð nýs samning.
Vegna minnkandi fiskistofna við
Grænland hefur fiskiskipum ESB
veist erfitt að veiða aUan þann fisk
sem sambandið hefur keypt hverju
sinni og greitt fyrir. Af þeim sökum
hefur samningurinn verið gagnrýnd-
ur innan sambandsins og í framtíð-
inni mun það ekki greiða fyrir meira
en veiðist.
Kvóti ESB við Grænland er nú 150
þúsund tonn sem færir Grænlend-
ingum tekjur upp á rúmlega tvo og
hálfan miUjarð íslenskra króna á ári.
Ritzau
Útlönd
DonJohnsoní
afvötnunhjá
Bandaríski
sjónvarps- og
kvikmynda-
leikarinn Don
Johnson, sem
er frægastur
fyrir að troða
upp í sjón-
varpsflokkn-
um Miami Vice, lagðist á föstudag
inn á Betty Ford stofnunina í Los
Angeles þar sem menn eru vand-
ir af áfengi og iikniefnum.
Ekki var skýrt frá því hvað
amaðí að leikaranum en hann
ætlar aö vera á stofnuninni
næstu ijórar vikurnar.
Melanie Griffith, eiginkona
Johnsons, sótti um skilnað í mars
og krefst forræöis yfir flögurra
ára dóttur þeirra.
Heitarpylsur
auka krabbalík-
urhjábörnum
Börnum sem borða mikið af
heitum pylsum er hættara við aö
fá barnahvítblæði en öðrum jaíh-
öldrum þeirra, að því er nýjar
rannsóknir visindamanna í
Bandaríkjunum sýna.
Vísindamennirnir komust að
því að börnum sem láta meira en
tólf pylsur ofan i sig á mánuði
hverjum og eiga feður sem voru
sömu pylsuætumar er niu sinn-
um hættara við að fá sjúkdóminn.
„Efþetta reynist rétt bendir það
til þess að minni pylsuneysla
gæti leitt til minni hættu á hvit-
blæði, sérstaklega meðal þeirra
sem borða mest,“ segir í grein
sem vísindamennimir skrifuðu í
tímarit um krabbameín.
Rannsóknin náði til 232 barna
sem höföu fengið hvítblæði og 232
sem höföu ekki fengið sjúkdóm-
inn.
ekkiáhyggjuraf
sósíalistum
Vestrænir fjárfestar í Ungveija-
landi kippa sér ekkert upp við það
þótt ungverskir kiósendur hafi
komið fyrrum kommúnistum til
valda í kosningunum sem fóru
fram á dögunum.,
Ekkert land Austur-Evrópu
hefur fengið jafn mikið fjármagn
frá Vesturlöndum á undanförn-
um árum og Ungverjaland. Vest-
rænir forsfjórar segja enga hættu
á því að landið hverfi af vegi kap-
ítalismans og hinir nýju leiðtogar
sýni þess engin merki að þeir vilji
hverfa aftur til gamla tímans.
Kaupsýslumenn segja að sósíal-
istar sem sigruðu í kosningunum
muni halda áfram að auka fijáls-
ræðið í efnahagsmálum Ung-
veijalands.
Julia Robertsí
vandrædum
meðhlutverk
Kvikmynda-
leikkonan .lui-
iaRobertssegir
að það verði sí-
fellt erfiðara
fyrir
finna
verk því aö þau
séu flest skrif-
uð meö „yngri konur“ i huga.
Julia er 26 ára.
„Ég á í mesta basli með aö finna
handrit sem mér líkar við,“ sagði
leikkonan í viðtali sem birtist í
júníhefti tímaritsins Vogue.
„Mest af því sem skrifað er fiallar
um yngra fólk því aöstæður í lífi
okkar veröa flóknari eftir því sem
VÍðeldumst“ Reuter
Breski
kvennabósinn
og ráðherrann
fyrrverandi,
Alan Clark,
hefur vísaö á
bug ásökunum
fýrrum ást-
konu sinnar,
dómarafrúarinnar Valerie Hark-
ess, að hann hafi eignast barn
með 24 ára gamalli konu.
Játningar Clarks í endurminn-
ingum sínum um ástarævintýri
með konu dómarans og dætrum
hennar tveimur hafa haldið
breskum blöðum og almenningi
í heljargreipum að undanförnu.
Andstæðingar
ESBíNoregi
fastirfyrir
Andstæðingar aöildar Noregs
að Evrópusambandinu sækja
stöðugt í sig veðrið og eru nú
orðnir 56 prósent þjóðarinnar, ef
marka má skoöanakönnun
norska Dagblaðsins fyrir júní-
mánuö. Aðeins 32 prósent eru
með aðild en tólf piósent hafa
ekki enn gert upp hug sinn.'
Fjölgun hefur orðið um eitt pró-
sentustig meðal andstæöinganna
en stuðningsmönnum hefur
fækkað að sama skapi ef miðað
er viö könnun blaðsins í maí.
Könnunin sýnir ennfremur aö
vonir rikisstjórnarinnar um að
fiskveiöisamn ingurinn við ESB
mundi snúa dæminu við hafa að
engu orðið. Einungis níu prósent
þeirra sem búa nyrst í Noregi
styðja aðild en 69 prósent eru
andvíg.
Austurríkis*
hiutameðESB
Líklegt þykir að austurrískir
kjósendur greiði atkvæði meö
aðfid Austurríkis að Evrópusam-
bandinu í þjóðaratkvæðagreiðslu
sem fram fer þann 12. júní. Skoð-
anakönnun, sem birtist í gær,
bendir þó til þess að mjög mjótt
veröi á mununum.
Könnunin leiddi í ljós aö 48 pró-
sent aðspurðra voru almennt
hlynntir aðild að ESB en 37 pró-
sent aimennt á móti og 15 prósent
voru óákveðin. Þegar þeir einir
eru teknir sem höfðu tekiö ein-
dregna afstöðu voni fylkingarnar
jafhar, 31 með og á móti.
Austurrikismenn eru fýrstir
þjóöanna fiögurra sem hafa sótt
um aðild að ESB til aö gera út
um málið í þjóðaratkvæði.
Finnar, Norðmenn og Svíar kjósa
ekki um aðildina fyrr en í haust.
Mark„JimTagg-
art“ McManus
látinn í Glasgow
Skoski sjón-
varpsleikarinn
Mark McMan-
us, sem íslend-
ingum er að
góðu kunnur
sem hinn úrilli
Jim Taggart
lögregluforingi
í Glasgow, lést á sjúkrahúsi í
borginni í gær. McManus lagðist
inn á sjúkralius i síöustu viku
með lungnabólgu.
„Leikarinn Mark McManus og
löggan Jim Taggart féllu saman
eins og flís við rass,“ sagði Robert
Love, yfirmaöur leiklistardeildar
skoska sjónvarpsins.
McManus iét í 30 Taggart-
myndum og lauk þeirri síðustu í
apríl. Reuter, NTB