Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1994, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 1994
•5
Fréttir
Landasalan áætluð út frá kolasíunotkun:
Ríkið tapar milljarði
„Viö gerðum fyrir nokkru könn-
un á sölu ávirkra kola sem notuð
eru í kolasíur en þau nota eiginlega
engir nema bruggarar. Samkvæmt
innflutningi á þeim reiknaðist okk-
ur til að Áfengis- og tóbaksverslun
ríkisins hefði tapað milljarði af sölu
brenndra drykkja. Rétt er að taka
fram að þá áætluðum við að ein-
ungis helmingur innfluttra kola
hefði verið notaður til áfengisfram-
leiðslu," sagöi Ólafur Guðmunds-
son, rannsóknarlögreglumaður hjá
forvarnardeild lögreglunnar í
Reykjavík.
Kolasíur eru notaðar til að sía
landa og reiknaði Ólafur dæmið
þannig að landasalan hefði komið
í stað áfengissölu Áfengis- og tó-
baksverslunarinnar. Rétt er að
taka fram að ávirk kol eru sjaldgæf
til annarra nota og sérstök tegund
ávirkra kola er notuð til áfengis-
framleiðslu.
í DV í gær var greint frá þvi að
ungmenni á aldrinum 12 til 24 ára
hefðu eytt um 100 milljónum til
landakaupa á seinasta ári ef marka
má skoðanakönnun sem Gallup
gerði í apríl. Samkvæmt þeirri
könnun drukku umrædd ung-
menni að meðaltali 1,5 lítra af landa
á seinasta ári. Er þá eftir að telja
þá sem eldri eru og neyta einnig
landa í ríkum mæli.
Ólafur sagði útreikninga blaðsins
í gær, sem byggðust á Gallup-
könnuninni, nokkuð raunsæja en
þó væri erfitt að finna út neyslu-
venjur ákveðinna aldurshópa.
Þá er einnig rétt að árétta um-
mæli lögreglumanns í samtali við
DV í gær. Þar sagöi hann að á þeim
tíma sem könnunin náði til, það er
síðastliðins árs, hefðu sérstakar
aðgerðir staðið yfir gegn bruggur-
um og eitthvað hefði slegið á fram-
boðið um tíma. Fyrir þann tima
mætti því gera ráð fyrir að fram-
boðið hefði verið enn meira og nú
hefði framboðið aukist á ný. Þetta
væri ljóst af þvi að engar sérstakar
aðgerðir lögreglu gegn bruggurum
hefðu staðið yfir frá því í desember
síðasthðnum.
Síldin hafi for-
gang á loðnuna
„Það er ekki ólíklegt að framtíð-
arskipting norsk-íslenska síldar-
stofnsins sé undir því komin hversu
mikið við náum að veiða úr stofnin-
um og því hljótum því að sinna síld-
inni á undan loðnunni sem við getum
veitt síðar í haust eða jafnvel eftir
áramót," segir JÓhann A. Jónsson,
framkvæmdastjóri Hraðfrystistöðv-
ar Þórshafnar, um væntanlega síld-
veiði á næstunni.
í gær var vitað um eitt skip sem
var á leið á miðin austur af Langa-
nesi þar sem hafrannsóknaskip fann
mikla síldargöngu í síöustu viku.
Fleiri skip eru á leiðinni og má búast
við aö það skýrist mjög fljótlega hvað
þarna er á ferðinni, hversu mikla
síld er um að ræða og í hvaða ásig-
komulagi hún er.
„Svo á alveg eftir að koma í ljós
hvað við fáum mikið í okkar hlut af
þessum stofni, hvort það verður
helmingur, 80% eöa jafnvel ekki
nema 2%. Það fer að sjálfsögðu eftir
því hvernig við sinnum þessum hlut-
um. Einnig spilar þar inn í að ef síld-
in er jafn veiðanleg og loðnan þá er
síldin verðmætara hráefni. Þar er því
meiri tekjuvon og þetta er óneitan-
lega spennandi," sagði Jóhann.
Hann sagði að í bræðslunum á
Norður- og Austurlandi væru menn
á fullri ferð að undirbúa móttöku á
loðnu strax í næsta mánuði. Fregn-
imar um síldargönguna hefðu ein-
ungis hraðað þeim undirbúningi.
Fyrsta sildin úr norsk-íslenska síldarstofninum i nær 30 ár var söltuð i Neskaupstað á laugardag, 4. júní, i tilefni
sjómannadagsins. Síldin var úr afla rannsóknaskipsins Bjarna Sæmundssonar sem fann sildina á dögunum við
landhelgismörkin þar sem hún var á leið í ætisleit til íslands - í islenska firði. Sildin var söltuð upp á gamla mátann
og kom fjöldi fólks til að horfa á. Rifjaði það upp þá gömlu, góðu daga í síldarævintýrinu mikla um og eftir 1960.
DV-mynd Hjörvar Sigurjónsson, Neskaupstað
Greiðslukjör til allt að 36 mánaða án útborgunar.
Úrval notaðra bíla
j.-a»
Toyota Camry XLi 2000 ’87, ss„ 4 Hyundai Elantra 1600 ’93, 5 g„ 4
d„ grár, ek. 110 þús. km. d„ hvítur, ek. 18 þús. km.
Verð 650.000 Verð 1.120.000
13. Suzuki Swift 1000 ’90, 5 g„ 5
d„ blár, ek. 70 þús. km.
Verð 450.000. TILBOÐ VIKUNNAR
Mazda 323 F 1600 ’92, 5 g„ 5 d„
blár, ek. 33 þús. km.
Verð 1.130.000
Lada Samara 1500 '92, 5 g„ 4 d„
rauður, ek. 13 þús. km.
Verð 560.000
Hyundai Exel 1500 ’88, ss„ 5 d„
hvítur ek. 76 þús. km. Verð 420.000
2. MMC Lancer 1800 ’90, 4x4, 5
g„ 5 d„ blár, ek. 62 þús. km.
Verð 990.000
Lada Sport 1600 ’91, 5 g„ 3 d„
rauður, ek. 62 þús. km.
Verð 550.000
Lada Safír 1300 ’91, 4 g„ 4 d„
hvítur, ek. 34 þús. km.
Verð 290.000
Mazda 323 1500’89 ss„ 3 d„ Ijós-
brúnn, ek. 85 þús. km.
Verð 490.000
MMC Lancer 1500 ’89, 5 g„ 4 d„ Ford Escort 1300 ’86, 5 g„ 3 d„
ek. 94 þús. km. Verð 640.000 rauður, ek. 100 þús. km
Verð 260.000
Renault Expres ’88, 5 g„ 4 d„
hvítur, ek. 112 þús. km
Verð 420.000
Subaru 1800 GL ’87, 5 g„ 5 d„
hvitur, ek. 84 þús. km.
Verð 680.000
Opið virka daga kl. 9-6, laugardaga 10-14.
■ NOTAÐIR
BIIAR
814060/681200
smxjuiWÆisnnAirr 12.
LADA
Lada Samara 1500 ’94, 5 g„ 4 d„
Ijósblár, ek. 5 þús. km.
Verð 660.000
NOTAÐIR BÍLAR