Alþýðublaðið - 14.06.1967, Qupperneq 5

Alþýðublaðið - 14.06.1967, Qupperneq 5
JÓHANN KRISTÓFER Homain Rolland: JÓHANN KRISTÓFER IX-X Sigfús Daðason íslenzkaði Heimskringla, Reykjavík 1967. 432 bls. Skyldu menn ennþá endast til að lesa um Jóhann Kristófer? Skyldi óskadraumur Romain Roll- ands um evrópskan anda, evr- ópskt sarnfélag ofar þjóðum og landamærum enn eiga hljómgrunn, eða er liann kannski að rætast raunverulegri mynd með Efna- hagsbandalaginu? Megnar saga hans enn í dag að hugtaka les- endur sem saga einvörðungu? Ekki skal ég leggja dóm á' þetta, en mér er í minni hve hugfang- inn ég var á unglinggárum af upphafsþáttum Jóhanns Kristó- fers í þýðingu Þórarins Björns- sonar. Nógu hugfanginn til að útvega mér afganginn á dönsku þegar þýðingunni sleppti og lesa söguna til enda í lotunni. En hitt’ verð ég að já'ta, að undan- farna daga hefur mér reynzt harla torvelt að hafa mig gegnum lokabindi Jóhanns Kristófers í íslenzku þýðingunni, níunda og tíunda þátt sögunnar sem nefn- ast Logandi runnur og Hinn nýi dagur (hvers vegna ekki Nýr dag- ur?) í þýðingu Sigfúsar Daða- sonar. Með þessu bindi, hinu fimmta í útgáfunni, er þýðing Jóhanns Kristófers loks til lykta leidd nær tuttugu árum eftir að hún hófst og hefur enzt' stórum lengur en frumútgáfa sögunnar -1903-12. Romain Rolland var skilgetinn sonur 19du aldar, fæddur 1866. Hann tilheyrði þeirri „veröld sem var” sem Stefan Zweig hefur lýst með eftirminnilegum hætti í ævi- sögu sinni; Rolland er raunar einn af hetjum þeirrar bókar, ná‘- inn vinur Zweigs um langt skeið, og Zweig hefur einnig ritað sér- staka ævisögu hans. Á stríðsár- unum fyrri sat Rolland í Sviss, eins konar páfi friðarsinna um víða veröld, einn þeirra örfáu manna sem vogaði sér að taka af- stöðu gegn stríðinu frá fyrsta fari; en síðar meir hneigðist hann til æ meiri róttækni í þjóð- félagsmálum og mun meira að segja hafa orðið flokksbundinn kommúnisti, „prógressívur mað- ur og gúmanisti” eins og fleiri sem töldu skylt að skipa sér undir merki með verkalýðnum; öllum er nú kunnug vonsvik og blekking margra úr þessum hópi þegar upp komst um Stalín karl- inn. Svo langt lifði Rolland ekki þótt hann jrrði aldraður maður; hann lézt 1944 þegar sá fram úr baráttunni gegn nazismanum sem myrkvaði síðustu æviár hans. Aldrei virtist evrópsk sameining fjær en þá — eða öllu heldur: hún varð um sinn veruleiki í hinni afskræmislegustu mynd með blóðveldi Hitlers. Eins og höfundurinn sjálfur er Jóhann Kristófer sprottinn af bók- menntalegri hefð 19du aldar, roman fleuve, langdregin, rúmgóð og víðtæk aldarfarslýs- ing sem tekur við af skáldsagna- list franski-a og rússneskra meistara 19du aldar, að líkindum með Balzac og Zola sem sínar fremstu fyrirmyndir. Aldarfars- lýsingin er ákaflega fyrirferðar- mikil og rúmfrek í Jóhanni Kristófer og öldin er dæmd í ljósi rómantískrar hughyggju höfundarins; það er metnaður skáldsagna af þessu tagi að rúma „alla veröldina” innan einna spjalda. Rolland persónugerir hugsjón 19. aldar um rithöfund- inn sem ,andlegt stórveldi’, færan að hefja sig yfir og leggja dóm á lítilmótlegt' stríð og stref sam- tímans; og Jóhann Kristófer sjálfur, snilldarandi og breiskur maður, er mannshugsjón höfund- arins, hetjumynd mótuð af al- þjóðahyggju hans og húmanisma, nánar tiltekið viðleitni að sætta franskan „anda” og þýzkan. Nú á dögum kann hvort tveggja að virðast harla fjarlægt, ef ekki öldungis úrelt, aldarfarslýsingin í Jóhanni Kristófer og sú hug- sjón hins andlega ofurmennis sem hún lýsir; fjarskalegur há- tíðleiki frásagnarinnar fellir ó- neitanlega fölskva á alvöru hennar, einlægni, hugsjónatrúna sem hún lýsir. Lesandi kemst ekki hjá þeirri ályktun að til að geta lýst öllum þessum „þroska”, „snilld,” „anda” og hvað það nú heitir þurfi höfundurinn að ætla sjálfum sér æði-mikinn þroska líka; og á slíkum höfundum hafa seinni menn óhjákvæmilega æði- mikla vantrú. En þessi hugsjón höfundarins sjálfs er óhjákvæmi- lega innifalin í verki Rollands, anda þess og allri aðferð; hún er ein arfleifð hans frá öldinni sem leið. Rolland vildi vera einhvers konar samvizka aldarinnar og tókst það minnsta kosti að ein- hverju leyti; Jóhanni Kristófer, sem er höfuðrit hans, var tekið með kostum og kynjum þegar hann kom út og höfundurinn sæmdur nóbelslaunum skömmu síðar. Manni hlýtur að finnast til ! um lýsingu Zweigs á Rolland á' styrjaldarárunum þegar hann tekst á hendur nánast einn síns liðs að tala máli mannúðar, skyn- semi, friðar í stríðstrylltum | heimi. En hið broslega er sjald- • an víðs fjarri liinu hátíðlega, og j upphafin alvara þessara öndvegis 1 höfundar er ef til vill það sem fjarlægir verk þeirra nútímanum meira en nokkuð annað og gerir veröld þeirra sem var torvelda inngöngu; lesanda veitist nú á dögum engan veginn auðvelt að taka Jóhann Kristófer jafnhá- tíðlega og höfundurinn ætlast til. í níunda og tíunda þætti sög- unnar sem nú birtast á íslenzku segir frá efri árum og andláti Framhald á bls. 10. HVERING LITUR JÖRÐIN Ln SÉÐ ÚR GEIMNUM? ER nokkuð sem bendir til þess að lif sé á jörðinni? Ef geimfari frá öðrum hnetti væri spurður þessarar spurn- ingar, ætti hann í erfiðleikum með að svara, nema hann hefði ljósmyndaútbúnað, sem mjög tæki fram þeim, sem er í Lun- ar Orbiter. Lunar Orbiter átti fyrst og fremst að taka myndir af yfir- borði tunglsins og senda mynd Birnar til jarðar, til þess að vís- indamennirnir í NASA gætu áttað sig á, hvar bezt væri að lenda Appollotunglflauginni. Auk þess átti að taka myndir af jörðinni til þess að auðvelda geimförunum að gera sér grein fyrir, hvað sæist á myndum, sem teknar eru úr geimflaug- af öðrum reikistjörnum í sól- kerfi voru. Þetta er einkan- lega gert til að vita, hvaða áhrif sólarljósið hefur á gufu- hvolfið. Með því að bera sam- an myndir af Marz og jörðinni ætla menn að fáist vitneskja um þéttleika gufuhvolfsins um hverfis Marz. Menn vita nefni lega fátt um það með vissu. Því miður urðu menn fyrir vonbrigðum með myndimar, sem Lunar Orbiter tók af yfir- borði tunglsins. Þær komu að litlu gagni til að finna nothæf an lendingarstað fyrir Appollo flaugina. Ekki er þar með sagt, að myndimar hafi ekki komið að neinu gagni. Lunar Orbiter naut betri stjómar frá jörðu en nokkurt annað ómann að geimskip og sendi ófáar ó- metanlegar upplýsingar. Búast menn við að með þessum upplýsingum fáist fjöl margar fróðlegar staðreyndir um tunglið. Eitt er talið full- víst, að máninn er ekki alveg hnöttóttur heldur örlítið peru- laga. Hæituminni röntgen geislar Nýtt röntgenmyndatæki fyr- ir tannlækna hefur verið fund ið upp. Tækið veldur minni geislaverkun en eldri gerðir og úr þvi koma mun skýrari myndir. Uppfinningamaðurinn heitir Albert G. Richards, próf. við Tannlæknahiáskólann í Mic higan. Hann hefur breytt hlut- íóllunum í röntgentæki tann- lækna á þann veg, að sjúkling urinn verður fyrir mun minni geislun en áður hefur verið. Hinn geislavirki hluti vélarinn ar er nú um 7 cm lengra frá sjúklingnum en vanalega. Yís indamenn hafa lengi vitað, að því lengri sem fjarlægðin er milli vélarinnar og sjúklings- ins þeim mun betri og skýrari myndir fást. Þetta hefur Ric- hards tekizt, og jafnframt hef ur geislaverkunarhættan minnkað fyrir bæði sjúkling og tannlækni. Þráður úr gleri Ný gerð af trefjagleri, „glastran”, er eins sterkt og stál. Þráður úr þessu nýja efni er jafn að styrkleika og jafn- gildur stálvír, en hefur þar að auki þann kost að vega aðeins L4 af þunga stáls. General Motors Corp. hefur staðið fyrir tilraunum við fram leiðslu iþessa efnis fyrst og fremst með tilliti til bygginga á opnu hafi svo sem palla fyr- ir olíuborun á hafsbotni og rannsóknarstöðvar. Ennfremur er búizt við, að það verði mik- ið notað í stög, stór loftnet, og festingar í loftbelgi svo og við sjómennsku almennt. Ný- lega var „glastran” notað í stög í loftnetstum strand- gæzlunnar bandarísku og hef- ur reynzt með ágætum. Lítil vél, stórt hlutverk Hún gæti verið líkan af þrýstiloftshreyfli í leikfanga- flugvél hvað stærðinni viðvík- ur. En hún getur knúið 500 kg. geimskip hring eftir hring um hverfis jörðina. Hreyfillinn, sem er aðeins 28 cm langur, er smíðaður af geimferðastofnun Avco fyrir NASA. Hann notar aðeins watt til að fram- leiða þessa ofurkrafta. Tvö þrýstitæki úr ryðfríu stáli eru á geimfarinu til þes| að halda því á réttum kili i geimnum. Orkan fæst úr sólar ljósinu og er hægt að stjórna farinu með þessum tækjum^ sem eru hvort um sig, 1,8 cm langt. i Hinir hreyfanlegu hlutar vél arinnar eru mjög smáir, lilífin m yfir þeim er ekki nema 25 fer- m centimetrar. Orkugjafinn ei* ® ammoníak og getur vélin auð- veldlega starfað í kulda og þyngdarleysi geimsins. Véliri tekur eldsneytisbirgðir, sem endast í 3 ár, miðað við stöð- uga notkun. Vatnsbuna sem sker Kraftmikil vatnsbuna getur skorið sundur þumlungsþykka músteypu eða 55 lög af nylon- baðmullarefni án þess að missa afl. Þessi nýja aðferð er fólgin í því að vatnsbuna, sem er að- eins 5/1000 úr þuml. er knúin áfram með þreföldum hraða- hljóðsins eða um 1000 m á sek. Vélin vinnur með þrýstingi allt að 3500 kg. á fercentimetr- ann og. vatnsmagnið, . sem streymir í gegnum liana nemur um 160 1. á klst. Próf. Norman C. Franz, seiri er einn af smiðum þessarar- vélar við Michiganháskóia, heldur því fram, að hægt sé að búa til helmingi öflugri vél, sem sker um 50 cm múrsteypu, Þessi . vatnsskurður hefur marga kosti fram yfir aðrad aðferðir til að skera eða saga sundur hluti. Hann er mjög fljótvirkur og nýting efnisins er mjög góð, tækið er lipurt og endingargott. Ef timbur er safj að með venjulegri sög er sagar farið minnst 4-5 mm, en með1 nýju aðferðinni aðeins brot úr mm. 14. júní 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.