Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1994, Qupperneq 25
ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ 1994
25
Fréttir
- en þrjá hoplaxa líka
Orn Sigurhansson með stærsta laxinn úr Norðurá og stærsta laxinn
ennþá í stangaveiðinni á þessu sumri, 18,5 punda á Munaðarnessvæð-
inu í Norðurá i Borgarfirði. Norðurá var rétt kringum 100 laxa í gærkvöldi.
DV-mynd Hannes
Laxveiðin byrjar betur en margir
höföu spáð fyrir um og fyrstu tölur
úr veiðiánum eru bara góðar. Á
þessari stundu hafa veiðiárnar sem
hafa opnaö gefið næstum 200 laxa.
Og það er oft þegar fiskifræðing-
amir segja ekki mikið að veiðin er
góð og núna voru þeir óvenjulega
þögulir. Eða eins og Eyþór Sig-
mundsson sagði um daginn: „Núna
Véiðivon
Gunnar Bender
gæti orðið góö veiði því að fiski-
fræðingamir segja ekki neitt.“
„Þetta var alveg ágætt, við feng-
um 6 laxa og 3 hoplaxa, þetta vom
laxar frá 10 upp í 15 pund og tóku
allir maðk,“ sagði Hilmar Ragnars-
son en hann var opna Laxá á Ásum
viö þriðja mann. Þeir hættu á há-
degi í gær en Laxá á Ásum er opn-
uð núna fimm dögum seinna en
venjulega. Það hefur greinilega sitt
að segja. Þetta á víst að gera með
fleiri veiðiár þetta sumarið, eins og
Víðidalsá og Miðfjarðará, höfum
við heyrt.
„Enginn af þessum löxum sem
viö veiddum var með lús, þeir hafa
verið komnir fyrir einhverjum dög-
um. Við fengum þessa laxa frá
Efsta-Dulsa í Brúarstreng. Það var
gott veöur en töluvert mikið vatn
í ánni. Það vom laxar að koma í
ána svo að næstu veiðimenn ættu
að fá eitthvað," sagði Hilmar enn-
fremur.
Þeir hjá SÖ kjötvörum em í ánni
fram aö hádegi í dag en þá taka
þeir bræður Gunnar og Magnús
Gunnnarssynir við.
Blanda gaf 17 hrygnur
fyrsta daginn
„Veiðin byijaði vel í Blöndu og
fyrsta daginn sem mátti veiða, á
sunnudaginn, veiddust 17 laxar og
það voru allt hrygnur," sagði Sig-
urður Kr. Jónsson á Blönduósi er
við spurðum frétta af Blöndu.
„Einn og sami veiðimaðurinn, Kári
Valgarðsson á Sauðárkróki, veiddi
7 laxa þennan fyrsta veiðidag en
næsti maöur við hliðina á honum
veiddi ekkert. Svona getur veiðin
veriö og Kári þekkir ána feiknavel.
Þetta vom laxar frá 10 upp í 14
pund,“ sagði Sigurður ennffemur.
Stærsti fiskurinn er 4,5 pund
„Á þessari stundu hafa veiðst um
115 fiskar hjá okkur og hann er 4,5
pund sá stærsti. Það var Skúh Pét-
ursson sem veiddi fiskinn á flug-
una Black Oust,“ sagði Sólveig
Jónsdóttir á Amarvatni er við leit-
uðum frétta af urriðasvæðinu.
„Það þarf að bara að hlýna, þá fer
fiskurinn að taka betur hjá veiði-
mönnum, en í dag var þó 5 stiga
hiti,“ sagði Sólveig Pétursdóttir í
lokin.
Laxá á Ásum:
Opnunin gaf 6
væna laxa
Wesley Snipes:
listin að passa
ímyndina
Leikarinn Wesley Sni-
pes virðist hafa áhyggjur
af því hvernig almenn-
ingur hugsar um hann.
Leikarinn ungi er að
mörgum taiinn eiga gott
tækifæri til að verða
næsta kyntákn kvik-
myndanna. Eitthvað
virðist þessi bjarta fram-
tíö þó hafa ruglað piltinn
íríminu.
Um daginn var hann
beðinn að taka þátt í góð-
gerðarsamkomu til
styrktar eyðnisjúkum.
Leikarinn ungi þráaðist
lengi við en samþykkti
loks að mæta með því
skilyrði að hann fengi
að taka með sér tvær
ungar og fallegar fyrir-
sætur.
Gárungamir segja að
með þessu hafi Snipes
viljað koma í veg fyrir
allt tal um að hann væri
samkynhneigður.
Svidsljós
Wesley Snipes, karlmennskan uppmáluð.
Leikhús
Námskeiö
Námskeið í skyndihjálp
Reykjavíkurdeild RKI gengst fyrir nám-
skeiði í almennri skyndihjálp sem hefst
miðvikudaginn 8. júni í Ármúla 34,3. hæð
(Múlabæ). Kennt verður 3 kvöld frá kl.
19-23. Þann 15. júní verður svo haldiö
námskeið um það hvernig á að taka á v
móti þyrlu á slysstað. Áhugasamir skrái
sig í síma 688188 kl. 8-16.
Litli íþróttaskólinn
á Laugarvatni býður upp á þrjú 6 daga
námskeið fyrir stráka og stelpur á aldrin-
um 9-13 ára (f. ’81-’85) á tímabilinu:
19.-25. júni, 26. júní-2. júlí og 3.-9. júlí.
Þátttökugjaldið er kr. 16,500. Veittur
verður systkinaafsláttur auk vinaafslátt-
ar.
Tapað fundið
Gönguklúbbur Hana-nú
í Kópavogi er það orðin hefð að Göngu-
klúbbur Hana-nú gengur á miUi kosn-
ingaskrifstofa flokkanna að morgni kosn-
ingadags og tekur út stöðuna. Síðasti
kosningadagur var engin undantekning
í þessu efni en það voru um 100 blómum
skrýddir gönguklúbbsfélagar sem gengu
syngjandi á milli flokkskrifstofanna.
Meðfylgjandi mynd sýnir félagana á
kosningaskrifstofu Sjálfstæðisflokksins í
Kópavogi.
Kvenúr fannst
Fyrir u.þ.b. viku fannst kvenúr á bíla-
stæði við Hátún. Upplýsingar í síma
21509.
63 27 00
Bridgeklúbbur Félags
eldri borgara í Kópavogi
í kvöld, þriðjudagskvöld, kl. 19 verður
spilaður tvímenningur að Fannborg 8
(Gjábakka).
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
Sími 11200
Stóra sviðið
GAURAGANGUR
eftir Ólaf Hauk Simonarson
Föd. 10/6, laud. 11/6, mvd. 15/6, næstsið-
asta sýning, fid. 16/6, síðasta sýning, 40.
sýning.
„Áhugaleiksýning ársins”
LEIKFÉLAG HORNAFJARÐAR sýnir
ÞAR SEM DJÖFLAEYJAN
RÍS
eftir Einar Kárason í leikgerð Kjart-
ans Ragnarssonar
Sud. 12/6 kl. 20.00. f
Aðeins þessi eina sýnlng.
Litla sviðið kl. 20.30
KÆRA JELENA
eftir Ljúdmílu Razúmovskaju
Á morgun, uppselt, 170. sýning, næstsíð-
asta sýning, sud. 12/6, nokkur sæti laus,
síðasta sýning.
LEIKFERÐ UM NORÐAUSTURLAND
ÁSTARBRÉF
eftir A.R. Gurney
Þrd. 7/6 kl. 20.30 -Húsavik
mvd. 8/6 kl. 20.30 - Skúlagaröur
fld. 9/6 kl. 20.30 - Raufarhöfn
föd. 10/6 kl. 21.00 - Þórshöfn
Id. 11/6 kl. 21.00- Vopnafjörður
Mlöasala fer fram viö Inngang á sýnlng-
arstöðum. Einnig er tekið á mótl sima-
pöntunum i miðasölu Þjóðleikhússins frá
kl. 10-17 virka daga i sima 11200.
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla
daga nema mánudagafrá 13.00-18.00
og fram aö sýningu sýningardaga. Tekiö
á móti símapöntunum virka daga
frákl.10.
Græna linan 99 61 60.
Greiðslukortaþjónusta.
Leikfélag Akureyrar
Sýnir á Listahátið i Reykjavik
fiarfar
eftir Jim Cartwright
í Lindarbæ
íkvöld kl. 20.30.
Miðvikudag 8. júni kl. 20.30.
Fimmtudag 9. júni kl. 20.30.
Forsala aðgöngumiða er i miðasölu
listahátiðar í islensku óperunni dag-
lega kl. 15-19, simi 11475,
sýningardaga i Lindarbæ frá kl. 19.
Sími 21971.
Tilkyimingar
Ný Ijóðabók
„Vatnaliljur handa Narkissos” er heiti
nýrrar ljóðabókar eftir Lárus Má Bjöms-
son en í henni er einkum tekist á við tvö
viðfangsefni: annars vegar menn-staði,
bólfestu staða í mönnum, hins vegar álög
og fjötra ástarinnar. Vatnaliijur er önnur
frumsamin ljóðabók höfúndar.
Félag eldri borgara
í Rvík og nágrenni
Þiðjudagshópurinn kemiu- saman í kvöld
kl. 20. Sigvaldi leikur lög og leiðbeinir.
Allir velkomnir. Farin verður kvöldferð
funmtudaginn 9. júní, ekinn Bláfjalla-
hringur. Upplýsingar á skrifstofu félags-
ins, sími 28812, kl. 9-16 virka daga.
Styrkur úr minningarsjóði
Kristín Árnadóttir, sænskukennari á
Akureyri, hefur fengið styrk að upphæð
sænskar krónur 3.000 úr minningarsjóði
Per-Olaf Forshell. Hlutverk sjóðsins er
að styrkja stöðu sænskukennslu á íslandi
og menningarsamvinnu milli Svíþjóðar
og íslands.
Ferðafélag íslands
Opið hús að Mörkinni 6 (risi) kl. 20.30 í
kvöld. Kynntar veröa öku- og skoðunar-
•ferðir í júní og júlí. Árbókin nýja „Ystu
strandir norðan djúps" liggur frammi.
Árgjaldið er 3.100 kr og bókin fylgir. Heitt
á könnunni, allir velkomnir.