Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1994, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1994, Blaðsíða 4
20 MÁNUDAGUR 4. JÚLl 1994 íþróttir WorldCup Tölt 1. Hafliði Halldórsson á Nælu 2. Sveinn Jónsson á Tenór 3. Erling Sigurðsson á Össuri 4. Sigurbjöm Bárðars. á Kolskegg 5. Svanhvít Kristjánsd. á Biskupi Fimragangur 1. Atli Guðmundsson á Hnokka 2. Hulda Gústafsdóttir á Stefni 3. Malin Jakobsen á Amadeus 4. Svanhvít Kristjánsd. á Vikivaka 5. Guðmundur Einarsson á Bimi Fjórgangur 1. Hinrik Bragason á Goða 2. Gísli G. Gylfason á Kappa 3. Sveinn Jónsson á Hljómi 4. Svanhvit Kristjánsd. á Biskupi 5. Maaike Burggrafer á Hirti Gæðingaskeið 1. Sigurbjöm Bárðar. á Snarfara 2. Trausti Þ. Guðmunds. á Hjalta 3. Hinrik Bragason á Gjafari 4. Ragnar Hinriksson á Djákna 5. Hulda Gústafsdóttir á Stefni Sigurbjörn ódrepandi Það munaði ekki miklu að Sigur- bjöm Bárðarson yrði úr leik á laugardeginum. Hann sýndi Vídalín í ræktunarbússýningu Sveins Guðmundssonar og Guð- mundar Sveinssonar en Vídalín steig á aöra hlífma á framfæti og kollsteyptist yfir Sigurbjöm. Báðir stóðu upp og var Vídalín sýnu verr farinn. Ekki er vitað um meiðsli hans, en Sigurbjörn bólgnaði á fæti og marðist. Sigurbjörn kaupir Brján Sigurbjöm Bárðarson hefur keypt Brján frá Hólum, sem hann stýrði til sigurs í tölti á heims- meistaramótinu í Austurríki 1987. Sigurbjörn hyggst keppa á honum á Norðurlandamótinu í Finnlandi í ágúst. Alþjóðamál á Hellu Guten tag og góðan dag var jafn- gilt í áhorfendabrekkjunum á Hellu, slíkur var fjöldi þýsku- mælenda. Þetta mót á eftir að skila miklu í ferðaiðnaðinn, því á bak við hvern útlending sem kom eru tugir heima sem eiga eftir að heyra um dásemdina á íslandi. Glæsileg verðlaun Sigurvegarar í hverri grein heimsbikarmótsins fá glæsileg verðlaun frá Flugleiðum sem er aðalstuðningsaðili Hestaíþrótta- sambands íslands. Sigurvegarar fá vikuferö hvert sem er út í heim með Flugleiðum, hótel og bíl. Fimm bú verðlaunuð Tuttugu og þrjú ræktunarbú sýndu afurðir sínar. Nú voru fengnir dómarar til að meta sýn- ingar hópanna og völdu þeir fimm hópa sem fengu allir viður- keninngar. Þar voru á ferð hópur frá Kjart- ansst. í Flóa, Kálfholti í Rangár- vallas., Ófeigsfélaginu, Sveini Guðmundssyni og Guðmundi Sveinssyni á Sauðárkróki og Kjamholtum í Biskupstungum. Framkvæmdanefnd landsmóts- ins heiðraði Þorkel Bjarnason fyrir störf hans að hrossaræktar- málum og dómum í fjörutíu ár og einnig konu hans Ragnheiði Ester Guðmundsdóttur. Sigurbjöm Bárðarson var einn- ig heiðraður og kona hans Fríða Steinarsdóttir. Sá gamli setti íslandsmet Kappreiðar fengu meira áhorf en í mörg ár. Keppt var í fjóram greinum. Sæmileg þátttaka var í 300 m stökki og 300 m brokki en töluverð í skeiðgreinunum. Þó að þátttaka væri frekar slöpp í 300 mera brokkinu setti Neisti frá Hraunbæ það ekki fyrir sig. Hann var í miklum ham og setti íslandsmet 29,0 sek. Hann átti fyrra metið 30,0 sek. Fyrstu verðlauna stóðhestur; Gustur frá Akureyri keppti í 300 m stökki og var í öðm sæti og fyrstu verðlauna hryssa, Ósk frá Litla-Dal, sigraði í 250 m skeiði. -E.J. Þrír hæst dæmdu stóðhestarnir í flokki sex vetra hesta: Gustur frá Hóli og Ragn Einar Ö. Magnússon. Oskrandi i fljúgandi Im - kynbótahross stálu senunni á landsmótn Það er samdóma áht þeirra sem rætt var við um kynbótahrossin á Hellu að framfarimar væru ótrúlegar. Aldrei hafa jafn mörg og góð kynbótahross sést á sama staö á íslandi. Þar vom topphross og mikii breidd. „Okkur finnst íjögurra vetra hryss- umar koma vel út,“ segir Þorkell Bjarnason hrossaræktarráðunautur. „Þær eru öskrandi viijugar og fljúgandi brokkgengar. Fimm vetra hryssurnar ollu nokkrum vonbrigðum," sagði hann ennfremur. Enn hækkar Rauðhetta Rauðhetta frá Kirkjubæ vakti mikla athygli. Hún kom með 8,79 í aðaleink- unn inn á mótið en hækkaði upp í 8,81. Eins þótti Gustur frá Hóli sýna glæsi- leg tilþrif og einstaka mýkt sem náði frá snoppu aftur í tagl. Fimm hross fengu 10,0 fyrir eitthvert atriði hæfileikanna. Svartur frá Unalæk og Bokki frá Ak- ureyri fengu 10,0 fyrir skeið, Rauöhetta frá Kirkjubæ og Mjölnir frá Sandhóla- ferju sömu einkunn fyrir tölt og Gustur frá Hóh fullnaðareinkunn fyrir vilja. Mikil afföll Þaö kom þó töluvert á óvart hve afíoll- in vom mikil. Það hefur verið keppi- kefh hrossaeigenda að ná landsmótslág- markseinkunn en nú vom fjarverandi tuttugu af sextíu og sjö hryssum sex vetra og eldri, sem áttu rétt á að mæta og ef htið er á aha einstaklingana hryss- ur og stóðhesta mættu 148 af 189. Nokk- ur hross forföhuðust vegna meiðsla og þá vom nokkur sýnd sem gæðingar. Fyrir landsmót lá ljóst fyrir hvaða hross stæðu efst fyrir afkvæmi. Var stuðst við BLUP spána. Þokki frá Garði stóð efstur heiðursverðlaunastóðhesta með 134 stig fyrir afkvæmi. Kjarval frá Sauðárkróki var annar með 132 stig og Stígur frá Kjartansstöð- um þriðji með 131 stig. Nótt frá Kröggólfsstööum stóð efst heiðursverðlaunahryssna meö 127 stig, Sif frá Laugarvatni var önnur með 122 stig, Jörp frá Efri-Brú þriöja með 121 stig og Gfiótt frá Brautarholti fjórða með 121 stig. í flokki 1. verðlauna stóðhesta stóð efstur Dagur frá Kjamholtum I með 133 stig, Stígandi frá Sauðárkróki var ann- ar með 132 stig, Gassi frá Vorsabæ þriðji með 131 stig, Angi frá Laugarvatni fjórði með 131 stig og Kolfinnur frá Kjamholtum fimmti með 131 stig. Átta hryssur fengu 1. verðlaun fyrir afkvæmi. Fúga frá Sveinatungu stóð efst með 119 stig, Sandra frá Bakka var önnur með 117 stig, Fjöður frá Hnjúki þriðja með 117 stig, Vordís frá Sand- hólaferju fjórða með 116 stig, Leira frá Þingdal fimmta með 116 stig, Fiðla frá Snartarstöðum sjötta með 115 stig, Glíma frá Laugarvatni sjöunda með 115 stig og Hjálp frá Stykkishólmi áttunda með 112 stig. Svartur upp að Gusti Gustur frá Hóh kom inn á landsmót með hæstu einkunn í elsta flokki stóö- hesta og heldur 'sæti sínu og einkunn- um. Gustur fékk 8,13 fyrir byggingu, 9,01 fyrir hæfileika og 8,57 í aðaleink- unn. Svartur frá Unalæk hækkaði tölu- vert, fékk 8,18 fyrir byggingu, 8,90 fyrir hæfileika og 8,54 í aðaleinkunn og var annar. Hann fékk 10,0 fyrir skeið og tók á annan tug skeiðspretti og brást aldrei. Oddur frá Selfossi var þriðji með 8,10 fyrir byggingu, 8,86 fyrir hæfileika og 8,48 í aðaleinkunn. Fjórði var Reykur frá Hoftúni með 8,42 og fimmti Geysir frá Gerðum með 8,39. með 30 hross í toppsætum Þórður Þorgeirsson var án efa maður landsinótsins 1994. mikil. sætum. Þrátt fyrir mikiö álag breytti hann í engu sínum létta og næma reiðstíl og uppskera hans persónulega var Hann fékk tvær knapastyttur sína úr hvorri áttinni. Félag tamninga- manna veitti honum ásetuverðlaun og eins hlaut hann knapastyttu mennsku. Þórður Þorgeirsson fékk tvenn knapaverðlaun á landsmótinu og sést hér með son sinn á stóðhestinum Svarti frá Unaiæk. Þórður mætti á landsmótið með tæplega 30 hross og flest þeirra höfnuðu í toppsætum á mótinu. ‘ Ung og efnileg. Þeir þrír knapar sem sátu í efstu sætunum i barnaflokki. Frá vinstri: Davíð Matthíasson á Vin, Elvar Þormarsson á Sindra og Magnea R. Axelsdóttir á Vafa. DV-mynd E.J. Fáksmenn með flesta í úrslitum Þrettán hestamannafélög áttu full- trúa í úrslitum gæðingakeppninnar. Fáksmenn voru sigurvegarar gæð- ingakeppninnar ef htið er á fjölda hesta í úrshtum eða fimmtán af fjörutíu og einum. Næstflestir komu frá Geysi og Létt- feta eða fimm frá hvoru félagi. Fáksmenn komu út sterkir í A- flokki gæðinga en Geysismenn í B- flokki. Hin sorglegu afdrif glæsigæðingsins Gýmis frá Vindheimum, sem fótbrotn- aði í úrshtum í A-flokki gæðinga en stóð efstur eftir forkeppni skyggði á gleði Fáksmanna svo og allra þeirra sem urðu vitni að þessum atburði. Annar Fákshestur, Dalvar, sigraði. Dalvar stóð efstur á hvítasunnukapp- reiðum Fáks árið 1993. hestinn keypti eigandinn Daníel Jónsson, sem einnig sat hestinn, fyrir fermingarpeningana sína og hefur heldur betur ávaxtað þá. í B-flokki stóðhesta var stóðhestur- inn Orri frá Þúfu öruggur með efsta sætið og fékk fyrsta sæti á línuna í röðun hjá öllum dómurum. í bamaflokki sigraði Davíð Matthí- asson (Fáki) á Vin, en Elvar Þor- marsson (Geysi) fékk ásetuverðlaun. í unglingaflokki sigraði Sigríður Pjetursdóttir (Sörla) á Safir, og hún hlaut einnig ásetuverðlaun. ; Keppt var á heimsbikarmóti á ís- lándi í fyrsta skipti. 65 þátttakendur skráðu sig til leiks, þar af 25 útlend- ingar. íslendingar sátu í flestum sig- ursætunum, en þær Maaike Burg- grafer frá Hollandi og Mahn Jakobs- en frá Danmörku komust einnig í verðlaunasæti. Þá var keppt í úrvalstölti. Þar mættu knapar með hesta sem hafa náð 80 punktum eða meir. Hafliði Hahdórsson og Næla komu sterk í töltgreinamar og sigruðu á World Cup mótinu og voru í öðru sæti í úrvalstöltinu. Þar sigraði Sigurbjörn Bárðarson. Fuhtrúar Hohandsdrottningar vildu endilega gefa verðlaun á World Cup mótið og fengu að velja þann knapa sem ætti þau skihð. Sigurður V. Matt- híassonvarðfýrirvalinu. -E.J.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.