Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1994, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1994, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1994 21 DV Skák Karpov tókst ekki að sigra í Las Palmas Stórkostlegur sigur Anatolys Karpovs í Linares í febrúar veröur varla endurtekinn en engu aö síður mátti allt eins búast við aö yfirburðir Karpovs yrðu umtalsverðir á alþjóð- legu móti í Las Palmas á Kanaríeyj- um sem fram fór fyrir skömmu. Mótið var skipað tíu stórmeisturum, allsterkum, og taldist til 17. styrk- leikaflokks FIDE. En Karpov brást bogalistin að þessu sinni. Tap fyrir Frakkanum unga, Joel Lautier, varð til þess að hann varð að láta sér lynda 2. sætið. Sigurinn kom í hlut Gatas Kam- skys sem hélt síðan rakleiðis frá Kanaríeyjum til New York tii þess að berja á Vladimir Kramnik. Hann tapaði ekki skák og ekki ber á öðru en að hann standi vel undir 2.695 stig- um sínum. Kamsky-feðgar, Gata og Rustam, hafa lengi stefht að heims- meistaratitli, bæði leynt og ljóst - það skyldi þó aldrei vera að skákunnend- ur þurfi að fara að taka mark á þeim? Lítum á lokastöðuna í Las Palmas: 1. Kamsky, Bandaríkin, 6,5 v. 2. Karpov, Rússlandi, 6 v. 3. - 4. Lautier, Frakklandi, og Top- alov, Búlgaríu, 5,5 v. 5. Judit Polgar, Ungverjalandi, 5 v. 6. - 8. Dlescas, Spáni, Morovic, Chile og Adams, Englandi, 4 v. 9. Sírov, Lettlandi 3,5 v. 10. Epishln, Rússlandi, 1,5 v. Sírov var hefilum horfinn og Epis- hín (2675 stig), sem er einkum frægur í skákheiminum fyrir megna andúð á haðkerum og sturtuklefum, tókst aðeins að krækja í þijú jafntefli. Bet- ur má Judit Polgar una við sitt en hefur kannski vonast eftir fleiri vinningum eftir stórsigur á sterku móti í Madríd eigi alls fyrir löngu. Frakkinn ungi, Joel Lautier, gerði sér lítið fyrir og vann fjórar fyrstu skákirnar, þar á meðal Karpov í Umsjón Jón L. Árnason íjórðu umferð. Þremur næstu skák- um tapaði hann hins vegar - gegn Kamsky, Illescas og Judit og þar með var draumurinn um sigurlaunin úr sögunni. Þetta er í annað sinn sem Lautier tekst að bera sigurorð af Karpov - fyrst varð Karpov að lúta í duffið í Dortmund í fyrra. Að þessu sinni tókst Lautier að hrekja nýstárlega áætlun Karpovs í þekktu afbrigði Nimzo-indverskrar vamar. Karpov sá í raun og veru aldrei til sólar. Hvítt: Joel Lautier Svart: Anatoly Karpov Nimzo-indversk vörn. 1. d4 RfB 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. Dc2 0-0 5. a3 Bxc3+ 6. Dxc3 b6 7. Bg5 Bb7 8. e3 c5 9. dxc5 bxc5 10. f3 a5 11. Rh3 h6 12. Bh4 a4!? Upphafið að óvenjulegri áætlun Karpovs í þessari þekktu stöðu. Eftir 12. - d6 13. 0-0-0 Ha6 14. Be2 Rbd7 er fram komin staða úr skák Xu Jun við Jóhann Hjartarson á millisvæða- mótnu í Biel í fyrra, sem lauk með jafntefli eftir gríðarlegar sviptingar. 13. 0-0-0 He8 14. Be2 e5 15. Rf2 Db6 Hugmynd Karpovs byggist á því að láta d-peðið sitja óhreyft á upphafs- reitnum, m.a. til þess aö geta losað um leppun riddarans á f6 með þessu móti, án þess að eiga á hættu aö fá tvípeð. Lautier tekst að sýna fram á vankanta þessarar áætlunar. 16. Rd3! g5 Karpov er meinilla við að veikja peðastöðu sína á þennan hátt en hann á ekki annars úrkosti. 17. Bg3 d6 18. h4 g4 19. h5! Rbd7 20. Rf2 d5 21. Hh4! Nú er svartur fyrr eða síðar knúinn til uppskipta á f3, sem gefur hvítum hrók kjörin sóknarfæri eftir g-lín- unni. 21. - d4 22. Dd2 gxf3 23. gxf3 Hab8 24. Hgl Kf8 Hvað annað? En nú er orðið ljóst að byrjunartaflmennska svarts hefur misheppnast. 25. exd4 cxd4 26. Dxh6+ Ke7 27. Rd3 Ba6 28. Dd2 Kd8 29. Hdl Rc5 30. Rxc5 Dxc5 31. Dg5! Og nú kaus Karpov að leggja niður vopn. Eina vörnin við hótununum 32. Dxf6+ og 32. Hxd4+ er 31. - De7, sem einfaldast er svarað með 32. h6 og ekki þarf að spyija að leikslokum. -JLÁ y Á veiðidegi fjölskyldunnar er tilvalið tækifæri til að grípa veiðistöngina, freista gæf- unnar ög njóta útiverunnar. )> Ókeypis veiði er í boði víða um land. Þú færð upplýsinga- bækling á næstu bensínstöð. Ferðaþjónusta bænda Sími 91 - 62 36 40 og 91- 62 36~43 Veií»dagul' fjö»sKyW«Jnar 1 26. junil Margfaldur metsöluhöfundur COUN FORBES ELDKROSSINN Æsileg spennusaga eins og þær gerast bestar frá margföidum metsöluhöfundi og meistara spennusögunnar -11.BÓKIN sem kemur út eftir hann á íslensku Aðeins 895 kránur á næsta sölustað - og ennþá ódýrari í áskrift! Sími 63 27 OO NÝBÓK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.