Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1994, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1994
11
upplifun fyrir þær. Við fengum r 'r-
stakan húsvagn fyrir okkur meðan á
upptökum stóð en það má auðvitað
segja að líf okkar haíi snúist að miklu
leyti í kringum bíómyndina á með-
an.“
Eins og leikur
„Æfingarnar hófust 4. maí 1993
en tökur fóru af stað um miðjan maí
og stóðu yfir fram í miðjan ágúst.
Við þurftum að mæta allt frá tveimur
upp í fjóra daga í viku. Strákamir
skiptu með sér hlutverkinu þannig
að þegar annar varð þreyttur tók
hinn við. Að sumu leyti var þetta
eins og aö fara í leikskóla því þeir
fengu sína eigin fóstru sem lék við
þá og kenndi eitt og annað til aö
stytta þeim stundir. Auk þess var ég
alltaf með og gat fylgst meö öllu,“
segir Ágústa enn fremur.
„Þetta var allt eins og leikur fyrir
strákana og nánast eins og að fara í
Disneyland. Leikstjórinn og aðrir
aðstandendur myndarinnar vildu
einmitt hafa það þannig því þá náðu
þeir því besta út úr bömunum. Ég
er alveg viss um að þessi reynsla
hefur þroskað þá,“ segir Sigurður og
Ágústa bætir við að Hlynur hafi ver-
ið örlítið tilbaka sem tvíburi en sé
nú orðinn sjálfstæðari en bróðir
hans. „Þeim gekk báðum mjög vel í
skóla í vetur og Hlyni alveg sérstak-
lega.“
Að sögn þeirra hjóna hefur sam-
bandið við kvikmyndagerðarfólkið
aldrei rofnað. „Við eignuðumst
marga góða vini í gegnum þetta.
Strákunum hafa verið færðar gjafir
og hópurinn er duglegur að hittast."
Stolt af strákunum
Fjölskyldan sá síðan myndina
fyrst í byijun maí þegar starfsfólki
var sýnd hún. Aftur fóru þau á frum-
sýningu og síðan skelitu þau sér á
venjulega sýningu í kvikmyndahúsi
til að upplifa viöbrögð hins venjulega
borgara. „Þá fyrst vissi maöur
hvemig fólk tók myndinni," segir
Ágústa. The Fhntstones hefur fengið
ágæta dóma hjá gagnrýnendum.
Þegar þau em spurð hvort eitthvað
hafi komið þeim á óvart þegar þau
sáu myndina í heild sinni segja þau
svo ekki hafa verið. „Kannski aðal-
lega upphafsatriðið þar sem við höfð-
um ekki séö það í gerð og einnig
nokkur atriði með Fred í vinnunni.
Annars vom krakkamir mjög mikið
viðstödd tökur þannig að maður
hafði upplifað þetta allt áður. Mörg
atriði voru tekin upp en síðan sleppt
í myndinni sjálfri," útskýra þau. Þau
Ágústa og Sigurður Ómar segjast
vera mjög hreykin af tvíburunum.
Þeir hafi staðið sig vel.
„Það var mjög gaman að fylgjast
með tökunum vegna þess hversu
mikið var lagt í leiksviðið. Hvert
smáatriði var nákvæmlega úthugs-
að,“ segja þau. „Okkur fannst mjög
sniðugt að sjá hvemig sviðið getur
litiö út sem víðátta á mynd en í raun-
inni var þetta allt á örlitlum bletti
og allt kvikmyndatökuliðið var nán-
ast ofan í því sem var að gerast. Upp-
tökumar fóm fram á þremur stöð-
um; í stórri skemmu í Universal vom
byggð hús þeirra Freds og Barneys,
síðan var heil gata byggð í þjóðgarði
Vasquez Rocks en þar er sérstök
klettabyggð sem hefur verið notuð í
mjög mörgum bíómyndum, og svo í
Sheldon-námunum skammt frá Los
Angeles. Það var mjög gaman að
fylgjast með uppbyggingu sviðs-
myndarinnar því aUt þurfti að búa
til, jafnt skartgripi, fot, húsbúnað
sem húsin."
Tvíburarnir Marinó og Hlynur með leikstjóra myndarinnar, Brian Levant.
Bamm Bamm, annar tvíburinn, ásamt „foreldrum" sínum Barney og Betty
sem leikin eru af Rosie O’Donnell og Rick Moranis.
Meðal fræga fólksins
Frægir leikarar leika í kvik-
myndinni og má þar nefna ekki
minni stjörnur en Elizabeth Taylor
og John Goodman. Þá eru leikkonur
myndarinnar, Rosie O’Donnell og
Elizabeth Perkins, vel þekktar.
„Þetta er allt ágætis fólk og við um-
gengumst það nær daglega meðan á
þessu stóð. Hins vegar náðum við
bestu sambandi við Rosie O’Donnell
þvl hún er opin persóna og gefur
meira af sér en hin. John Goodman
var meira fyrir að vera með sjálfum
sér. Þaö var mjög gaman að hitta
Elizabeth Taylor og hún var mjög
vinaleg við okkur. Hún hefur átt við
veikindi að stríða í mjöðm og haltr-
aði svohtiö þegar hún gekk um. Hins
vegar var ekki nokkur leið aö sjá það
þegar hún var komin í gerviö og hún
lýsti í rauninni upp sviðsmyndina.
Það fór ekki á milli mála að þarna
var stjarna á ferð. Við sáum hana
hka algjörlega ófarðaða í jogging-
galla og það var svohtið skrítið."
Fengu umboðsmann
Þeir Marinó og Hlynur eru hálf
feimnir við blaðamann og vhja sem
minnst tjá sig sjálfir. Þeir viður-
kenna þó að það hafi verið mjög
skemmtilegt að leika í bíómyndinni.
Þeir vhja helst ekki tjá sig á íslensku
þótt þeir skhji hana vel en foreldrar
þeirra segja að töluð sé íslenska á
heimihnu.
Það voru miklir samningar sem
þurfti að útbúa varðandi hlutverk
strákanna í myndinni og foreldrar
þeirra treystu sér ekki til að lesa allt
smáa letrið þannig að þeir fengu sér
umboðsmann th að sjá um málin.
Þegar foreldrarnir eru spurðir hvort
tvíburamir séu ekki orðnir ríkir eft-
ir þetta ævintýri segja þau að þeir
hafi fengið vel borgað en það hafi
aht verið lagt inn á bundinn reikning
samkvæmt lögum í Bandaríkjunum.
„Þeir fá ekki þá peninga fyrr en 18
ára. Við hefðum tekið þátt í þessari
kvikmynd þótt við hefðum ekkert
fengið borgað fyrir, þetta hefur verið
svo skemmtheg lífsreynsla."
- En er ekki erfitt að þekkja þá
bræður í sundur?
„Nei, ekki fyrir okkur. En þeir voru
ánægðir með það í stúdíóinu að þeir
þekktu þá ekki í sundur."
- Þegar þeir bræður er spurðir hvað
þeim hafi þótt skemmthegast í mynd-
inni svara þeir:?
„Þegar Fred fór í keilu."
SVARTISVANURINN
Laugavegi 118
Nætursala um helgar
Videotilboð
Ein ný spóla og
“ önnur eldri, 1 Vi
I kók og Maarud
snakk
kr. 500
HYUNDiy
Hjólaskóflur
AMMNN
Beltavagnar
BOMRG
Jarðvegsþjöppur
Skútuvogi 12A, s. S1-812530
Þú sem ert félagshyggjumaður.
Af hverju að kyssa á vöndinn?
Hefur Mogginn haldið uppi vörn
fyrir skoðanir þínar?
Hluti af öllu því dóti sem framleitt
hefur verið í tengslum við myndina.
- íélagshyggjublaðið. Sími 631-600