Alþýðublaðið - 12.08.1967, Page 10
HÁRBÐ MÁ ÞVO
OFT I VIKU
Oft toöfum við lesið það og
heyrt, að helzt eigi ekki að þvo
liárið oftar en einu sinni í viku,
því að þá verði þurrt hár enn
þurrara og feitt Ihár verði enn
feitara. En það er allt í lagi
að þvo hárið oftar en einu sinni
í viku og fólk, sem hefur feitt
hár getur þvegið sér um hárið
á hverjum degi, án þess að það
fitni um of.
Notið litla hársápu.
En sé hárið þvegið svo oft,
skal þó nota litla hársápu
(shampó), aðeins þvo hárið úr
henni einu sinni en ekki tvisvar
eins og venjulega er gert. Ekki
á að skola hárið í allt of heitu
vatni og heldur ekki þuwka hár
ið við of mikinn hita. Að þvo
hárið tvisvar í viku, ef þarf, er
mjög hæfilegt og þurrkar hárið
ekki of mikið, en gott er að nota
hárnæringu öðru -hvoru.
Hreint og heilbrigt hár.
Það liggur í augum uppi, að
hreint hár er heilbrigt hár. Og
hárið getur ekki verið hreint í
heila viku, sérstaklega ekki yf-
ir sumartímann, þegar mjög
heitt er í veðri. Það virðist því
eðlilegt að álíta. að heilbrigðara
sé fyrir hársvörðinn, að ryk og
sviti sé þvegið í burt, en eins
og áður segir með því skilyrði,
að ekki sé notað of mikið af hár
sápu.
Hvernlg á að fara
með afskorin blóm
Afskorin blóm lialdast jafn-
lengi lifandi, hvort sem þau erú
látin standa í l'/í cm eða 25 cm
.djjípu vatni, samkvæmt því sem
. rannsóknir í Bandaríkjunum
hafá sýnt. En. nellikur, páska-
liljur og túlipanar standa tveim
ur til þremur dögum lengur, ef
þau standa aðeins í l'A cm
djúpu vatni,. en rósir standa
lengst, ef að þær standa í 15
cm djúpu vatni.
Til þess að blómin standi
lengst er bezt að skera þau að
kvöldi til, en þá er mest vatn
I þeim.
Bióm með mjólkursafa eins
og fíflar, valmúgur og jóla-
stjarna geta aðeins haldizt lif-
andi afskorin, séu þau strax
sett í sjóðandi vatn í 10 - 25 sek
úndur.
Tfjákenndar plöntur eins og
rósir, ljónsmunnur, asters og
nellikur haldast bezt lifandi ef
skorið er neðst af stiiknum.
Blómin fá vatnið í gegnum
skurðflötinn og þess vegna er
alveg gagnslaust að merja hánri
eða merja börkinn af — það
hefur aðeins þau áhrif að vatnið
'í vasanum rotnar fyrr.
Volgt vatn er bezt.
Ef að blómin eru lin á að
setja þau í volgt vatn — ca 40
gráður á Celsius og geyma þau
í köldu herbergi. Blómin eiga
betra með að notfæra sér volgt
vatn heldur en kalt.
Það er gott að skola vasana
eftir að þeir hafa verið þvegnir
með sýklavarnarefni. Einnig er
hægt að setja ofurlítið út í vatn
ið á blómunum, t.d. 25 dropa af
Rodalon í lítra af vatni og það
mun ger,t á mörgum spítölum,
því að sýklar eiga mjög gott
uppdráttar í vatni á blómum. Ef
að slíkt efni er í vösunum, þarf
ekki að skipta um vatn á blóm-
unurn á hverjum degi.
Sykur og edik.
Edik — 1 matsk. í lítra — get
ur hindrað bakteríumyndun og
liefur einnig þau áhrif að rósir
haldast lengur.
Tvær uppskriftir
Súkkulaðiterta.
60 g suðusúkkulaði,
2Vh matsk. vatn,
3 egg,
140 g sykur,
70 g hveiti,
örlítið lyftiduft.
Súkkulaðibráð:
160 g flórsykur,
2 matsk. heitt vatn,
60 g brætt súkkulaði,
1 matsk. saxaðar möndlur,
Brjótið súkkulaðið í bita og
bræðið það í vatninu við lágan
hita. Látið síðan kólna. Þeytið
saman eggin og sykurinn yfir
gufu, þar til það er þykkt og
létt. Takið þá af hitanum og
þeytið enn í tvær mín., þar til
deigið kólnar. Setjið þá hveitið
saman við, einnig lyftiduftið og
súkkulaðið. Bakist í meðalheit-
urn ofni (375 gráður F.) Kakan
er svo smurð að ofan með súkku
laðibráðinni og möndlum sáldr-
að yfir. Súkkulaðibráðin er búin
þannig til: Sigtið flórsykurinn
og hrærið hann síðan saman við
vatnið, svo er súkkulaðinu bætt
í.
Súkkulaðiábætir.
(Uppskríft fyrir 2).
2 egg,
60 g suðusúkkulaði,
1 desertskeið romm eða vatn.
Skiljið rauðurnar frá hyítun-
um. Brjótið niður súkkulaðið og
bræðið það í skál yfir gufu, á-
sarnt vatninu eða romminu.
Hrærið síðan eggjarauðurnar
saman við súkkulaðiblönduna og
kælið aðeins. Stífþeytið eggja-
hvíturnar og bætið út í. Setjið
síðan í desertskálar og kælið.
áður en borið er fram.
Öll blóm — líka afskorin —
hafa þörf fyrir næringu, sérstak
lega sykur. Þegar blómin eru
skorin, er alltaf einhver sykur
í bæði blómi og stilk, og mest
á sólrikum dögum.
Það þarf ekki að gefa blóm-
unum eins mikinn sykUr, ef þau
eru sett í kæliskáp strax eftir
að þau hafa verið skorin. Blóm-
in eru þá sett í plastpoka og ekk
ert vatn á þeim og þau
eiga að vera í kæliskápnum í 4-
6 klukkustundir. Ef að þarf að
fara með blóm á stað fjarri
heimilinu, þá er bezt að geyma
þau svona og flytja þau svo í
plastpoka, án þess að þau hafi
verið í vatni. Þegar þau eru
komin á áfangastað, eru þau
sett í volgt vatn f köldu her-
bergi.
Ef við viljum gefa afskornu
blómunum næringu, er auðveld
ast að kaupa sérstakt efni til
að næra þau með, en það fæst í
blómabúðum. Það inniheldur
auk sykurs sýklavarnarefni.
Einnig má nota venjulegan syk
ur. Sum blóm þurfa sérstaka
sykurblöndu, en það verður að
setja líka í vatnið sýklavarnar-
efni, því að annars rotnar það
svo fljótt.
Það er mikilvægt, ef á að
gæta vel afskornu blcmanna, að
þau standi á köldum stað. Ef að
of heitt er í stofum eða í glugg-
um þaf sem blómin standa, get
ur fallegur blómvöndur fölnað
á svipstundu og hvort sem hann
hefur fengið næringarefni eða
ekki.
,10 1Z á2úst 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ