Alþýðublaðið - 18.07.1967, Blaðsíða 16
á
rAT
memxs)
Meðvitundarleysi
KOLLEGA vorum Þjóðviljanum
er mlkið niðri fyrir á sunnudag-
inn og hefur eftir sænskum
drjóla, að í framtíðinni, eða eftir
svo sem 30 ár, verði flugfarþegar
fluttir meðvitundarlausir milli
heimsálfa með 20.000 km. hraða
á klst. Það fylgir og fréttinni, að
á ákvörðunarstað verði læknar og
hjúkrunarkonur til reiðu að vekja
faríþegana til lífsins
Á þessu er auðséð að tíminn
Og Þjóðviljinn eru ekki samferða
Og Þjóðviljinn ívið á eftir. Við
Iiér á baksíðunni höldum því blá
kalt fram, að meðvitundarleysi í
háloftunum sé svo til jafngamalt
fluginu eða rösklega sextugt, þá
er og minnisleysi algengt nú á
tímum i sambandi við flugið og
állskyns kvillar aðrir, svo sem
eins og lofthræðsla. innilokunar-
kennd og ránstilhneiging. —• Að
ekki sé nú talað um þá, sem
sprengja tengdamæður sínar í
'eftí uppi ásamt öllum söfnuðin-
um og hirða svo stórfé frá trygg
ingarfélögum og sennilega eru
Þetta einu dæmi þess, að tengda-
mæður láti eitthvað gott af sér
leiða.
Þessi atriði öll eru verð alvar-
legrar íhugunar og ekki tímabært
enn að brjóta heilann um hvað
framtiðin kann að bera í skauti
sér { þessu efni, hvort það er
skipulagt meðvitundarleysi — eða
eitthvað annað.
í millilandaflugi geta farþegar
orðið sér úti um afskaplega þægi
legt meðvitundarleysi fyrir til-
tölulega vægt gjald. Það er á
litlum fleygum og i vökvaformi.
Það er tekið inn í misjafnlega
stórum skömmtum, er bragðgott
Og þarf ekki að hrista áður en
bi*úkað er. Persónulega myndi ég
taka slíkt meðvitundarleysi fram
yfir það, sem Svíinn gerir grein
fyrir í Þjóðviljanum. (Enda geri
ég ráð fyrir að þessi Svíi sé þjóð
sinni til skammar að þessu leyt-
inu, eða hver hefur ekki kynnzt
meðvitundarlausum Svíum í
.Borginni við Sundið?“)
Þá eru það þeir, sem ekki þola
að sitja við glugga og kalla á flug
freyjuna í livert skipti sem flug-
vélin tekur dýfu og biðja hana
að skila til flugstjórans að fljúga
varlega og forðast þessi fjandans
hvörf. Þessir menn eru i senn loft
liræddir og bilhræddir.
Enn eru það þeir, sem brjóta
sér leið inn í flugstjórnarklefann
og pota hlaðinni skammbyssu i
bakið á flugstjóranum Þeir eru
venjulega óánægðir með seina-
ganginn á framreiðslu meðvitund
arleysisins og hafa gert árangurs-
lausar tilraunir til að taka flug-
freyjurnar á löpp. Nú heimta þeir
að flugstjórinn stoppi við næsta
bar, þar sem hægt sé að komast í
kynni við alminlegar stelpur og
skjóta afgreiðslu. Þessir eru í
senn yfirmáta kven6amir, drykk-
felldir og vanir að láta 'hendur
standa fram úr ermum. Kannski
Skagfirðingar.
Sumir menn eiga það til að
standa upp einhvers staðar yfir
miðju Atlantshafi, ganga aftur
að dyrunum og tilkynna hátíðleg-
ir á svip, að þeir ætli að fá sér
spássértúr á næsta skýi. Þeir eru
með svonefnda innilokunarkennd.
Þá, sem leggja í vana sinn að
sprengja tengdamæður sínar í Ioft
upp í háloftunum í flugvél fullri
af farþegum, verð ég að setja
neðst á blað. Hvað svo sem segja
má um tengdamóðurina og hvað
sem hún á skilið, þá er þessi að.
ferð til að losna við hana ákaf-
Iega ónærgætnisleg gagnvart hin-
um farþegunum, eo sumt af þeim
getur verið ágætisfóik. Það hljóta
að vera t:l óteljándi aðrar leiðir
til að losna við hvimleiðar og
tannhvassar tengdmæður. T. d.
mætti hrinda þeim niður af hús-
þaki, gefa þeim rottueitur í kaff-
inu, drekkja Iþeim í baðkarinu o.
s. frv. Sennilegasta ástæðan fyr-
ir því að undirokaðir tengdasyn-
ir velja þessa leið út úr ógöngun-
um er sú, að þeir þoli ekki að
standa frammi fyrir tengda-
mömmu og horfast í ásakandi
augu hennar á dauðastundinni eða
á hættu að hún lifi morðtil-
raunirnar af, en til þess væri
hún vissulega vís. Svo þyrfti hann
ef til vill að standa frammi fyrir
tryggingarfulltrúum og lögreglu
og reyna að skýra fyrir þeim,
hvers vegna tengdamamma hafi
dottið ofan af húsinu, hvernig
rottueitrið hafi komizt í kaffið
eða hvernig kona með hennar
holdarfar, hafi getað drukknað
í baðkarinu.
Að öllu samanlögðu verðum vér
að ráðleggja Þjóðviljanum að
næst þegar hann rekst á skrif um
meðvitundarleysi — að forðast
sænskar heimildir um það efni.
Það voru risastór auglýsinga
spjöld, sem hvöttu menn á*
k'aft til þess að reykja Camcl,
drekka Campari og þar fram
eftir götunum, sem sýndu að
svo yrði varla_
Morgunbl. 16. júli
Nú segja þeir, að Hafnar«
stræti sé orðið aðalferða-
mannagatan. Öðru vísi mér
áður brá. ^
Vísir kallar pæjurnar, sem
afgreiða í Hafnarstrætl
„ljóskur“. Það var svei mér
gott að hann stafaði það ekkl
með zetu.
Mér hefur nú alltaf fallið
illa að sitja vlð opinn glugga
í flugvél. Það myndast svodd
an dragsúgur