Alþýðublaðið - 18.07.1967, Blaðsíða 10
t=JRitstjóri Örn Eidsson
OXg
Akurnesingar reyndust sterk-
ar sigruöu KR með 2-0
ÞAU óvæntu úrslit urðu í leik
KR ogr Akurnesinffa á sunnudagr-
inn, í seinni umferff I. deildar,
aff Akumesingar fóru meff sigur
af hólmi. Miffaff viff gang mála
í kepninni hingaff til, þar sem
Akurnesingar biffu hvern ósigur-
inn af öffrum, munu vist fáir hafa
gert því skóna, aff Akurnesingar
fengju rétt hlut sinn ajf þessu
sinni, svo aff nokkru næmi, hvaff
þá heldur jafnknálega og raun
varff á. En enginn skyldi ganga
fram til kcppni í hinni dular-
fullu knattspyrnuíþrótt sem sig-
urvegari fyrirfram. Á þessu sviffi
gildir ekki aff öllum jafnaði sá
frægi málsháttur: Aff koraa, sjá
og sigra. Ekki er þó veriff aff
fullyrffa meff þessu, aff KR-ingar
hafi litið á sig sem sigurvegara
fyrirfram, og þaff hafi m. a. átt
sinn þátt í úrslitunum, til þess
eru liffsmenn þeirra yfirleitt of
veraldarvanir og skynja sízt öjjr.
um verr, aff ,,allt getur skeff í
knattspyrnu". Hins vegar miffað
viff fyrri leik sinn viff ÍA, ,sem
vannst næsta létt meff 3 mörk-
um gegn affeins 1 á heimavelli
og aff ÍA-menn hafa tapaff sex
leikjum meff 18 mörkum gegn
affejns 5, var þaff kannski engin
goffgá aff láta sér detta í hug aff
úrslitin yrffu ekki meff þeim
hætti, sem raun varff á. En hvaff
sem þessu líffur og því sem sagt
er, aff áriff í ár sé KR-ár, er
það víst aff sunnudagskvöldið var
var ekki KR kvöld.
Að undanskildu hörkuskoti frá
íeig. Skyndilega tókst svo Akur-
lesingum aff hefja sókn, sem
lauk með skoti frá Þórði Jóns-
syni v. útherja, sem kominn var
vfir á hægri væng. Knötturinn
íiafnaði í netinu. KR-ingar sóttu
[ sig veðrið við þetta næsta ó-
rænta „áfall“ hertu sóknina að
mun. En þrátt fyrir allt, tókst
ekki að jafna, þó næsta litlu mun
aði er h. útherji þeirra, Jóhann
Reynisson komst i gegn og skaut
snarplega að markinu, en Einar
markvörður greip inn í og bjarg-
aði mjög vel. Var frammistaða
hans í leiknum í heild með ágæt-
um. Eins og t. d. er hann greip
knöttinn úr hörkuskoti Eyleifs
nokkru síjar
En þrátt fyrir harðari sókn KR-
inga í fyrri hálfleiknum tókst
þeim ekki að ná því að skora.
Þeir léku oft laglega úti á vell-
inum en skorti herzlumuninn er
upp að marki var komið.
Er um 10 mínútur voru liðnar
af síðari hálfleiknum bættu Akur-
nesingar öðru marki sínu við.
Björn Lárusson skoraði að þessu
sinni, úr mjög laglega fram-
kvæmdri sendingu frá Guðjóni
Guðmundssyni. Var þetta næsta
óverjandi skot, fast og snöggt.
— Aðeins fimm mínútum síðar
skaut Baldvin Baldvinsson yfir úr
hornspymu, var þag eitt með
betri færum KR í síðari hálf-
leiknum. Skömmu áður hafði Guð
mundur Hannesson varið lausan
bolta á marklínu.
Framan af þessum hálfleik
sóttu KR-ingar meira, en er á
leið jafnaðist leikurinn og Akur-
nesingar áttu mjög skemmtilega
leikkafla, þar sem knötturinn var
látinn ganga viðstöðulaust frá
manni til manns. Skall þá oft
hurð nærri hælum við KR.mark-
ið, er skotin lentu oftar utan við
eða yfir en á markinu sjálfu, en
þó svo væri, 'bjargaði Magnús
vel.
Leikurinn, sem búizt var vig
að yrði með einstefnublæ, var í
heildinni miög fiörugur og spenn
andi, og skemmtilega leikinn á
þáða bóga, ekki hvað sízt af
hálfu Akurnesinga, sem sýndu
oft þin ágætustu viðbrögð
Einar Hjartarson dæmdi leik-
inn og gerði það að öllum jafn-
aði vel.
FH fær nýtt
athafnasvæði
Markvörffur Akurnesinga skutlar sér, en árangurslaust.
Birni Lárussyni þegar á annarri j Akurnesingar vörðust af kappi og
mínútu leiksins, en fram hjá i KR ingum tókst ekki að skapa
stöng, voru KR-ingar í öruggri
sókn fyrstu 10 mínútur leiksins.
sér þá skotaðstöðu sem dugði.
Enda oft þröngt um vik á víta-
KK-mgur og AKurnesmgur Kijast um noitann.
Fimlaikafélag Haflnarf jarðar
hefur nýlega fengið nýtt athafna
svæði fyrir starfsemi sína. Félag-
inu hefur tvisvar áður verið út-
hlutaður staður fyrir íþrótta-
svæði, en í bæði skiptin varð að
draga úthlutunina til baka vegna
skipulagsástæðna. Skipulags-
stjóri ríkisins hefur nú lagt bless-
un sína yfir staðsetningu nýja
svæðisins, svo að F.H.-ingar geta
hafizt ótrauðir handa við vallar-
gerðina, án þess að óttast frekari
breytingar.
Nýja svæðið er staðsett í
Kaplakrika við Þórsberg og mun
sennilega bera nafn af því ör-
nefni og kallast Kanlakrikavöll-
ur. Svæðið, sem félagið hefur nú
þegar fengið, er um það bil 6
hektarar að flatarmáli, en jafn-
framt fylgdi Ioforð um allt að
3 hekturum til viðbótar, ef nauð-
syn krefði.
FH-ingar eru afar ánægðir
með nýja svæðið, enda er það
frá náttúrunnar hendi miög vel
hentugt til vallargerðar. Nú er
hentugt til vallagerðar. Nú er
unnið við mælingar og skipu-
lagningu svæðisins og ætla menn
að hægt verði að hefja undir-
vinnslu grasvallarins þegar í
næstu viku, en á svæðinu á að
vera fullkominn grasvöllur fyrir
knattspyrnu. Auk þess verður
einn malarvöllur fyrir knatt-
spyrnu og tveir handknattleiks-
vcllir.
Eins og fyrr segir verður
byrjað á grasvellinum, en eins
og sakir standa hafa Hafnfirð-
ingar engan slíkan völl til af-
nota, en fegurð og töfrar knatt-
spyrnu þykja hvergi koma eins
vel fram og þegar hún er leikin
á grasvelli. Er knattspyrnuunn-
endum í Hafnarfirði því mikill
akkur að þessum nýja veíli og
þótt' hann standi f éign og um-
sjá FH-inga. munu aðrir íþrótta-
menn í Hafnarfirði að sjálfsögðu
einnig njóta góðs af honum.
íþróttaáhugi er mikill í Hafn-
arfirði. einkum meðal yngri kyn
slóðarinnar og mikill fjöldi tekur
þátt í íþróttastarfsemi. Tvö í-
þróttafélög eru starfandi í Firð-
inum, F.H. og Haukar, bæði í
miklum blóma. Þó þykir mörg-
um íþróttaáhugamönnum súrt í
broti, hve hafnfirzk knattspyrna
hefur lotið lágt undanfarið, —
þrátt fyrir mikinn áhuga bæjar-
búa fyrir þeirri íþróttagrein. —-
Stafar þetta af því, að íþróttafé-
lögin hafa ekki borið gæfu til
þess samstarfs, sem í öllum öðr-
um bæjum af svipaðri stærð og
Hafnarfjörður er talið sjálfsagt
og nauðsynlegt til árangurs. Er
það eindregin von allra sannra
velunnara íþrótta í Hafnarfirði,
að félögin þvoi þennan blett af
íþróttaheiðri sínum og leiti eftir
nánara samstarfi, þar sem það á
við.
10 18. júlí 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
K .