Alþýðublaðið - 28.07.1967, Blaðsíða 1
Föstudagur 28. júlí 19G7 — 48. árg. 168. tbl. — VERÐ í KR.
Frú Tshombe
leitar á
náðir SÞ
New York, 27. 7. (NTB-Reuter)
FRÚ Ruth Tshombe lagði í dag
fram beiðni til Sameinuðu þjóð'-
anna þess efnis, að alþjóðleg túlk
un habeas corpus ákvæðanna væri
liöfð sem undirsíaða kröfu um,
að' eiginmaður hennar, Moise
Tsliombe, yrði ekki afhentur yfir-
völdum í Kongó, en þar bíður
hans dauðarefsing.
í liabeas corpus ákvæðunum seg
ir, að ekki megi halda neinum
nianni í fangelsi án þess að lög-
legur dómstóll hafi gefið út hand
tökuskipun á hann-
Lögfræðingurinn Louis Kutner,
sem er fulltrúi frú Tshombe, sagði
að beiðnin ihefði verið lögð fyrir
mannréttindadeild SÞ og þar var
i>ví lofað, að málið skyldi tekið
til umræðu. Afrit af bónarbréf-
inu var sent til sendinefnda Kon-
gó, Alsír, Bretlands og Spánar.
j|Fær ekki að|
| koma afíur
5 London, 27. 7. (NTB-Reuter)
'|breZKA stjórnin ætlar ekki
11 að Ieyfa hinum öfgafulla
11 bandaríska negraleiðtoga S.
i • Carmichael að koma aftur til)
] J Bretlands, sagði Roy Jenkins,',
(• innanríkisráoh. í neðri deild
] I inni í daff- ! i
i1 Carmichael fór frá Bretlandif
]i 24. júlí eftir stutta hcimsókn.t
(I Þegar hann var farinn, fréttist
11 að lögreglan hefði kynnt sér
]i allt, sem hann hefði aðhafzt í
(> Breitlandi ogj allt sem liánn
l1 sagði á fiuidum, sem liann var
á þar í landi.
De Gaulle ótrauður
París, 17. 7. (NTB)
DE GAULLE, Frakklandsforseti,
var hinn hressasti, þegar hann
kom til Parísar í nótt úr hinni
frægu ferð sinni til Kanada. Það i'vellinum í nótt. Þvert á móti á
var engir.n iðrandi syndari, sem hann að hafa sagt þeim strax, að
hitti Pompidou, forsætisráðlierra haJm mundi verja sig af hörku,
og fleiri stjórnarm.eðlimi á flug- þegar Kanadaför hans verður tek
Bæjarfulltrúi
í Hafnarfirði
segir af sér
Misferli vi5 Bæjarútgerðina,
sem þegar hefur verið leiðrétt
í UPPHAFI fundar í bæjarstjórn
Hafnarfjarðar í gær, var lögð
fram tilkynning frá Kristni Gunn-
Kyrrt /
en v/ðo
New York 27/7 (NTB-Reuter).
Þreyttir oij taugaveiklaðir her-
mnn virtust hafa öll völd í Detr-
oit í dag, en kynþáttaóeirðir uröu
i mörgum öörum bandarískum
borgum. í borgarhverfinu Man-
hattan í New York og í negra•
Detroit,
óeirbir
hverfunum í San Fransisco og
Los Angeles kam til vopnaöra
átaka á milli þeldökkra uppreisn
armanna og lögreglunnar.
Vitað er um 37 manns, sem
látið hafa lífið í átökum síðustu
Framhald á bls. 15.
arssyni, þar sem hann sagði af
sér störfum sem bæjarfulltrúi Al-
þýðuflokksins og fulltrúi í íft-.
gerðarráði Bæjarútgerðar Hafnar-
fjarðar.
Á fundinum voru lagðar fram
fundargerðir útgerðarráðs, þar
sem fram komu upplýsingar inn
nokkurt misferli í fjárreiðum bæj
arútgerðarinnar á þeim tíma, er
Kristinn var þar fi-amkvæmdastj.
Var þar um að ræða 700.742,00
kr., en Kristinn hefur þegar gert
upp þessa skuld sína með fuUum
vöxtum að nokkru leyti með bein-
um greiðslum og nokkm með veð
tryggðum skuldabréfum. Er því
Framhald á 15. síðu.
]> SÍ LDARFLUTNIN G ASKIPIÐ
f Síldin kom kom á ytri höfn-
']ina í gærdag og lagðist að
(I löndunarbryggju Síldarbræðsl-
* unnar í Örfirisey um 8 ieytið
í gærkvöldi, þar sem farmur
hennar verður bræddur. Síld-
in kemur af síldarmiðunum
norður af Jan Mayen. Skipið
er með fullfermi, rúmlega 3000
smálestir af síld og var 5 sól-
l1 arhringa á leiðinni hingað til
Reykjavíkur.
(I Jónas Jónsson, forstjóri Síld.
l1 arverksmiðjanna sagði í sím-
* ] tali við fréttamann blaðsins, (>
]>að ferðin heim hefði gengið íl1
(»alla staði vel, en fjariægðin](
til miðanna væri svo gífurleg/
að ókleift væri að halda flot-
nnum úti á þesstmi mÚum
nema því aðeins að hafa síld-
arflutningaskip. Síldveiðarnar
núna byggðust á því aö til
væru tvö flutningaskip, annars
væri þetta ekki hægt, sagði
Jón. Þau flytja vistii-, olíu og
vatn handa flotanum, skipin
kænj’jst sum hver ekki í land
að öðrum kosti og önnur yrðu
að halda þessa löngu leið til
hafnar til að sækja föng, ef
flutningaskipin kæmu ekki til
þeirra. Síldarflutningaskipin
eru því birgðaskip um leið.
in til umræðu á stjórnarfundi á
mánndaginn.
Þegar á það Var minnvtt við
hann, að hann hefði verið mjög
gagnrýndur í leiðurum kanadiskra
blaða, sagði hann bara: „Þessir
pennastrákar hafa ekkert sögu-
legt gildi“.
í París er þó um það talað, að'
thann dró ekki dul á það, hvernig
landið liggur, — þar eð ihanu
sendi Lester Pcarson, forsætisráð1
iherra, ekkert kurteisisskeyti eins
og venja er, þegar þjóðhöfðingj-
ar halda heimleiðis eftir opinbera
heimsókn- í stað þess sendi hann.
forsætisráðherra kanadíska rík-
isins Quebec þakkarskeyti.
Frönsku blöðin fara hörðum orð
um um de Gaulle í dag eins og í
gær. í Le Figaro segir þó, að það
hafi aldrei verið ætlun de Gaulle
að hvetja aðskilnaðarsinna í Que*
bee til þess að segja sig úr lögum
við sambandsstjörnina, þött um-
mæli hans séu í anda þeirrar
gaullísku stefnu, að valdajafnvægi
eigi að haldast í heiminum.
Kommúnistahlaðið L’Humanité,
sem venjulega styður utanríkis-
stefnu de Gaulle, sakar forset-
ann um að hafa ekki farið eftir
Framhald á bls. 15.
Miklir jarð
skjálftar í
Tyrklandi
Istanbul 27. 7. (NTB-Reuter)
TVEIR miklir jarðslrjálftar urðu
í tveim-ur héruðum í Ausiur-Tyrk-
landi í gærkvöldi og aðfaranótt
fimmtudags, og þegar er vitað,
að á annað hundrað hafa farizt.
Það era aðeins fimm dagar síð
an að jarðskjálftar urðu í Vestur.
Tyrklandi, en þá fórust 83 menn,
en margir meiddust meira eða
minna.
Þetta er í þriðja skiptiö á einu
ári, sem miklir jarðskjálftar
verða í Tyrklandi. í ágúst í fyrra
urðu jarðskjálftar í Tyrklandi og,
þá biðu 2.242 menn bana.
Jarðskjálftarnir nú hala valdið'
mestu tjóni í fjallaþorpum, sem
eru mjög einangruð og ekki er
unnt að komast til sumra þeirra
nema ríðandi eftir þröngum stíg-
um. Búast má' við þvl að miklu.
meiri slys og eyðilegging hafi orð
ið en vitað er um.