Alþýðublaðið - 14.06.1967, Síða 7
Nú eru tómatar að byrja að
koma á markaðinn hér, að vísu
eru þeir fhálfgrænir, en samt
bragðgóðir og alveg ferskir. Tó-
matar eru sérlega lystugir og
má borða þá með ýmsum mat
og þeir eru mjög gott álegg ofan
á brauð.
Fylltir tómatar.
8 meðalstórir tómatar,
2 harðsoðin egg,
2 tsk. saxaður laukur,
60 g. rifinn ostur,
krydd eftir smekk.
Skerið efst af tómötunum og
takið innan úr þeim. Hrærið
það vel í sundur og bætið saman
við söxuðum eggjunum, laúkn-
um, ostinum og kryddinu. Fyllið
síðan tómatana með þessu og
berið þá fram á salatblöðum eða
bakið í 10 mín í heitum ofni.
Berið fram með fylltu tómötun-
um soðið grænmeti og mayon-
naise.
Fleskomeletta með tómötum.
Steikið 3-4 flesksneiðar (skorn
ar í bita), takið þær síðan af
pönnunni og haldið þeim heit
um meðan omelettan er búin
ttil. Hrærið saman 4 egg og 4
matskeiðar af mjólk, einnig salt
og pipar. Gerið eina stóra eða
tvær minni omelettur og skiptið
í fjóra hluta. Setjið fleskið í
miðjuna og lokið omelettunni.
Borið fram með steiktum tóm-
ötum.
Makkarónur með osti og tóm-
ötum.
Sjóðið 120 g. af makkarónum
í söltuðu vatni. Látið síðan vatn
ið renna vel af þeim og hellið
sósunni yfir, sem gerð er úr 30
gr. smjörlíki, 30 gr. hveiti, rúml.
pela af mjólk og jafnmikið af
vatninu af makkarónunum, salt
og pipar, Vi tsk. sinrtep, 120 g.
ostur (geymið 30 g til að sáldra
yfir). Hitað í ofni í ca. 20 mín.
Með þessu eru bomir bakaðir
tómatar.
Kjúklingasalat.
3A pvrnd soðnir kjúklingar,
1 salathöfuð,
3 matskeiðar mayoinnaise,
1. lítil dós af grænum baunum,
3 matsk. rjómi,
4 flesksneiðar.
1 rauður piparávöxtur.
Skerið kjúklingakjötið frá
beinunum í ræmur. Þvoið salat-
blöðin og komið þeim fyrir í
skál. Blandið kjötinu saman við
mayonnaisið, baunimar, rjóm-
ann og saltið eftir smekk. Setjið
salatið síðan ofan á salatblöð-
in í skálinni og skerið flesksneið
arnar í litla bita, einnig pipar-
ávöxtinn og setjið ofan á.
Grænmetissalat með pylsum.
Vi hvítkálshöfuð,
2 rauð epli,
sítrónusafi,
2 gulrætur,
i grænn piparávöxtur,
1. lítil dós af grænum baunum,
rúml. peli af mayoinnaise,
krydd eftir smekk,
30 g. saxaðar hnetur,
1 pund pylsur. 1
Takið í burtu yztu blöðin af
kálinu. Skerið það til helminga
og takið stofninn í burtu. Saxið
blöðin fínt og setjið í sköl með
ísköldu vatni í 30 mín. Þurrkið
það síðan vel. Skerið eplin í
fjórðunga, takið burtu steinana
og skerið þau síðan smatt og
setjið yfir þau sítrónusafa. Skaf
ið gulræturnar og rífið þáer nið-
ur. Skerið piparinn til helminga
og takið í burtu steinana, saxið
síðan ávöxtinn. Setjið síðan hvít
kálið, (vel þurrt), eplin, gulræt-
urnar og piparinn í skál. Hrærið
rifna lauknum saman við mayo-
innaisið, hellið yfir grænmetið
og hrærið vel saman. Kryddað
eftir smekk. Söxuðum hnetum
er svo stráð yfir og soðnar pyls-
urnar settar ofan á.
Fylltir tómatar.
14. júní 1967
ALÞÝÐUBLAÐIÐ f