Alþýðublaðið - 28.07.1967, Síða 10
ASTA
Skipi® hvarf aidrei úr augsýn, en sklpshöfnin var horfin án
þess að nokkur skýring værí fi niianSeg
ÞAÐ var rok síðdegis í okt-
óber þegar skonnortan J C.
Cousins, undir stjórn Hans Zei-'
ber, skipstjóra, lagði frá litlu
hafnarborginni Astoria við
mynni Columbia-fljótsins og
sigldi af .stað og þannig iiófst
lnn ferðin, sem endaði á svo dul
arfullan líátt. Skonnortan sigldi
eins og Marie Celeste án þess
að nokkur stjórnaði henni, en
andstætt Marie Celeste þá voru
sjónarvottar í landi er horfðu á
að J. C. Cousins sneri við og
rak mannlaus á land.
En síðan hefur aldrei heyrzt
frá .Zeiber skipstjóra eða hinni
fimm manna áhöfn.
Zeiber var mjög hreykin af
skipi sfnu. Það hafði upphaflega
verið byggt sem skemmtisnekkja
fyrir milljónamæring., og var
skipið áttatíu og sjö fet og tveggj
a mastra og það fannst ekki sú
skonnorta sem hefði við J. C.
Cousins.
í HÆTTU
Þennan októberdag árið 1894
stýrði hann skonnortunni í gegn-
um skurðina fyrir framan inn-
siglinguna að höfninni.
Það var mjög hættuleg inn-
. sigling og leifar meira en 100
skipa gáfu þögulan vitnisburð
um þá hættu, sem stöðugt ógn-
aði þeim skipum sem sigldu
þessa leið, án þess að kunnugur
og þrautreyndur skipstjóri væri
við stýrið.
Áhöfnin vann sín störf, án þess
að vita, hvað í vændum var.
Um miðjan daginn kastaði J.
C. Cousins akkerum fyrir utan
Fort Stevens til að bíða eftir
flæði. Veiðimaðurinn á Cape Dis
appointment skrifaði hjá sér, að
skonnortan hefði létt akkerum
nákvæmlega klukkan fimm.
Seinna sáu svo strandverðirnir í
Canbyvjtanum að skonnortan
sigldi til hafs.
HJÁLPAR ÞURFI.
Strandverðirnir horfðu á eftir
skonnortunni með kíkjum og
dáðust að því hversu vel hún fór
í sjónum, líktist risastórum höfr
ungi.
Allt í ejnu snéri hún við og
sigldi aftur að ströndinni
Strandverðirnir ímynduðu sér,
að einhver hefði veikzt skyndi-
lega og að Zeiber skipstjóri ætl
aði að fara með sjúklinginn í
land.
Þeir gáfu því merki til lands
að lijálpar væri þörf. Skonnort-
an sigldi á fullum hraða að
sandrifi. Og fólkið, sem á horfði
úr iandi bjóst við því, að segl-
in yrðu lækkuð. '
En hvað var Zeiber skip-
stjóra? Var hann drukkinn eða
brjálaður? Eftir mínútu myndi
skútan stranda.
ENGINN ÓTTI,
Þeir sem á horfðu, trúðu vart
sínum eigin augum, þegar skonn
ortan þaut áfram og rakst beint
á sandrif,
Hún lagðist á hliðina og skalf
eins og sært dýr þegar stórar
bylgjurnar köstuðust á hana.
En enginn maður kom í ljós
á þilfarinu. Og enginn reyndi að
yfirgefa skipið.
Strandverðirnir fóru fyrstir um
borð í J.C. Cousins. Þeir sáu,
að allt var í lagi. Björgunarbát-
urinn var óhreyfður. Ekkert
sýndi, að ofsahræðsla hefði grip
ið um sig um borð.
— Zeiber skipstjóri, hvar eruð
þér? hrópuðu þeir, en svar barst
ekkert, aðeins garg sjófuglanna
rauf kyrrðina.
EKKERT LÍFSMARK,
Ég skil þetta ekki. .. muldraði
einn mannanna. — Hvar eru
þeir allir? Þeir virðast hafa guf-
að upp.
Og það var farið undir þiljur.
Þar hafði verið borinn á borð
matur, en hann var óhreyfður og
var heitur enn þá.
í öskubakka lá vindill og
brann smám saman. — Ekkert
sýndi að átök eða bardagi hefði
átt sér stað.
Tekið hafði verið til í káetun-
um. en líf var hvergi að sjá. Og
í skipsbókinni var ekkert, sem
gat gefið til kynna, hvað hefði
komið fyrir Zeiber skipstjóra og
menn hans. Eithvað hlýtur að
hafa komið þeim 'til að hlaupa
fyrir borð?
Kíkjunum var beint á haf út,
en ekkert óvenjulegt var að sjá,
HVAÐ KOM FYRIR?
Kannski skipið hafi farið að
leka og þeir liafi ætlað að koma
því að landi, sagði einhver.
— Nei, það fannst hvergi vatns
dropi, sagði yfirmaður strand-
varðanna. — En það sem mér
finnst undarlegast er, hver stóð
við stýrið þegar skútan snéri og
stefndi á land?
En það hefur aldrei fengizt
svar við þessari spurningu.
Næstu vikur eftir strandið var
leitað að líkum á öllum stönd-
um í kring, en ekkert kom í Ijós.
Og þetta er allt, sem vitað
er. Um þennan atburð hafa
margar kenningar myndazt.
Ein er á þá leið, að áhöfnin
hafi gert uppreisn, hafi varpað
skipstjóranum fyrir borð og yfir
gefið skipið. En björgunarbátur-
inn hékk á sínum stað.
Sumir hafa haldið því fram
statt og stöðugt að skipstjórinn
og áhöfn hans hafi verið rænt
um borð í fljúandi disk. ... og
það er víst ekki verri tilgáta en
hver önnur, að minnsta kosti
hvarf áhöfn J.C. Cousins svo
skyndilega, að engu var líkara
en að þeir hafi orðið uppnumd-
ir.
Þeir undruSust að skipið
sneri skyndilega við eins og
eitthvað væri að. Fyrir
skammri stundu hafði það
siglt til háfs, en sneri svo
aftur án þess að það hyrfi
nokkurn tima sj’ónum
þeirra. Hvað gat verið að?
Sennilega einhver veikur,
En raunvruleikinn var furðu
legri en nókkurn óraði fyrir.
Bítia - bíll
MÖRGUM finnst hann sjálf-
sagt sér.kennilegur Rolls Royc-
inn á myndinni. John Lennon
fannst hann sjálfur ekki nógu
áberandi, að aka bara í venju-
legum Rolls Royce, svo að
hann lét mála bílinn til að
allir vissu, hver þar væri á
ferð.
Syrpa um allt og elckert
Ungfrú heimur
trúlofuð
HIN indverska Rita Faria,
sem krækti sér í nafnbótina
ungfrú Veröld í fyrra, hefur
nú skýrt frá því opinberlega,
að hún sé trúlofuð lögfræðingi
frá Los Angeles, David Gor-
ton að nafni. Þau hittust, þeg-
ar Gorton var leiðsögumaður
hennar í Hollywood.
10 28. júlí. 1967
ALÞÝÐUBLAÐIÐ