Alþýðublaðið - 14.06.1967, Side 4
QMMD
Bltstjórl: Benedikt Grðndal. Símar 14900—14903. — Auglýsingaslml:
14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið við Hveríisgötu, Bvik. — FrentsmiSja
AlþýSubla'ðsins. Simi 14905. — Áskriftargjald kr. 105.00. — i lausa-
sölu kr. 7.00 eintakið. — Útgefandl: Alþýðuflokkurinn.
Farsælt starf
ALÞÝÐUFLOKKUKINN vann á sunnudag einn
mesta kosningasigur sinn. Má segja, að flokkurinn
hafi fengið fylgisaukningu um land allt, en þó mesta
í Reykjavík. Þar varð Alþýðuflokkurinn annar stærsti
flokkurinn eftir úrslit kosninganna og stendur nú
höjíði hærri en Framsóknarflokkur, Alþýðubandalag
og Hannibalistar.
Undanfarin ár hefur Alþýðuflokkurinn staðið að rík
iss.tjórn með Sjálfstæðisflokknum og hefur ýmsum
þótt það óeðlileg stefna af sósíaldemákratiskum
flokki. Hins vegar hefur Alþýðuflokkurinn metið sam-
starfið eftir þeim málefnum, sem hann hefur getað
komið fram, og hefur starfað af ábyrgð til að ná ár—
angri. Það hefur tekizt.
Alþýðuflokkurinn hefur ekki aðeins verið ábyrgur
flokkur, heldur haldið áfram að vera frjór hugsjóna-
flokkur og leggja til vaxtarbrodd umbótanna á ís-
landi. Kjósendur vita, að kommúnistar hrópa venju
lega hærra, yfirbjóða og þykjast vera róttækari en
Alþýðuflokksmenn. En þeir ná ekki árangri á sama
hátt og jafnaðarmenn.
í þrjá áratugi hefur mikið verið talað um að sam-
eina vinstriöflin á íslandi. Héðinn Valdimarsson
reyndi einnig — og mistókst ekki síður. Nú getur
reynslan talað. Alþýðuflokksmenn hafa reynzt hafa
rétt fyrir sér í öllum megin deilumálum þeirra við
•kommúnista. Það hefur reynzt farsælast að halla sér
að Alþýðuflokknum og efla hann- Þar er hugsjón, þar
er ábyrgðin, þar næst árangurinn-
Það er gömul venja að tala mikið um hægri eða
vinstri í stjórnmálum. Þessi orð liafa að vísu litla
sem enga þýðingu lengur, og unga kynslóðin virðist
ekki leggja mikið upp úr þeim. Hins vegar má meta
áhugamál eins flokks og þann árangur, sem flokkur-
inn nær í baráttu sinni. Stefna Alþýðuflokksins er
ljós, svo og leið hans til að koma málum sínum fram.
Kjósendur hafa veitt hvorutveggja mikla viðurkenn
ingu .og styrkt áhrif flokksins.
Starf Alþýðuflokksins hefur orðið íslenzku þjóðinni
til mikillsr b\?ssunar á liðnum árum. Með kosningaúr
slitunum á sunnudag hefur þjóðin lagt grundvöll »að
því, að Alþýðuflokkurinn hafi áfram áhrif á stjóm
landsins og komi hugmyndum sínum enn frekar í
framkvæmd.
Lltvarp og sjónvarp
KOSNINGARNAR á sunnudag voru fyrstu sjón-
varpskesningar á íslandi. Verður ekki dregið í efa, að
sjónvarpið er sterkasti fjölmiðill, sem hér er til, og
að það muni í framtíðinni verða notað í miklu ríkari
mseli en nú-
Ekki verður annað'sagt en bæði hljóðvarp og sjón-
varp hafi staðið sig með miklum ágætum eftir að kosn
ingunum lauk. Ríkisútvarpið hefur aldrei starfað með
slíkum ágætum sem um þessa helgi.
4 14. júní 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Síldaraflinn
9565 lestir
BLABINU hefur borizt yfirlit frá
Fiskifélaffi íslands um síldveiöar
noröan lands og austan tíl 10.
júní.
Sumarsíldveiðarnar hófust mun
síðar á þessu ári heldur en í fyrra. \
Ástæðurnar til þessa má telja
hið lága verð, sem er á bræðslu-
síldarafurðum á heimsmarkaðn-
um, síldin er rýr að gæðum í
maímánuði og því ekki eftirsótt
til vinnslu og þar að auki var
ekki tekin ákvörðun um bræðslu-
síldarverðið fyrr en þann 31. maí.
Knnfremur er síldin óvenju langt
frá landi, þannig að 35—40 íklst.
sigling er á miðin.
Fyrsta skipið, er hélt til veiða
var Reykjaborg RE 25, sem fór
af stað þann 19. maí. Fékk skip-
ið fyrst afla viku síðar um 150
sjómílur NA af Færeyjum, sigldi
með aflann til Færeyja og land-
aði þar. í fyrra veiddist fyrsta
síldin þann 12. maí. Fyrsta skip-
ið, sem kom með síld (hingað til
lands var Harpa RE 342 og kom
hún til Seyðisfjarðar iþann 3. júní.
Segja má, að veiðarnar bafi
gengið iheldur treglega hjá þeim
rúmlega 50 skipum, sem komin
eru á miðin. S. I. laugardagskvöld
var vitað um 35 skip, sem ein-
hvern afla höfðu fengið. Síldin
hefur verið á hraðri leið norður
á bóginn og er mjög stygg, stend-
ur yfirleitt djúpt og næst helzt
til hennar um miðnættið.
Heildarmagn komið á land frá
vertíðarbyrjun nemur 9.565 lest-
Framhald á 14. síðu.
HÚSNÆÐISMALASTOFNUN
ríkisins mmrsm
Umsóknir um kaup á íbúðum, sem byggðar
eru 'af Framkvæmdanefnd byggingaráætlun-
ar í Breiðholti í Reykjavík, verða að hafa bor-
izt Húlsnæðismálastofnun ríkisins fyrir kl.
17 n.k. fimmtudag 15. júní. Umsóknir sem
berast eftir þann tíma verða ekki teknar til
greina.
HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN RÍKISINS
LAUGAVEGI77, SlA/ll 22453
Nýlega var dregið í
Happdrætti Alþýðu-
flokksins i
Vesturlandskjördæmi
Ferð fyrir tvo til Mallorka kom á miða no:
742 og ferð fyrir einn til Vestur-Evrópu með
skipi kom á miða no: 402.
Upplýsingar um vinningana gefa Baldur Ol-
afsson í síma 1831 eða Sveinn Kr. Guðmunds
son í síma 2230 á Akranesi.
krossgötum
★ ÓSÆMILEG FRAMKOMA.
Talsvert er um það, að bílstjórar
aki á skepnur úti á þjóðvegimum, kindur, kýr eða
hross, svo að af hljótast meiðsl og limlestingar.
Ekki er þó alltaf aðgæzluleysi eða óvarkárni bif-
reiðastjóranna um að kenna, þegar slys af þessu
tagi eiga sér stað, stundum er ekki unnt að koma
í veg fyrir slík óhöpp, þótt varlega sé farið. Hitt
er Iakara til afspurnar, að sumir ökumenn láta
undir höfuð leggjast að gera nokkrum viðvart um
slysið, en aka þess í stað áfram eins og ekkert
hafi í skorizt og skilja við skepnuna meira eða
minna limlesta og ósjálfbjarga á veginum, ef þeir
þá fleygja henni ekki út í skurð. Því síður hafa
þeir fyrir að leita uppi eigandann, til að bæta hon-
um tjónið. Svona framkoma er auðvitað ósæmi-
leg og óverjandi, enda lætur enginn sómakær bíl-
stjóri slíkt henda sig.
Nauðsynlegt er að hafa hendur í
hári þessara ökuníðinga og láta þá svara til saka.
Engum má haldast uppi að sýna þvílíka grimmd og
miskunnarleysi, ökumanninum ber að sjálfsögðu
að ger'a þegár í stað ráðstafanir til þess að skepn-
an sé aflífuð, ef um alvarlega limlestingu er að
ræða, og náttúrlega er honum skylt að bæta
eigandanum skaðann.
\
★ SVARTIR SAUÐIR.
En fyrst á annað borð er farið
að minnast á bifreiðastjóra, sem skjóta sér undan
að borga skaða, sem þeir valda, er ekki úr vegi að
minna á brot af öðru tagi, sem bílstjórar gera sig
stundum seka um og er hvimleitt í mesta máta.
En það eru ákeyrslur á bíla í kyrrstöðu. Æði
margir hafa einhvern tíma orðið fyrir því, að ekið
hefur verið utan í bifreiðar þeirra, þar sem þær
hafa staðið á götunni og beyglað bretti eða valdið
öðrum skemmdum á þeim, en síðan hefur bílstjór-
inn e.kið á brott hið skjótasta án þess að biðjast
afsökunar aukin heldur meir. Þetta lýsir heldur
lélegu innræti að ekki sé meira sagt. Sem betur
fer eru flestir íslenzkir bifreiðastjórar mestu sóma-
menn og mega ekki vamm sitt vita. Hins vegar eru
alltaf nokkrir svartir sauðir innan stéttarinnar,
eins og gengur, sem þurfa dálítið siðferðilegt að-
liald og kristilega ráðningu, ef vel á að vera. Þess
vegna er nauðsynlegt að vekja athygli á þessum
leiðindagemlingum, sem allir heiðarlegir bifreiða-
stjórar líða önn fyrir. — S t e i n n.