Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1994, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1994, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNl 1994 Fréttir Formannsslagurinn 1 Alþýðuflokknum: Jón gerir ekki f lokk- inn að fjöldahreyf ingu - segir Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra sem býður sig fram til formanns Ég mun ná betur til fólksins sem formaöur Alþýðuflokksins heldur en Jón Baldvin Hannibalsson, segir Jó- hannaSigurðardóttirfélagsmálaráðherra. DV-myndBG - Þú sagðir í fjölmiðlum, þegar þú sagðir af þér varaformennsku í Al- þýðuflokknum, að þú hefðir gert mistök með þvi að bjóða þig ekki fram gegn Jóni Baldvin 1990 og aft- ur hefðir þú gert þau mistök að bjóða þig ekki fram gegn honum 1992. Hvers vegna léstu ekki verða af því þá? „Það var kominn upp þá þegar mikill ágreiningur milli okkar Jóns Baldvins um áherslur og fram- kvæmd á stefnu flokksins. Ég hug- leiddi það mjög alvarlega 1990 og aftur 1992 að bjóða mig fram gegn Jóni Baldvin. Þá náðist ákveðin málamiðlun sem ég tel að ekki hafi verið fylgt nægilega eftir í fram- kvæmd eins og þróun mála hefur leitt í ljós. Þessu gerði ég meðal annars grein fyrir þegar ég sagði af mér sem varaformaður." - Hvers vegna þá núna? “Ég tel að stundin sé komin núna. Það er alvarlegt umhugsunarefni fyrir flokkinn, miðað við stöðu hans, hvort viö séum við óbreyttar aðstæður, óbreytta forystu, óbreyttar áherslur í ýmsum mála- flokkum og miðað við þá ímynd sem flokkuriim hefur, sem margir kalla framlengingu á hægri öflun- um í þjóðfélaginu, fær um að ná þeirri tiltrú og hljómgrunni hjá fólkinu í landinu sem gerir þennan flokk að trúverðugum jafnaðar- mannaflokki." - Fyrir utan ESB-málið; hver eru stærstu málin sem ykkur Jón greinir á um í dag? „Það eru auðvitað sömu máhn sem koma upp aftur og aftur. Til dæmis hvemig við tökum á ríkis- fjármálunum; hvemig við tökum á atvinnumálunum í þeirri djúpu efnahagslægð sem við höfum verið í. Ég er þeirrar skoðunar aö það sé eðlilegt að sefja peninga inn í at- vinnulífið meira en gert hefur verið ef það rennur til arðbærra fram- kvæmda. Jón Baldvin hefur aftur á móti viljað skera enn meira niður í ríkisútgjöldum en samstaða er um í ríkisstjórn, meðai annars hjá samstarfsflokknum. Mér hefur fundist að með því myndum við höggva mjög nærri velferðarkefinu og auka á atvinnuleysið. Við mynd- um þrengja mjög að þeim hópum sem þyngstar hafa borið byrðarn- ar.“ - Þegar þú sagðir af þér varafor- mennskunni, var það vegna þessa málefnaágreinings eða blandaðist inn í það skipun Ossurar Skarphéð- inssonar í ráðherrastól? „Skipun Össurar blandaðist ekk- ert inn í það mál. Það var fyrst og fremst málefnaágreiningur og ágreiningur um vinnubrögð for- mannsins. Ágreiningurinn hefur aftur og aftur komið upp á yfir- borðið þrátt fyrir þaö að við Jón Baldvin höfum sest niður og reynt að leysa hann. Síðasta alvarlega tilraunin var gerð undir áramót 1992. Þá fórum við yfir málin til að reyna að bæta okkar samskipti. Samt hefur ekkert breyst hjá Jóni Baldvin. Ég held því fram að forða hefði mátt ýmsum átökum ef hann hefði tekið meira tillit til skoðana annarra á framkvæmd stefnu flokksins og haft samráð við sína samstarfsmenn." - Þú segir að það verði að koma til uppgjörs milli ykkar Jóns Baldvins nú. Eru áherslur Jóns varðandi ESB-málið punkturinn yfir i-ið? „Þú talar um uppgjör. Ég vil að fólk eigi kost á því aö velja sér nýjan formann. Ég hef fundið það að fólk vih breytingar á foryst- unni. Það eru margir sem telja að Jón Baldvin geti ekki unnið þann hljómgrunn hjá fólki sem þarf til að leiða flokkinn í erfiðum alþing- iskosningum. Eins eru það þessi áherslumál sem ég hef nefnt og svo er það núna ESB-máhð sem er stór þáttur í okkar deilu.“ - Þú varst í fundaherferð um land- ið upp úr miðjum mai og ræddir við alþýðuflokksfólk. Varst þú hvött til að fara nú fram gegn Jóni Bald vin? „Ég heyrði það auðvitaö að flokksmenn um land aht hafa veru- legar áhyggjur af þvi hvað Alþýðu- flokkurinn er í mikihi lægð, jafnvel þótt hann hafi náð fram ýmsum umbótamálum í þessari ríkisstjóm og hafi auðvitaö átt sinn þátt í þeim árangri sem náðst hefur í efnahags- málunum. Þaö er eins og það skih sér ekki í fylgi. Ég varð vör við það að fólk hefur vaxandi áhyggjur af því að flokkurinn hafi sveigst til hægri. Mörgum finnst hann ekki skilgreina sig nægilega í fram- kvæmd sem jafnaðarmnanna- flokkur undir forystu Jóns Bald- vins. Og að hann hafi færst of ná- lægt íhaldsöflunum í þjóðfélaginu. Mörgum þykir nauðsynlegt að skipta um forystu til að breyta þessu. Menn benda á að Jón Bald- vin hafi fengið sinn tíma. Menn hafa ekki lengur trú á því að hann geti breytt ímynd flokksins eins og þarf til þess að hann nái árangri. Þetta var þaö sem ég fann fyrst og fremst í samtölum við fólk á ferð- um mínum um landið. Margir sögðu líka að nú gæti ég ekki leng- ur skorast undan því að bjóða mig fram th formanns." - Jón Baldvin nefndi þá hugmynd við þig á dögunum að þið drægjuð Yfirheyrsla ykkur bæði til hlés og þriðji maður- inn, t.d. Sighvatur, kæmi inn i myndina. Ertu andvíg hugmynd- inni, sama hver þriðji maðurinn væri? „Það er rétt aö Jón Baldvin nefndi Sighvat Björgvinsson og engan annan þótt eftir því væri gengið. Það er alveg ljóst að Sighvatur hef- ur staðið fyrir sömu áherslum og Jón Baldvin varðandi framkvæmd á stefnu flokksins. Því sé ég ekki hveijar breytingar yrðu við þau formannsskipti.'‘ - Ertu með varaformannskandídat tilbúinn? „Nei, ég er það ekki." - Hefur þú rætt við einhveija? „ Ekkert er fastsett í því efni. Hins vegar hafa veriö nefnd ýmis nöfn í mín eyru en ég á ekki von á því að það skýrist neitt fyrr en á flokksþinginu sjálfu." - Hefur þú kynnt þér afstöðu þing- manna flokksins í þessu máli? „Við höfum talað saman, ýmsir þingmenn. Ég geng hins vegar ekki á eftir mönnum til að knýja fram afstöðu þeirra til mín eða Jóns Baldvins. Það er mál hvers og eins." - Verður stjórnarsamstarfið í hættu ef þú verður kosin formaður flokksins? „Ég fæ ekki séð hvers vegna það ætti að vera. Við Davíð Oddsson forsætisráðherra höfum átt ágætt samstarf og ég fæ ekki séð að það þurfi að verða þar breyting á þótt ég verði formaður flokksins. Það er ágætt trúnaðarsamband á milli mín og Davíðs Oddsson, sem er afar mikilvægt hjá forystumönnum flokka sem eru saman í ríkisstjórn. Það er ekki langt eftir af þessu kjör- tímabiii og ég fæ ekki séð að for- mennska mín ætti að tefla ríkis- stjómarsamstarfinu í hættu. Ég mun að vísu leggja aðrar áherslur á í ýmsum málaflokkum, aðrar en Jón Baldvin hefur gert. Ég vil treysta velferðarkerfið í sessi í samræmi við stefnu flokksins, sem er aldrei brýnna en nú. Og tekið yrði á á annan hátt en gert hefur verið. Ég vil leggja aukna áherslu á atvinnuuppbyggingu fyrir ungt fólk. Eins varðandi ófaglærða sem hafa orðið harðast úti í atvinnu- leysinu. Þá hygg ég að afstaöa mín til ESB, sem mikið verður fjallað um á næstunni, séu raunhæfari og meira í samræmi áherslur sam- starfsflokksins, og reyndar ann- arra flokka líka, en skoðanir Jóns Baldvins. Þess vegna sé ég ekki hvað það er sem ógna ætti stjómar- samstarfinu. Ég heyri hins vegar að menn era að reyna að planta þeim ótta inn í þá umræðu sem nú á sér stað um formannsslag okkar Jóns Baldvins." - Hvað ætlar þú að gera ef þú tapar í kosnmgunni til formanns flokks- ins? „í lýðræðislegum flokki unir maður þeirri niðurstöðu sem verð- ur hveiju sinni." - Getur þú unað því að tapa og flokkurinn haldi áfram með sömu áherslur og þú ert nú að mótmæla? „Ég er aö gefa kost á mér til þess að flokkurinn hafi val. Ég tel mig geta gert þennan flokk aö fjölda- hreyfingu og breytt áherslum hans og ímynd í takt við þá félagshyggju- vinda sem nú blása. Ég ætla ekki að gefa mér langan tíma til þess. Ég ætla ekki að gefa mér 10 ár í að gera flokkinn aö þeirri fjöldahreyf- ingu sem ég vil sjá og gefa honum þá ímynd og þær áherslur sem ég vil að uppi séu í Alþýðuflokknum. Ef ég fæ engu áorkað á 2 árum er ég tilbúin að gefa öðmm tækifæri til að taka við stjóminni og sanna sig. Jón Baldvin getur ekki ætlast til þess að ég verði sett út í horn með mín stefnumál og mínar skoð- anir þótt ég tapi þessum formanns- kosningum. Ég er tilbúin að taka ósigri jafnt sem sigri. En þaö verða allir aö skilja að í lýðræðislegum flokki er ekki hægt að ætlast til að maður hætti að standa á stefnu- málum sínum og sannfæringu. Flokkurinn verður að hafa rúm fyrir mínar skoðanir líka ef ég á að geta starfað í honum. Ég gæti þá frekar hugsað mér að snúa mér að öðrum viðfangsefnum og allt eins þá að gera hlé á mínum pólit- ísku störfum." - Kemur sérframboð til greina ef þú tapar? „Það hefur ekkert slíkt komið upp í mínum huga." - Össur Skarphéðinsson sagði í sjónvarpsviðtali á kosninganótt að sigur R-listans boðaði breytingar á flokkakerfinu á íslandi. Ertu sam- mála því? „Ég er hjartanlega sammála þessu. Ég sé fyrir mér að þessi bylgja, þessi straumur sem hefur farið hér um í Reykjavík, er ákall fólksins um breyttar áherslur í málefnum borgarinnar. Fólk er að biðja um að hin mjúku gildi taki við af hinum hörðu gildum fijáls- hyggjunnar. Stjómmálin hér, alveg eins og í Evrópu, hafa verið eins konar tæknihyggja þar sem mæli- stika reiknistokksins er lögð á alla skapaða hluti en mannúðleg sjón- armið em látin vílqa. Og nú kemur ákall frá fólkinu sjálfu um breyttar áherslur. Þeir sem stýra stjóm- málaflokkunum geta ekkert stöðv- að þessa strauma. Fólk er að biðja um jafnaðarstefnuna í fram- kvæmd. Það er kjami þessa máls."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.