Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1994, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1994, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1994 11 Sviðsljós AKUREYRI /////////////////////////////// Afmælisveisla á Eskifirði í hringiðu helgarinnar Þær Rúna Björg Sigurjónsdóttir, Erna Knútsdóttir, Herdís Steinarsdóttir og Bára Knútsdóttir spila aUar með Skólalúðrasveit Grafarvogs og létu sig því ekki vanta í grillveislu sem GrafarvogSsókn stóð fyrir á sjómannadaginn. Grafarvogsbúar hafa nú loksins fengið kirkju og var fyrsta messan í stóra sal kirkjunnar á sunnudaginn. Sóknarbömum gafst einnig tækifæri til að skoða kirkjuna og safnaðarheimilið. Þær stöllur höfðu nýlokið að spila fyrir nærstadda með lúðrasveitinni í tilefni dagsins. Þessir ágætu herramenn voru heiðraðir af félögum sínum í Meistarafélagi húsasmiða á 40 ára afmæh félagsins á laugardaginn. Þeir hafa allir starfað mikið með félaginu og heita: Gunnar Björnsson, Jósep Halldórsson, Gissur Sigurðsson og Ingólfur Finnbogason. Keppendur um titlana Miss American Dream og Miss Oroblu sýndu m.a föt frá versluninni Arma Supra á Hverfisgötu á úrshtakvöldinu sem haldið var á Hótel íslandi á fostudaginn. Stúlkurnar klæddust herklæðum en verslunin sérhæfir sig í hermannafotum og minjagripum úr stríðinu. Stúlkurnar tóku sig vel út í þessum klæðnaði enda hver annarri glæsilegri. 24 síðna aukablað um Akureyri fylgir DV á morgun. Þar verður m.a. fjallað um Akureyri sem ferðamannabæ og rætt við fólk í ferðaþjónustu. Þá verður einnig hugað að mannlífi í bænum. Farið verður í heimsókn í fyrirtæki, rætt við fólk í atvinnulífinu og fólkið á götunni. Heiðurshjónin Kristin Péturs- dóttir og Þorvaldur Friðriksson héldu nýlega upp á 70 ára afmæli sitt í húsi Slysavarnafélagsins á Eskifirði. Fjölmenni samfagnaði þeim og það var mál manna að veislan hefði verið einstök í sinni röð. Mikið var spilað og sungið enda margir góðir söngvarar og tónhstarmenn í ættinni; strákamir þeirra Stínu og Valda og aðrir skemmtikraftar í ættinni svo sem Björn Valur Ellertsson, séra Davíð Baldursson, Trausti Ragnarsson, Ágúst Ármann Þorláksson og Þor- lákur Friðriksson. Kristín og Þorvaldur ásamt börnum sínum. Frá vinstri: Guðmann, Ellert Borgar, Elinborg, Friðrik, Þórhaliur og Haukur Helgi. DV-myndir Emil Thorarensen Sóknarpresturinn á Eskifirði, séra Davið Baldursson, ásamt eigin- konu sinni, Inger Lindu Jónsdóttur, sýslumanni á Eskifirði. Ellert Borgar, bæjarfulltrúi í Hafn- arfirði, ásamt Kristínu móður sinni. Fagur fiðluleikur Tónleikar voru í íslensku óperunni á sunnudag. Igor Oistrakh lék á fiðlu við undirleik Natahu Zertsalova á píanó. Á efnisskránni voru verk eftir Ludwig van Beethoven, Johannes Brahms, Niccolo Paganini, Er- nest Chausson og Efrem Zimbahst. Meðal merkustu fiðluleikara á þessari öld má tví- mælalaust telja David Oistrakh frá Sovétríkjunum. Stíh hans einkenndist af tilfinningaríkri túlkun, mikl- um og fógrum hljómi og miklu næmi á hrynjandi og hendingaskipun. Sonur hans, Igor, hefur að mörgu leyti svipaðan stíl sem glöggt mátti heyra á tónleikim- um. Viö þær væntingar sem flestir höfðu fyrir tónleik- ana kom þó á óvart að þessi heimsfrægi fiðluleikari skyldi ekki hafa óaðfinnanlega tækni. Sumir erfiðir staðir voru ekki nógu hreint spUaðir. Gætti þess einna helst í kaprísum Paganinis sem mistókust að verulegu leyti í flutningi. Þá spiUti það einnig fyrir þessum verk- um að píanóið sló hljóma undir sem bæta engu við gUdi þeirra; draga þvert á móti frekar úr skýrleika og fletja þau út. Staðreyndin er sú að verk af þessu tagi, sem hafa ekkert til síns ágætis annað en glæsUeika tæknlhreUnanna, verða að fá óaðfinnanlegan flutning til þess að gaman sé að hlusta á þau. Oistrakh naut sín hins vegar mjög vel í öðrum verk- um. Hin stílhreina vorsónata Beethovens hljómaði mjög vel og sama má segja um sónötu Brahms nr. 3 í d moU. í þessum verkum nutu sín vel hin skýru styrk- brigði fiðluleikarans og fjölbreytt blæbrigði fiðlutóns- ins. Hendingamótun var einnig frábærlega skýr og vel mótuð. Hér varð mönnum ljóst að Oistrakh er túlk- andi af fyrstu gráðu sem fær út úr tónlistinni aUt sem hún býr yfir. Eftir hlé var komið að verkum af léttara tagi. Poeme eftir Chausson og fantasía ZimbaUsts um Tóiílist Finnur Torfi Stefánsson stef Rimsky-Korsakovs úr Gullna hananum eru prýði- lega samin verk og faUa vel að fiðlunni þótt þau hafi enga sérstaka Ustræna dýpt. Oistrakh lét mjög vel að leika þessi verk. Hinn rómantíski stUl, sem á köflum varð ofurUtið væminn, var honum greinUega mjög auðveldur. Sama má segja um þau mörgu aukalög sem leikin voru. Þau voru í svipuðum anda og Oistrakh fór þar mjög á kostum. Píanóleikur Zertsalovu var yfir- leitt skýr og vel af hendi leystur en án sérstakra til- þrifa. Þetta voru vel heppnaðir tónleikar og áheyrend- ur fóru glaðir heim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.