Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1994, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1994, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 1994 Fréttir Ef Jón Baldvin fellur í formannsslagnum í Alþýðuflokknum: Ég myndi af henda nýjum formanni lausnarbeiðni sem ráðherra, segir Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra og formaður flokksins „Ég mun ekki kljúfa Alþýöuflokkinn. Maður sem heitir Jón Baldvin Hannibalsson gerir það ekki.“ DV-mynd BG - Þú ert búinn að vera formaður Alþýðuflokksins í 10 ár. Jóhanna Sigurðardóttir segir að þér hafi ekki tekist að fiska eins og karlinn í brúnni á að gera. Hverju svarar þú þessu? „Lítum á hvað mér hefur tekist og ekki tekist. Ég tók við for- mennsku í Alþýðuflokknum þegar hann var í stjórnarandstöðu 1984 og þá mælduð þið á DV flokkinn meö aðeins 4 prósenta fylgi. Mér tókst á árabilinu 1985 til 1987 aö endurreisa flokkinn meö mínum samstarfsmönnum og efla hann að fylgi. Viö náöum málefnalegu frumkvæði og frumkvæði í mynd- un ríkisstjórnar síðar. Fylgi hans 1991 var 15,5 prósent. Nokkrum vikum áöur mældist hann með 11,7 prósenta fylgi í skoöanakönnum DV. Staða hans í skoðanakönnun- um er vanmetin. Við höfum verið í fjórum ríkisstjórnum síðastliðin sjö ár. Þetta er mesta erfiöleika- tímabil íslensku þjóðarinnar á lýð- veldistímanum. Það er pólitískt lögmál að stjómarflokkur hlýtur að gjalda þess þegar fólk upplifir minna í pyngjunni eða upplifir kja- raskerðingu og hefur orðið fyrir vonbrigðum. Þá kenna menn stjórnarflokkum um. Enginn hefði fengið því breytt, hver sem hefði verið formaður. Gagnrýni Jóhönnu Sigurðardóttur á fylgisstöðu flokksins er þar aö auki ótrúverðug vegna þess að hún kemur frá henni. Hún hefur verið varaformaður flokksins nær allan tímann eða sex ár. Hún hefur verið ráðherra flokksins i öllum þessum ríkis- stjórnum. Hún ber sameiginlega ábyrgð á stefnu og framkvæmd." - Jóhanna segist muni afla flokkn- um meira fylgis en þú getir í kom- andi þingkosningum? „Eitt era vinsældir sfjómmála- manna. Vinsældir félagsmálaráð- herra seinni misserin mælast stöð- ugt miklar. Þaö er athyghsvert að þær vinsældir eru hvað mestar meðal yfirlýstra fylgismanna stjórnarandstöðuflokkanna, and- stæðinga Alþýðuflokksins. Hún segir í viðtali við ykkur að fylgið hafi ekki skilað sér til Alþýðu- flokksins. Vinsældir hennar skila sér ekki til Alþýðuflokksins. Fyrir utan það sem ég sagði um erfið- leikatímabilið sem bitnar á stjórn- arflokki er ein skýring á því sem Jóhanna gleymir og hún er þessi. Það er ekki trúverðugt ef ráöherra í ríkissijóm fríspfiar, firrir sig ábyrgð, gerir ágreining í fiölmiðl- um, gagnrýnir samstarfsmenn sína fyrir tillögur sem við sameiginlega bemm ábyrgð á. Það getur aflað vinsælda en það er á kostnað sam- starfsmanna. Það er ótrúverðugt og skaðar AIþýðuflokkinn.“ - Jóhanna segir Alþýðuflokkinn vera hægri flokk, framlengingu af Sjálfstæðisflokknum. Hverju svar- ar þú þvi? ____________________ „Það er einfaldlega rangt. Al- þýðuflokkurinn er róttækur umbó- taflokkur. Jafnaðarmönnum mörg- um sámar það þegar trúnaðarmað- ur flokksins notar sömu árásimar á flokkinn og andstæðingamir. Það kann aö vera fallið til vinsælda hjá andstæðingunum en styrkir ekki flokkinn. Um það má segja eins og foröum að þeim er hún verst er hún unni mest. Stjórnmálamaður, sem sækist eftir formennsku í flokki, getur ekki leyft sér þann munaö að firra sig ábyrgð. Allra síst getur hann leyft sér að velta ábyrgðinni af óvinsælum ákvöröunum yfir á aðra. Þess vegna er ekki allt sem sýnist þegar Jóhanna segist ætla að auka mjög fylgi Alþýðuflokksins verði hún formaður. Hún verður ekki í þeirri aðstöðu að vera í vin- sældaleik sem formaður. Þá verður hún að bera ábyrgö.“ - Þegar þú fórst fram gegn Kjart- ani Jóhannssyni og felldir hann var atburðarásin ekki ósvipuð og nú. Er ekki Jóhanna að nota sömu rök eftir sveitarstj órnarkosningarnar nú? „Það er einn reginmunur á þessu tvennu. Ég var ekki í forystu Al- þýðuflokksins 1984. Flokkurinn var ekki í ríkisstjóm. Ég bar ekki sömu ábyrgð og Jóhanna ber nú á stefnu og störfum Alþýðuflokksins. Mín gagnrýni á stefnu flokksins og starfsárangur var trúverðug vegna þess að ég bar ekki ábyrgð á þeim ógöngum sem Alþýðuflokkurinn var þá í. Þá var Alþýðuflokkurinn í slæmri pólitík. Það er hann ekki nú.“ - Er umræðan um aðildumsókn að ESB eða ekki punkturinn yfir iið í langvinnum deilum ykkar Jó- hönnu? „Jóhanna Sigurðardóttir hefur aldrei fyrr en í blaðaviðtali um daginn gert nokkum ágreining um Evrópustefnu Alþýðuflokksins. Hún hefur verið afskiptalítil um þau mál eins og mörg önnur. Þó hefur hún sem félagsmálaráðherra verið mjög jákvæð 1 samstarfinu um félagsmálaþátt EES. Ég ætla ekki að láta flokksþing Alþýðu- flokksins gera eitt eða neitt í því efni. Staða málsins er þessi. Starfs- hópur sem hefur unnið vel og dyggilega undanfama mánuði mun leggja fyrir flokksþing drög að stefnuyfirlýsingu. Þaö er almenn stefnuyfirlýsing. Þar verður stillt upp hverra kosta við eigum völ og markaðar meginlínur að því er varðar framtíðarstefnuna. “ - Þið Jóhanna hafið deilt i mörg ár. Þessar deilur ykkar enduðu með Yfirheyrsla því að hún sagði af sér sem vara- formaður. Hvort eru deilur ykkar málefnalegar eða persónulegar? „Þegar Jóhanna greip tfi þess ráðs, vegna óánægju meö ákvörð- un þingflokksins um val á ráðherr- um, að segja af sér, þá sagði hún að þetta væri ekki málefnalegt heldur persónulegt. Hún gagn- rýndi vinnubrögð formanns og taldi sig hafa verið sniðgengna. Það átti þó ekki við um ákvörðun um ráðherraskipanina. Það var ekki ákvörðun formanns. í fyrsta sinn í sögu þingflokks Alþýðuflokksins gengum við tfi atkvæða í þingflokki um val á ráðherrum fremur en að formaður gerði tillögur um þá. Ég verð samt að taka það trúanlegt sem hún segir nú aö þetta sé mál- efnaágreiningur. Og um hvað er hann? Hún nefnir tfi ríkisfjármál, velferðarmál og ESB-mál, sem aldrei hefur verið ágreiningur um mifii okkar. Þetta er allt í mynstri. Það hafa alltaf komið upp upphlaup í tengslum við afgreiðslu fjárlaga á hverju hausti. Þar hefur defian snúist um fasta liði eins og venju- lega. Alþýðuflokkurinn hefur fylgt fram þeirri stefnu að nauðsynlegt sé aö gæta aðhalds og spamaðar í ríkisrekstri, svo fremi að ekki næðist samstaða um að hækka skatta eða auka enn á erlendar skuldir. Þessar defiur hafa því snú- ist um kröfur hennar í einhverjum tilteknum málum um meiri pen- inga. Þær eru ótaldar stundirnar sem ég hef þurft að semja við sam- starfsaðila í ríkisstjóm tfi að afla þessara peninga. Það hefur auðvit- að verið erfitt því viö höfum þá þurft aö koma meö tillögur um hvar eigi að skera niður á móti. Það er ekki auðvelt. Mér þykir það ósanngjarnt af Jóhönnu, eftir allt það sem við samstarfsmenn henn- ar höfum á okkur lagt tfi þess að verða við hennar óskum, aö gera þennan ágreining opinberan áður en niðurstaða er fengin. Tfi þess eins að láta líta svo út að hún ein standi fast á auknum fjárveitingum til góðra mála en við hinir séum á móti. Fram hjá því verður ekki horft að niöurstaðan hefur ævin- lega orðið sú aö málin hafa verið leyst. ímyndin hefur aftur á móti orðið sú að félagsmálaráðherra hafi sett úrslitakosti og aðrir orðið að beygja sig fyrir þeim. Þetta er spurning um vinnubrögð. Jóhanna gagnrýnir vinnubrögð min sem hún kallar sólóspil. Ég hef aldrei kynnst hjá neinum öðrum stjórn- málamanni en henni svona vinnu- brögðum. Eg tel að þau séu til þess fallin að afla henni vinsælda en skaða ímynd flokksins. Og í annan stað em þetta vinnubrögð sem for- maður í flokki getur ekki leyft sér að beita. Hann getur ekki sýnt sam- starfsfólki sínu slíkt tilhtsleysi og yfirgang. - Er einhver minnsta von til þess að þið Jóhanna getið unnið saman eftir þetta, hvernig sem formanns- kjörið fer? „Ég hef sem formaöur flokksins verið seinþreyttur til vandræöa út af þessum endurteknu upphlaup- um Jóhönnu í tengslum við fjárlög. Ég hef þagað en ekki skýrt frá málunum opinberlega. Ég hef lagt mig fram um aö fá niðurstöður. Mér hefur samt tekist að tryggja samstööu í flokknum. Niðurstaðan hefur að vísu orðið á kostnað ímyndar Alþýðuflokksins. Ég tek undir það sem Jóhanna segir. í jafnaðarmannaflokki verður að vera rúm fyrir skoðanir Jóhönnu Sigurðardóttir. Það verður hka að vera rúm fyrir skoðanir meirihluta flokksins sem nútímalegs jafnaðar- mannaflokks. Ég segi það hreint út. Ágreiningurinn er mestan part tilbúinn og ég sanna það með því að segja hann hefur alltaf verið leystur. En varðandi spurninguna um samvinnu okkar Jóhönnu í framtíðinni þá bendi ég á að ég hef getaö átt samstarf við Jóhönnu og náð niðurstöðu í málum allan þennan tíma. Það er óbreytt að minni hálfu.. Hins vegar verða menn að horfa á staðreyndir mála. Viö erum í ríkisstjórn. Ég hef leitt okkar flokk í mörgum ríkisstjóm- um. Ég er utanríkisráðherra og hef borið ábyrgð á Evrópustefnunni, bæöi gagnvart flokki og ríkisstjórn í bráðum 7 ár. Ef samstarfsmaður minn í ríkisstjórn býður sig fram tfi formennsku í Alþýðuflokknum, á þeirri forsendu að hann sé ósam- mála stefnu flokksins í Evrópumál- um og nær kjöri, þá er það van- traust á störf mín sem utanríkis- ráðherra. Viðbrögð mín yrðu þessi: Ég myndi afhenda nýjum formanni lausnarbeiðni tfi að gefa honum kost á aö velja sér annan mann, sem hann bæri traust til að fram- fylgja sinni stefnu í þessum mikil- vægu málum. Að vísu er þess aö geta að í Alþýðuflokknum er þaö þingflokkurinn sem tekur slíkar ákvarðanir. Þess vegna spyr ég í ljósi þess að Jóhanna segist vera aö stilla sér upp á grundvelli mál- efnaágreinings: Lítur hún eins á ef flokksþingið hafnar kröfum henn- ar og hún nær ekki kjöri að hún ætti þá að gefa núverandi formanni fuht svigrúm til þess að ná sam- stöðu um forystusveit til aö fram- fylgja stefnu flokksþingsins? Einu er við að bæta. í lýðræðislegum flokki eiga menn að vera reiðubún- ir tfi þess að taka sigri jafnt sem ósigri. Ég mun beygja mig undir vilja flokksþingsins bæði um val á forystumönnum og málefnum. Ég mun ekki kljúfa Alþýðuflokkinn. Maður sem heitir Jón Baldvin Hannibalsson gerir það ekki. Sum- ir mundu ætla aö kona sem ber nafnið Jóhanna Sigurðardóttir og er nafna ömmu sinnar Jóhönnu Egilsdóttur myndi ekki gera það heldur. Það á að vera rúm fyrir okkar skoðanir í flokknum. En þá veröa líka vinnubrögðin að breyt- ast.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.