Alþýðublaðið - 28.07.1967, Blaðsíða 8
Vetrartlzkan 1967 í Parls
Maxi-síúlkan frá Jacquel Esterel. — Útifatnaður: kápa, dagfatnaður: pils, kvöldfatnað'ur: röndóttar
buxur. Há stígvél notuð við allt saman.
svart. Einstaka gulir hjálmhattar
sjást þó. Og síddin á flíkunum
hjá Esterel er alls staðar sú
sama, 27 cm. frá gólfi.
Og það sem einna mesta at-
hygli' vakti hjá Esterel, voru
handtöskurnar, sem sýningar-
stúlkurnar bái*u; dýrindis leður-
töskur, en í staðinn fyrir botn-
inn var komið fyrir ferköntuðu
búri, þar sem þær höfðu upp-
áhaldsdýrin sín, t. d. kom Bibe-
lot, ein sýningarstúlknanna fram
með hvíta mús i töskubúrinu
sínu, og það lífgaði mjög upp á
svarta kápuna að hafa svona
hvíta og fallega mús, sem hún
lét svo skríða upp og niður eftir
kápunni.
Fötin, sem sýnd voru þennan
fyrsta dag tízkuvikunnar í París
voru sannarlega dökk og drunga-
leg og andstæða við þá skæru
liti og léttu föt', sem við höfum
vanizt undanfarið. Hjá Tellin,
Scherrer, de Rauch, Serge Les-
ange, Chombert og Esterel er
alls staðar að sjá sömu tilhneig-
ingu: vinsælu gulu, fjólubláu og
orange litirnir eru horfnir, einn-
ig víðu, þægilegu kjólarnir, —
stuttu pilsin og slétta liárið, allt'
horfið. Sídd kjólanna er dálítið
mismunandi, en þeir eru greini-
lega síðari en þeir liafa verið
undanfarið ár.
Þetta er ekki þægilegt fyrir
þær, sem loksins hafa tekið sig
til og stytt kápurnar sínar fyrir
veturinn. Það er þó ekki ómögu-
legt að næstu daga komi fram
fleiri hugmyndir, en margt bend-
ir til, að vetrarkápurnar verði
síðar. Það er sem sagt skammt
öfganna milli. Mörg fatanna nú
líkjast mest' kjólum Joan Fontain-
es á árunum eftir 1930, ef ein-
hver man eftir henni úr kvik-
myndum frá þeim tíma.
Og slétta hárið virðist alveg
horfið og Alexandre sýnir langa,
lausa slöngulokka — eins og Me-
dúsu forðum — þegar Zeus refs-
aði henni og tveimur öðrum gyðj-
um fyrir óhlýðni og lét þeim
vaxa slöngur úr höfði í stað hárs.
Það er þó enn verra hjá Pi-
erre Robert, sem sýndi smá-
krullað hór með stífu permanenti,
hálfsítt og lakkslaufur til skreyt-
ingar við eyrun. Sýningarstúlk-
urnar hans Esterels eru allar pla-
tínu-ljóshærðar með smákrullað
hár og andlitin eru eins og á
Það verður dýrt að fylgjast
með komandi vetrartízku. Stuttu
pilsin virðast vera að hverfa —
en flest pilsin, sem sýnd voru
í París nú í vikunni voru síð og
voru í ýmsum síddum. Sýningar-
stúlkurnar voru nú með gullkorn
á kinnunum í staðinn fyrir ljós-
rautt og hárið snarhrokkið. Sum-
ar voru í stuttum pelsum og við
þá i stígvélum, sem náðu upp á
mið læri og voru stigvélin úr
sama skinni og pelsinn. En það
eru síddirnar, sem mest er rætt
um í París. Sýningarstúlkurnar
festa faldana við asfaltið á göt-
unum, þegar þær sýna ökklasiða
tweedfrakka. Og fólkið, sem áð-
ur hneykslaðist á stuttu pilsun-
um, hneykslast nú enn meira á
því ökklasíða. Hjá Jacques Est-
erel voru sýningarstúlkurnar
flestar klæddar hálfsíðum buxum.
Og hvílíkar buxur — víðar og
allt frá kvöldfatnaði úr flaueli i
röndóttar tweedbuxur og við
þetta voru stúlkurnar í leðurstíg-
vélum, sem náðu upp á mitt læri.
Utan yfir voru svo pils og káp-
ur, sem náðu jafnlangt og
buxurnar eða niður á mið.ia
kálfa. Það virðist sem Esterel
hafi verið fátækur að hugmynd-
um þetta árið og aðalliturinn hjá
honum er svarti, svart og aftur
Gyðjur eða
tunglmeyjar
tungimeyja.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Hjá Madeleine de Rauch — sem
í fyrra sýndi stutta kjóla, hefur
nú síkkað kjólana um nokkra
sentimetra og litirnir eru mild-
ari. Það eru engir áberandi litir
eins og á janúar-sýningunum, en
mikið af svörtu, t. d. svartar dragt-
ir úr ullarefni með stúttum
jakka. Við þær eru notaðar
brúnir skór og röndótt jersey-
blússa, með brúnum, svörtum og
hvítum röndum.
Og síðast en ekki sízt, á þess-
ari sýningu. þar sem stígvél voru
yfirleitt ekki. sýnd, vorú sokk-
arnir nú aftur brúnir. Og hvítu
sokkarnir, sem vöru svo vinsælir
sjást nú ekki.
Paco Rabanne er nú sá, sem
gerir nýstárlegustu hattana í
París og hér sjáum við nokkur
dæmi. Rabanne hefur m, a. gert
hjálmhattinn og virðlst - hann *
gegna sérstöku hlutverki i vetr-
arkuldunum, sem sagt, að varna
því að konur gangi rauðnefjað-
ar. Hatturinn er gerður eftir
gömlum grískum stríðshjálmum,
og hann er úr grænu filti.
Á stóru myndinni sjáum við
Mánastúlkuna hans Paco Ra-
banne og það sem hún ber á
höfðinu á að slá tvær flugur í
einu höggi, vera bæði hattur og
h'árkolla. Á þriðju myndinni
sjáum við svo gyðjuhjálm frá
Paeo Rabanne.
Dökkir
sokkar
Gyðjuhetta.