Alþýðublaðið - 14.06.1967, Qupperneq 3
^v%^w%^wwwVwwvi
Nýir þingmenn hafa orðið: |
Af þingmönnum Alþýðuflokksins, sem taka munu sæti á Alþingi í haust,
eru tveir sem ekki hafa átt þar sæti áður. þeir Bragi Sigurjónsson úr Norð
urlandskjördæmi eystra og Jón Ármann Héðinsson úr Reykjaneskjördæmi.
Við höfum snúið okkur til þeirra og beðið þá að segja nokkur orð urn kosn-
ingaúrslitin í kjördæmum þeirra.
Bragi Sigurjónsson:
Ég tel Alþýðuflokkinn hafa komið mjög vel
út úr kosningunum, og það ánægjulegasta er,
að fylgisaukningin er greinilega fyrst og fremst
komin frá unga fólkinu, nýju kjósendunum. Al-
þýðuflokkurinn einn bætti verulega við fylgi
sitt á Norðurlandi eystra og nemur aukningin
frá síðustu kosningum um 34% og mun það
vera einsdæmi í sögu flokksins.
Ég vil nota tækifærið til að færa öllum stuðn
ingsmönnum okkar þakkir, en þeir unnu mjög
vel í þessum kosningum.
Jón Ármann Héðinsson:
Þétta er í fyrsta sinn, sem ég er beinn þátt-
takandi í kosningum til alþingis og það var
því mjög ánægjulegt að finna þann mikla á-
huga, sem rikti hjá stuðningsmönnum Alþýðu-
flokksins í kjördæminu. Samstarf var mjög
gott og það er fyrir mikinn áhuga fjölda fólks,
að sá árangur náðist sem raun varð á.
Hvernig var staðið að undirbúningi kosning-
anna?
Við héldum trúnaðarmannafundi í öllum fé-
lagsdeildum flokksins í kjördæminu svo og al-
menna þingmálafundi í Kópavogi, Hafnarfirði
og Keflavík, sem allir tókust mjög vel.
Hvað viltu segja um niðurstöður kosning-
anna í þínu kjördæmi?
Við fengum hlutfallslega aðeins minna at-
kvæðamagn núna miðað við kosningarnar 1963,
en þegar haft er 1 huga framboð óháðra, sem
eflaust hefur tekið frá okkur talsvert atkvæða
magn, getum við verið ánægðir með útkom-
una. Þess skal getið, að framsóknarmenn höfðu
í frammi óhemju áróður í kjördæminu. Síð-
ari hluta laugardags sendu þeir frá sér blað,
þar sem þýðingarmikil hagsmunamál voru rang
túlkuð til að blekkja kjósendur, sér í hag.
Hvert er álit þitt á hlut unga fólksins í vel-
gengni flokksins?
Það er sérstök ánægja til að fagna aukinni
þátttöku þess, og ég er viss um að ungt fólk
á mikinn hlut í þeirri aukningu, sem Alþýðu-
flokkurinn fékk við þessar kosningar og færi
ég því sérstakar þakkir fyrir og hlakka til sam
starfs við það á komandi kjörtímabili.
Eitthvað að lokum, Jón?
Ég vil færa öllum, sem unnu að kosningun-
um þakkir fyrir ötult og óeigingjarnt starf og
vona að áfram verði haldið á sömu braut til
eflingar Alþýðuflokknum.
Sovét vill fund í
Allsher jarþi nginu
N. Y. 13. júní (NTB-Reuter)
SOVÉTSTJÓRNIN fer fram á,
að Allsherjarþing- Sameinuðu
þjóðanna verði kallað saman til
fundar til þess að ræöa ástandið
Mexíkani
í Mokka
Á KOSNINGADAGINN opnaði
ungur mexíkanskur málari sýn-
ingu á verkum sínum á kaffihús-
inu Mokka á Skólavörðustíg. Mál
arinn heitir Maciel, fæddist lár-
ið 1939 nálægt borginni Acapulco
í Mexíkó. Hann hefur stundað
nám í málaralist í Mexíkóborg
undanfarin ár, en er nú á leið til
meginlands Evrópu, þar sem hann
ætlar að kynna sér málaralist og
freista gæfunnar.
Á sýningunni eru bæði teikn-
ingar og málverk. Meðal annars
Framhald á bls. 14.
í löndunum fyrir botni Miðjarð-
arhafs. Sovétstjórnin fór fram á
þetta skömmu eftir að ákveðið
hafði verið að kalla Öryggisráðið
saman til aukafundar í kvöld, að
beiöni Sovétríkjanna til þess að
ræða sama mál.
Fulltrúi Sovétríkjanna hjá Sam
einuðu þjóðunum, Nikolaj Feder-
enko, átti tal við U Thant í dag
bg fékk honum þá í hendur beiðni
Sovétstjórnarinnar um aukafund
Allsherjarþingsins. U Than’t, að-
alritari Sameinuðu þjóðanna,
sendi skeyti til stjóma allra að-
ildarríkjanna og bað um svar
þegar í stað, en ef meiri hluti,
það er að segja a. m. k. 62 lönd
æskja eftir fundi Allsherjarráðs-
ins, er unnt að boða til hans með
mjög stuttum fyrh*vara.
í gærkvöldi var frestað fundi,
sem halda látti í Öryggisráðinu,
einnig að beiðni Sovétfulltrúans,
og var þá búizt við því, að hinir
langþreyttu meðlimir ráðsins
fengju frí fram á miðvikudag til
þess að átta sig á málunum og
ræða við stjórnir landa sinna.
Að því er sagði í N. Y. í dag,
er vitað, að Arabaríkin, sem biðu
ósigur í stríðinu við ísrael, reyna
allt hvað þau geta til að bera
stjórnmálalegan sigur úr býtum
við samningaborðið. Búizt er við
löngum fundum í Öryggisráðinu.
Arabalöndin munu leggja allt
kapp á að fá ísraelsmenn til að j
hörfa aftur inn fyrir fyrri landa-
mæri og láta af hendi þau lands-
svæði, sem þeir ihafa nú náð á
vald sitt með vopnum. ísraels-
menn munu aftur lá móti krefjast
þess, að Arabalöndin viðurkenni
ísrael sem sjálfstætt ríki, að ör-
yggi landsins og sjálfstæði verði
tryggt, að Arabar láti af vopnuð-
um hótunum og að ísraelsmönn-
um séu tryggðar frjálsar sigling-
ar um Tíranasund.
Þar til þessum kröfum er full-
nægt, er búizt við, að ísraelsmenn
neiti að láta af hendi þau land-
svæði, sem þeir nú ráða.
Hópur 38 Bandaríkjamanna, sem störfuðu liér á landi á stríðs-
árunura, er nú í heimsókn til að rifja upp gamlar endurminningar
og vitja staða, sem þeir dvöldust á, er þeir gegndu herþjónustu á
íslandi. Þetta fólk, bæði konur og karlar, nýtur fyrirgreiðslu lir.
Daves Zinkoffs og mun halda til á Hóteli Loftleiða í Reykjavík.
en fara í feröalög til Vestmannaeyja, Þingvalla og Akureyrar þær
tvær vikur, sem það dvelst hér.
Boumedienne íór
erinda Arabaríkja
MOSKVA, 13. júní - (Ntb-Reuter)
Forsætisráðherra Alsír, Houari
Boumedienne, hefur verið í
Moskvu til viðræðna við Sov-
étleiðtoga um ástandið i Austur-
löndum nær. Hann hélt heimleið
is í dag, — en að því er sagði í
stuttri opinberri tilkynningu, sem
gefin var út í dag, — fjölluðu
samtölin um þróun mála í lönd
unum fyrir botni Miðjarðarhafs,
vegna árásarstríðs ísraels. Við-
ræðurnar voru mjög vinsamlegar
að því er sagt er.
Egypzka blaðið A1 Ahram sagði
í dag, að Boumedienne hefði far
ið erinda Arabaríkjanna til
Moskvu, og að hann hefði haft
samráð við Nasser áður en hann
fór.
Það var mikið um diplómata-
bíla við utanríkisráðuneyti
Moskvu í dag, — en þar var
ambassadörum margra landa til-
kynnt um þá ætlun Sovétstjóm-
arinnar að beiðast þess, að Alls-
heijarþingið yrði kallað saman til
aukafundar. Þótt ekkert væri á
það minnzt opinberlega, er vitað,
að Sovétstjórnin býst við, að geta
fengið meiri hluta fulltrúa á Alls
herjarþinginu til þess að lýsa ís-
rael árásaraðila og fordæma það. j
Ambassador Bretlands og Banda
ríkjanna voru ekki til kvaddir.
Að því er góðar heimildir í
Moskvu sögðu í dag, lofuðu sov
ézku leiðtogarnir Boumedienne að
gera allt, sem í þeirra valdi
stæði, til þess að knýja ísrael til
þess að hörfa aftur frá þeim ara
bisku landssvæðum, sem ísraels-
menn liafa náð á sitt vild, og tal
ið er fullvíst, að Boumedienne
hafi beðið Sovétmenn að hjálpa
Arabalöndunum við að endurreisa
sipraða herafla.
BÍLAMÁLUN -
RÉTTINGAR
BREMSUVEDGERÐIR O. FL.
BIFREIÐAVERKSTÆÐIÐ
VESTURÁS HF.
Súðavogi 30 — Sintl 35749.
SMURSTÖÐIN
Sætúni 4— Sími 16-2-27
BDUnn er smurSnr' fljólt ttg teU
Bíjjum allaf tcgunfllr al1 AnntoUtf
14. júní 1967 - ALÞÝBUBLAÐIÐ 3