Alþýðublaðið - 04.05.1967, Side 2

Alþýðublaðið - 04.05.1967, Side 2
 IIUUUUUIUI IIIUIIUIIIUI 11111111111111 Rvík, SJÓ í gær kom fyrir réttinn í máli skipstjórans á togaranum Brandi, liinn ákærði, Bernard Newton. Eft ír yfirheyrslurnar fór fram mál- flutningur og krafffist sækjandi ^.íi'tegraj saScsr|.uiarlauin|a 'sér til tianda og þess aff veiffarfæri yrðu gerff upptæk. Verjandinn krafðist iþess, aff skjólstæffingur sinn yrði sýknaffur af öllum kærum, í upphafi málsóknar var sein\i ákæran á ihendur skipstjóranum lá togaranum Brandi birt og hljóð- aði hún upp á óheimila brottsigl- ingu úr höfn og að beitt hefði verið ofbeldi gegn lögregluþjón- unuin. Fyrri ákæran hafSi verið toirt áður, en hún hljóðaði upp á ólöglegar togveiðar innan íslenzkr ar landhelgi. Þar næst hófust yfirheyrslur á skipstjóranum. Aðspurður um Ibrottför sína, sagði Newton, að cnginn hefði sagt honum að vera, en svaraði ekki ítrekaðri spurn- ingu um það, hvort honum hafi ekki verið ljóst, að Ihann mætti ekki fara. Skipstjóri viðurkenndi iað hafa lokað lögregluþjónana inni ásamt bátsmanni sínum, en svaraði hins vegar ekki spurn- ingu um, hvers vegna hann hefði gert það. Sagðist hann hafa gert sér ljóst, að þetta voru íslenzkir löggæzlumenn og telur að þeir toafi verið um borð af ýmsum á- stæðum, sem hann skilgreindi ekki nánar. Ekki vildi skipstjóri meina að lögreglumenn hefðu verið toeitt ir ofbeldi né að skipverjar hefðu iiaft barefli með höndum. New- ton viðurkenndi, að lögregluþjón- arnir hafi beðið hann að snúa við, en þar toefði ekki verið um skip- un að ræða. Um áfengisskammt- inn sagði hann, að nokkrum af sklpshöfninni hefði verið laíað áfengi, sem þeir hefðu ekki feng- ið í langan tíma, en þar væri ekki um mútur að ræða. Viðurkenndi hann ennfremur, að hann hefði iáti<5 mála nýtt númer iá skipið. Einnig sagðist hann hafa haft saniband við brezkan togara um motguninn og þá einungis spurt um, aflabrÖLjð. Hann sagði, að jafiian hefðu verið í brúnni 3 vaktmenn og lögregluþjónarnir tvejr auk hans sjálfs. Sagði New- ton^ að öll samskipti bans við lög- } • regluþjónana hafi farið vinsam- lega fram. Ákærði var spurður að lokum um, hvort hann hefði ekki ein- hverja ósk fram að færa. Bað hann þá um, að skipinu yrði við fyrsta tækifæri sleppt, en þeirri beiðni var aftur á móti háfnað. Eftir yfirheyrslurnar hófst mál- flutningur. Sækjandinn, Bragi Steinarsson, tók fyrstur til máls og krafðist hann þess af hálfu á- kæruvaldsins, að afli og veiðar- færi yrði gert upptækt og kæmu í vörslu Landhelgisgæzlunnar. Einnig krafðist hann ríflegra sak- sóknarlauna sér til handa frá hin- um ákærða og greiddur yrði saka- kostnaður. Bragi lagði fram skýrslur yfir- manna á flugvélunum og varðskip- unum, er tóku þátt í eftirförinni, og einnig skýrslur lögregluþjón- anna, máli sínu til stuðnings. Sagði hann, að óyggjandi sannanir væru fyrir því, að togarinn hefði verið að ólöglegum veiðum innan land- helginnar og sagði, að ljósmynd- ir ihafi sannað það, að togarinn hefði verið með fisk í vörpunni á Iþeim tíma. Sagði hann, að ákærði hefði viðurkennt að svo væri. Um flóttann frá Reykjavíkurhöfn sagði Bragi, að skipstjóri hefði ekki ennþá gert fyllilega grein fyrir honum, og væri því ljóst, að hann hefði gerzt brotlegur með þeirri ráðstöfun. Sagði sækjandi, að Landhelgisgæzlunni væri að öllu leyti heimilað að stöðva togar- ann úti á rúmsjó. Verjandi skipstjórans, Benedikt Blöndal, tók þessu næst til máls og krafðist þess, að skjólstæðing- ur sinn yrði sýknaður af öllum Frh. á bls. 15. VEFNAÐARAÐFERÐIN SKIPTIR EKKI MÁLI Um þessar mundir er í Unu- húsi viff Veghúsastíg sýning á myndvefnaði eftir Ásgerffi Búa dóttur. Er þetta þriffja einka- sýning- Ásgerffar. — Fyrsta einkasýning mín var í vinnustofu minn, sagði Ásgerður; er hlaðamaður Alþ,- bl. ræddi lítillega við hana á heimili ihennar. Síðan sýndi ég í Bogasalnum 1964, en sýning- in sem nú er í Unuhúsi er hin þriðja. — En hvað um samsýning- ar? — Ég hef tekið þátt í sam- sýningum erlendis, á vegum Norræna listabandalagsins i Gautaborg, í samnorrænni sýn ingu í Musée des arts décora- tifs í París og alþjóðlegri sam- sýningu í Miinchen. — Viltu segja okkur eitthvað frá því hvernig þú byrjar að vinna teppin, toveniig mynztrin verða til o.s.frv. — Ég geri fyrst liugmynda- skissur og fer svo að viða að mér bandi í vefinn. Þetta toand íhef ég svo fyrir augum, hand- leik og raða, jafnframt því sem ég vinn að teikningunni. Stundum fullgeri óg hana áð- ur en ég byrja að vefa, jafnoft breytist þetta og mótast eftir því sem verkið vinnst. — Hvaða vefnað notarðu? — Ég vef krossvefnað, en ég er nú anzi hrædd um að ég fari langt frá honum stundum. í raun og veru finnst mér að vefnaðaraðferðin sjálf skipti ekki miklu máli. Aðalatriðið er að skilja það efni sem maður hefur til túlkunar, hvort held- ur er gler, járn, olíulitir, ull, tré eða steinn. Þetta hafa Norð urlandaþjóðirnar skilið, enda hefur verið ofið þar síðan þess ar þjóðir urðu til. Fraklkar hafa hins vegar drýgt þar marg ar syndir. Vefnaður er og verð ur aldrei málverk og fylgir allt öðrum lögmálum. Hvort sem maður vefur stór eða lítil teppi vejiður þessi fcilfinning fyrir efninu, ullinlni, ullarlitunum, að vera fyrir hendi. Myndvefn- aður er sjálfstætt listform og verður að túlkast og skiljast sem slíkt. — Þú notar íslenzkt hand? — Já, ég nota að mestu leyti íslenzkt band, og aðaluppistað- an í litunum sem ég nota eru FYamhald á 13. síðu. iiiiiiuiiiiiiiiiiiiiimimiiiiiiiitiuiiiiHiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiuiMiMiiiiiiiiiiiiiiiif iiiiiiiiiiiiiiiu....mmmmmiii Fráj réttarliöldunum í gær. Á myijdinni sjást, taliff frá vinstri: Beniedikt Blöndal, verjandi sak- boráings, Newton skipstjóri á Brajidi, Brian Holt ræffismaffur Brefa á íslandi og Geir Zoega, umboðsmaffur brezka togarans. 2 f 4. maí 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ ............................................................................................................................................................................................■■■■■■■■<■..............................

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.