Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1994, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1994, Page 15
ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1994 Staða stéttarfélaga í Evrópusambandinu „I sambandi við undirbúning að EES- samningunum um frelsin Qögur voru margir sem kröfðust þess að frelsin væru fimm, með því að starfsemi stétt- arfélaga væri bönnuð.“ „Landslög í aðildarríkjum ESB tryggja yfirleitt ekki samningsrétt stéttar- félaga,“ segir m.a. í greininni. Stéttarfélög eru ekki bönnuö inn- an ESB en staða þeirra er afar veik sé tekið mið af stöðu þeirra á Norð- urlöndum. Staða og réttindi al- mennra launamanna eru spegii- mynd þessara aðstaeðna, hvað sem líður tölum um meðalþjóðartekjur á mann. Margar ástæður Ástæður þess að stéttarfélög eru veik innan ESB eru margar. Sem dæmi má nefna eftirfarandi: 1. Lög í aðildarríkjum ESB kveða ekki á um skyldu launafólks að vera í stéttarfélagi. Hið gagnstæða er fremur regla og algengt að fyrir- tæki krefjist þess að launafólk sé utan stéttarfélaga ella fái það ekki atvinnu eða missi hana. 2. Fjármagnseigendur beita mis- kunnarlausum áróðursmætti fjölmiðla til að ófrægja stéttarfélög og forystumenn þeirra í því skyni að draga úr samtakamætti launa- fólks. 3. Landslög i aðildarríkjum ESB tryggja yfirleitt ekki samningsrétt stéttarfélaga. Víða í aðildarríkjum ESB gengur stéttarfélögum illa að fá samningsrétt sinn viðurkenndan af viðkomandi launagreiðendum. 4. Verkfallsréttur er í sumum ESB-löndum ekki bundinn við stéttarfélög heldur sérhvem ein- stakling. Þetta þýðir að hver og einn launamaður - ekki stéttarfé- lagið í heild sinni - ákveður hvort hann fylgir ákvörðun stéttarfélags um aðgerðir. 5. í sumum ESB-ríkjum getur vinnumálaráðherra úrskurðað að KjaUariim Gunnlaugur Júlíusson hagfræðingur og formaður Samstöðu um óháð ísland öll samtök launafólks verði að lúta kjarasamningi sem ein samtök hafa gert, óháð þvi hvemig hann er eða hver séu viðhorf annarra stéttarfélaga gagnvart honum. 6. Mörg stéttarfélög og sambönd stéttarfélaga innan ESB em fremur reist á grundvelh trúarbragða, tungumála eða landshluta fremur en sem baráttusamtök launafólks. Innbyrðis sundurleitni slíkra fé- laga hefur grafið undan stöðu stétt- arfélaga hman ESB. Fyrrgreind atriði veikja stöðu stéttarfélaga innan ESB og draga mjög úr virkni þeirra. Því mega stéttarfélög sín lítils við ákvarð- anatöku innan aðildarríkja ESB og í stofnunum þess. í sambandi við undirbúning að EES-samningun- um um frelsin fjögur vom margir sem kröfðust þess að frelsin væm fimm, með því að starfsemi stéttar- félaga væri bönnuð. Markmið ESB Hægt er að draga saman gmnn- markmið Evrópusambandsins á eftirfarandi hátt: 1. Gera mörg þjóðríki að einum hindmnarlausum heimamarkaði fyrir evrópsk stórfyrirtæki. 2. Að reisa tollmúr gagnvart erf- iðum keppinautum og veita evr- ópskri framleiðslu fríðindi í sam- keppni við þá. 3. Að setja evrópsk lög og koma á fót yfirþjóðlegum stofnunum til að takmarka möguleika aðildar- landa, þjóðþinga og stjórnmála- manna í aðildarríkjunum á að auka hlut launafólks á kostnað fjár- magnsins. 4. Að skapa með samningum við önnur ríki markað fyrir iðnvam- ing Evrópu gegn aðgangi aö mikil- vægum hráefnum og auðlindum. Gunnlaugur Júlíusson Ofstækið gegn reykingum í eina tíð var bannað að éta hrossa- kjöt á íslandi og síðar var algert bann á neyslu áfengra drykkja, nema auðvitað messuvínið. Fyrra bannið var frá kirkjunni komið en það síðara var af rótum múha- meðstrúar, fluttist með musteris- riddumm til Evrópu. Það er ein- ungis í sögu trúarbragðanna sem fólk, einstaklingar, hefur verið of- sótt vegna neyslu sinnar. Slíkt hef- ir verið kaliað ofstækistrú. Nú veltir margur því fyrir sér hvaðan ofstækið gegn reykingum er runnið. Allir vissu hveijir stóðu fyrir banni hrossakjötsáts og vín- banni. Nú dettur mörgum í hug: Hver er á bak við grímumar, eins og frægt varð dagana fyrir sveitar- stjórnarkosningamar? Hverjir fel- ast á bak viö þær? Em það ofstæk- isfullir alþingismenn og -konur? Eru það læknamir? Eru það lungnakrabbameinssjúklingar sem enn em á lífi? Em það samtök astmasjúklinga? Era það aðstand- endur þeirra sem em látnir, sann- anlega af afleiðingum reykinga? Eru þetta umhverfisráðuneytis- fulltrúar? Eða era þetta bara leyni- samtök sem hafa sett sér þetta markmið? Andartak - kannski heildsalar án tóbaksumboða sem em að koma fótunum undan öðr- KjaJlariim Erla Guðmundsdóttir löggiltur skjalaþýðandi og dómtúlkur um heildsölum sem þeim er illa við? Heilsufarfólks Við erum öll misjafnlega vel búin til lífsgöngunnar, líklega að mestu leyti arfgengir eiginleikar. Við er- um þó með langlífustu þjóðum þessa heims. En það er engu líkara en að mikið mannfall sé með þjóð- inni nú og er þó enginn svartidauði á ferð, spánsk veiki eða stórabóla. Þetta gengur svo langt að á sjúkrahúsum landsins er engu lík- ara en aö reykingafólk sé að púa út úr sér bakteríum yfir starfsfólk og aðra sjúklinga. Þeim er þó leyft, t.d. á Landspítalanum, að hópast saman í gluggalausu herbergi. Era þetta pyntingar í ákveðnum til- gangi? Hvað snertir sængurkonur, þá mega þær fara og reykja utan- dyra. Á vinnustað er reykingafólki ekki einu sinni leyft að hafa sóma- samlegt afdrep tíl reykinga. Nú bæ, sem og á öðmm flugvöllum. Þó hafa Flugleiðir lokað á reyk- ingafólk. Mannréttindi Hvað er það sem má og hvað má ekki? Við eigum lög yfir það sem heita refsilög einu nafiii og hegn- ingarlög öðm nafni. Ef það er refsi- vert að reykja, hvers vegna setur Alþingi ekki lög um slíkt og bætir þeim inn í refsilöggjöfina? Hvað segir vinnulöggjöfin? Hvað segja lögin um hollustuhætti og aðbúnað á vinnustöðum? Hefur verið búið svo um hnútana „Ef þaö er refsivert að reykja, hvers vegna setur Alþingi þá ekki lög um slíkt og bætir þeim inn í refsilöggjöfina?“ nýverið var þaö tekið upp á Kefla- víkurflugvelli að sá sem vill við- hafa þann ósið að reykja veröur að fara að minnsta kostí átta metra frá byggingu til þess! Hefur nokkur kynnt sér andrúmsloftið almennt á þeim vinnustað? Bensínsvækja úr flugvélunum og allt sem þeim fylg- ir er það sem fyllir loftið á þeim að allt reykingafólk sé orðið sakbit- ið af að hafa vanið sig á að reykja og því sé það orðið þáttur í lífs- mynstri þeirra? Er það þess vegna sem enginn möglar gegn þessum yfirgangi? Er þetta hræðsluher- ferð? Af hverju iátið þið ekki í ykk- ur heyra, þið sem reykið? Erla Guðmundsdóttir 15 Tvöfalt gler í Ráðherrabú* staðinn legt að setja tvöfalt gler í Ráðherrabú- staðinn við Tjömina þótt það hafi eflaust verið einfaltífrum- Jón Sigurjónsson, gerð hússins. verkfræölngur hjá Húsið er allt Rannsóknasl. bygg- hið vandaö- inaariönaðarlns. asta og eina ástæðan fyrir að ekki var tvöfalt gler í uppranalegri mynd er aldur þess. Allir sem muna eftir hvernig er að hafa ein- falt gler í gluggum vita að eini kostur þess er rómantískar frost- rósir í köldu vetrarveðri sem þá myndast úr hrimi innan á rúðun- ura. Engin rós er án þyma stend- ur einhvers staðar og það á jafn- vel við um þessar frostrósir. Um leið og eitthvað hlýnar breytast þær í vatn sem er raunar miður og skemmir bæði gluggann og jafhvel næsta umhverfi hans. Þetta veldur sífelldu og hvim- leiðu viðhaldi gluggans og styttír endingu hans. í nútíma húsum meö tvöföldu gleri tapast að jafnaði um þriðj- ungur upphitunarvarmans út um glugga hússins. Tvöfalt gler ein- angrar mun betur en einfalt, þvi veldur loftbiliö miili glerjanna. Af þessum tveimur orsökum, rakaþéttingarhættunni og þeirri orkusóun sera einfalt gler veldur, er löngu búið að ákveða í bygg- ingarreglugeröum að nota skuli a.m.k. tvöfalt gler." Eyðileggur útlit „Það var búið að augnstinga Ráðherrabú- staðinn að liluta til, þaö er að segja taka alla ramma eða fög úr húsinu og setja tvö- fait verk- smiðjugler í staðinn. Það er hefð- bundin aðferð sem hefur tíðkast mjög Iengi og hún eyðileggur út- lit húsa. Þegar til stóð að gera viö glugga Ráðherrabústaðarins var ákveðið að smíða ný fög í húsiö aftur eins og alltaf er gert við frið- uð hús. Til þess að halda í upp- mnalegt útlit hússins var ákveð- iö að sefja einfalt gler í þessa ramma og kítta það á hefðbund- inn hátt. Viö leggjum áhersiu á að handverkiö og útlitið sem fylg- ir því sjáist. Viö erum alls ekki að leggja það til að síðan eigi að vera einfalt gler í þessu húsi eða öðrum hús- ura heldur leggjum eindregiö til að settir séu innri rammar sem annaðhvort séu fastir við hina rammana eða lausir og opnist inn eins og hefö er fyrir úti um alla Evrópu og Noröurlönd. Það gefur ívið betri hitaeinangmn og allt að helmingi beu-i hljóðeinangr- un. Tæknilega séð, ef rétt er að staðið, er þetta betri lausn en verksmiðjugler sem oft vill bila, og menn þekkja þaö að hafa móðu milli gleija. Varöandi kostnaö er rétt að taka það fram aö þetta getur ver- iö ívið dýrari lausn en tvöfalda glerið. Þá ber þess að gæta aö oft þarf ekki að smiða nýja glugga í hús heldur einungis gera við. Frágangur viö að taka glugga úr og í sparast þá þannig aö kostnaö- ur getur orðið svipaður." Magnús Skúlason, arkitekt bjá húsfrið- unamefnd.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.