Alþýðublaðið - 15.10.1967, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 15.10.1967, Blaðsíða 10
10 Sunnudags AlþýðublaðiS — 15. okt. 1967 Þetta málverk er eftir Svein Björnsson listmálara sem nú sýnir í Bogasalnum. Aðsókn hefur verið dágóð og nokkrar myndir selzt. Sýningunni lýkur í kvöld. Verstöðin Framhald af bls. 7. 10, sem landaði 76 tonnum. Karls efni er samt að landa í dag, 12. 10, 70 - 80 tonnum, og er hann búinn að vera 12 daga á veiðum. Ekki er von á löndun togara hér í Reykjavík í náinni framtíð, nema þegar þeir geta ekki skrap- að í siglingu og er þá' lágmarkið yfirleitt um 100 tonn. Það er því heldur aumt ástandið í frysti- húsunum en þau munu flest liggja með nær fulla frystiklefa af frystum fiski. Sölur togaranna erlendis hafa verið þokkalegar og ekkert fram yfir það þegar búið er að draga tolla, löndunarkostnað, umboðs- (Jfrrkrunar, rengikranar, Slöngukranar, Blöndunartæki. Burstafell bygglngavöruverzíua Réttarholtsvegl S, Sfml 5 88 40. laun og fleira frá söluverðinu. í viKunni seldu Úranus 121,8 t. fyrir 113.850 mörk, Hallveig Fróðadóttir 122 t. fyrir 139.422 mörk og Sigurður 226,1 t. fyrir 203.198 mörk. Ingólfur Arnarson á að selja á mánudag og er með um það bil 145 tonn og einnig Surprise og selja þeir báðir í Þýzkalandi. Maí hef ég heyrt að sé með 100 tonn eftir viku og Þormóður Goði með um 80 tonn eftir sama tíma. Jón Þorláksson hefur verið i vélarhreinsun en mun fara í dag. Flestir munu togararnir vera við suðaustur- ströndina að veiðum, þar sem Landhelgisgæzlan tafði Hallveigu Fróðadóttur í 12 klukkustundir áður en hún sleppti henni, en það er kunnara en frá þurfi að segja þá mega togarar ekki vera fyrir innan línu ef þeir eru ekki með uppbundin troll og helzt eiga þau að vera skraufaþurr. Það verður vonandi éinn sýknu- dómurinn í viðbót í safnið hjá Landhlgisgæzlunni, dómurinn yf- ir skipstjóranum á Hallveigu Fróðadóttur. Á meðan þeir töfðu hana var fjöldi báta langt fyrir hana en það er líklega meira spennandi að taka togara en togbáta. Pétur Axel Jónsson Járniðnaðar menn mót- mæla EFTIRFARANDI samþykkt var gerð á stjómarfundi Félags járn- iðnaðarmanna föstudaginn 13. okt. 1967 : „Stjórn Félags járniðnaðar- manna mótmælir harðlega þeirri kjaraskerðingu, sem forsætisráð- herra boðaði á Alþingi og kom til framkvæmda 12. og 13. þ. m. — Kjaraskerðing þessi er fram- kvæmd með stórfelldum verð- hækkunum á algengustu neyzlu- vörum og hækkun á ýmsum al- mennum gjöldum heimila. Kjara- skerðingin er þeim mun tilfinnan- legri sem atvinnutekjur ýmissa launþega — ekki sízt járniðnaðar- manna — hafa á sl. ári dregizt verulega saman vegna minnkandi atvinnu. Mun sú skerðing ein hafa numið allt frá 25—30% í þeim til- fellum, þar sem öll aukavinna hefur verið afnumin. Af þeim sök- um var aukinn kaupmáttur dag- vinnulauna orðinn sérstök nauð- syn. Jafnframt lýsir stjórn Félags járniðnaðarmanna furðu sinni á markleysi svonefndra verðstöðv- unarlaga” sem gilda til 31. þ. m. varðandi vöruverðshækkanir. — Virðist nú auðsætt að tilgangur lag anna hafi verið sá einn að hindra að launþegar gætu samið um sann- gjarnar kjarabætur meðan lögin væru í gildi. Með hliðsjón af framangreindu hvetur stjórn Félags járniðnaðar- manna verkalýðshreyfinguna og heildarsamtök hennar til að beita sér fjTÍr samstilltum aðgerðum til að hrinda þeirri kjaraskerðingu sem fram er komin og tryggja nauðsynlega hækkun á kaupmætti daglauna.” SERVlETTU- PRENTUN SÍMI 32-101. Kennsla í rúss- nesku við háskólann Kennsla í rússnesku. í haust tekur til starfa nýr rússneskur sendikennari við Heimspekideild Háskóla íslands, ungfrú A. J. Shirochenskaya. Kvöldnámskeið í rússnesku verða haldin fyrir almehning í vetur, og eru væntanlegir nemendur beðnir að koma til viðtals sem ihér segir: byrjendur: .þriðjudag 17. okt. kl. 8.15 e.h. í 11. kennslu stofu, framhaldsncmendur: þriðju dag 17. okt. kl. J.15 e.h. í 11. kennslustofu. Gríma Frh. af 2. síðu. Gríma var stofnuð haustið 1961. Fyrsta verkefni hennar var Læst- ar dyr eftir Jean Paul Sartre. Gríma er félag ungra Ieikara, sem lokið hafa prófi frá leiklist- arskóla, en enn hafa ekki fengið fast starf við leikhús. Einnig hafa rétt til inngöngu í félagið menn með reynslu og þekkingu á hin- um ýmsu störfum innan leikhúss- ins svo og leikritahöfundar. Núverandi stjórn Grímu er þannig skipuð: Erlingur Gíslason foi-maður, Brynja Benediktsdóttir, Jón Júlíusson, Sigurður Karls- son, Þórhildur Þorleifsdóttir, en í varastjóm eru Helga Hjörvar og Sigurður Örn Arngrímsson. AFMÆLI íþróttir Framhald af 11. síðu staklega tveir þeir síðustu milli Vals og Fram og KR og Ármanns. Fyrsti leikurinn var milli Vík- ings og Þróttar og lauk með sigri þeirra fyrrnefndu, 13 gegn 6. Val- ur vann Fram með 6 gegn 5 og jafntefli varð milli KR og Ár- manns, 7 gegn 7. lesið Alþýðublaðið -Sl'&S Bergsteinn A. Bergsteinsson, fisk matstjóri verður sextugur á morg un, 16. okt. — Hann verður að heiman á afmælisdaginn. DAVE PIKE leikur annað kvöld Jazzklúbbur Reykjavíkur á von á bandaríska víbrafónleikaranum Dave Pike til Reykjavíkur á morg un, mánudag, og mun hann leika þá um kvöldið í Tjarnarbúð. — Tríó Þórarins Ólafssonar leikur með honum. Pike leikur hér að- eins þetta eina kvöld, þar sem hann kemur hér aðeins við á leið sinni til New York. VELTUSUNDI 1 Sirni 18722. Ávallt fyrirllggaadi LOFTNET off XOFTNETSKERFI FYRIR 2'JÖLBÝLISHÚS. Ný verzlun - Höfum opnaö SérverzEun með: GLUGGÁTJALDAEFNI HÚSGAGNAÁKLÆÐI HANDKLÆÐI, BORÐDÚKA O.FL. Áklæði og gluggatjöld Skipholti 17a - Sími 17563

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.