Alþýðublaðið - 07.10.1967, Qupperneq 1
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
8.—14. oktðber1967
næstu viku
Krakkar léku
saman
Ef að líkum lætur verður glatf
á hjalla á sjónvarpsskerminum á
mánudagskvöldið klukkan hálf níu.
Þá koma piltarnir í Ríó tríóinu
með skemmtiþátt, sem þeir nefna
„Krakkar léku saman. .Þeir
munu syngja gömul lög og ný,
flest af léttara taginu enda hafa
þeir félagarnir oft komið fólki í
gott skap með frjálslegri fram-
komu sinni og skemmtilegum
söng. Á dagskránni eru sem sagt
gamanvísur og önnur góð lög þ.á.
m. eitt frá 13. öld eitt heimatil-
búið og hin úr ýmsum áttum. Auk
Ríó piltanna, Halldórs Fannars,
flelga Péturssonar og Ólafs Þórð
arsonar, koma fram Margrét Stein
arsdóttir, sem leikur á 'flautu og
Sigurður Rúnar Jónsson, en hann
leikur á ótal hljóðfæri, m.a. róm-
verskan gítar og rússneskt bala-
laika. Þar að auki mun hópur af,
kátu ungu fólki taka undir í söngn
um.
Ríó tríó ásamt gestum.
Sjónvarpið
í dag
í þættinum „Endurtekið efni''
kl, 17 í dag endurtekur sjónvarpið
(þittinn: Munir og minjar. Þór
Magnússon, safnvörður talar um
uppgröft að Hvítárholti í Hruna
mannahreppi. Örn Eiðsson stýrir
íþróttaþættinum í forföllum Sig-
urðar Sigurðssonar. Ensku liðin
Chrystal Palace og Cueenspark
Rangers leika „leik vikunar” og
einnig eru sýndir kaflar úr leik
Vals og Luxumborgarmeistaranna
um síðustu helgi.
Utvarps-
stöðvar
Langbylgjur m k*
Reykjavík 1435 20*
Hellissandur 201 1489
Siglufjörður 212 1412
Akureyri 407 737
Húsavík 212 141*
Skúlagarður 202 1484
Kópasker 198 1510
Raufarhöfn 202 1484
Þórshöfn 198 1510
Eiðar 1435 209
Djúpivogur 212 1412
Álftafjörður 265 1133
Lón 212 1413
Höfn 451 665
Örbylgjur mc
Reykjavík 94
Reykjavík 98
Langamýri 91,5
Raufarhöfn 91
Neskaupstaður 91
Vík í Mýrdal 98
Vestmannaeyjar 89,1