Alþýðublaðið - 28.05.1967, Page 12
AlþýðubFaðíð Sjómannadagur — 28. mal 1967
Óskum
íslenzkum sjómönnum
allra heilla
í tilefni af
S JÓM ANNADEGINUM
og gæfurríks komandi sumars.
Bótafélag Hafnarfjarðar h.f.
Bjarg h.f.
Meitillinn h-f.
Þorlákshöfn
Sendir íslenzkum sjómönnum
og aðstandendum þeirra
foeztu kveðjur
á Sjómannadaginn.
Sendum
sjómannastéttinni
vorar heztu
árnaðaróskir
í tilefni
Sjómannadagsins.
Útvegsmannafélag Hafnarfjarðár
Sjóslys
Frh. af 3. síðu.
voru getgátur einar, og raun-
verulega engin rök fyrir þeim.
Geymir hafið um eilífð þar eitt
sinna leyndarmála.
Fyrir afrek sitt við björgun
mannanna af „Sæfara“ hlaut
Árni Finnbogason formaður á
„Happasæl" heiður og viður-
kenningu. Voru það kr. 15,00 í
peningum og auk þess silfur-
peningur. Myndu þeir fjármunir
ekki þykja mikil björgunarlaun
nú, • fyrir þrek það og karl-
mennskuafrek, er hann og skips-
höfn hans unnu, í því fárviðri
og við þær lífshættulegu aðstæð-.
ur, sem við var að etja. Enda
bar mönnum saman um það, að
það hefði verið hin mesta afrek,
að ná skipshöfninni af „Sæfaran
um“ um borð í bát sinn, og eng-
inn þarf að efast um hver enda-
lok „Sæfarans“ hefðu orðið, ef
Árni hefði látið hættu þá, sem
björguninni fylgdi, skipta sig
nokkru máli. Hann ákvað að
leggja í þá miklu hættu að ná
mönnunum, og tókst það svo
giftusamlega sem raun varð á.
Margir voru þeirrar skoðunar,
og það ef til vill með réttu, að
með ,,íslendings“-slysinu, hafi
komið fram sýn Ólags Inglieifs-
sonar, um borð í „Enok I.“ ver-
tíðina áður, og sem fyrr er getið.
Verður e.t.v. ekki annað ráðið,
en að hún hafi boðað það, sem
nú hafði skeð.
Guðleifur Elísson, formaður
á' „íslendingi“ var fæddur í
Ysta-Skála imdir Eyjafjöllum 29.
ágúst 1880. Foreldrar hans voru
Guðlaug Hieronimusdóttir og
Elís Hjörleifsson. Fór Guðleifur
þegar á unga aldri að Mið-Mörk
undir Eyjafjöllum og ólst þar
upp til fermingaraldurs, hjá
Margréti Engilbertsdóttur og
Árna Árnasyni, er þar bjuggu.
Um fermingaraldur fluttist Guð-
leifur að Brúnum og var ælíð
síðan kenndur við þann bæ, og
nefndur Guðleifur í Brúnum.
Hann varð snemma bráðþroska
og mikið hraustmenni. Sextán
ára gamall fór hann fótgangandi
til sjóróðra til Suðurnesja, með
frænda sínum og vini, Guðjóni
Jónssyni í Ormskoti, sem þá var
einnig unglingur, síðar í Heiði í
Vestmannaeyj um, sægarpi mikl-
um og hraustmenni, og einum
af aflasælustu formönnum í Eyj-
um allt fram á efri ár. Voru
fleiri menn í þeirri för.
í óprentuðu broti af ævisögu
Guðjóns í Heiði skráðu af séra
Sigurði Einarssyni í Holti segir
Guðjón þá skemmtilegu sögu af
ferð þessari, að á leið sinni til
Suðurnesja hafi þeir félagar
fundið dauðan sel í fjöru, sem
hirtur var og borinn á bakinu
til Eyrarbakka, þar sem eldri
mennirnir í för þessari létu
hann í skiptum fyrir brennivín í
verslun einni til þess að geta
gert sér glaðan dag.
Svipaði þeim Guðleifi og Guð-
jóni í mörgu, þótt ólíkir væru í
sjón. Réru þeir þessa verlíð frá
Suðurnesjum, en næstu vertíð
fóru þeir báðir til Vestmanna-
eyja og réru sinn á hvoru skipi.
Framhald á 13. síðu.
SJÓMANNASAMBAND
ÍSLANDS
sendir íslenzkum sjómönnum
beztu hamingjuóskir á
Sjómannadaginn
og árnar þeim allra heilla í framtíðinni.
Sendum
sjómönnum
beztu hamingjuóskir
t tilefni
Sjómannadagsins.
Hraðfrystistöð
Eyrarbakka h.f.
Sænsk - íslenzka
frystihúsið
sendir sjómönnum
beztu hamingjuóskir á
Sjómannadaginn.