Alþýðublaðið - 14.06.1967, Blaðsíða 16
Tölur og talnaleikfimi
NÚ ER kosningáhríðinni slotað
og dagarnir aftur farnir að fá á
sig eðlilegan blæ. Borðarnir og
spjöldin og öll skilríkin hafa ver-
ið tekin niður aftur, meira að
segja líka stóru fallegu glans-
myndirnar af framsóknarmönnun-
um, sem voru negldar upp á hús-
vegg suður í Garðahreppi. Fólk
verður því að fara að leita að ann
ars konar listaverkum til þess að
gleðja augun með, en auðvitað
er allt, þetta kosningaskraut hengt
upp til þess að gefa fólkinu tæki-
færi til að auðga anda sinn á fag
urri myndlist — eða dettur nokkr
um annað í hug? — Það er að
minnsta kosti jfyrir því göm|ul
reynzla, að öll þessi umsvif hafa
sáralítil áhrif á úrslit mála; þeir
eru naumast margir, sem láta
fanga sig með áletruðum skraut-
foorða eða gífurstórum Stalín-
myndum, enda virðist það hafa
komið berlega fram í þessum
kosningum, þar sem nærri því
má segja, að árangurinn hafi
ptaðið í öruggu thlutfall!) við
metratölu uppnegldra borða.
Annars hafa blöðin meðhöndl-
að kosningaúrslitin á dálítið ó-
venjulegan hátt að þessu sinni.
Hér skal ekki sagt hvort það er
framför eða afturför, en Það und
arlega hefur gerzt, að m'álgögn
flokkanna eru nú engan veginn
sammála um að þeirra menn hafi
unnið frækilegan sigur. Blöðin
viðurkenna jafnvel að þeirra
flokltar hafi tapað, þegar þeir
hafa tapað og hefði það einhvern
tíma þótt saga til næsta bæjar.
Að visu örlar dálítið á því í svart
leturspistli Tímans, Staksteinum
eða livað hann heitir, að gerð er
tilraun til að 'uppbyrja svolitla
talnaleikfimi, enda hefur það
blað og skriffinnar þess óvenju-
lega hæfileika til þess að reikna
í prósentum, þannig, að útkoman
sé ævinlega þeim sjálfum í hag.
Prósentureikningur er nefni-
lega svo hreint ágætur með það,
að hann er einkar sannfærandi og
fræðilegur á ytra borðinu, en hins
vegar geta tölur hans verið mjög
.breytilegar eftir því hvað er mið
að við. Þess vegna er alltaf hægt
að fá háa prósentutölu þegar það
á við og lága þar sem það á við,
’ef bara samanburðargrundvöllur-
inn er rétt valinn. Og auk þess er
ekki endilega nauðsynlegt að hafa
neinn samanburðargrundvöll, því
að það nennir hvort eð er eng-
inn að fara yfir dæmið og athuga,
hvort það sé rétt. Það er gengið
út frá því að útkoman hljóti að
vera rétt, fyrst 'hún stendur á
prenti.
Tölur hafa mikinn sjarma, en
öruggasta ráðið í umgengni við
þær, mun þó vera að treysta þeim
varlega. Sérstaklega á þetta við
um prósentutölur, en atkvæðatöl-
ur geta svo verið tvíeggjaðar líka,
svo að ekki sé minnzt á buxna-
tölurnar, sem geta hrokkið af þeg
ar verst gegnir.
Þar er merkur, mætur, lieill,
svalt og bjart, þegar Gutt-
ormur var til moldar borinn.
Tímiun.
Tilkynning
frá Nýju mjólkurþjónustunni
Við aðstoðum okkar fóllc,
hvern íbúa ness og fjarðar,
og dreifing og miðlun á mjólk
er mál, sem alla varðar.
í einu orði sagt
þarf hér uppbyggingu frá grunni,
en mikil er okkar magt
í Mjólkurþjónustunni.
Við leggjum leiðslu í hvert hús
og látum mjólkina buna
og fyllum könnu og krús
í kappi við fjölskylduna.
Ef anginn æpir á mjólk,
þá auðvitað fær ’ann hana,
og uppgefið erfiðisfólk
þarf aðeins að skrúfa frá krana.
í.i . IK' f
i.r i
irn
— Viltu hætta að tala um mig sem „núverandi konuna þína“...
— Ég kom til að segja þér, að þessi hundur þinn... Fífí, hættu
þessum fleðulátum.
Mér fannst það skrýtið, sem
Tíminn hafði í gær eftir Ey-
steini, að það hefði munað
mjóu í kosningunum. Mér
skilst að það hafi munað
Helga Bergs og ég hef aldrei
fyrr heyrt sagt að hann væri
neitt tiltakanlega mjór.
Ef þessi þjóðhátíðarnefnd
ætlar að leggja þjóðhátíðina
niður, væri þá ekki besrt a*
byrja á því að leggja nefnd-
ina niður sjálfa?
Ég hef hlustað á svo mikið
af tölum að undanförnu, að
ég er alveg orðin uppgefln eg
ég hef þó liingað t41 þótt
vera tölug.