Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1994, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1994
Dagur í lífí Áma Sigfússonar:
Háþrýstisprautu leitað
og að ekki er farið eftir einhverjum
pólitískum línum við afgreiðslu
mála í borgarráði. Þetta eru af-
greiðslumál þó það hafi hljómað
öðruvísi í kosningabaráttunni.
Menn voru ágætíega sammála um
alla þættí á þessum fundi.
Pylsa í forrétt
Klukkan fimm fór ég með dætr-
um mínum í leiðangur til stórfjöl-
skyldunnar til að leita að háþrýsti-
sprautu sem við höföum fjárfest
sameiginlega í. Við notum hana til
að þrífa planið hjá okkur. Hins veg-
ar bar leitin ekki árangur þannig
að við fórum í staðinn og keyptum
okkur pylsu. Hún var nokkurs
konar forréttur fyrir kvöldmatinn.
Við fengum gestí um sexleytið
þannig að það var kvöldmatarstúss
fram til hálfátta en við vorum með
sérstaka innbakaða snúða með
fersku salati. Við setjum skinku,
ost og gráðost í deig og bökum síð-
an í ofni. Þetta er borðað með
fersku salati og dijon-sinneps- og
hunangssósu. Það voru tólf manns
sem snæddu þetta saman en það
er oft gestkvæmt hjá okkur seinni-
partinn.
Síðan fylgdist ég með leiknum
klukkan átta. Annars hefur þessi
heimsmeistarakeppni ekki valdið
vandræðum í hjónabandi okkar.
Við Bryndís fórum síðan út í góðan
göngutúr fyrir háttinn. Garðvinn-
an varð að bíða næsta dags. Þetta
var kannski ekki alveg hefðbundin
dagur enda sumarið oft rólegri
tími. Eftir allan hamaganginn á
mér og kringum mig frá áramótum
reyni ég að draga úr og vil helst
vera kominn heim um sexleytið. Á
þriðjudagskvöldum höfum við allt-
af fiölskyldukvöld og því ætlum við
að halda.
Ég vakna alltaf klukkan hálfátta
til að undirbúa daginn og börnin.
Elsta dóttír mín er í Vinnuskólan-
um og mætir klukkan átta. Sú
næstelsta er hins vegar heima og
sér um húsið og bróður sinn sem
er á sjötta ári. Ég fer með yngsta
soninn í leikskóla áður en ég held
í vinnuna. Síðan hefst starfsdagur
í Stjórnunarfélaginu. Um þessar
mundir erum við að undirbúa
námskeið fyrir haustið og tíminn
fram til klukkan ellefu hefur farið
í það. Síðan hef ég þurft að huga
að tímaritinu Stjórnun sem er
einnig verkefni fyrir haustið. Það
kemur út haust og vor og kynnir
námskeið og verkefni Stjórnunar-
félagsins. Einnig erum við að und-
irbúa komu Letta hingað til lands
þar sem um er að ræða stjómenda-
þjálfun í samstarfi við ríkisstjórn-
ina. Hún leggur til fiárframlag til
stuðnings fyrram Ráðstjórnarríkj-
um til uppbyggingar. í stað þess að
senda peninga út bjóða þeir mönn-
um hingað til lands í þjálfun. Hing-
að hafa komið tólf til fimmtán full-
trúar í einu og er þetta þriðja árið.
Við erum að leggja síðustu hönd á
kostnaðaráætlun vegna verkefnis-
ins. Einnig erum við að undirbúa
viðskiptaskóla Stjórnunarfélagsins
og Nýherja en skráning í hann er
að sumarlagi.
í minnihluta
Borgarráðsfundur hófst klukkan
tólf og stóð hann til hálffiögur.
Þetta var frekar venjulegur fundur
en þarna kynntist ég í fyrsta skipti
aðstoðarmanni borgarstjóra, Krist-
ínu Árnadóttur. Annars var þetta
hefðbundinn fundur. Reyndar var
tilkynnt tilboð um skuldabréfaút-
boð borgarinnar upp á 430 milljón-
ir. Það kom reyndar fram að tilboð
sem berast okkur eru mun hag-
A þriðjudögum er fjölskyldukvöld hjá Arna Sigfússyni. Hér er hann með Bryndísi, Aldísi Kristínu, Védisi
Hervöru, Guðmundi Agli og Sigfúsi Jóhanni. DV-mynd GVA
stæðari en þau sém berast til ann-
arra sveitarfélaga sem sýnir styrk
Reykjavíkur. Mér þótti ánægjulegt
að fá það staðfest af markaðnum
sjálfum.
Það er vissulega ólíkt að stjórna
fundi eða sitja undir honum og ég
býst við að fundurinn hefði getað
gengiö hraðar ef ég hefði stjómað.
Annars erum við bara að fialla um
málefni og þaö sýnir sig best á þess-
um fundum að menn eru sammála
Finnur þú fimm breytingai? 263
Við gaetum stöðvað þetta illgirnislega slúður um að ég giftist þér einung-
is peninganna vegna ef þú létir mig hafa dágóða summu ÁÐUR en við
giftum okkur!
Nafn:........
Heimilisfang:
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í ljós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimihsfangi.
Að tveimur vikum liðnum
birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun: Rummikub-spil-
ið, eitt vinsælasta ijölskyldu-
spil í heimi. Það er þroskandi,
skerpir athyglisgáfu og þjálfar
hugarreikning.
2. verölaun: Fimm Úr-
valsbækur. Bækumar sem eru í
verðlaun heita: Mömmudrengur,
Þrumuhjarta, Blóðrúnir, Hetja og Ban-
væn þrá. Bækumar era geftiar út af
Fxjálsri fiölmiðlun.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 263
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir tvö hundr-
uð sextugustu og fyrstu get-
raun reyndust vera:
1. Kristín Halla Haraldsdóttir,
Nesveg 8,
350 Grundarfiörður.
2. Halla Frímannsdóttir,
Leirubakka 22,
109 Reykjavík.
Vinningarnir verða sendir
heim.