Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1994, Síða 25
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 1994
49
Afnnæli
Leikhús
Kristinn Þorsteinsson
Kristinn Þorsteinsson, Bleiksár-
hlíð 56, Eskiíirði, er áttræður í dag.
Fjölskylda
Kristinn er fæddur í Litluvík í
Borgarfjarðarhreppi. Kristinnog
eiginkona hans hófu búskap í Dal-
landi en 1944 fluttu þau að Hof-
strönd í Húsavíkurhreppi og bjuggu
þar í tvo áratugi og frá þeim tima á
Eskifirði, fyrst á Túngötu 7 en nú
seinustu árin á dvalarheimili aldr-
aðra þar í bæ, Hulduhlíð.
Kristinn kvæntist 25.12.1940
Sveinbjörgu Sveinsdóttur, f. 5.2.
1916 í Dallandi í Húsavíkurhreppi.
Foreldrar hennar: Sveinn Pálsson
og Jóhanna Jóhannsdóttir.
Böm Kristins og Sveinbjargar:
Sveinn, Ingibjörg, Skúli Þormar,
Óskar, Helga, Sigfús, Þorgerður,
Þorbjörg.
SystkiniKristins: Magnús, Gunn-
þór, Anton, Valborg, Jón, Ólafur
Pálmi, látinn, Anna, Þórhalla, Guð-
björg, Oddný, Ragnar, látinn.
Foreldrar Kristins: Þorsteinn
Magnússon og Ingibjörg Magnús-
dóttir. FósturforeldrarKristins:
Guðmundur Magnússon og Þor-
gerður Runólfsdóttir í Kjólsvík í
Borgarfjarðarhreppi, milh Glett-
inganess og Breiðuvíkur. Guð-
mundur var móðurbróöir Kristins.
Kristinn Þorsteinsson.
Veiddi enn einn stórurriðann:
Núna 8 punda
í Elliðavatni
Jóel Jóhannsson með 8 punda urr-
iðann úr Elliðavatni í gærkvöld en
hann fékkst á flugu. Á lit<u myndinni
sést að fiskurinn var ekki beint fall-
egur um hausinn.
DV-mynd G.Bender
„Ég veiddi þennan urriða fyrir
skömmu í Efliðavatni og hann tók
gulan „streamer" sem ég hafði ný-
lega fjárfest í. Þetta var 8 punda fisk-
ur og ég var næstum hálftíma að
landa honum,“ sagði Jóel Jóhanns-
son í gærkvöld í samtali við DV.
Jóel er vanur að fást við væna urrr-
iða en hann hefur veitt marga yfir 5
pundin og nokkra kringum 10 pund.
Flesta hefur hann veitt á
LaxááÁsum:
Missti boltalax í Dulsunum
„Við fengum 5 laxa og sá stærsti
hjá okkur var 15 pund, svo fengum
við einn hoplax og þessa fiska veidd-
um við alla á maðk,“ sagði Gunnar
Sigvaldason en hann var koma úr
Laxá á Ásum í gærdag. Fyrstu tveir
dagamir hafa því gefið 10 laxa og 4
hoplaxa.
„Laxinn kemst ekki upp úr Dulsun-
um vegna þess hve mikið vatn er í
ánni. Eg sá heflmikið af fiski þarna
en enginn þeirra komst upp úr Duls-
unum. Ég sá um 20 punda lax í efri
Dulsunum og þar setti ég í rígvænan
lax. Þetta var svakaleg barátta við
fiskinn en hann hafði betur. 14 punda
laxinn, sem við höfðum veitt
skömmu áður, var bara tittur miðað
við þennan sem slapp. Það eru til
drekar í Ásunum þessa dagana og
þá sérstaklega í Efri-Dulsum,“ sagði
Gunnar ennfremur.
Þeir bræður Gunnar og Magnús
Gunnarssynir eru núna í Laxá á
Ásum og hafa örugglega bætt ein-
hverju við þessa 10 laxa sem komnir
eru á land. Þeir hætta á hádegi í dag.
Blanda hefur gefið 35 laxa
„Á þessari stundu hefur Blanda
gefið kringum 35 laxa og veiðimaöur,
sem ég hitti á hádegi í dag, var kom-
inn með 6 laxa frá því um morgun-
inn,“ sagði Sturla Þórðarson á
Blönduósi í gærkvöld.
„Þetta eru allt vænir laxar sem eru
komnir á land og það er maðkur,
devon og túbur sem hafa gefið þessa
fiska. Það er óhætt að segja að það
sé líf í Blöndu svona í byijun," sagði
Sturla í lokin.
Fréttir
S 513
Leikfélag Akureyrar
Sýnir á Listahátíð i Reykjavik
fiar Par
ettir Jim Cartwright
i Lindarbæ
Miövikudag 8. júni kl. 20.30.
Fimmtudag 9. júní kl. 20.30.
Aukasýningar: Föstudag 10. júni kl.
20.30, Laugardag 11. júni ki. 20.30.
Forsala aðgöngumiða er í miðasölu
listahátíðar i islensku óperunni dag-
legakl. 15-19, sími 11475,
sýningardaga i Lindarbæ frá kl. 19.
Simi 21971.
urriðasvæðinu í Rangánum. Þegar
svæðið var opnað fyrir skömmu
veiddi hann tvo urriða og var annar
þeirra 5,5 pund.
„Ég hef aldrei veitt svona stóran
urriða í Elliðavatni en ég veiddi
þennan fisk Vatnsendamegin og
hann var svakalega lífseigur, bless-
aður. Það var djúpur áll þar sem fisk-
urinn veiddist," sagði Jóel ennfrem-
ur.
Tilkynningar
Upplýsingamið-
stöð ferðamanna
Nú gengur i garð 4. starfsárið í upplýs-
ingamiðstöðinni í Ólafsvík sem nú er rek-
in af Snæfellsbæ. Henni er ætlað að þjóna
jafnt innlendum sem erlendum ferða-
mönnum sem hafa áhuga á að koma á
Snæfellsnes. Á Snæfellsnesi er boðið upp
á jöklaferðir, bátsferðir, sjóstangaveiði,
hringferð um Jökulinn, hellaferðir og
hestaleigu. Opið er frá kl. 13-17 alla virka
daga og um helgar frá kl. 9-13. Nánari
upplýsingar í síma 93-61543.
Landslag - mannvirki - rými
heitir sýning Arkitektarfélags íslands
sem nú stendur yfir í Ásmundarsal við
Freyjugötu en hún er jafnframt framlag
félagsins til Listahátíðar í Reykjavík á 50
ára afmæli lýðveldis á íslandi. Um er að
ræða samsýningu á tUlögum og hug-
myndum eftir íslenska arkitekta sem
þeir hafa unniö með ofangreind þijú lyk-
ilhugtök að leiðarljósi. Sýningin stendur
til 26. júni.
Hafnargönguhópurinn
stendur fyrir gönguferð með ströndinni
frá Fossvogslæk út með Skerjafirði að
norðanverðu í kvöld. Brottför frá Hafnar-
húsinu kl. 21, síðan farið með Almenn-
ingsvögnum suöur í Fossvog. Einnig er
hægt að koma í gönguna kl. 21 við lækjar-
ósinn. Ýmislegt verður til fróðleiks og
skemmtunar. Ollum er heimil þátttaka.
ím
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
-- Sími 11200
Stóra sviðið
GAURAGANGUR
eftir Ólaf Hauk Simonarson
Föd. 10/6, laud. 11/6, mvd. 15/6, næstsiö-
asta sýning, fld. 16/6, síöasta sýning, 40. -
sýnlng.
„Áhugaleiksýning ársins“
LEIKFÉLAG HORNAFJARÐAR sýnir
ÞAR SEM DJÖFLAEYJAN
RÍS
eftir Einar Kárason i leikgerð Kjart-
ans Ragnarssonar
Sud. 12/6 kl. 20.00.
Aðelns þessi eina sýning.
Litla sviðið kl. 20.30
KÆRA JELENA
eftir Ljúdmilu Razúmovskaju
í kvöld, uppselt, 170. sýnlng, næstsiðasta
sýning, sud. 12/6, nokkur sæti laus, sið-
asta sýning.
LEIKFERÐ UM NORÐAUSTURLAND
ÁSTARBRÉF
eftir A.R. Gurney
Mvd. 8/6 kl. 20.30 - Skúlagaröur
fid. 9/6 kl. 20.30 - Raufarhöfn
föd. 10/6 kl. 21.00 - Þórshöfn
Id. 11/6 kl. 21.00 - Vopnafjörður
Mlðasala fer fram viö Inngang á sýning-
arstöðum. Einnig er tekið á móti sima-
pöntunum í miðasölu Þjóðleikhússinsfrá
ki. 10-17 virka daga í sima 11200.
Miöasala Þjóðleikhússins er opin alla
daga nema mánudaga frá 13.00-18.00
og fram að sýningu sýningardaga. Tekið
á móti simapöntunum vlrka daga
frá kl. 10.
Græna linan 99 61 60.
Greiöslukortaþjónusta.
Tapað fundið
Barnakerra tapaðist
Prénetal bamakerra hvarf á sjómanna-
daginn niðri við höfn. Kerran er blá- og
grænköflótt. Þeir sem hafa orðið varir
við hana vinsamlega hringi í sima 622046.
Köttur fannst
3-1 mánaða gömul, bröndótt læða fannst
í Laugameshverfi um síðustu helgi.
Upplýsingar í síma 684031.
Sex matarkörfur
_ . ámánuðiaðverð-
^Mtlffl
þúsund hver.
63 27 00
Norðurá er komin með á milli 110 og 120 laxa á þessari stundu sem er'
DV-mynd G.Bender
Fundur um spilafíkn
♦
Bandarískur sérfræðingur í meðferð spilasjúklinga, Dr. Ro-
bert Hunter, flytur erindi og svarar fyrirspurnum á opnum
fundi um málefnið á
Hótel Sögu, A-sal, miðvikudag 8. júní kl. 20.30.
Dr. Hunterfjallar umspilafíkn og hvaðertil ráða við henni.
Allir þeir sem áhuga hafa á þessu málefni eru velkomnir.
Ath. að myndatökur og hljóðupptökur
eru ekki heimilaðar á fundinum.
c
t t
9 ítfiltti Jilk
. AlfiÍtfltSssj
'jWTtaíii ■ - xáriai
II#