Alþýðublaðið - 28.07.1967, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 28.07.1967, Qupperneq 4
ŒtEQHD Bltstjórl: Bonedikt Gröndal. Simar 14900—14903. — Auglýsingasíml: 14906. — Aðsetur: AlþýðuhúsiS við Hveríisgötu, Rvik. — Prentsmiðja AlþýOublaðsins. Siml 14905. — Áskriftargjald kr. 105.00. — t lausa- sölu kr. 7.00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðuflokkurlnn. Sjónvarpið ÍSLENZKA SJÓNVARPIÐ byrjar útsendingu á ný eftir sumarleyfi næstkomandi mánudag. Reyndist ó- hjákvæmilegt að hætta sendingum í júlí til þess að starfsliðið, sem hefur lagt mikið á sig fyrstu mán- uði sjónvarpsins, gætLfengið eðlileg sumarleyfi. Hlé þetta var þó ekki síður til þess, að hægt væri að .setja upp þau tæki, sem eiga að verða til frambúð- ar í sjónvarpsstöðinni. Hingað til hefur að verulegu leyti verið notazt við gömul lánstæki. Nokkur blaðaskrif hafa orðið um það, hvort sex daga útsending hefjist 1. september næstkomandi og Keflavíkursjónvarpið verði þá takmarkað við flug völlinn eða ekki. Hafa ýmsir látið í Ijós, að ekki verði unnt að sjónvarpa sex daga nema fjölga starfsliði stofnunarinnar, en um það hefur ekki verið tekin endanleg ákvörðun. Sannleikurinn er sá, að eftirvinna hefur verið svo mikil við sjónvarpið, að ekki er unnt að sjónvarpa fjóra daga áfram án þess að fjölga starfsliði og koma vinnutíma fólksins í skaplegt horf. Fjölgun sjón- 'varpsdaga í sex (sem hefur alla tíð verið áformuð og undirbúin) hefur ekki úrslitaáhrif á þetta mál. Snemma í sumar lágu fyrir tillögur, þar sem sýnt var fram á, að unnt væri að fjölga starfsliðinu án þess að útgjöld sjónvarpsins aukist eða það fari út fyrir ramma gildandi fjárlaga. Þetta mál hefur ver- ið í ítarlegri athugun, og er ákvörðunar að vænta innan skamms. íslenzka sjónvarpið hefur allt orðið nokkru stærra í sniðum en upphaflega er áformað. Af þessum sök- um er húsnæði, tækjakostur, starfsmannaþörf og síð ast en ekki sízt dagskráin allt nokkru meira og stærra en í áætlunum. Með tilliti til þessara að- stæðna eru byrjunarefiðleikar sjónvapsins eðlilegir. Þeir, sem kunnastir eru sjónvarpsmálinu, spáðu fyrir nokkrum árum, að íslenzkt sjónvarp mundi á 3-4 árum vaxa og þurfa um 100 starfsmenn, en nema þar staðar. Reynslan hér er hin sama og alls staðar anr.ars staðar. Sjónvarpið fær svo góðar mót- tökur, að vöxtur þess verður mun hraðari en nokk- urn óraði fyrir. En tækjakaup ganga einnig hraðar en búizt var við, svo að tekjurnar verða nægar. Fjár- hagur sjónvarpsins í ár og næsta ár virðist vera tryggur, enda þótt nokkrum hópi starfsmanna verði bæ-t við á næstunni. Það hefur verið á almanna vitorði síðan síðastlið- inr vetur, að stefnt væri að 6 daga sjónvarþsdagskrá 1. sepíember, og Keflavíkursjónvarpið mundi þá verða takrrarkað við flugvöllinn. Farsælast er að leggja ríka áherzlu á að þessar áætlanir haklist og er það spá Alþýðublaðsins, að sjónvarpsnotendum muni þykja þessi skipan mála eðlileg og viðunandi, þegar bún verður komin á. Verkstjórar vilja kynna samtök sín 12. þing Verkstjórnasambands íslands var haldið dagana 15. og 16. júlí s- 1. að Hallormsstað. Til þingsins voru mættir 41 fulltrúi fyrir 9 félagsdeildir, en félög inn an sambandsins eru nú 14 með 680 félagsmönnum um allt land. Á þinginu var fjallað um hin margvíslegu áhugamál samtak- anna, þó fræðslumál vcrkstjóra og kaup- og kjaramál hefðu borið hæst. Álit þingsins var að nauðsyn beri til að auka og efla menntun verkstjóra, þannig að þeir séu bet- ur færir um að annast þau verð- mæti, sem um hendur þeirra fara, bæði peningjaleg verðmæti, en þó ekki síður þau mannlegu verð- mæti einstaklinganna, sem þeir stjórna. Þingið taldi að nauðsyn beri til að iaunakjör verkstjóra séu bætt, einkum með það í huga að með því sé starfið gert eftirsóknarvert og þannig fáist betri og hæfari menn til þess að gegna því, enda sé það þjóðhagslegur ávinningur, Verkstjórasamband íslands lief- ur ákveðið að hefja fljótlega kynn ingu á samtökunum og reyna með því að ná inn í samtökin öllum þeim, sem að verkstjórn starfa, þannig að þau séu færari um að gegna sínu hlutverki en hingað til. í stjórn Verkstjórasambands ís- lands til næstu tveggja ára voru kjörnir: Forseti Björn E. Jónsson Reykjavík. Varaforseti Þórður Þórðarson Hafnarfirði. Meðstjórncndur: Atli Ágústson Reykjavík, Adolf Petersen Reykja vík, Guðm. B. Jónsson Vogum, Guðni Bjarnason Reykjavík og Helgi Pálsson Reykjavík. Ofnkranar, Tengikranar, Slöngukranar, Blöndunartæki. Burstafell bysffingavöpuverílun Réttarholtsvegl 3. Síml 3 88 40. wpeaw krossgötum ★ EINSDÆMI í VER- ÖLDINNI ? Þeir eru líklega ekki margir, sem hugsa út í það, þcgar ekið er út úr borginni yfir brýrnar á Elliðaánum, að líklega er Reykjaj vík eina höfuðborgin í veröldinni sem státað getur af slíkri iaxveiðiá við bæjardyrnar hjá sér og mun þetta líklega vera einsdæmi í veröldinni, þótt ekkert skuli hér fullyrt um það. Margt var um manninn inn við Eliiðaár um síðastliðna helgi. Þar var fólk að virða fyrir sér viðureign laxveiðimanna við þann eðla fisk, sem þeir gefa stórfé fyrir að komast' í tæri við, en líklega hefur ekki mörgum flogið það í hug, hvrsu iagætt það er, að borgarbúar skuli geta fylgzt með veiðimennsku svona sem sagt við þröskuldinn hjá sér. Eiliðaárnar eru ekki allar þar sem þær eru séðar. Margir eru þeir, sem iítið hafa séð af ánum, nema spottann þann, sem sýnilegur er frá brúnni, þegar ekið er Suðurlandsbrautina. Það er góð skemmtun (og ódýr) að ganga upp með Elliðaánum, upp að Elliðavatni. Ekki skulum við hér hætta okkur á þann hála ís, að fara að lýsa þar örnefnum eða staðháttum neinum. Hér skal það aðeins látið nægja að segja, að árnar breyta mjög um svip er ofar dregur og verða varia þekkjanlegar miðað við það, sem er niður við sjó. Hið efra renna þær milli grasi gróinna bakka og kjarr er á stöku stað. Þessi gönguferð svíkur engan. | ★ HÆTTA ER Á FERÐUM. Miklar framkvæmdir eru nú f Elliðaárósum. Þar er verið að mynda land og skal þar með tímanum vera skemmtigarður. Ekki hefui? þó verið farið þar að öllu með forsjá. Byrjað vap að fylla upp í voginn með gömlum bílhræjum á sínum tíma. Til allrar hamingju var það stöðvað. Olía hefði verið að síast úr vélum og gírkössum bílanna næstu fimmtíu til hundrað árin og geta eyðilagt margt, sem aldrei hefði verið hægt að bæta. En hættan er ekki aðins niður við sjóinn, heldur upp með ánum líka. Þar hafa nú verið byggð hesthúg skammt frá árbökkunum. Hafa margir orðið til þess að benda á menningarhættuna, sem frá þeim slafar gagnvart vatninu í ánum, en því hefur atf engu venð sinnt. Væri til dæmis fróðlegt að vita hvort náttúruverndarnefnd Reykjavíkur hefði ver. ið spurð álits um þessar framkvæmdir og hvorb hún hefur lagt blessun sína yfir þær. Ýmsar aðrap framkvæmdir eru þarna og á döfinni, sem spillb gætu um alla framtíð þeirri perlu, sem Elliða* árnar eru. Víða í kringum árnar er jarðvegurinn ílakandi í sárum, sem langan tíma tekur að græða. Mikið er búið að eyðileggja í kring um Elliðaárnar, en það er þó áreiðanlega ekki ot seint, að bjarga þeim, ef strax er hafizt handa, en þar má engin bið á verða. — K a r 1. 4 28. júlí 1967 ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.