Alþýðublaðið - 12.04.1967, Qupperneq 10
Hlutafé
Framhald a£ 6. síðu.
Var tillagan einróma samþykkt.
Var stjórninni heimilað að auka
hluiafé bankans upp í allt að 30
milljónir króna á þessu ári.
Þá lagði stjórn bankans fyrir
fundinn tiilögu að reglugerð fyr-
ir Stofnlánadeild verzlunarfyrir-
tækja við bankann. Egill Guttorme
son, stkm. hafði framsögu 'fyrir
tíllögunni, en prófessor Ármann
Snævarr háskólarektor gerði igrein
fyrir reglugerðárfrumvarpinu, en
hann hefir verið stjórn bankans
til ráðuneytis við undirbúning
málsins. Tillaga stjórnar bankans
var samþykkt samhljóða og skal
Stofnlánadeild verzlunarfyrirtækja
taka til starfa hinn 1. júlí 1967.
í stjórn bankans voru eftir-
taldir menn endurkjörnir: Egill
Guttormsson, stkm., Þorvaldur
Guðmundsson, forstjóri og Magn-
ús J. Brynjólfsson, kaupm. Vara-
menn voru kjörnir Sveinn Björns-
son, skókaupmaður, Vilhjálmur H.
Vilhjálmsson, stórkaupmaður og
Haraldur Sveinsson, forstjóri.
Endurskoðendur voru kjörnir
Sveinn Björnsson, stórkaupmaður
og Jón Helgason, kaupmaður.
Fundinn sóttu rúmlega 300 hlut
hafar og kom fram á fundinum
einhugur um eflingu bankans og
starfsemi hans.
Ilægr umferð.
Framliald af 6. síðu.
til vill betra tækifæri en nokkru
sinni til þess að ná til almenn-
ings með umferðarfræðslu.
Ættu því atlir þeir sem í raun
hafa áhuga á bættri umfdrðar-
menningu og skilja að umferðin
er alltaf hættuleg, að leggjast
á eitt um að við höfum óhappa-
minni og menningarlegri umferð
eftir breytinguna úr vinstri í
hægri umferð en við höfum í
dag.
(Frá Framkvæmdanefnd
hægri umferðar).
; Humphrey
Framhald af 6. síðu.
■< beinist nú reiði þeirra aðallega
’ gegn Johnson sjálfum.
* KEMUR AÐ GAGNI.
Jafnframt eykst nú aftur við-
urkenning manna á þeim frá-
bæru störfum, sem varaforset-
inn hefur unnið, ekki sízt í ýms-
um innanlandsmálum og má þar
nefna baráttu blökkumanna fyr-
ir jafnrétti og hnignunarvanda-
mál stórborga. Einnig nýtur
hann vaxandi viðurkenningar
fyrir það að hafa horfzt í augu
vi'ð þessi vandamál á undan öðr-
um leiðtogum demókrata og hald-
ið áfram að vinna kappsamlega
að lausn þeirra.
- . Þar sem starf Þjóðþingsins
' gengur erfiðlega Vegna lélegrar
^ forystu í þingflokki demókrata,
,, minnast menn nú Humphreys
'i meir og meir og sakna sífellt öt-
ullar forystu hans í stjórn þing-
' flokksins. Þar við bætist, að
slæmur andi ríkir nú í Demó-
krataflokknum og mikill klofn-
\ ingur, og þess vegna er nú mikil
» þörf fyrir hinn smitandi áhuga
; Humphreys og hæfileika hans
' til að brúa ágreining. Hlutverk
’ hans verður eftir öllu að dæma
sífellt þýðingarmeira, þegar
flokkurinn sameinast um að sigr-
ast á þéim erfiðleikum, sem stafa
af áföllum þeim, sem flokkur-
inn varð fyrir í fyrra, og undir-
býr baráttuna fyrir forseta- og
þingkosningarnar á næsta ári.
Sækur
Framhald úr opnu.
stjora. En að lokum missir Ól-
afur bæði vinnuna og unnustu
sína vegna þess, að hann tekur
baráttuna við spillinguna fram
yfir ailt annað. Höfundur segir
á titilblaði bókarinnar, að per-
sónur í bókinni styðjist ekki við
neinar x-aunverulegar fyrirmynd-
ir. Þó virðist margt sem gerist í
bókinni íurðu líkt svipuðum at-
burðum, er gerðust í n'ágranna-
bæ Reykjavíkur fyrir nokkrum
árum og án efa hafa þeir at-
buröir gefið höfundi hugmynd-
ina að skáldsögu þessari. Sagan
sem Ólafur bfaðamaður segir er
mjög lífleg á köflum og ágæt-
lega uppbyggð. En mér finnst
höfundur gera of mikið af þvi
að predika gegnum Ólaf inn á
miUi atburðanna. Ég held, að
sagan sjálf sé sterkasta ádeilan
og höfundur hefði átt að láta
hana nægja að mestu til þess að
koma sjónarmiðum sínum að. í
sögunni er brugðið upp mörgum
góðum myndum af ástandinu
hér, eins og t. d. þegar Ólafur
blaðamaður fer með Rósu, ást-
mey sinni í Húsið, sem reynist
eitt af þessum „týpisku” sam-
komuhúsum unglinganna. Gagn-
rýnin á lögregluyfirvöldin í
Hænuvík er þó hvössust. Dæmin
sem nefnd eru til þess að sýna
hvernig Baldvin lögreglustjóxd
lætur málin falla niður eru at-
, hyglisverð og táknræn.
Sagan „Foringjar falla” er
samtíma saga. Hún gerist fyrir
fáum árum, en hún gæti eins
gerzt í dag. Hún lýsir ófremd-
arástandi á vissu sviði og höf-
undi tekst vel að vekja menn
til umhugsunar um það, að gera
þarf í’áðstafanir tii úrbóta. --
Á síðustu árum hafa komið út
nokki-ar ádeilusögur, sem fengið
hafa misjafna dóma. Slíkar sög-
ur eiga vissulega rétt á sér. —
Þær geta eins og dagblöðin veitt
þeim, sem með völdin fara, visst
aðhald og á því er ávallt full
þörf.
Björgvin Guðrnundsson.
Stærri hafnir
Framhald af 7. síðu.
þætti þar gæta, að mörgu leyti úr
eltar.
Eins og ég vék að, er afkoma
margra hafna þannig, að miðað
við núgildandi ákvæði um þátt-
töku ríkissjóðs í byggingarkostn-
aði og greiðslumáta ríkishlutans,
er þeim um megn að standa und
ir fjái’mögnunarkostnaði þeirra
mannvirkja, sem þegar eru fyrir
hendi, auk reksturskostnaðar, og
því hafa þessar hafnir ekki neinn
fjárhagslegan grundvöll til nauð
synlegra stækkana og ankningar
mannvirkja. Breyttar reglur um
prósenthluta rikissjóðs eiga að
‘ auðvelda nýjar, nauðsynlegar
framkvæmdir og eyðing fram-
lags-skuldahala ríkissjóðs, sem
gert’er ráð fyrir að ljúki innan
fjögurra ára, mun stórlétta
greiðsluafkomu margra hafna.
í þessu sambandi vil ég benda á,
að hafnarbótasjóði er samkvæmt
3. tl. 19. gr. frv. ætlað að styrkja
þær hafnir, sem hafa erfiða að-
stöðu vegna dýrrar mannvirkja-
gerðar.
Þessi heimild myndi aðallega
verða notuð til að styrkja þær
hafnir, sem nýlega hafa lokið dýr-
um ytri mannvirkjum með 40%
þátttöku ríkissjóðs í stað 75%,
sem frv. gerir ráð fyrir.
Eins og ég vék áður að, er lagt
til í frv., að framkvæmdaáætlun
um hafnargerðir verði gerð til
fjögurra áFa í senn, og verði ár-
legar fjárveitingar í sem mestu
samræmi við þá áætlun, þannig
að komizt verði hjá skuldamyndun
ríkissjóðs við hafnargerðirnar.
Þessi í’áðstöfun mundi stórum
bæta framkvæmdaaðstöðu í hafn-
argerðum frá því sem nú er, auk
þess sem kleift ætti að verða að
nýta til fullnustu þá möguleika
sem fyrir ihendi eru til hafnar-
gerða á hverjum tíma, bæði fjár-
hagslega og tæknilega og beina
framkvæmdum á þá staði, þar
sem þörfin er bi-ýnust. Jafnframt
má ætla að nýting tækja og mann-
afla verði mun betri en nú er þeg-
ar oft er ekki vitað með vissu um
framkvæmdir, fyrr en að þeim er
korhið á því ári, er vinna skal.
Varðandi fjárhagshlið fram-
kvæmdanna gerir frv. einnig ráð
fyrir að samgöngumálaráðuneyt-
inu verði heimilað að eiga fi’um-
kvæði að því að samræma gjald-
Skrár hinna einstöku hafna, jafn-
vel án þess að sérstakar beiðnir
um það ligigi fyrir. Hafnargjöld
eru í dag mjög mismunandi, jafn-
vel á sömu landssvæðum. Til þess
mismunar má án efa rekja að
nokkru hina misjöfnu afkomu ein
stakra hafna á sömu landssvæðum
og að því er virðist við mjög hlið-
stæða aðstöðu til tekna. Þá eru
einnig gjaldski’ár 'hafna óþarflega
flóknar, gjaldategundum og flokk-
um mætti að skaðlausu fækka.
Verður þetta allt athugað, ef frv.
nær fram að ganga.
Eins og greint er frá í athu'ga-
semdum ræddi nefndin nokkuð
mál hinna, svokölluðu landshafna,
bæði tillögu atvinnutækjanefndar
um að ríkisstjórninni væri heimil-
að að selja viðkomandi sveitarfé-
lögum landshafnirnar, sem þá
voru tvær á þrernur fimmtu hlut-
um stofnkostnaðarvei-ðs og einn-
ig kom sú skoðun fram í nefnd-
inni að eðlilegt væri að ein til
tvær landshafnir væru í hverjum
landsfjórðungi og voru þessar báð
ar hugmyndir ræddar, en ákveðið
að leggja ekki til að breytt yrði
frá núgildandi lögum um lands-
hafnir eða þeim fjölgað.
Ég tel ekki þörf 'á því að lengja
framsöguræðu mína nú með því
að rekja efni einstakra greina frv„
svo skilmerkilega sem grein er
gerð fyrir nýmælum þessum í at-
hugasemdum og fylgiskjölum,
Mér er Ijóst að tiltölulega
skammur tími er til loka þessa
Alþingis og æskilegt íhefði verið
að frv. þetta hefði komið fyrr
fram. Milliþinganefndin, sem frv.
samdi, lauk ekki endanlegai störf-
um fyrr en rétt fyrir páskaleyfi
þingmanna, oig reyndist ekki unnt
vegna anna í prentsmiðju að útf
býta frv. fyrir páskaleyfi. Af þeim
ástæðum var sá kostur valinn að
senda báttvirtum þingmönnum
frv. sem lxandrit og trúnaðarmál,
en það var póstlagt laugardaginn
1. apríl sl„ þ.e. fimrn dögum fyrir
samkomudag Alþingis eftir páska-
leyfi.
Það er von mín að sá háttur,
sem hér var á hafður, hafi auð-
veldað háttvirtum alþingismönn-
um að gera sér grein fyrir meg-
inefni frv. og geti þar af leiðandi
e.t.v. stytt umræður um það nú.
Mér er fulikomlega ljpst að und-
irstaða þess að svo geti orðið, er
að háttvirtir alþingismenn meti
þær efnislegu meginbreytingar er
frv. hefur í för með sér til .veru-
legra bóta frá gildandi lögum. For
senda þess að málið nái nú fram
að ganga, er að sjálfsögðu sú, að
sem mestur einhugur skapist um
málið til skjótrar afgreiðslu.
Þá vil ég ennfremur benda á,
að mjög mörg meginatriði frv.
eru nátengd samningu og setningu
fjárlaga og því ekki hyggilegt að
fresta málinu til haustsins, ef það
er vilji Alþingis að fjárhagsatriði
frv. komi raunverulega til fram-
kvæmda á árinu 1968, en fjárlaga-
frumvai’pið er samið snemma sum-
ars og væri æskilegt að þá væri
ákveðið hvort gera eigi ráð fyrii’
svo veigamiklum ati’iðum sem
frumvarpið felur í sér og skipta
máli varðandi fjárlög.
Fjáröfiun
Frh. úr opnu.
ávarp. Efnt verður til skyndi-
happdrættis með fjölda glæsi-
legra vinninga. Húsið verður op-
ið fyrir matargesti frá kl. 19,00
og dagskráin hefst kl. 20,30. —
Hljómsveit hússins ieikur og
dansað verður til kl. 1 e, m.
Ekki er að efa, að mai’gir
vilja leggja góðu málefni lið og
njóta um leið fjölbreyttrar kvöld
skemmtunar.
FRA BURFELLSVIRKJUN
óskum eftir að ráða : '
1. Lærðan matreiðslumann
2. Lærðan kjötiðnaðarmann.
Fosskraft
Suðurlands'braut 32 — Sími 38830
TOYOTA CORONA
Glæsilegur og traustur einkabíll með frábæra
ökuhæfileika. Innifalið í verði m.a. 74 HA.
VÉL — SÓFASTÓLAR — ALTERNATOR
GÓÐ MIÐSTÖÐ — TOYOTA RYÐVÖRN
ÞYKK TEPPI — BAKKLJÓS — RÚÐU-
SPRAUTA.
Japanska bifreiðasaían hf.
Ármúla 7 — Sími 34470.
RADiilNETrE
tækin eru seld í yfir 60
löndum.
Sérhæfðir menn frá verk-
smiðjunum í Noregi annast
alla þjónustu af kunnáttu.
Radionette-verzlunin
Aðatstræti 18
sími 1 6995
Aðalumboð: Einar Farestveit & Co. hf. Vesturgötu 2
10 12. apríl 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ