Alþýðublaðið - 10.05.1967, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 10.05.1967, Blaðsíða 6
DAGSTUND •fr Upplýsingar um læknaþjónustu 1 borginni gefnar i simsvara Lækna- féiags Reykjavikur. Síminn er 18888. Slysavarðstofan i Heilsuveradar- stöOinni. Opin ailan sólarhringinn - ■Oeins mótttaka slasaOra. - Sími 2-12-30. Læknavarðstofan. Opin frá kl. B síB degis til 8 að morgni. Auk þess alla helgidaga. Sími 21230. Neyðarvaktin svarar aðeins á virkum dögum frá kl. 9 tii 5. Sími 11510. -fc Næturvarxla lækna i Hafnarfirði aðfaranótt 4. maí: Grímur Jónsson. •k Læknavarzla Hafnarfirði. -fc- Helgarvarzla lækna í Hafnarfirðl laugardag tii mánudagsmorguns 6,- 8. maí Eiríkur Bjömsson. SiðNVARP MIBVIKUDAGUR 10. MAÍ. 20.00 Fréttir. 20.30 Sieinaldarmennirnir. Teikni- mynd gerð af Hanna og Bar- bera. fslenzkur texti: Dóra Hafsteinsdóttir. 20.5B Það er svo margt. Kvikmynda- þáttur Magnúsar Jóhannsson- ii Sj'nd verOur kvikmyndin. „Fuglarair okkar". 21.25 Sanúers. (Sanders of the River) Brezk kvikmynd, gerð af Alex- ander Korda eftir sögu Edgar Wallace. f aðalhlutverkum: Poul Uobeson og Leslie Banks. fslenzkur texti: Óskar Ingimars son. 22.45 Dagskrárlok. FÖSTUDAGUR 12. MAÍ. 20.00 Fréttir. 20.-30 Réttur er settur. Dagskrárliður f umsjá laganema við Háskóla fslands. Tekið veröur fyrir mál ákæruvaldsins á hendur Mel- korku Jökulsdóttur og Símoni Sólvík vegna meintrar öivunar víð akstur. Inngangsorð flytur Þórður Ásgeirsson, formaður Orators, félags laganema. 21.20 Marbacka. Sumarheimsókn aO Marbacka á heimili Selmu Lageriöf, þar sem minning skéldkonunnar er geymd ferða- mönnum nútímans. f dag- skránni er Maarbacka lýst eins og staðurinn var áður, því sem þar hefur verið gert, og hvemig þar er nú umhorfs. ÞýOinguna gerði Ólafur Jóns- son Þulur er Eiður Guðnason. 21.50 Dýrliugurinn Roger More í hlutverki Simon Templar. ís- lenzkur texti: Bergur Guðnason. 22.00 Dagskrárlok. 0 t V A R P 7.00 Morgantitvarp. 12.00 Iláfiegis’útvarp 13.00 Við vinnuna. 14.40 Við sem heima sitjum. 12.25 yréttir og veðurfregnir. Hósa Gestsdóttir les framhalds- söguna ,,Zinaida Fjodorovnaíf eftír Anton Tjekhov. 15.00 Miðdogisútvarp. Fréttir. Tilkynningar. Létt lög. DrengjakÖrinn í Regensborg syngur þýzk og austurrísk þjóð- lög.The Family Four syngja og leika lög frá Svíþjóð. Kurt Edel- hagen og hljómsveit hans leika lagasyrpu: Frídagur í Brazilíu. Pe:er Anders. Anneliese Roth- - enberger o.fl. syngja lög úr .,7, osandi land“ eftir Lehar. 16.30 Síðdecisútvarp. Veðurfregnir íslenzk lög og klassísk tónlist. 17.00 Fréttir 17.45 Lu j Ci nikkuna. 18.20 TUkyaningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvölds- ins. 19.00 Fréttir. 19.20 Tilkynningar. 19.30 Dýr og gróður. 19.35 Tækni og vísindi. Borgþór Jónsson veðurfræðingur flytur erindi. 19.55 Alþýðleg tónlist rússnesk. a. Pierre og Vladimir Svetlanoff syngja nokkur þjóðlög frá Hvíta Rússlandi. b. Kór og hljómsveit Rauða hers ins syngja og leika rússnesk lög. Aleksander Aleksandroff stj. 20.30 Framhaldsleikritið skytturnar. Persónur og leikendur í 13 þætti: Mylady Helga Bachmann. Felton Borgar Garðarsson Winter Gísli Alfreðsson 21.00 Fréttir. 21.30 Tónlist eftir Johann Sebastian. Bach og tvo syni hans. 22.30 Kvöldsagan: „Landið týnda*1 eftir Johannes V. Jensen. Sverrir Kristjánsson les. 22.30 Veðurfregnir. og síðan djass- þáttur Ólafur Stephensen kynnir 23.00 Fréttir í stnttu máli. Brezk nútímatónlist. 23.35 Dagskrárlok. F L U G Pan American: Pan American þota er væntanleg frá New York í fyrramálið kl. 06.20. Hún fer til Glasgow og Kaupmanna- hafnar kl. 07.00. Þotan er væntanleg frá Kaupmannahöfn og Glasgow ann að kvöld kl. 18.20 og fer til New York annað kvöld kl. 19.00. ■Ar Flugfélag íslands h.f. Millilandaflug. Skýfaxi fer til Glasgow og Kaup- mannahafnar kl. 08.00 í dag. Vélin er væntanleg aftur til Reykjavíkur kl. 23.40 í kvöld. Flugvélin fer til' Gias- gow og Kaupmannahafnar kL 08.00 i fyrramálið. Snarfaxi kemur frá Va- gar, Bergen og Kaupmannahöfn kl. 21.10 í kvöld. Innanlandsflug. í dag er áætlað að fljúga til Ak- ureyrar (2 ferðir), Fagurhólsmýrar, Horaafjarðar, ísafjarðar, Vestmanna- eyja (2 ferðir), Egilsstaða og Sauðár- króks. Á morgun er áætlað að fljúga til Vestmannaeyja (3 ferðlr), Akureyrar (3 ferðir), Patreksfjarðar, Egilstaða (2 ferðir), Húsavíkur, ísafjarðar og Sauðárkróks. S K I P ir Eimskipafélag íslands. Bakkafoss fór frá Flateyii 3. 5. til Fuhr og Moss. Brúarfoss fór frá N.Y. i gær til Reykjavíkur. Dettifoss fór frá Kotka í gær til Ventspils, Kaup- mannahafnar, Oslo, Þorlákshafnar og Reykjavíkur. Fjalifoss kom til Rvík- ur í gær frá Siglufirði. Goðafoss fór frá Vestmannaeyjum 6.5. til Grimsby Rotterdam og Hamborgar. Gullfoss fer frá Hamborg til Kaupmannahafn ar. Lagarfoss kom til Reykjavíkur 6.5. frá Hamborg. Mánafoss fór frá Hull 8.5. til Reykjavíkur. Reykjafoss fór frá Akureyri £ gær til Húsavík- ur og Austfjarðahafna. Selfoss fór frá Akranesi í gær til Vestmanna- eyja og Reykjavíkur. Skógafoss fór frá Reykjavík 2.5. til Rotterdam og Hamborgar. Tungufoss fór frá Ak- ureyri 28.4. til Norfolk og N.Y. Askja fór frá Reykjavík í gær til Grund- arfjarðar, Þingeyrar, ísafjarðar, Skagastrandar, Siglufjarðar og Rauf- arhafnar. Rannö kom til Reykjavík- ur í gær frá Huli. Marietje Böhmer fór í gær frá London til Antwerpen. Saggö kom til Umea 5.5 frá Klai- peda. Seeadler fór frá Reykjavík í gær til Reyðarfjarðar, Norðfjarðar og Seyðisfjarðar. Atzmaut lestaði i Gdy- nia í gær síðan í Kaupmannahöfn til Reykjavíkur. -*• Skipaútgerð Ríkisins. M.s. Esja fór frá Reykjavík kl. 20.00 í gærkvöldi vestur um land til ísa- fjarðar. M.s. Herjólfur fer frá Reykja vík kl. 21.00 1 kvöld til Vestmanna- eyja og Homafjarðar. M.s. Blikur kom til Reykjavíkur í gærkvöld að austan. M.s. Herðubreið fer frá Reykjavík kl. 20.00 í kvöld vestur um land i hringferð. -*• Slcipadelld S.Í.S. M.s Arnarfell er væntanlegt til Kcflavíkur á morgun. M.s. Jökulfcll íór 4. maí frá Þorlákshöfn til Rúss- lands og Hull. M.s. Dísarfell er í Rotterdam. M.s. Litlafell er i Reykja vík. M.s. Helgafell er í Antwerpen fer þaðan til Rotterdam. M.s. Stapa- fell fer frá Bromborough í dag til Rotterdam. M.s. MælifeU átti að fara í gær frá Sas Van Ghent til Reykja- víkur. M.s. Sine Boye er á Þorláks- höfn fer þaðan til Kópaskers. M.s. Martin Sif losar á Austfjörðum. M.s. Margarethe Sandved fór frá Horna- firði í gær til Vestmannaeyja og Faxaflóahafna. ÝMISLEGT Merkja- og kaffisala S.V.D. Hraun prýði. í dag, lokadaginn hefur slysavarn- adeildin Hraunprýði í Hafnarfirði kaffi- og merkjasölu. í mörg ár hefur lokadagurinn ver- ið einn aðal fjáröflunardagur Hraun prýðiskvenna, selja þær þá kaffi í tveimur húsum þ.e. Alþýðu- og Sjálf stæðishúsinu. Kaffisala þennan dag hefur ævin- lega verið mjög vinsæl meðal bæjar- búa, og alltaf hvílir léttur blær yfir Hafnarfirði þann dag. Konumar von ast til að bæjarbúar fjölmenni í kaff ið nú eins og alltaf áður. Þær konur sem ætla að gefa kökur og annað eru beðnar að koma því í húsin. Merki dagsins verða einnig seld og viija konurnar hvetja börn til að koma og selja merki, en þau verða afhent sölubörnum í anddyri Bæjarbíó frá kl. 9 f.li. Minningarspjöld. Minningarspjöld minningar- og líknarsjóðs kvenfélags Laugarnes- sóknar, fást á eftirtöldum stöðum: Ástu Jónsdóttur Goðheimum 22, sími 32060. Bókabúðin Laugarnesvegi 52, sími 37560, Guðmunda Jónsdóttir Grænuhlíð 3, sími 32573 og Sigríði Ásmundsdóttur, Hofteigi 19, sími 34544. ÁRNAÐ HEiLLA í dag klukkan 6 verða gefin saman I hjónaband í Dómkirkjunni ungfrú Margrét Magnea Kjartansdóttir, Hraunteig 11 og stud. jur. Þórólfur Kristján Beck. Heimili þeirra verður að Lönguhlíð 7. BIIMWiE RAUNSÆ SAKAMÁLAMYND EINU SINNI ÞJÓFUR. Once a thief. Gamla bíó. Bandarísk frá 1965. Leikstjóri: Ralph Nels- son. Tónlist: Lalo Schifrin. Kvikmyndun: Robert Burkh. FramleiSandi: Jaeques Bar. ís- lenzkur texti. Fyrir nokkru las ég grein í Þjóðviljanum, er fjallaði um andlegt gjaldþrot Hollywood og niðurlægingu nokkurra bandarískra kvikmyndaleik- stjóra, er Ihöfðu virzt efnileg- ir í fyrstu. Þetta var úrdráttur úr bók marxistísks gagnrýn- anda. Hann talaði m.a. um Ralph Nelson; sagði að hann hefði þótt efnilegur strax jneð fyrstu mynd sinni, en þar með væri sagan öll — Nelson sokk- inn í peningahafið og þar með afskrifaður. Ég hef ekki séð fyrstu kvikmynd hans, en eftir að hafa séð Once a thief leyfi ég mér að benda á, að Nelson hefur ekki glatað hæfileikum sínum. Once a thief er með geðsleg- ri sakamálamyndum. Hún er blessunarlega laus við kreddu- bundna gerð ibandarískra saka- málamynda. Hér er tækni kvik- myndarmnar notuð smekkvís- lega, hreyfingu kvikmyndavél- arinnar beitt með góðum ár- angri; kvikmyndin tekur stund um á sig form, er mundi kall- ast filmiskt. Myndin byrjar mjög skemmtilega; kvikmynd- un og klipping er einkar smekk lega unnið og tónlistin fellur vel við atburðarásina. Leikstjórn Nelsons hefur heppnast ágætlega. Kvikmynd- in er hin vandaðasta. Spenna lliennar er látlaus og eykst er á líður. Umgjörð myndarinnar er fremur raunsæ, sem mun fá títt í sakamálamyndum nú í dag. Svei mér þá, ef Nelson lumar ekki á ádeilu í þessari mynd, jafnvel þó vinur minn hafi sagt, að það væri ekki ádeila í henni fremur en í kvik myndinni Síðasti bærinn í daln um. Athugum t.d. atriðið þegar Eddie bíður eftir að fá atvinnu leysisstyrkinn. Við hlið hans situr skeggjaður negri, sem les í blaði. Hann hnippir í Eddie og bendir honum á mynd af manni, sem á að hengjast, þar eð hann er sakaður um eytur- lyfjasölu. „Þetta er bara einn af smákörlunum," segir hann, ,,stórkarlarnir sleppa með nokkra daga.“ Það sem á eftir kemur er í beinu framhaldi af þessu atriði. Aftur á móti hefur leikur- inn ekki heppnazt eins vel. Þar er veikasti hlekkuprinn ♦ ' Ann Margret. Hæfileikar henn ar eru á núlli og gjörist hún væmin og leiðinleg, er hún kemst í geðshræringu, eða eins og einn af fjölmörgum kolleg um mínum á Morgunbl orð- að það: „Mun leitun á öðrum eins ekkasogum og almennum hávaða og ósköpum, eins og þegar hún fer að gráta.“ Al- ain Delon kemur illa fyrir sjónir í fyrstu en venst. Beztur er Van Heflin í hlutverki Vido lögreglufulltrúa. Jack Palance er sæmilegur sem bróðir Edd- ies. John Davis Chandler of- leikur Sargatanas, einkum er á líður. Tony Musante er ó- geðslegur. Skrúfið fyrir sjónvarpið eina kvöldstund og leggið leið ykk- ar í Gamla híó. Sigurður Jón Ólafsson. Ann- Margret og Alain Delon í kvikmyndinni „Einu sinni þjóf ur.“ (Once a Thief). 6 10. maí 1967 ALÞYÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.