Alþýðublaðið - 12.08.1967, Page 1
Laugardagur 12. ágúst 1967 — 48. árg. 177. thl. Verð 7 kr.
Færeyingar og
Áland fá að~
ild að ráðinu
JHARALDUR ríkisarfi Noregs heimsótti Háskóla
fslands og Þjóð'minjasafnið síðdegis I gær, en
fyrr um daginn hafði hann farið í Fossvogskirkju*
garð og lagt blómsveig á leiði látinna Norðmanna.
Myndin hér að ofan var tekin við komu Krón-
prinsins í Háskóla Islands og sést hann á mynd-
inni ásamt háskólarektor, prófcssor Ármanni Snæ-
varr, skoða einn af dýrgripum stofnunarinnar.
Frá heimsókn Haralds ríkisarfa segir i frétt
annars staðar í blaðinu í dag. — Sjá bls. 3.
TALIÐ er nú fullvíst að Færeyjar og Áland muni fá
aðild að Norðurlandaráði, segir danska blaðið Aktuelt
í frétt. Málið verður tekið til meðferðar á fundl utan-
ríkisráðherra Norðurlandanna í Helsingfors 22. og 23.
ágúst n. k. i íi
Danska ríkisstjórnin gerði á s.
1. ári tillögu run að Færeyjum
yrði veitt aðild að Norðurlanda-
ráði. Þá var reiknað með því að
Álandseyjar myndu fara fram á
sömu réttindi og Færeyjum voru
ætluð í Norclarlandaráði og var
málið því fengið í hendur finnsku
og dönsku ríkisstjórnunum til
meðferðar. Álandseyjar hafa sem
kunnugt er sjálfstjórn ýmissa
mála líkt og Færeyjar en eru að
öðru leyti í tengslum við Finn-
land. Tilmæli bárust frá Álend-
ingum til finnsku ríkisstjórnarinn
ar í júní s. 1. Forseti Finnlands,
Urho Kekkonen, hefur lýst sig
fremur hlynntan óskum Álands-
eyinga.
Samkvæmt tillögum, sem gerð-
ar hafa verið af Dönum er gert
ráð fyrir að Færeyjar fái tvo
......
| 260 milljónum variö til
I hafnargeröa á þessu ári
Á ÞESSU ári er áætlað að varið verði til hafnar-
gerða samtals 260 milljónum króna. í fram-
kvæmdaáælun Vita- og hafnarmálastjórnarinnar
er áætlaður kostnaður sundurliðaður eftir stöðum,
og því, hvort um er að ræða almennar hafnir eða
landshafnir. Til almennra hafna verður varið
1086 milljónum króna, en til landshafna 36.8
milljónum króna.
Framkvæmdaáætlunin tekur
ekki yfir hafnir, sem gerðar
eru án ríkisstyrks, en þaö eru
Reykjavíkurhöfn og Straums-
víkurhöfn, sem Hafnarfjarðar-
bær stendur fyrir í samráði
við íslenzka álfélagið h. f. Til
þeirra verður varið samtals um
120 milljónum á yfirstandandi
ári. Á opnunnj í dag getur að
lita myndir af framkvæmdum
við þær hafnir á landinu, sem
unnið er við í ár samkvæmt
framkvæmdaáætluninni.
Af þeim 145 milljónum, sem
áætlunin gerir ráð fyrir að var
ið verði til hafnargerða, renna
um 55 milljónir til hafnargerða
í kaupstöðum utan Reykjavík-
ur, þar af fer nær helmjngur
eða 25,8 milljónir króna til
Akureyrarhafnar. Tli lands-
hafna er áætlað að verja 36,8
milljónum króna eins og fyrr
segir og skiptast þær á þrjár
hafnir; Þorlákshöfn og Njarð-
vík. sem hljóta 16 milljónir
hvor og Rifshöfn, en þar á að
vinna fyrir 4,8 milljónir króna.
Þær tvær hafnir, sem eru
utan við framkvæmdaáætlun-
ina, eru Reykjavíkurhöfn og
Straumsvíkurhöfn. Þar eru á-
ætlaðar geysimiklar framkv. á
þessu ári. í Reykjavík er t.
d. áætlað að verja 40—45 millj.
króna til Sundahafnar, en um
20 millj. kr. til gömlu hafnar-
innar. í Straumsvík er allt í
nokkurri óvissu vegna verkfalls
þess, sem stöðvar allar hafnar-.j
framkvæmdir i bili, en engu
að síður má reikna með því að
þar verði unnið fyrir 50—60
millj. kr. á þessu ári. Höfnin
á að vera fullgerð vorið 1969
og eins og fyrr segir, er hún
gerð í samráði við íslenzka ál-
félagið, sem hefur skuldbundið
sig til að endurgreiða bygging-
arkostnaðinn á 25 árum.
Þess má að lokum geta, að
síðasta alþingi samþykkti nýja
löggjöf um hafnarmál. Gerir
hún ráð fyrir aukinni ríkis-
aðstoð við vissar tegundir hafn
armannvirkja, svo sem ytri
hafnargarða o. fl. Þessi nýju
lög taka gildi um næstu ára-
mót og hafa því ekki áhrif á
framkvæmdaáætlun þessa árs,
sem hér hefur verið vitnað í.
fulltrúa í Norðurlandaráð kjörna
af landsþinginu og fulltrúa fyrir
landsstjórnina. Sennilega mundi
Áland fá sama rétt til þátttöku
í Norðurlandaráði og Færeyjar.
Verði Danir og Finnar sam-
mála um inngöngu þessara eyja,
kemur málið fyrir Oslofi.ad ráðs-
ins í febrúar 1968, en ekki mundu
þó eyjarnar geta hafið þátttöku
sína í Norðurl.ráði fyrr en þing
íslands, Danmerkur, Noregs, Sví-
þjóðar og Finnlands haía gert
hjá sér nauðsynlegar lagabreyt-
ingar. ,
ÁRÁS GERÐ
✓
A
SKIP
IIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIHIUIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHIIinillllllllHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIHHHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIll
Moskva 11/8 (NTB-Reuter).
Sovétríkin báru í dag fram mótr
mæli við Kínastjórn vegna þe6s
að hópur Kínverja hafði ruðzt
um borð í sovézkt skip 4 hafnar-
bænum Dagny, beitt áböfnina of-
bendi ogr rænt skipstjóra nnm.
Að sögn Tass-fréttat fofunnar ,
segir Sovétstjórnin í mólniælaorð,,
sendingunni að Kínverjarnir htafi
hagað sér eins og glæpamenn.
gagnvart sovézka skipinu og til-.
gangurinn hafi verið sá að gera
samskipti Sovétríkjanna 03 Kína
verri en þau eru. Samkvæmt frétta
stofunni var skipið kyrrsett I
Dagny í morgun og skipstjórinn
fluttur á land úr skipinu Um leið
hafi um þúsund manna liópur safn
azt að skipinu og allmargir hafi
ruðzt um borð og igert tilxaun til
að beita skipshöfnina oíbcldi. Múg
urinn ritaði vígorð fjai dsamleg
Sovétríkjunum víða um skipið og
móðgaði Sovétríkin eftir mætti,
segir í orðsendingunni. Þá segir
þar einnig að þetta hafi gerzt f
viðurvist kínverskra löggæzlu-
manna og með fullu -samþykki
þeirra.