Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1994, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1994
13
pv___________________________________________Neytendur
Sumarblómasalan í fullum gangi:
Stjúpumar em langvin-
sælasta sumarblómið
- seldar á sama verði og í fyrra á allflestum stöðunum
„Viö seldum á miUi 60 og 70 þúsund
stjúpur um síðustu helgi og um 200
þúsund stjúpur helgina þar á undan,
sem er um það bil helmingur af
venjulegri sumarsölu," sagði Krist-
inn Einarsson, sölustjóri hjá
Blómavali, en Blómaval olli miklum
titringi á blómamarkaðinum fyrir
skömmu þegar verslunin auglýsti 30
stjúpur í hakka á rétt tæpar þúsund
krónur og svo aftur tíu stjúpur í
bakka á 399 kr.
Kapphlaup um kúnnann
Miklu máli skiptir fyrir söluaðila
að ná til neytenda þessa dagana því
stjúpurnar eru mjög stór hluti af allri
sumarblómasölunni, t.d. á milh 70
og 80 prósent í Blómavali. Það kom
blaðamanni því á óvart hversu lítill
verðmunurinn er á milli verslana en
oft er engu líkara en að um verð-
samráð sé að ræöa. í augnablikinu
eru engin tilboð í gangi svo af þeim
15 stöðum sem neytendasíðan hafði
samband við kostaði stjúpan 50 krón-
ur á átta stöðum, 45 krónur á þremur
stöðum og 40 krónur á fjórum stöð-
um. Verðmunur á hæsta og lægsta
veröi er 20%, þó ekki sé nema um 5
krónur að ræða.
En það eru ekki næstum því allar
verslanimar sem taka þátt í verð-
samkeppninni. Einn söluaðilinn gaf
blaðamanni þá skýringu að fæstar
þyrðu það af ótta við verðhrun í kjöl-
farið. Flestir söluaðilamir halda sig
við sama verð og í fyrra en þá var
algengasta verðið 50 kr. á stykkið.
Harðgerð planta
Ástæðan fyrir vinsældum stjúp-
unnar kemur til af því að hún er ein-
staklega harðgerð, blómrík og dugleg
planta sem stendur alveg fram í sept-
emberlok, eða þar til fer að frysta.
Hún þolir íslenska veðráttu vel, jafnt
sumar og sól sem slagveður, rigningu
og rok. Hjá Blómavali fengust þær
upplýsingar að engin ein planta
kæmist með tærnar þar sem stjúp-
urnar hafa hælana hvað vinsældir
snerti þótt petúnía, eða tóbakshom,
væri líka vinsæl. Hún ber stórt
klukkulaga blóm og er síblómstrandi
yfir sumarið.
Neytendasíðan hafði samband við
Skógræktarfélag Reykjavíkur, Ár-
bæjarblóm, Byko, Blómaval, Gróðr-
arstöðvamar Alaska, Garðshom,
Birkihlíð, Fífilbrekku, Lund, Grænu-
hlíð, Mörk, Skuld, Borg (Hvera-
geröi), Engi (Laugarási í Biskups-
tungum) og Garðplöntusölu ísleifs í
Mosfellsbæ. Rétt er að taka fram að
ekkert mat var lagt á gæði í þessari
könnun.
Skrúfurá
visum
Ef þú átt krukkur með skrúf-
uðu loki er upplagt að nota þær
undir nagia, skrúfur og annað
smádót í bilskúmum. Til aö þær
taki sem minnst pláss er best aö
skrúfa lokin föst neðan á hillu í
skúmum. Þegar þig vantar eitt-
hvað úr krukkunum skrúfar þú
þær af lokinu undir hillunni til
þess aö taka þær niður en fyrir
bragðið era þær alltaf á vísum stað.
Silfurmunir
og sykur
Það er gamalt húsráð að
geyma silfunnuni i dökkum klút
en einnig er gott áð Jeggja nokkra
sykurraola í hirsluna. Þá fellur
lajigtum seinna á silfrið.
Leöurstíg-
velm
Leður- og kuldastígvél úr
mjúku leðri leggjast yfirleitt út
af. Hægt er að komast hjá þessu
ef snúra er fest á fatasnagann eða
á hengið með klemmu á öðrum
endanum. Klemman er sett efst á
stígvélið og lengd snúrunnar
stillt þannig að stígvélið standi
rétt. Einnig er hægt að stinga
pappahólkum niður I stigvélin til
að halda þeim uppi.
Hengi fyrir
smájfólkið
Hluti af því hvimleiða vanda-
máli að börnin henda frá sér úti-
fótunum á gólfið er að þau ná
ekki upp í fatahengið. Gott ráð
er því að utbúa snaga eða lítiö
hengi neöarlega i skápnum svo
þau getí hengt flíkumar sínar
upp sjálf.
Kryddskúffa
Kryddskúfifa er lausn sem
sparar bæöi spor og þrif. Tæmdu
eina skúflú í eldhúsinu, helst ná-
lægt eldavélinni, og skrúfaðu eða
límdu þunna trélista langsum í
botninn á henni. Leggðu
kryddglösin svo á hliðina, milli
listanna, og láttu miðana snúa
fram þannig að þú sjáir hvað á
þeim stendur.
Rúmfötí
sumarbú-
stað
Ef þú óttast að mýs komist í
sumarbústaðinn að vetrarlagi og
spilli rúmíötunum er ráð að
hengja þau á prik uppi undir lofti.
Skrúfaðu trausta króka í loftið
og dragðu prikí þá. Leggðu dýnur
og teppi upp á prikin og púöa má
hengja upp með sterkum klemm-
um. .
Þú getur notað prikin til blóma-
þurrkunar á sumrin og er það
jafnft-amt til prýði í sumarbú-
staðnum.
Rfilbrekka
Engi
Borg
Isleifur
Árbæjarblóm
Lundur
Byko
Hjá hinum í
könnuninni
F rístundafarsímar
Nú geta þeir sem einungis telja
sig þurfa að nota farsíma á kvöldin
og um helgar, t.d. sumarbústaða-
eigendur og eldra fólk sem lítur
meira á hann sem öryggistæki,
fengið símann á betri kjörum en
aðrir.
Póstur og sími býður lægra stofn-
og afnotagjald í farsímakerfinu fyr-
ir þá aðila sem einungis nota far-
símann utan álagstíma, þ.e. á milli
kl. 18 og 8 og um helgar. Þessir eig-
endur „frístundafarsíma" borga
2.490 kr. í stofngjald í stað 11.691
kr. og 498 kr. í afnotagjald í stað
1.519 kr.
Það kostar eigendur frístunda-
farsíma jafn mikið að hringja inn-
anlands utan álagstíma og eigend-
ur venjulegra farsíma en ef frí-
stundafarsíminn er hins vegar not-
aður á álagstíma á virkum dögum
er tekið þrefalt farsímagjald. Að
matí Pósts og síma má með þessari
lækkun búast við að farsímaeign
verði almennari en áður.
Stjúpurnar eru sivinsælar enda þola þær vel íslenska veðráttu, blómstra
vel og standa lengi. Verðið á þeim er ósköp svipað hjá söluaðilum á höfuð-
borgarsvæðinu en oft örlítið lægra úti á landi. DV-mynd GVA
•sluninni sem
tilgreind er hér til
hliðar
Þessi seðill gildir til:
30. júní 1994
nuio
HEIMILISTÆKI
OFN - blástur
8 valstillingar
Verö ábur kr. 48.150,-
Verb nú kr. 41.000,-
1 'dWaxr^xo
HELLUBORÐ - Venjuleg
4 hrabhellur
Verb kr. 10.100,
HELLUBORÐ - Keramik
Verb áöur kr. 40.500,-
Verb nú kr. 35.000,-
nmo
ELDHÚS Sími 814448 Grensásvegi
n
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i